Norðurálsmenn halda áfram leikriti 14. mars 2008 17:16 MYND/GVA
Bergur Sigurðsson, framkvæmdastjóri Landverndar, segir forsvarsmenn Norðuráls hafa haldið áfram leikriti í morgun í tengslum við byggingu álvers í Helguvík til þess að láta líta svo út að þeir séu búnir að landa málinu. Hans segir samtökin bíða eftir úrskurði umhverfisráðuneytisins varðandi kæru samtakanna vegna álversframkvæmdanna. Fréttir bárust af því í morgun að forsvarsmenn Norðuráls hefðu hafið framkvæmdir við álver í Helguvík eftir að hafa fengið í hendur byggingar- og framkvæmdaleyfi frá bæjarstjórnum Garðs og Reykjanesbæjar. Framkvæmdirnar snúa fyrst og fremst að því að girða svæðið og leggja vegi að því en stefnt er að því að byrja að byggja kerskála álversins um leið og semst við verktaka. Þarf að breyta skipulagi í sjö bæjarfélögum Bergur Sigurðsson, framkvæmdastjóri Landverndar, segir að það komi honum ekki á óvart að Norðurálsmenn séu byrjaðir að moka. Menn hætti ekki í miðju leikriti. „Þetta er leikrit sem þeir halda áfram í þeim tilgangi að láta líta út fyrir að það sé búið að landa málinu," segir Bergur. Það sé langt frá því að vera satt. „Þeir eru til að mynda ekki komnir með losunarheimildir og til þess að verkefnið nái fram að ganga þarf að breyta skipulagi í sjö sveitarfélögum sem ekki njóta góðs af álverinu sem slíku," segir Bergur. Það séu Ölfus, Kópavogur, Reykjavík, Hafnarfjörður, Grindavík, Vogar og Garðabær en um þessi sveitarfélög munu raflínur liggja frá orkuverum Orkuveitu Reykjavíkur. Bergur minnir á andstöðu Hafnfirðinga við raflínur í sveitarfélaginu í tengslum við kosningar um stækkun álvers Alcan í Straumsvík í fyrra. „Þeir vildu ekki raflínurnar fyrir álverið sitt, skyldu gera það fyrir álverið í Helguvík," spyr Bergur. Kæra ákvörðun sem fólgin sé í áliti Skipulagsstofnunar Aðspurður segir Bergur að Landvernd muni bíða eftir úrskurði umhverfisráðuneytisins um kæru sem samtökin lögðu fram vegna framkvæmdarinnar. Bergur bendir á að ekki megi gefa út framkvæmdaleyfi fyrir matsskyldum framkvæmdum nema álit Skipulagsstofnunar um umhverfisáhrif liggi fyrir. Skipulagsstofnun hafi gefið út sitt álit en Landvernd kæri ákvörðun sem fólgin sé í álitinu. Norðurál heldur því fram álit Skipulagsstofnunar sæti ekki kæru til ráðherra og þar sem byggingarleyfi byggi á áliti Skipulagsstofnunar „verður ekki séð að umrædd kæra hafi nein áhrif á útgáfu byggingarleyfis og hefur Norðurál því haldið áfram vinnu við undirbúning verkefnisins samkvæmt áætlun," sagði í tilkynningu félagsins í gær. Bergur bendir hins vegar á að Landvernd kæri ákvörðun sem fólgin sé í áliti Skipulagsstofnunar, það er að Skipulagsstofnun nýti ekki heimildir sínar í lögum til þess að gera heildarmat á álversframkvæmdunum. „Landvernd krefst þess að álit Skipualgsstofnunar verði ógilt og að fram fari lögformlegt umhverfismat á framvæmdunum í heild sinni, álveri og flæðigryfju, háspennulínum, virkjunum og hafnarframkvæmdum," segir í kæru Landverndar. Bergur bendir á að ráðherra beri í úrskurði sínum að taka afstöðu til kröfu samtakanna.
Mest lesið Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Innlent Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu Innlent „Þetta vita Einar og Björg“ Innlent Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Innlent Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Innlent Býr sig undir það versta en vonar það besta Innlent „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Innlent Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Innlent Fleiri fréttir „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Draugagangur, búrtíkur og öngull í rassi „Þetta vita Einar og Björg“ Skotið fór í gegnum handlegg og endaði í öxl Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann Taka ásýnd Varmár alvarlega og stöðva borframkvæmdir Mun dæma meirihlutann af verkunum Sjálfstæðismenn og Framsókn í eina sæng í Múlaþingi „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Kolbeinn tekur við af Bryndísi sem ráðuneytisstjóri Vilja verja pláss íslenskra sjómanna Meirihluti myndaður í Viðey og Hildur nýr borgarstjóri Hildur Björnsdóttir nýr borgarstjóri Áherslur meirihlutasáttmálans: Svari ákalli um breytingar Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Þögull sem gröfin Sjá meira