Innlent

Iðnaðarráðherra vill íslenskt netþjónabú

Össur Skarphéðinsson: Vill íslenskt netþjónabú.
Össur Skarphéðinsson: Vill íslenskt netþjónabú.

Össur Skarphéðinsson iðnaðaráðherra sagði í ræðu sinni á ráðstefnu Skýrslutæknifélags Íslands á Grand Hotel í dag að það sé von hans að fyrirtæki þar sem Íslendingar eru í fararbroddi muni ríða á vaðið og setja upp fyrsta netþjónabúið hérlendis. Össur sagði ennfremur að margt bendi til þess að svo geti orðið.

"Staðan í dag er þannig, að þrjú fyrirtæki hafa þegar skoðað aðstæður á Íslandi. Þau eru öll að íhuga uppsetningu stórbúa sem þurfa hvert um sig raforku sem nemur 50-100 MW innan næstu 3-5 ára," sagði Össur m.a. í ræðu sinni.

Iðnaðarráðuneytið hefur sinnt þessum málum í gegnum Fjárfestingarstofuna, og sérfræðingar á vegum hennar áætla að raforkuþörfin fyrir starfsemi af þessu tagi gæti á næstu 3-5 árum numið 200-250 MW. Sé litið 5-7 ár fram í tímann geti verið um að ræða 350 MW. Það er svipað og orkuþörfin fyrir 250 þúsund tonna álver.

"Þetta verða íslensku orkufyrirtækin að hafa ofarlega í huga." sagði Össur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×