Innlent

Smíða kerskála um leið og samið verður við verktaka

Fyrstu framkvæmdir vegna álvers við Helguvík á Reykjanesi hófust í morgun og hefst smíði kerskálanna strax og samið hefur verið við verktaka. Sveitarstjórnarmenn af Suðurnesjum voru viðstaddir og afhentu Norðuráli framkvæmdaaleyfið formlega.

Framkvæmdirnar sem hófust í morgun eru vegna girðingar umhverfis svæðið og vegalagningar inn á það. Framkvæmdaleyfið var staðfest í fyrrakvöld og ætlar Norðurál ekki að bíða boðanna enda er þegar búið að tryggja næga raforku til starfsseminnar frá Orkuveitu Reykjavíkur og Hitaveitu Suðurnesja.

Þá verður á næstu dögum gengið til samninga við eitt hinna þriggja íslensku verktakafyrirtækja, sem buðu í byggingu kerskálanna og er stefnt að því að fyrsti áfangi versins með 150 þúsund tonna ársframleiðslu verði tekinn í notkun árið 2010.

Áform eru um að með öðrum áfanga versins verði framleiðslan 250 þúsund tonn á ári eða um það bil 50 þúsund tonnum afkastameiri en álverið í Straumsvík. Engin tímasetning hefur verið sett á þann áfanga enda veltur hann á raforkuöflun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×