Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fáskrúðsfirðingum brugðið Fáskrúðsfirðingar vöknuðu upp við vondan draum í morgun þegar skyndilega voru þar tugir löggæslumanna í einhverri umfangsmestu lögregluaðgerð sem sögur fara af og er eðlilega brugðið. 20.9.2007 19:29
Greint frá fíkniefnafundi í dönskum fjölmiðlum Greint er frá fíkniefnafundinum á Fáskrúðsfirði í vefútgáfu danska dagblaðsins BT. Þar segir að tveir Íslendingar hafi verið handteknir í Kaupmannahöfn vegna málsins og að þá hafi danska lögreglan einnig lagt hald á fíkniefni. 20.9.2007 19:19
Krafist gæsluvarðhalds yfir mönnunum Alls hafa átta manns í þremur löndum verið handteknir í tenglum við það sem talið er stærsta fíkniefnamál Íslandssögunnar. Fimm þeirra voru handteknir hér á landi og verður gæsluvarðhalds krafist yfir þeim í héraðsdómi Reykjavíkur í kvöld. Þrír menn voru handteknir á Fáskrúðsfirði í morgun og tveir til viðbótar í Reykjavík. 20.9.2007 18:41
Síðasti borgarstjórnarfundur Árna Þórs Árni Þór Sigurðsson lét af störfum í fyrradag sem borgarfulltrúi í borgarstjórn Reykjavíkur. Árni var kosinn á þing fyrir Vinstri græna í vor og sat hann í dag sinn síðasta borgarstjórnarfund á þessu kjörtímabili. 20.9.2007 18:38
Impregilio ekki launagreiðandi starfsmanna starfsmannaleiga Hæstiréttur féllst í dag á varakröfu verktakafyrirtækisins Impregilo að því bæri ekki að greiða staðgreislu vegna launa portúgalskra starfsmanna. Mennirnir voru ráðnir til vinnu hér á landi í gegnum portúgalskar starfsmannaleigur. Héraðsdómur hafði áður ekki fallist á kröfu Impregilo. 20.9.2007 17:12
50 til 60 kíló af amfetamíni um borð í bátnum 50 til 60 kíló af ætluðu amfetamíni voru um borð í smyglskútunni á Fáskrúðsfirði. Fimm Íslendingar hafa verið handteknir vegna málsins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Europol. Aðgerðir lögreglu hafa farið fram í Danmörku, Færeyjum og í Noregi auk Íslands. Tveir hafa verið handteknir í Danmörku og einn í Noregi. 20.9.2007 16:55
TSH fær ekki bætur vegna Rúgbrauðsgerðarinnar Hæstiréttur staðfesti í dag dóm Héraðsdóms Reykjavíkur í máli sem Trésmiðja Snorra Hjaltasonar höfðaði á hendur íslenska ríkinu í tengslum við fasteignakaup. Trésmiðjan keypti húseigina að Borgartúni 6, sem oft hefur verið nefnd Rúgbrauðsgerðin, af íslenska ríkinu. 20.9.2007 16:51
Landbúnaðarráðherra Bandaríkjanna hættir Mike Johanns landbúnaðarráðherra Bandaríkjanna hefur hætt störfum eftir næstum þrjú ár í embætti. Johanns býður sig fram til öldungadeildarþings í Nebraska, þar sem hann naut vinsælda sem ríkisstjóri tvö kjörtímabil. Bush Bandaríkjaforseti tilkynnti ákvörðun Johanns í dag, en hann er sá síðasti í röð háttsettra embættismanna í stjórn Bush að láta af embætti. 20.9.2007 16:27
Bin Laden hvetur til heilags stríðs Osama Bin Laden hvetur til heilags stríðs í Pakistan til að hrinda Pervez Musharraf af stóli sem forseta landsins. Í nýrri hljóðupptöku sem birt var á íslamskri vefsíðu í dag lofar hann hefnd fyrir áhlaupið á Rauðu moskuna í Islamabad í júlí þar sem hundruð manna voru í gíslingu. 20.9.2007 16:16
Framlengir atvinnuveiðar á hrefnu Sjávarútvegsráðuneytið hefur framlengt þann 30 dýra veiðikvóta á hrefnu sem sjávarútvegsráðherra heimilaði í fyrrahaust þegar hann ákvað að leyfa atvinnuveiðar á ný. 20.9.2007 16:11
Smyglskútan flutt til Reykjavíkur Smyglskútan á Fáskrúðsfirði verður flutt til Reykjavíkur á morgun. Heimildir Vísis herma að báturinn verði fluttur landleiðina á flutningabíl. Skútur af þessari stærð eru með þónokkuð burðarþol og ætti að vera hægðarleikur að smygla nokkur hundruð kílóum til landsins í einni ferð, miðað við að tveir séu í áhöfn. 20.9.2007 16:04
