Segir Samhjálp hafa bjargað lífi sínu 8. september 2007 19:17
Fyrrverandi fíkill sem var á götunni í um tvö ár segir kaffistofu Samhjálpar hafa bjargað lífi sínu. Fái Samhjálp ekki varanlegt húsnæði aukist líkurnar á innbrotum í miðbænum og útigangsmenn verði úti. Kaffistofu Samhjálpar á Hverfisgötu hefur verið lokað um óákveðinn tíma vegna byggingaframkvæmda. Þangað hafa heimilislausir og öryrkjar leitað skjóls undanfarin ár og fengið að borða. Að meðaltali eru hátt í sjötíu heimsóknir á kaffistofuna á dag. Samhjálp hefur leitað að húsnæði í miðbænum um all nokkurt skeið en án árangurs. Barbara Þóra Kjartansdóttir er þrjátíu og sjö ára gömul og hefur verið í neyslu í rúman áratug. Margsinnis fór hún í meðferð en ekkert gekk fyrr en fyrir sjö árum þegar hún snéri blaðinu við með hjálp trúarinnar og hefur verið edrú síðan. Hún segist hafa verið langt leidd og á götunni margsinnis, lengst í tvö ár í senn. Barbara segir að ef heimilislausir hafi ekki samastað líkt og kaffistofuna eigi innbrotum eftir að fjölga og útigangsmenn verði úti. Heiðar Guðnason forstöðumaður Samhjálpar segir í samtali við fréttastofu að illa gangi að finna húsnæði í miðborginni þar sem margir hafi neikvæða afstöðu í garð heimilislausra. Þess ber að geta að Samhjálp býður upp á frítt kaffi og bakkelsi í gistiskýlinu í Þingholtsstræti frá klukkan tólf til tvö á morgun.
Mest lesið Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Innlent Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Innlent Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rekinn vegna viðvörunar um „samfélagskrísu“ í Rússlandi Erlent Eldur kviknaði við Stálhellu Innlent Ný meðferð gegn sortuæxlum lofar góðu Erlent Ísraelsher viðurkennir að hafa skotið fimm ára stúlku Erlent Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Innlent Ráðast í byltingarkenndar endurbætur í Kvosinni Innlent Bílasali gerður að prinsi eftir faðernispróf Erlent Fleiri fréttir Hvað ætti ungt fólk að kjósa 29. ágúst? Skóli hefst á ný í Grindavík og þingmenn efast um fullyrðingar Rússa Ókeypis strætó-skutlur á Menningarnótt og tæming frá Sólfarinu Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Ráðast í byltingarkenndar endurbætur í Kvosinni „Tengsl Íslands og Eistlands eiga sér sérstaka sögu“ Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Eldur kviknaði við Stálhellu Vaxtahækkunin geti gert illt verra Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Settu saman fyrsta íslenska fjölerfðamengið Sammála því að erfitt haust sé í vændum Aðstoða grunnskólabörn Reykjavíkur við heimanám Betur fór en á horfðist þegar flutningabíll valt „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Samþykkti samninginn: „Lágmark að láta fjármagn fylgja“ Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Fjármálaráðherra og vinnumarkaðurinn bregðast við vaxtahækkun SVÞ og netáfengisverslanir skora á Alþingi Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Gæsluvarðhald framlengt yfir meintum Kársnesmorðingjum Ránfugl gæddi sér á smáfugli í Vesturbænum Gæti séð fyrir sér að kjarasamningar haldi Hafi byrlað tólf ára fósturdóttur og nauðgað ítrekað Vilja banna frjáls ferðalög ísraelskra ferðamanna á Íslandi Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Brotin úr jakanum geti valdið flóðbylgju Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ „Jón Sigurðsson nefndi aldrei sjálfstæði“ Sjá meira