Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fundað um málefni Gjástykkis í bæði umhverfis- og iðnaðarnefnd Umhverfisnefnd kom saman nú klukkan hálfellefu þar sem meðal annars á að ræða málefni Gjástykkis í grennd við Mývatn og málefni Múla- og Fjarðarárvirkjana. Þá fundar iðnarðarnefnd síðar í dag um málefni Gjástykkis. 7.9.2007 10:34
Graðir kommar Háttsettur kínverskur embættismaður á yfir höfði sér harða refsingu eftir að 11 hjákonur hans fordæmdu hann fyrir spillingu. Hjákonurnar gerðu þetta í hefndarskyni eftir að eiginmenn nokkurra þeirra höfðu verið teknir af lífi fyrir spillingu. Pang Jæjú sem er 63 ára gamall hafði keypt ungar og fallegar konurnar til fylgilags við sig með því að útvega þeim eða eiginmönnum þeirra feit embætti. 7.9.2007 10:10
Ók ölvaður upp á stólpa við Ægisíðu Maður ók á stólpa við bensínstöð N-1 við Ægissíðu í nótt og festist bíllinn á stólpanum. Allir úr bílnum voru komnir út að ýta þegar lögregla kom á vettgvang, allir ölvaðir og engin þóttist hafa ekið bílnum. 7.9.2007 09:52
Vinnumálastofnun með allt niður um sig Guðmundur Gunnarsson, formaður Rafniðnaðarsamband Íslands, sakar Vinnumálastofnun um að vera með allt niður um sig og að senda aumkunarverð skilaboð til fyrirtækja um að það sé í lagi að brjóta alla samninga á launamönnum. Tilefni yfirlýsingar Guðmundar eru þau tíðindi að Vinnumálastofnun veitti undirverktökum Arnarfells á Kárahnjúkum frest í gær til þess að koma sínum málum í lag en í ljós kom ekki voru allir starfsmenn verktanna skráðir rétt. 7.9.2007 09:26
Blóðblettir fundust í bíl McCann hjónanna Kate Mccann, móðir Madeleine litlu sem leitað hefur verið frá því hún hvarf frá hótelherbergi í Portúgal í maí, verður formlega gefin staða grunaðrar, í málinu í dag. 7.9.2007 08:35
Novator skoðar möguleika á að fjárfesta í netþjónabúi Novator, sem er í eigu Björgólfs Thors Björgólfssonar, skoðar nú möguleikana á að fjárfesta í netþjónabúi hérlendis. Eins og fram kom í fréttum hér á Vísi í gær vill Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra að íslenskir aðilar byggi netþjónabú hér og kvaðst ráðherrann bjartsýnn á að svo gæti orðið. Samkvæmt heimildum Vísis er Novator eitt af þeim íslensku fyrirtækjum sem til greina koma í þessum efnum. 7.9.2007 10:41
Logandi rafmagnskapall við leikskóla Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út að Selásskóla í Árbænum laust eftir klukkan tíu í kvöld. Þar stóð rafmagnskapall upp úr jörðinni og var byrjað að loga í honum. 6.9.2007 23:36
Boða nýtt myndband með Osama bin Laden Nýtt myndband af Osama bin Laden, leiðtoga Al-Kaída samtakanna, verður brátt sent til fjölmiðla samkvæmt íslamskri vefsíðu. Myndbandið var gert í tilefni af sex ára afmæli árásanna á tvíburaturnana í New York 11. september næstkomandi. Á vefsíðunni má sjá nýja ljósmynd af Osama bin Laden sem tekin er úr myndbandinu. 6.9.2007 21:55
