Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Tuttugu árekstrar á höfuðborgarsvæðinu í gær Tuttugu árekstrar voru tilkynntir til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í gær. Þrír þeirra urðu á milli hálfátta og níu í gærmorgun og sjö á milli hálffjögur og hálfsex síðdegis. Í tveimur tilfellum voru ökumenn fluttir á slysadeild en meiðsli þeirra voru ekki talin mjög alvarleg. 6.9.2007 12:38
Roskin hjón hætt komin í Steinholtsá Litlu mátti muna að illa færi þegar roskin erlend hjón festu jeppa sinn í Steinholtsá á Þórsmerkurleið nú fyrir hádegið. Mikið var í ánni og varar lögregla fólk við miklum vatnavöxtum í ám á Þórsmerkurleið og sömuleiðs Fjallabaksleiðunum. 6.9.2007 12:29
Rússneskir "birnir" flugu milli Íslands og Færeyja Átta rússneskar herflugvélar flugu inn í íslenska flugstjórnarsvæðið án þess að tilkynna um sig snemma í morgun. Norski herinn varð var við flug Rússanna frá Kolaskaga. 6.9.2007 12:25
Efnahagslegt frelsi minnkar á Íslandi Í skýrslu sem RSE, Rannsóknarmiðstöð um samfélags- og efnahagsmál, sendir frá sér í dag kemur fram að efnahagslegt frelsi hefur minnkað á Íslandi samborið við síðasta ár. Er Ísland nú í ellefta sæti og fellur niður um tvö sæti. Deilir Ísland sætinu nú með Finnlandi, Lúxemborg og Chile. Í efsta sæti er Hong Kong og Singapúr en neðst eru Simbabve og Myanmar. 6.9.2007 12:23
Línubátur strandaði í höfninni við Raufarhöfn Línubáturinn Rifsnes SH 44 strandaði í höfninni við Raufarhöfn nú á tólfta tímanum þegar hann var að koma inn með afla. Þær upplýsingar fengust hjá hafnarverði á Raufarhöfn að líklega hefði báturinn strandað á sandhól í höfninni en nú er þar háfjara. 6.9.2007 12:11
Tilraunir til hryðjuverka sýna mikilvægi herliðs í Afganistan Háttsettur Bandarískur diplómat segir að sprengjuárásirnar sem þýskum yfirvöldum tókst að koma í veg fyrir í gær sýni mikilvægi þess að þjóðverjar og aðrar Natoþjóðir hafi herlið sitt áfram í Afganistan. Richard Boucher, aðstoðar utanríkisráðherra Bandaríkjanna yfir suður- og mið-Asíu, hvatti í viðtali við Reuters þýsk stórnvöld til að halda herliði sínu í í landinu og sagði þetta veru eina leiðina til að stöðva straum hryðjuverkamanna frá svæðinu. 6.9.2007 12:09
Dæmdur í 18 mánaða fangelsi fyrir ítrekuð brot Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag Ásgeir Heiðar Stefánsson í 18 mánaða fangelsi. Þá var Vilhjálmur Sverrir Pétursson dæmdur í 15 mánaða fangelsi, þar af 12 skilorðsbundna. Ákæran á hendur mönnunum var í 23 liðum. Þeir voru meðal annars kærðir fyrir fíkniefnabrot, innbrot og þjófnað. Þeir játuðu brot sín í flestum tilfellum. 6.9.2007 12:06
Danska lögreglan engu nær um hver sprengdi hús í Íslendingahverfi í Árósum Danska lögreglan hefur lagt til hliðar rannsókn á því þegar einbýlishús sprakk í sumar, án þess að vera nokkru nær um hver framdi verknaðinn. 6.9.2007 12:00
Langflestir hlynntir reykingabanni á veitingahúsum Nærri átta af hverjum tíu Íslendingum eru ánægðir með reykingabann á kaffihúsum, veitinga- og skemmtistöðum sem gekk í gildi þann 1. júní síðastliðinn samkvæmt Þjóðarpúlsi Gallups. Nærri 70 prósent eru mjög ánægð og tæplega 10 prósent frekar ánægð. 6.9.2007 11:45
Rússnesku sprengjuvélarnar nálgast Ísland Breskar orrustuþotur hafa tekið við af norskum við að fylgjast með átta rússneskum sprengjuflugvélum sem eru á flugi yfir Norður-Atlantshafi. Ef að líkum lætur munu rússnesku vélarnar svo taka stefnuna á Ísland, og hér eru náttúrlega engar vélar til þess að senda á móti þeim. 6.9.2007 11:43
Síðasta kvöldmáltíðin tilnefnd til auglýsingaverðlauna 1999 Að nota síðustu kvöldmáltíðina í auglýsingaskyni er ekki nýtt af nálinni hérlendis. Þannig var síðasta kvöldmáltíðin notuð sem veggspjald með heimildarmynd um Grand Rokk árið 1999. Karl Hjaltested, fyrrverandi eigandi Grand Rokk, segir að veggspjaldið hafi verið tilnefnt til auglýsingaverðlauna það árið. Stefán Grétarsson hönnuður hjá Fíton hannaði veggspjaldið en Hrafn Jökulsson var í hlutverki Jesú. 6.9.2007 11:21
