Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Lögreglan leysir upp unglingapartý Kalla þurfti á aðstoð lögreglu til að leysa upp unglingagleðskap í skýli í Nauthólsvík um klukkan hálf tvö í nótt. Að sögn lögreglunnar voru þar um eitt hundrað ungmenni samankomin. 9.9.2007 11:02
Mikið um pústra og almenna ölvun í miðborginni Mikill erill var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt líkt og fyrri nótt. Alls voru 25 manns teknir vegna ýmissa brota og fengu tveir að gista fangageymslur lögreglunnar. Mikið var um pústra og ölvun í miðborginni. 9.9.2007 10:44
Sofnuðu út frá eldamennskunni Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út tvisvar í morgunsárið að í íbúðum í austurborginni eftir að sársvangir næturhrafnar höfðu sofnað út frá eldamennsku. Reykskynjarar fóru í gang en hinir þreyttu mathákar sváfu sem fastast. 9.9.2007 10:10
Flug til Stokkhólms fellt niður vegna deilu flugmanna og Icelandair Fella þurfti niður flug á vegum Icelandair til Stokkhólms í morgun vegna kjaradeilu flugmanna við félagið. Yfir 100 manns voru bókuð í flugið samkvæmt fréttum Ríkisútvarpsins. Varaformaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna segir að flugmenn séu eingöngu að fylgja eftir ákvæðum kjarasamnings og harmar allar raskanir á flugi. 9.9.2007 10:03
Ryskingar á réttardansleik Til átaka kom milli karls og konu á réttardansleik í Víðihlíð í Víðidalnum um klukkan þrjú í nótt. Lögreglan á Blönduósi var kölluð á staðinn. 9.9.2007 09:32
Skothvellir á sumarbústaðalandi við Þingvelli Lögreglan á Selfossi var kölluð að sumarbústaðarlandi við Þingvelli skömmu fyrir miðnætti í nótt eftir að þar heyrðust fjölmargir skothvellir. Í ljós kom að í einum bústaðnum var mikill gleðskapur í gangi og þar hafði fólk skemmt sér við skjóta úr haglabyssu upp í loftið. 9.9.2007 09:19
Var með tvo hassmola í fórum sínum Lögreglan á suðurnesjum handtók í nótt mann eftir að í fórum hans fundust fíkniefni. Að sögn lögreglunni var sennilega um að ræða tvo hassmola. 9.9.2007 09:05
Keyrt á vegrið á Reykjanesbraut Umferðaróhapp varð á Reykjanesbraut við Vogahverfi skömmu eftir miðnætti í nótt þegar ökumaður fólksbifreiðar keyrði á steypt vegrið. Ekki urður slys á fólki 9.9.2007 09:00
Eldur í efnaverksmiðju í Skotlandi Mikill eldur kom upp í efnaverksmiðju í bænum Stevenston í Ayrshire í Skotlandi í kvöld. Ekki er vitað til þess að nokkurn hafi sakað í eldsvoðanum. 8.9.2007 23:15
Sektaðir fyrir að reyna smygla bjarnarklóm til Kína Tveir Kínverjar og tveir Rússar voru dæmdir af kínverskum dómstól í dag til sektargreiðslu og í skilorðsbundinn fangelsisdóms fyrir að reyna smygla sjaldgæfum bjarnarklóm til Kína. Klærnar átti að mylja niður og nota til neyslu. 8.9.2007 22:45
Al-Kaída lýsir yfir ábyrgð á sprengjuárásum í Alsír Hluti Al-Kaída samtakanna í Norður-Afríku hafa lýst yfir ábyrgð á tveimur sprengjuárásum í Alsír sem urðu að minnst fimmtíu manns að bana. Frá þessu var greint á sjónvarpsstöðinni Al Jazeera í kvöld. 8.9.2007 22:15
Tilkynnt um vatnsleka í fjölbýlishúsi í Kópavogi Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út að fjölbýlishúsi við Engihjalla í Kópavogi um klukkan níu í kvöld vegna vatnsleka. Á sama tíma var óskað eftir aðstoð slökkviliðs við að reykræsta skemmtistað við Bankastræti í miðbæ Reykjavíkur. 8.9.2007 21:19