Græddi „óvart" 10 milljónir á sölu stofnfjár í SPRON Árni Þór Sigurðsson þingmaður hefur selt allt stofnfé sitt í SPRON að nafnvirði einnar og hálfrar milljónar. Í samtali við Vísi vildi Árni ekki segja hversu mikið hann fékk fyrir hlut sinn í fyrirtækinu. 20.9.2007 15:53
Bush boðar friðsamlega lausn í Íran George Bush sagði í dag að hann væri vongóður um að sannfæra írani í gegnum diplomatískar leiðir að hætta við kjarnorkuáætlanir sínar. Hann sagði að Bandaríkjastjórn myndi viðhalda þrýstingi á yfirvöld í Íran, en það yrði gert á friðsamlegan hátt. 20.9.2007 15:50
Gríðarlegt vatnstjón í Glerárhverfi Mikið vatnstjón varð í Glerárhverfi á Akureyri í dag. Um tíuleitið í morgun kom óvænt þrýstibylgja komið inn á heitavatnskerfið með þeim afleiðingum að kranar og öryggislokar sprungu. 20.9.2007 15:45
Minnihluti vildi fresta afgreiðslu Grímseyjarferjumáls Minnihlutinn í fjárlaganefnd Alþingis vildi að nefndin frestaði fullnaðarafgreiðslu á greinargerð Ríkisendurskoðunar vegna Grímseyjarferju samkvæmt áliti sem skilað var í dag. Fjallað var um málið á fundi nefndarinnar í morgun og skilaði meirihlutinn skýrslu um málið. 20.9.2007 15:32
Reglur verði gerðar skýrari Fjárlaganefnd Alþingis skilaði af sér skýrslu í dag þar sem fjallað er um greinargerð Ríkisendurskoðunar í Grímseyjarferjumálinu. Til stóð að nefndin í heild sinni stæði að skýrslunni en af því varð ekki. 20.9.2007 15:20
Systir lestarstöðvarstúlkunnar hræddist föðurinn Grace Xue hálfsystir stúlkunnar sem var yfirgefin á lestarstöð í Ástralíu á laugardag segir að hún hafi áhyggjur af líðan Qian systur sinnar og að sem barn hafi hún óttast föður sinn. Hann hafi yfirgefið hana einungis tveimur mánuðum eftir komuna til Nýja Sjálands og hún hafi ekki átt í nein hús að venda. 20.9.2007 15:14
Lítil áhrif á fíkniefnamarkaðinn Fíkniefnafundur lögreglunnar á Fáskrúðsfirði mun ekki hafa mikil áhrif til verðhækkana á fíkniefnamarkaði til langs tíma litið að mati Þórarins Tyrfingssonar, yfirlæknis á Vogi. Hann segir nægt magn fíkniefna nú þegar til staðar hér á landi til að anna eftirspurn. 20.9.2007 14:40
Fagnar áhuga íslenskra orkufyrirtækja á Rúmeníu Forsætisráðherra Rúmeníu hvetur íslensk fyrirtæki til að taka virkan þátt í efnahagsuppbyggingunni í landinu og fagnar áhuga íslenskra orkufyrirtækja og fjárfestingaraðila á orkulindum landsins. Þetta kom fram á fundi hans með Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Íslands, í morgun, en Ólafur Ragnar er nú í opinberri heimsókn í Rúmeníu. 20.9.2007 14:38
Lögregluaðgerðum lokið á Fáskrúðsfirði Lögregluaðgerðum er lokið á Fáskrúðsfirði. Eins og Vísir greindi frá í morgun voru tveir menn handteknir sem komu með skútu á leið til hafnar í morgun. Talið er að í skútunni hafi verið tugir kílóa af fíkniefnum. Skútunnar beið aðkomubíll á bryggjunni og var ökumaður bílsins handtekinn. Að lögregluaðgerðinni komu fjölmennt lið lögreglunnar á Fáskrúðsfirði, Landhelgisgæslan, tollgæslan, lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og sérsveit ríkislögreglustjóra. 20.9.2007 14:34
Rússar enn á ferð við Íslandsstrendur Langdrægar rússneskar sprengiflugvélar af gerðinni Tupolev 95 flugu inn á íslenska loftrýmiseftirlitssvæðið norður af landinu klukkan hálf sex í morgun. Í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu flugu vélarnar í hringferð um landið og komu næst landinu u.þ.b. 43 sjómílur suður af Kötlutanga. 20.9.2007 14:26
