Innlent

Telur ákvörðun um framkvæmdir í Helguvík sérkennilegar

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir segir ákvörðun Norðuráls að hefja framkvæmdir við álver í Helguvík sérkennilega. Hún segir það sérstakt þegar ríkið og sveitarfélög ganga ekki í takt í svo veigamiklu máli.

Undirbúningsframkvæmdir við byggingu álversins hófust í gær eftir að bæjarstjórnir Reykjanesbæjar og Garðs veittu Norðuráli byggingaleyfi fyrr í vikunni. Ákvörðunin er umdeild og líta margir svo á að enn séu of margir óvissuþættir uppi á borðinu til að hægt sé að hefja framkvæmdir.

Fyrr í vikunni lýsti Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra yfir furðun sinni ákvörðun sveitarfélaganna og gerði meðal annars athugasemdir við stjórnsýsluna í málinu.

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra og formaður Samfylkingarinnar, tekur undir gagnrýni Þórunnar. Ingibjörg bendir jafnframt á að enn eigi eftir að úthluta losunarkvótum sem eru af skornum skammti og að enn liggi ekki fyrir hverjir fái þeim úthlutað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×