Sigldi á fimm skútur og skemmdi Bilun í stýrisbúnaði á farþegabát skammt hjá Torfunesbryggju á Akureyri á áttunda tímanum í kvöld varð til þess að báturinn sigldi á fimm seglskútur sem þar lágu. Skúturnar skemmdust allar lítillega að sögn lögreglu. 8.9.2007 21:08
Hefur litla trú á fyrirhugaðri friðarráðstefnu Litlar líkur eru á því að fyrirhuguð friðarráðstefna í Mið-Austurlöndum skili árangri þar sem hvorki Bandaríkin né Ísrael eru tilbúin að skuldbinda sig gagnvart mögulega samkomulagi. Þetta kom fram máli Mohammad Dahlan, eins af leiðtogum Fatah samtakanna á fundi í Genf í Sviss. 8.9.2007 20:57
Bílvelta á Landeyjarvegi Bílvelta varð á Landeyjarvegi upp úr klukkan átta í morgun. Svo virðist sem ökumaður hafi misst stjórn á bíl sínum með fyrrgreindum afleiðingum. Ökumaður meiddist lítillega að sögn lögreglu. 8.9.2007 20:02
Segir Samhjálp hafa bjargað lífi sínu Fyrrverandi fíkill sem var á götunni í um tvö ár segir kaffistofu Samhjálpar hafa bjargað lífi sínu. Fái Samhjálp ekki varanlegt húsnæði aukist líkurnar á innbrotum í miðbænum og útigangsmenn verði úti. 8.9.2007 19:17
Segja sátt um hlutverk Vinnumálastofnunar brostna Stjórn Starfgreinafélagsins AFLS boðar harðari vinnubrögð á vinnumarkaði og mögulegar vinnustöðvanir vegna ummæla forstjóra Vinnumálastofnunar um að félagið væri ekki sinna sínu starfi. Stjórnin segir að sátt um hlutverk Vinnumálastofnunar á vinnumarkaði sé brostin. 8.9.2007 19:04
Segir ástæðu til að óttast al-Qaida George Bush Bandaríkjaforseti segir ummæli Osamas bin Ladens á myndbandi, sýna hver langtímamarkmið hryðjuverkasamtakanna al-Qaida í Írak séu. Í myndbandinu hæðist bin Laden að lýðræðinu í Bandaríkjunum. 8.9.2007 19:02
Luciano Pavarotti jarðsunginn Vinir, ættingjar og aðdáendur stórtenórsins Lucianos Pavarotti fylgdu honum til grafar í heimabæ hans, Modena á Ítalíu í dag. 8.9.2007 19:01
Foreldrar Madeleine grunaðir Algjör viðsnúningur hefur orðið á framvindu leitarinnar að Madeleine litlu sem hvarf af hótelherbergi í Portúgal í maí síðast liðnum. Foreldrar stúlkunnar sem hafa með hjálp fjölmiðla ákaft leitað hennar eru nú grunaðir um að hafa myrt stúlkuna. 8.9.2007 18:59
Uppgjöf sjálfstæðismanna í málefnum leikskólanna Borgarfulltrúi Samfylkingar segir sjálfstæðismenn hafa gefist upp á að leysa vanda leikskólanna. Einkavæðing þeirra sé ekki lausnin við vandanum heldur þurfi að endurskoða launakjör leikskólastarfsmanna. 8.9.2007 18:56
Norðurál vill kaupa orku Þjórsár Norðurál hefur óskað eftir því við Landsvirkjun að fá að kaupa tvo þriðju af orku Þjórsárvirkjana til fyrirhugaðs álvers í Helguvík. Þetta myndi hraða uppbyggingu álvers þar en um leið útiloka möguleika Alcan á næstu árum til að stækka í Straumsvík eða að reisa nýtt álver suðvestanlands. 8.9.2007 18:35
Messa á Íslandi til minningar um Pavarotti Sungin verður sérstök sálumessa til minningar um stórsöngvarann Luciano Pavarotti í Landakotskirkju næstakomandi mánudag. Fyrir messu flytja Sigrún Hjálmtýsdóttir, Pamela De Sensi, Jóhann Friðgeir Valdimarsson og Leone Tinganelli lög úr ítölskum óperum. 8.9.2007 18:24
Enn eitt fuglaflensusmit í Þýskalandi Yfirvöld í Þýskalandi hófu í gær að slátra þúsundum alifugla á tveimur fuglabúum í bæjunum Trumling og Hofing í Bæjaralandi vegna fuglaflensusmits. Fuglaflensa af hinum hættulega H5N1 stofni greindist í alifuglum í bænum Wachenroth í lok síðasta mánaðar. Fuglabúin í Trumling og Hofing voru í viðskiptasambandi við fuglabúið í Wachenroth. 8.9.2007 16:26