Vilja koma á fót jarðskjálftasetri á Kópaskeri Hugmyndir eru uppi um að setja á fót jarðskjálftasetur á Kópaskeri sem hæfi starfsemi strax næsta vor. 20.9.2007 14:13
Kompáslögmaður selur glæsivillu og flytur til Spánar Kompáslögmaðurinn svokallaði, sem var til umfjöllunnar í fréttaþættinum Kompás á þriðjudagskvöldið, hefur sett glæsivillu sína í Fossvogi á sölu og er fluttur til Spánar. 20.9.2007 14:00
Meðalaldur ríkisstarfsmanna hækkar Meðalaldur ríkisstarfsmanna er 45,4 ár og hefur hækkað um rúm fjögur ár frá árinu 1995. Þetta kemur fram í vefriti fjármálaráðuneytisins. Þá hefur hlutfall þeirra ríkisstarfsmanna sem eru með háskólamenntun hækkað töluvert á innan við áratug. 20.9.2007 13:43
Kýldi gervitennurnar út úr manni Karlmaður um tvítugt hefur verið ákærður fyrir líkamsárás en hann sló mann á fimmtugsaldri hnefahögg í andlit og höfuð aðfaranótt laugardagsins 5. ágúst 2006, við skemmtistaðinn Glaumbar í Tryggvagötu í Reykjavík. 20.9.2007 13:25
Segir glerbrot hamla för hjólreiðamanna Hjólreiðamaður sem hjólar daglega til vinnu segir að göngu- og hjólreiðastígar í borginni séu ekki sópaðir eins og aðrar götur í bænum. Hann segir glerhrúgur á stígunum til vandræða, enda fari glerbrot ekki vel með reiðhjóladekk. 20.9.2007 13:12
Trillan sem strandaði á leið til hafnar Verið er að draga trilluna Ellu HF-22 sem steytti á skeri við Hrakhólma til lands í Kópavogi. Köfunarþjónusta Árna Kópssonar sá um að losa trilluna og gengu aðgerðir vel. Hún verður hífð á land í Kópavogshöfn síðar í dag. 20.9.2007 12:56
170 björgunarsveitarmenn hafa tekið þátt í leit í Soginu Hátt í hundrað og sjötíu björgunarsveitarmenn leita enn mannsins sem féll í Sogið í gær. Bóndinn á Bíldsfelli vann þrekvirki er hann bjargaði félaga mannsins. 20.9.2007 12:54
Svartbirnir komust ekki í hengirúm Tveir ungir svartbirnir áttu í erfiðleikum með að koma sér vel fyrir í hengirúmi í New Jersey í Bandaríkjunum í gær. Aðfarirnar voru festar á filmu. 20.9.2007 12:34
Engin stórvægileg álitaefni við erfðamengisgreiningu Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, sér engin stórvægileg siðferðileg álitaefni við það þótt almenningi verðið boðið upp á að kaupa greiningu á erfðamengi sínu. Fólk leiti enda slíkra upplýsinga um sjálft sig af fúsum og frjálsum vilja. 20.9.2007 12:33
SÞ rannsaki morðið á Ghanem Forsætisráðherra Líbanons hefur óskað eftir því að Sameinuðu þjóðirnar rannsaki morði á líbanska þingmanninum Antoin Ghanem í gær. Hann týndi lífi í öflugri sprengjuárás ásamt sex öðrum. 20.9.2007 12:26
Mótvægisaðgerðir skrýtið fyrirbæri Davíð Oddsson, seðlabankastjóri og fyrrverandi forsætisráðherra, segir mótvægisaðgerðir ríkisstjórnarinnar vegna skerðingar þorskkvótans, skrýtið fyrirbæri sérstaklega þegar ekkert atvinnuleysi er í landinu. 20.9.2007 12:23
Vill hámarkslengd á hjónabönd Þýskur stjórnmálamaður hefur verið útskúfaður af flokk sínum eftir að hún lagði til að sjö ár yrðu hámarkslengd hjónabanda. Gabriele Pauli sem er umdeildur íhaldsmaður sagði að öll hjónabönd ættu að vera innan þessa tímaramma til að spara útgjöld við skilnaði og þrýsta á fólk að reyna betur. Eftir sjö ára tímabilið gætu hjón óskað eftir að hjónabandinu yrði framlengt. 20.9.2007 12:19
Ungur drengur stórslasaður eftir fimm metra fall Lítill drengur stórslasaðist við gamla Blómavalshúsið í fyrradag. Hann var að príla upp á þaki hússins og féll þar niður um fimm metra að því er talið er. Svo virðist sem drengurinn hafi fallið niður þegar gler á þaki hússins gaf sig. Hann var fluttur á gjörgæslu en er nú úr lífshættu og dvelur á Barnaspítala Hringsins. 20.9.2007 12:16