Hópuppsagnir leigubílstjóra ekki ólöglegar Áfrýjunarefnd samkeppnismála hefur fellt úr gildi niðurstöðu Samkeppniseftirlitsins að uppsagnir 30 leigubifreiðastjóra á bifreiðastöðvunum Aðalbílum og BSH í Reykjanesbæ hafi brotið gegn samkeppnislögum. 6.9.2007 20:49
Fjórtán láta lífið í sjálfsmorðsárás í Alsír Fjórtán manns létu lífið og að minnsta kosti 60 særðust í sjálfsmorðsárás í bænum Batna í Alsír í dag. Sprengjan sprakk skömmu áður Abdelaziz Bouteflika, forseti Alsír, kom í boðaða heimsókn til bæjarins. Talið er að herskáir múslimar hafi staðið á bak við árásinni. 6.9.2007 20:41
Aftanákeyrsla á Reykjanesbraut Tveir jeppar lentu í árekstri á Reykjanesbraut við Sprengisand um fimmleytið í dag. Ökumaður annars jeppans slasaðist lítillega að sögn lögreglu en hinn slapp ómeiddur. Til mikilla umferðartafa kom vegna slyssins. 6.9.2007 20:01
Steve Fossett enn leitað Enn hefur ekkert spurst til ævintýramannsins og methafans Steve Fossett en hans hefur nú verið saknað í fjóra daga. Björgunarsveitarmenn leita nú að Fossett úr lofti og á landi en án árangurs. Í dag var ákveðið að stækka leitarsvæðið. 6.9.2007 19:44
Kynjum ekki mismunað á skákþingi Kynjunum er ekki mismunað á Skákþingi Íslands sem nú er haldið. Í fréttum okkar í gær kom fram að í landsliðsflokki kepptu bara karlar. Þar geta þó bæði konur og karlar keppt nái þau tilskildum árangri. 6.9.2007 19:21
Stóra kálgarðránið upplýst Stóra kálgarðránið á Akureyri hefur verið upplýst. Frétt Stöðvar 2 um málið í gærkvöld skipti þar sköpum. 6.9.2007 19:19
Sögð vera of feit fyrir glasafrjóvgun Kona sem hafði byrjað glasameðferð var látin hætta meðferðinni af þeirri ástæðu að hún væri of feit. Settar hafa verið reglur sem meina of feitum konum að hefja glasafrjóvgun 6.9.2007 19:17
Þrír ökumenn teknir fyrir hraðakstur við skóla í Reykjanesbæ Þrír ökumenn voru sviptir ökuleyfi til bráðabirgðar í dag fyrir að keyra of hratt í námunda við skóla í Reyjanesbæ. Að sögn lögreglunnar á Suðurnesjum voru ökumennirnir þrír allir teknar á um 66 kílómetra hraða á klukkustund þar sem hámarkshraði er 30 kílómetrar. 6.9.2007 19:07
Sprenghlægilegir spekingar Davíð Oddsson seðlabankastjóri gefur lítið fyrir ummæli sérfræðinga um að kasta þurfi krónunni og taka upp evru. Hann segir orð slíkra spekinga sprenghlægileg. 6.9.2007 18:45
Litháíska fjölskyldan fann húsnæði Litháíska fjölskyldan sem missti heimili sitt í iðnaðarhúsnæði í Hafnarfirði á mánudagskvöld hefur þegar fundið sér annan íverustað. 6.9.2007 18:45
Óskar eftir fund í utanríkismálanefnd Fulltrúi Framsóknarmanna hefur óskað eftir fundi í utanríkismálanefnd Alþingis vegna heimkvaðningar íslensks upplýsingafulltrúa í Írak. Ákvörðun utanríkisráðherra skjóti skökku við í ljósi framboðs Íslands til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. 6.9.2007 18:45
Kallað hermenn heim en ekki gæsluliða Nærri tuttugu þjóðir hafa kallað herlið sitt heim frá Írak frá innrásinni 2003. Fulltrúar sumra ríkjanna starfa þó enn þar á vegum Sameinuðu þjóðanna eða Atlantshafsbandalagsins þrátt fyrir heimkvaðningu hermanna. 6.9.2007 18:45