Þýskur rabbíi stunginn með hníf Ráðist var á þýskan rabbía í borginni Frankfurt í Þýskalandi í gær og hann stunginn með hníf í magann. Ekki er vitað hvað árásarmanninum gekk til en talið er að um múslima sé að ræða. Rabbíinn, sem er 42 ára gamall, náði sjálfur að komast á spítala þar sem hann gekkst undir aðgerð vegna sára sinna. 8.9.2007 16:14
Stjórnvöld ítrekað gert starfsmenn Vinnumálastofnunar ómerka Stjórnvöld sýna fyrirtækjum sem brjóta á réttindi starfsmanna allt of mikla linkind að mati formanns Rafiðnaðarsambands Íslands. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem birt er á heimasíðu sambandsins. Hann segir stjórnvöld ítrekað hafa gert starfsmenn Vinnumálastofnunar ómerka þannig að þeir veigri sé nú við að vinna störf sín. 8.9.2007 15:49
Langar biðraðir við sölustaði Bæjarins bestu Fleiri hundruð manns eru nú við pylsuvang Bæjarins bestu í miðbæ Reykjavíkur til að kaupa pylsu og kók á tuttugu krónur. Biðröðin nær frá pylsuvagninum alla leið að Lækjargötu. Eigandinn segist vera mjög ánægður með móttökurnar. 8.9.2007 14:17
Ráðist á aðstoðarlögreglustjóra í miðborginni Ölvaður maður réðst að Herði Jóhannessyni, aðstoðarlögreglustjóra höfuðborgarsvæðisins, á meðan hann var við eftirlit í miðbænum í nótt. Í fylgd með Herði voru þeir Stefán Eiríksson, lögreglustjóri, Jón HB. Snorrason, aðstoðarlögreglustjóri og Geir Jón Þórisson, yfirlögregluþjónn. Saman tókst þeim að snúa manninn niður. 8.9.2007 13:48
Dýrt að pissa í Reykjavík Alls voru tuttugu og tveir einstaklingar sektaðir fyrir að kasta af sér hlandi á almannafæri í miðborginni í nótt. Mennirnir voru allir færðir á lögreglustöð og gert að greiða sekt. 8.9.2007 13:03
Páfi heimsækir kraftaverkamynd Þúsundir kristinna pílagríma tóku vel á móti Benedikti páfa sextánda í bænum Mariazell í Austurríki í dag. Tilefni heimsóknarinnar er 850 ára afmæli Mariazell en bærinn er mikilvægur kaþólikkun vegna útskorinnar helgimyndar af Maríu Mey en myndin sú er talin geta gert kraftaverk. Pílagrímarnir létu ekki hellirigningu stoppa sig í að berja páfann augum og ganga með honum að altari helgimyndarinnar. 8.9.2007 12:34
Fossett ófundinn Enn hefur ekkert spurst til milljarðarmæringsins og ævintýramannsins Steves Fossett en hans hefur verið leitað síðan á mánudag. 26 flugvélar og þyrlur leita hans nú í Nevada og eru leitarmenn vongóðir um að finna Fossett á lífi þar sem hann er þekktur fyrir að bjarga sér oft á ótrluegan hátt úr háska. 8.9.2007 12:32
Pavarotti jarðsunginn í dag Tenórinn og stórsöngvarinn Luciano Pavarotti verður jarðsunginn í heimabæ sínum Modena á Ítalíu dag. Tugþúsundir manna hafa undanfarna daga safnast saman við kirkju bæjarins til að kveðja tenórinn sem með áreynslulausum söng sínum heillaði alla heimsbyggðina. Útförinni verður sjónvarpað beint á Ítalíu en aðeins boðsgestir fá að vera viðstaddir hana. 8.9.2007 12:30
Bílvelta við Blönduós Flytja þurfti unga stúlku á sjúkrahúsið á Blönduósi eftir að bíll sem hún ók valt við bæinn Húnsstaði sunnan við Blönduós um klukkan ellefu í morgun. Ekki er talið að stúlkan hafi slasast alvarlega. Þá fór bíll útaf veginum við Langadal laust eftir klukkan níu í morgun. 8.9.2007 12:29
Heimurinn er hættulegur, segir Bush Varnir Bandaríkjanna eru takmarkaðar þrátt fyrir efnahagslegan og hernaðarlegan styrk landsins sagði Osama Bin Laden á myndbandi sem hann sendi frá sér í gær. George Bush, Bandaríkjaforseti, segir ummæli Osamas bin Ladens á myndbandinu, sýni hver langtímamarkmið hryðjuverkasamtakanna al-Qaeda í Írak séu og hversu heimurinn, sem við lifum í, sé hættulegur. 8.9.2007 12:23