Stærsti fíkniefnafundur sögunnar Lögregla lagði hald á tugi kílóa af ætluðum fíkniefnum í skútu á Fáskrúðsfirði í morgun. Nokkrir hafa verið handteknir en leit stendur enn yfir í skútunni. Rannsókn málsins hefur teygt anga sína til margra landa, að sögn lögreglustjórans á Höfuðborgarsvæðinu. 20.9.2007 11:32
Brown: Annaðhvort ég eða Mugabe Gordon Brown forsætisráðherra Bretlands segir að hann muni ekki sækja ráðstefnu Evrópu-og Afríkulanda ef Robert Mugabe forseti Zimbabwe verði á meðal ráðstefnugesta. Brown segir að ástæðan sé sú að vera Mugabes á fundinum muni gera lítið úr honum, þar sem hann sé ábyrgur fyrir misnotkun á eigin þjóð, pyntingum og stórkostlegri kúgun á pólitískum andstæðingum sínum. 20.9.2007 11:31
Alvarlegum umferðarslysum fjölgar um nærri 40 prósent Alvarlegum slysum í umferðinni hefur fjölgað um nærri 40 prósent á fyrstu sjö mánuðum ársins miðað við sama tíma í fyrra. Þetta kemur fram í samantekt Umferðarstofu sem byggir tölur sínar á lögregluskýrslum. 20.9.2007 11:23
Séra Anna Sigríður Pálsdóttir fékk Dómkirkjubrauð Valnefnd í Dómkirkjuprestakalli, Reykjavíkurprófastsdæmi vestra, ákvað á fundi sínum þann 19. september síðastliðinn að leggja til að sr. Anna Sigríður Pálsdóttir verði skipuð prestur í Dómkirkjuprestakalli. Sjö umsækjendur voru um embættið. 20.9.2007 11:07
Segir nefndina hafa staðið sig í stykkinu „Ja, bæði og,“ segir Alfreð Þorsteinsson aðspurður hvort ákvörðun heilbrigðisráðherra um að leggja niður framkvæmdanefnd nýs háskólasjúkrahús hafi komið sér á óvart. „Það er auðvitað kominn nýr ráðherra í heilbrigðisráðuneytið og hann hefur sjálfsagt ákveðnar skoðanir á þessari framkvæmd. Ég held að hann verði að skýra þetta sjálfur út.“ 20.9.2007 10:58
Segir samgöngubyltingu í uppsiglingu á Íslandi Bandaríska fréttastöðin CNN fjallar um vetnisverkefni hér á landi í nýju myndskeiði og segir að samgöngubylting sé í uppsiglingu. 20.9.2007 10:47
Rice þrýstir á friðarfund Miðausturlanda Condoleezza Rice þrýsti á leiðtoga Ísrael og Palestínu í dag um friðarráðstefnu Miðausturlanda þrátt fyrir vaxandi spennu á Gaza. Ráðstefnan er fyrirhuguð í nóvember. Rice er í Ramallah þar sem hún fundar með Mahmoud Abbas leiðtoga Palestínu eftir fund með Shimon Peres forseta Ísraels. 20.9.2007 10:47
Bin Laden lýsir yfir stríði við Pakistan Osama bin Laden lýsir yfir stríði á hendur Perves Musharraf forseta Pakistan og her landsins í myndbandi sem birt verður á íslamskri vefsíðu. Fyrirsagnir á vefsíðunni segja ekki hvenær myndbandið verður birt, en áður hafa myndbönd al-Kaída verið birt á síðunni. 20.9.2007 10:23
Kennsl borin á lík móður lestarstöðvarstúlkunnar Lögreglan í Nýja Sjálandi hefur gefið út handtökuskipun á föður stúlkunnar sem skilin var eftir á lestarstöð í Ástralíu eftir að kennsl voru borin á lík móður stúlkunnar. Líkið fannst í gær í skotti bifreiðar fyrir utan heimili fjölskyldunnar á Nýja Sjálandi. 20.9.2007 09:29
Umfangsmikil lögregluaðgerð á Fáskrúðsfirði Lögreglan hefur boðað til blaðamannafundar nú fyrir hádegið þar sem upplýsa á um þær lögregluaðgerðir sem fram fóru á Fáskrúðsfirði í morgun. Talið er að um stórt fíkniefnamál sé að ræða. 20.9.2007 09:22
Kaupmáttur eykst um 3,8 prósent Launavísitala í ágústmánuði síðastliðnum reyndist 321,1 stig og hækkaði um 0,4 prósent frá fyrra mánuði. Þetta kemur fram í tölum Hagstofunnar. Þar segir einnig að síðastliðna tólf mánuði hafi launavísitalan hækkað um átta prósent. 20.9.2007 09:12