Arnarfell ræður til sín starfsmenn Hunnebeck Polska Verktakafyrirtækið Arnarfell mun ábyrgjast réttindi þeirra erlendu starfsmanna sem vinna hjá undirverktökum við byggingu Hraunaveitu Kárahnjúkavirkjunar samkvæmt samkomulagi fyrirtækisins við Vinnumálastofnun. Þá mun Arnarfell ráða til sín beint þá starfsmenn sem nú starfa hjá Hunnebeck Polska. Samkomulagið varð til þess að fallið var frá fyrirhugaðri vinnustöðvun við Hraunveitu Kárahnjúkavirkjunar í dag. 6.9.2007 18:44
Nýtt aðskotadýr í Hvalfirði Ný krabbategund sem sennilega hefur borist til Íslands með sjóballest skipa, finnst nú í miklu magni í Hvalfirði. Vísindamenn telja að nýjar dýrategundir sem þessar geti valdið miklum usla í lífríkinu. 6.9.2007 18:30
Gömlu húsin haldast í Kvosinni Húsin sem brunnu í miðborg Reykjavíkur verða endurbyggð í svo til upprunalegri mynd. Gömlum húsum á svæðinu verður fjölgað, samkvæmt verðlaunatillögunni, og Lækjargata fjögur verður flutt ofan af Árbæjarsafni. 6.9.2007 18:30
Rhys Jones borinn til grafar í dag Rhys Jones, ellefu ára drengur sem lést fyrir byssukúlu skotmanns í Liverpool í Bretlandi, var borinn til grafar í dag. Meðal þeirra sem voru viðstaddir útförina í dómkirkjunni í Liverpool voru félagar hans úr fótboltanum. 6.9.2007 18:12
Flugu milli Íslands og Færeyja Átta rússneskar herflugvélar fóru inn í íslenska flugumferðarsvæðið í morgun án þess að tilkynna flugmálayfirvöldum um komu sína. 6.9.2007 18:10
Slitnar upp úr samningaviðræðum Icelandair og flugmanna Upp úr slitnaði í dag í viðræðum Icelandair og Félags íslenskra atvinnuflugmanna vegna ágreinings um forgangsréttarákvæði í kjarasamningum flugmanna við félagið. Flugmenn hafa boðað félagsfund á Grand Hótel í kvöld vegna málsins. Formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna segir að deilan sé komin á byrjunarreit eftir að samkomulag náðist milli deiluaðila í sumar. 6.9.2007 18:08
Þótti réttast að draga sig til baka frá Bagdad en fjölga friðargæsluliðum Ákvörðun utanríkisráðuneytisins um að draga íslenskan friðagæsluliða frá Bagdad í Írak kom í kjölfar vettvangsúttektar sem gerð var í maí síðastliðnum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu. Samkvæmt úttektinni var ekki ráðlagt að hafa aðeins einn starfsmanna í Bagdad heldur væri nauðsynlegt að fjölga fulltrúum eða draga sig út úr verkefninu. 6.9.2007 17:43
Vinna ekki stöðvuð við Hraunveitu Kárahnjúkavirkjunar Vinna tveggja undirverktaka Arnarfells, Hunnebeck Polska og GT verktaka við byggingu Hraunaveitu Kárahnjúkavirkjunar verður ekki stöðvuð. Samkomulag þess efnis náðist í viðræðum Vinnumálastofnunar og fyrirtækjanna. Þetta staðfesti Gísli Rafnsson, stöðvarstjóri á Hraunaveitu í samtali við Vísi. 6.9.2007 17:16
Segir starfsmannahús Impregilo ekki söluhæf „Þessi hús eru óskaplega léleg og standast engan veginn íslenskar samþykktir. Það hefur verið tjaslað mikið við þau enda hafa þau bæði lekið og blásið í gengum þau," segir Þorbjörn Guðmundsson, framkvæmdastjóri Samiðnar, um starfsmannahúsin við Kárahnjúka sem Impregilo hyggst selja á almennum markaði. Talsmaður Impregilo undrast málatilbúnað Samiðnar. 6.9.2007 16:39
