Odinga hafnar samstarfi við Kibaki 5. janúar 2008 18:29 Fólk gengur ránshendi um verslanir sem hefur verið lokað vegna óeirðanna. MYND/AFP
Mwai Kibaki forseti Kenía segist tilbúinn að mynda þjóðstjórn til að binda enda á ringulreiðina í landinu eftir afar umdeild úrslit forsetakosninganna síðustu helgi. Stjórnarandstaðan hafnar samstarfi og krefst þess að kosið verði á ný. Kibaki forseti gaf út tilkynningu eftir fund hans með bandaríska sendifulltrúanum Jendayi Frazer sem nú er í Kenía til að miðla málum. Í henni sagði að forsetinn væri tilbúinn að mynda þjóðstjórn sem sameinaði ekki einungis þjóðina, heldur ynni að sáttum milli andstæðra fylkinga. Raila Odinga stjórnarandstöðuleiðtogi segist ekki hafa fengið boð frá Kibaki og afstaða stjórnarandstöðunnar sé óbreytt, hann verði að láta af embætti. Efna eigi til forsetakosninga á ný þar sem Kibaki sitji ólöglega í embætti. Enn er ólga víða í landinu,og í dag var meðal annars kveikt í kofum í Mathare fátækrahverfinu þar sem fylkingar forsetans og stjórnarandstöðunnar börðust með sveðjum. Myndir sýna lögreglu skjóta að hópnum með þeim afleiðingum að minnsta kosti einn lést samkvæmt kvikmyndatökumanni AP fréttastofunnar á staðnum. Fjöldi manns mun hafa orðið fyrir skotum lögreglu, en stjórnvöld halda því fram að vopnaðar sveitir beiti ekki ofbeldi. Frá því úrslit kosninganna urðu ljós síðustu helgi hafa pólitísk átök umbreyst í ættbálkaerjur á milli Kikuyu ættbálks Kibaki forseta og Luo ættbálks Odinga. Gripdeildir voru víða í dag og matarskorts er farið að gæta eftir óöldina síðustu viku. Íbúar fátækrahverfa í Naíróbí biðu í röðum eftir mat frá sjálfboðaliðum hjálparstofnana. Meira en 350 manns hafa látist og 250 þúsund flúið heimili sín í liðinni viku.
Mest lesið Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Innlent Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Innlent Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Innlent Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Innlent Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Innlent Hafi ekki hótað með keðjusög og að henda þolanda útbyrðis við Grænlandsstrendur Innlent Hafi aldrei farið í Reykholt Innlent Stolinn bíll fannst úti í á Innlent „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Erlent Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Innlent Fleiri fréttir Tilkynna refsiaðgerðir gegn háttsettum aðilum Alþjóðasakamáladómstólsins Telja Ísland geta liðkað fyrir inngöngu Svartfjallalands Stjórnarandstaðan leiðir með tíu prósentustigum í könnunum „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Grunnþjálfun hermannanna fer öll fram á Grænlandi Þrjátíu börn getin á frjósemisstofu með óþekktum kynfrumum Enginn árangur af fundi Kushner og Netanyahu Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Haraldur konungur lagður inn á spítala Átti í samskiptum við eftirhermu starfsmannastjóra Hvíta hússins Yfirheyra bandamenn sína í NATO Ellefu ára fangelsi fyrir að mótmæla stríði Pútíns „Ef Óman þvælist fyrir, sprengjum við þá í tætlur" Réttarhöldin gegn Murdaugh færð, fari þau yfir höfuð fram Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Trump tekur sér stöðu með Norður-Kóreu gegn Suður-Kóreu Hæsta stytta Evrópu af Maríu mey afhjúpuð Úkraína gæti átt heimasmíðaðar skotflaugar innan nokkurra mánaða Kushner mættur til Ísrael Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Fagnað á götum Kabúl Fannst hann ekki geta haldið áfram Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Tugir látnir eftir stóran jarðskjálfta Sjá meira