Sextán láta lífið í átökum á Sri Lanka Tólf liðsmenn Tamíl tígra féllu í átökum milli þeirra og stjórnarhersins í norðurhluta Sri Lanka í morgun. Fjórir hermenn féllu í átökunum. 8.9.2007 12:06
Lítil þungmálmamengun í sjónum umhverfis landið Mengun þungmálma í hafinu umhverfis landið er almennt vel undir alþjóðlegum viðmiðunarmörkum. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Matís um breytingar á lífríki sjávar við landið. Hár styrku kadmíns við landið er talinn eiga sér náttúrulegar orsakir. 8.9.2007 11:59
Fjórir sérsveitarmenn við eftirlit og löggæslu í miðborginni í nótt Aukin sýnileiki lögreglu í miðbæ Reykjavíkur í nótt hafði jákvæð áhrif á ástandið að sögn Jóns Bjartmarz, yfirlögregluþjóns hjá embætti ríkislögreglustjóra. Fjórir sérsveitarmenn og fimm lögreglumenn úr liði höfuðborgarlögreglunnar voru við eftirlit og löggæslu í miðborginni í nótt til viðbótar þeim lögreglumönnum sem almennt sinna þessu eftirliti. 8.9.2007 10:54
Sautján láta lífið í sprengjuárás í Alsír Sautján létu lífið í sprengjuárás í borginni Dellys í austurhluta Alsír í morgun og 30 særðust. Sprengjunni hafði verið komið fyrir í bifreið sem stóð á hafnarsvæði borgarinnar. 8.9.2007 10:47
Pavarotti borinn til grafar á Ítalíu Óperusöngvarinn Luciano Pavarotti verður borinn til grafar á Ítalíu í dag. Meðal þeirra sem verða viðstaddir útförina eru söngvararnir Placido Domingo, Jose Carreras og Bono, söngvari hljómsveitarinnar U2. Þá mun Romano Prodi, forsætisráðherra Ítalíu, einnig verða viðstaddur athöfnina. 8.9.2007 10:24
Áfengisreglur brotnar á veitingastöðum Óeinkennisklæddir lögregluþjónar voru á ferð í miðborg Reykjavíkur í nótt. Voru mennirnir meðal annars að fylgjast með því að veitingastaðir færu að settum reglum. Mikið var um að fólk labbaði út af stöðum með áfengi í glösum að sögn lögreglu. 8.9.2007 10:06
Ráðist á pilt fyrir utan skemmtistað á Selfossi Fimmtán ára piltur hlaut töluverða höfuðáverka eftir að tæplega tuttugu ára karlmaður réðst á hann fyrir utan skemmtistaðinn Kaffi krús á Selfossi um tvöleytið í nótt. Lögreglan kom á vettvang skömmu síðar og fylgdi piltinum á Heilbrigðisstofnun Suðurlands þar sem sauma þurfti nokkur spor á höfði hans. 8.9.2007 09:53
Eldur í fjölbýlishúsi í Njarðvík Fjölbýlishús að Brekkustíg 31 C í Njarðvík er mikið skemmt eftir að eldur kom þar upp rétt eftir miðnætti í nótt. Íbúar hússins voru allir komnir út þegar lögreglan og slökkvilið kom á vettvang. 8.9.2007 09:50
Lögreglan leysir upp unglingagleðskap í Garðabæ Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði í gær unglingapartý í Garðabæ eftir að húsráðandi hafði óskað eftir aðstoð hennar til leysa upp gleðskapinn. Unglingurinn á heimilinu hafði boðið nokkrum vinum sínum í partý en fljótlega fylltist húsið af óboðnum gestum. 8.9.2007 09:44
Ofurölvi á felgunum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði í gærkvöldi ölvaðan ökumann á Strandgötu í Hafnarfirði. Maðurinn ók um á loftlausu dekki á móti einstefnugötu og var ekki með ökuskírteini. 8.9.2007 09:35
Fjórir fluttir á slysadeild eftir harðan árekstur Fjórir voru fluttir á slysadeild í gærkvöldi eftir harðan árekstur tveggja bifreiðar á Hringbraut við Birkimel. Fjölmörg vitni gáfu sig fram og bar öllum saman um að annarri bifreiðinni hafi verið ekið á miklum hraða. 8.9.2007 09:30