Innlent

Umfangsmikil lögregluaðgerð á Fáskrúðsfirði

Lögreglan hefur boðað til blaðamannafundar nú fyrir hádegið þar sem upplýsa á um þær lögregluaðgerðir sem fram fóru á Fáskrúðsfirði í morgun. Talið er að um stórt fíkniefnamál sé að ræða.

Eins og greint var frá fyrr í morgun fór aðgerðin af stað eftir að skúta kom þar til hafnar snemma í morgun. Hennar beið aðkomubíll á bryggjunni, en að sögn sjónarvotta eystra var ökumaður hans handtekinn og settur í járn. Bryggjan var rýmd kl. 6 í morgun og hefur engum verið hleypt inn á hafnarsvæðið síðan.

Síðan fór fjölmennt lið sérsveitarmanna og tollara um borð í skútuna og var hún flutt utan á varðskip, sem kom til Fáskrúðsfjarðar snemma í morgun í tengslum við aðgerðina. Þá hafa kafarar kafað í höfnina þar sem skútan var fyrst.

Lögregla heldur heimamönnum frá vettvangi þannig að ekki liggur fyrir hvers lensk skútan er eða hvort fleiri hafa verið handteknir, og þaðan af síður af hverju þessi aðgerð er í gangi, því allir opinberir aðilar, sem að málinu koma, verjast allra frétta.

Birgir Kristmundsson kranastjóri hjá Loðnuvinnslunni segir í samtali við Vísi að þegar hann mætti til vinnu sinnar við höfnina klukkan sex í morgun hafi honum verið vísað frá svæðinu. "Það var þarna fullt af ómerktum lögreglubílum og mannskap í kringum þessa skútu," segir Birgir. Hann vissi ekki hvers lensk skútan er þar sem engin flögg hefðu verið á henni.

Gúmmíbátur frá varðskipinu er kominn út á fjörðin og virðast menn vera að leita að einhverju sem hugsanlega hefur verið hent frá borði á skútunni.

Hægt er að fylgjast með blaðamannafundinum hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×