Vinir Kolaportsins mótmæla breytingum Samtökin Vinir Kolaportsins hvetja alla til þess að mæta á markaðinn víðfræga um helgina og skrá nafn sitt á undirskriftalista til þess að mótmæla fyrirhuguðum breytingum á Tryggvagötu 19. Tollstjóraembættið hefur farið fram á að fá að gera bílageymslu á annari og þriðju hæð hússins. Verði leyfið veitt mun það raska starfsemi Kolaportsins verulega. 6.9.2007 16:38
Árás hrundið í Ísrael Sex palestinskir vígamenn voru felldir þegar þeir reyndu að gera árás á ísraelska varðstöð við Gaza ströndina í dag. Ísraelar beittu orrustuþyrlu til þess að hrinda árásinn. Palestínumennirnir tilheyrðu samtökunum Islamic Jihad. 6.9.2007 16:36
Nefbraut mann á H.INN Karlmaður um tvítugt hefur verið ákærður fyrir að ráðast á karlmann á veitingastanum H.INN í Reykjanesbæ þann 23. apríl 2006. Hinn ákærði sagði í samtali við Vísi að hann hefði viðurkennt brot sitt. „Það var hiti í mönnum. Maðurinn ýtti félaga mínum og ég gaf honum hnefahögg. En þetta var ekkert alvarlegt,“ sagði árásarmaðurinn við Vísi. Hann kvaðst eiga von á skilorðsbundnum fangelsisdóm. 6.9.2007 16:36
Nýta má skattlagningu og gjaldtöku betur til að vinna gegn loftlagsbreytingum Kristján L. Möller samgönguráðherra sótti í gær árlegan sumarfund samgönguráðherra á Norðurlöndum og í Eystrasaltsríkjunum. Fundurinn var haldinn í Finnlandi og eftir því sem fram kemur á vef samgönguráðuneytisins ræddu ráðherrarnir meðal annars um loftslagsbreytingar og stefnu í samgöngu- og flutningamálum. 6.9.2007 16:17
Stýrði 180 tonna skipi með pungapróf Karlmaður á fertugsaldri viðurkenndi fyrir Héraðsdómi Reykjaness í dag að hafa stýrt 180 tonna skipi 30 júní 2006, án þess að hafa réttindi til að stýra því. Hvorki var lögskráður skipstjóri né vélavörður um borð. Brot mannsins varða við atvinnuréttindi skipstjórnarmanna og lög um lögskráningu sjómanna. 6.9.2007 16:14
Ekkert flogið til Eyja Mjög slæmt skyggni hefur verið í Vestmannaeyjum í allan dag og af þeim sökum hefur þurft að fresta flugi þangað. Fyrsta vélin, sem átti að fara í loftið klukkan níu í morgun hefur enn ekki lagt af stað. Sama er að segja um vélina sem átti að leggja af stað klukkan fjögur. 6.9.2007 16:10
Var sviptur ökuréttindum eftir að hafa ekið á 70 kílómetra hraða Lögreglan á Suðurnesjum hefur verið við umferðareftirlit í nágrenni við grunnskóla í dag og síðustu daga. Tveir voru stöðvaðir fyrir of hraðan akstur í dag og einn í gær. Sá sem hraðast ók var á ríflega tvöföldum hámarkshraða og var sviptur ökuréttindum á staðnum. Hann ók á um það bil 70 þar sem leyfilegur hámarkshraði er 30. 6.9.2007 15:50
Iðnaðarráðherra vill íslenskt netþjónabú Össur Skarphéðinsson iðnaðaráðherra sagði í ræðu sinni á ráðstefnu Skýrslutæknifélags Íslands á Grand Hotel í dag að það sé von hans að fyrirtæki þar sem Íslendingar eru í fararbroddi muni ríða á vaðið og setja upp fyrsta netþjónabúið hérlendis. Össur sagði ennfremur að margt bendi til þess að svo geti orðið. 6.9.2007 15:47
