Erlent

Beinafundur skelfir foreldra Madeleine

Kate og Gerry McCann biðjast fyrir í kirkju.
Kate og Gerry McCann biðjast fyrir í kirkju. MYND/AFP
Foreldrar Madeleine McCann gengu í gegnum enn eina kvölina í gær þegar þeim var tilkynnt að kafarar hefðu fundið poka með beinum í uppistöðulóni. Kafararnir voru á vegum portúgalsks lögmanns sem segist hafa upplýsingar úr undirheimum um að Madeleine hafi verið myrt og henni hent í risastórt uppistöðulón.

Lögmaðurinn Marcos Aragao Correia sagði breska blaðinu Sun að tveir pokar hefðu fundist. Einn með litlum beinum en ekki væri ljóst hvort um væri að ræða mannabein. „Ef svo er líta þau út fyrir að vera af fingrum barns, þau eru of stór til að vera af fullorðnum," sagði hann.

Samkvæmt heimildum Sun sagði einnkaspæjari Kate og Gerry frá beinafundinum í Barragem do Arade.

Þetta var annað skiptið sem kafarar leituðu í vatninu sem er 20 mínútna keyrslu frá Praia da Luz þaðan sem stúlkan hvarf 3. maí síðastliðinn. Áður hafði lögregla kannað svæðið.

Clarence Mitchell talsmaður fjölskyldunnar sagði að staðfest hefði verið við hann seinna að beinin væru af dýri.

Spænsk sjónvarpsstöð flutti einnig fréttir af því að beinin væru ekki menns, en tilgreindi ekki hvaðan upplýsingarnar komu.

Mitchell sagði að leitin í vatninu hefði haft mikil áhrif á foreldrana og hún hefði dregið úr þeirra eigin leit. „En við höldum áfram að trúa að Madeleine sé á lífi."

Lögmaðurinn hefur eytt hundruðum þúsunda króna í leitina af stúlkunni. Hann fékk upplýsingar um að henni hefði verið nauðgað áður en hún var myrt og henni síðan hent í vatn í nágrenni Praia da Luz. Þetta hafi gerst innan við 48 klukkustundum eftir að hún hvarf.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×