Víkingar sóttir í hauga í Noregi Norskir fornleifafræðingar eru nú að sækja jarðneskar leifar þriggja víkinga í hauga þar semþær voru skildar eftir þegar skip voru grafin úr haugunum á fyrrihluta síðustu aldar. Annað var hið fræga Gauksstaðaskip en hitt var sótt í haug í Oseberg. 6.9.2007 15:41
Namibíufanginn kominn heim Íslendingur sem handtekinn var fyrir drykkjulæti í Namíbíu kom til Íslands í gær. Vilhjálmur Wiium, umdæmisstjóri Þróunarsamvinnustofnunar Íslands og staðgengill sendiherra í Namibíu staðfestir þetta í samtali við Vísi. Maðurinn þurfti að dúsa í fangelsi í hálfan mánuð við fremur slæman kost. 6.9.2007 15:28
Engar vélbyssur á Laugarvegi um helgar Jón Bjartmarz yfirlögregluþjónn hjá ríkislögreglustjóra segir að sérsveit lögreglunnar verði ekki vopnuð í miðborginni um helgar. Eins og fram kom í fréttum fyrr í vikunni hefur verið ákveðið að sérsveitin muni sinna eftirliti í miðborg Reykjavíkur um helgar ásamt lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. 6.9.2007 15:05
Gert ráð fyrir virðingu fyrir hinu gamla í Kvosinni Arkitektastofurnar Argos, Gullinsnið og Stúdíó Granda uður hlutskarpastar í hugmyndasamkeppni borgaryfirvalda um uppbyggingu í Kvosinni í kjölfar brunans í vor. Sú tillaga verður grundvöllur deiliskipulags á svæðinu. Ekki er gert ráð fyrir að háhýsi rísi í stað húsanna að Austurstræti 22 og Lækjargötu 2, sem brunnu, og þá er gert ráð fyrir að gamla húsið að Lækjargötu 4, sem nú er á Árbæjarsafninu verði flutt aftur niður í bæ og komið fyrir á svipuðum stað og Hafnarstræti 20 er. 6.9.2007 14:49
Segist geta sannað að Harpa hafi verið seld Jónas Garðarsson segir auðsótt mál að sanna að hann hafi selt skemmtibátinn Hörpuna í byrjun árs 2006. Jónas bar fyrir héraðsdómi seinna sama ár að hann hefði átt bátinn. Hann segist hafa átt við að hann hafi átt hann einu sinni. Hann gat þess þó ekki fyrir dómi að báturinn hefði verið seldur. 6.9.2007 14:30
Starfshópur undirbýr hlutafélagavæðingu OR Borgarráð samþykkti á fundi sínum í dag að mynda sérstakan starfshóp um hlutafélagavæðingu Orkuveitu Reykjavíkur. Eins og kunnugt er samþykkti stjórn Orkuveitunnar á mánudag að beina því til eigenda, Reykjavíkurborgar, Borgarbyggðar og Akraneskaupstaðar, að breyta rekstrarfyrirkomulaginu í hlutafélagaform úr sameignarformi. 6.9.2007 14:23
Gabb í Kaupmannahöfn Hryðjuverkaútkall lögreglunnar í Kaupmannahöfn eftir hádegi, reyndist vera gabb. Tilkynnt var um sprengiefni og hugsanleg efnavopn. Lögreglan tól kallið alvarlega, girti af hverfið og flutti fólk á brott. Nú er verið að reyna að finna þá sem göbbuðu hana og eiga þeir ekki von á góðu ef þeir nást. 6.9.2007 14:16
Meintur dópsali og þjófur ákærður Tuttugu og níu ára gömul kona frá Akureyri hefur verið ákærð fyrir að hafa tæp 130 grömm af amfetamíni í fórum sínum. Konan var tekin með efnin við Sæbraut í Reykjavík þann 16. október. Talið er að hún hafi ætlað að selja efnið. 6.9.2007 13:43