Sex konur og einn karl sóttu um Dómkirkjuna Sjö sóttu um embætti prests í Dómkirkjuprestakalli. Það var auglýst laust til umsóknar í ágústmánuði. Af þessum umsækjendum eru sex konur og einn karl. 6.9.2007 11:20
Spáð handtöku vegna hvarfs Madeleine McCann Breska Sky fréttastofan segir að mikilvæg DNA sýni hafi fundist í íbúðinni sem foreldrar Madeleina McCann bjuggu í ásamt börnum sínum, þegar telpan hvarf. Daily Mirror heldur því fram að sýnin muni leiða til handtöku innan tveggja sólarhringa. Sýnin voru skoðuð í rannsóknarstofu bresku lögreglunnar. 6.9.2007 11:13
Engar ráðstafanir gegn hryðjuverkum á Íslandi þótt ógn steðji að Evrópu Það hafa ekki verið gerðar neinar sérstakar ráðstafanir gegn hryðjuverkjum hér á landi undanfarna daga að sögn Jóns Bjartmarz yfirlögregluþjóns hjá embætti ríkislögreglustjóra. Ýmsar vísbendingar eru um að hryðjuverk hafi verið í undirbúningi í nágrannalöndunum á síðustu dögum. 6.9.2007 11:00
Tveir af hverjum þremur andvígir sölu orkufyrirtækja Nærri tveir þriðju hlutar þjóðarinnar eru andvígir sölu opinberra orkufyrirtækja til einkaaðila og innan við fjórðungur hlynntur sölu þeirra. Þetta kemur fram í nýjum þjóðarpúlsi Gallups sem getið er á heimasíðu fyrirtækisins. 6.9.2007 10:48
Seldi Hörpu fyrir kyrrsetningu Jónas Garðarsson seldi skemmtibátinn Hörpu í byrjun árs í fyrra. Fréttablaðið greinir frá því að báturinn sé horfinn en hann var kyrrsettur af sýslumanni í október 2006. Jónas segist hafa verið í fullum rétti til að selja. Hann segir sýslumann vera í dularfullum leiðangri því kyrrsetningarkrafan hafi verið sett fram eftir að Jónas seldi. 6.9.2007 10:35
Norskar orrustuþotur á móti Rússum Norðmenn sendu í morgun tvær orrustuþotur á móti rússneskum sprengjuflugvélum sem nálguðust norska lofthelgi. Ofursti í norska flughernum segir að þeir fylgist náið með öllum ferðum Rússa og búist við tíðum heimsóknum þeirra á næstu árum. 6.9.2007 10:33
Vinna verður stöðvuð hjá Hunnebeck og GT verktökum Fulltrúar frá Vinnumálastofnun og lögreglu eru á leið að Hraunaveitu Kárahnjúkavirkjunar til að stöðva vinnu hjá fyrirtækjunum Hunnebeck Polska og GT verktökum, sem eru undirverktakar Arnarfells við Hraunaveitu. Að sögn forstjóra Vinnumálastofnunar hefur verið brotalöm á skráningu starfsmanna fyrirtækjanna í þrjá mánuði. 6.9.2007 10:28
Stórkostlegur listamaður fallinn frá Garðar Cortes óperusöngvari segir að með andláti Pavarottis sé stórkostlegur listamaður fallinn frá. Hann segist ekki hafa átt nein persónuleg samskipti við Pavarotti fyrir utan að hann hafi hitt hann í veislu í Ráðherrabústaðinum þegar hann kom til landsins. 6.9.2007 10:14
Rússar sagðir tilbúnir að afhenda Írönum kjarnorkueldsneyti Rússar og Íranar hafa náð samkomulagi um afhendingu á eldsneyti fyrir fyrsta kjarnorkuver Írana, að sögn ríkisútvarpsins í Teheran. Afhending eldsneytisins hefur tafist verulega. Rússar segja að það sé vegna þess að Íranar hafi ekki innt af hendi umsamdar greiðslur. Íranar segja hinsvegar að það sé vegna þess að Rússar séu undir miklum þrýstingi frá Vesturlöndum um að hætta við afhendinguna. 6.9.2007 10:13
Seinkun á Herjólfi í dag vegna bilunar Seinkun verður á ferðum Herjólfs í dag vegna vélabilunar en farið verður í allar ferðir. Skipið er nú á leið frá Vestmannaeyjum til Þorlákshafnar og kemur þangað um hálfeittleytið. 6.9.2007 10:03
Þegar búið að panta 20 þúsund eintök af Krosstré í Þýskalandi Vinsældir íslenskra glæpasagnahöfunda virðast engan endi ætla að taka. Jón Hallur Stefánsson, sem nefndur hefur verið krónprins íslensku sakamálasögunnar, er að byrja að herja á Þýskalandsmarkað og kemur bók hans, Krosstré, út á morgun. 6.9.2007 09:55
Fundu 30 grömm af amfetamíni Um 30 gr af ætluðu amfetamíni fundust við húsleit í fjölbýlishúsi í Hafnarfirði í gær. Húsráðanda, sem er þrítugur, var sleppt að lokinni skýrslutöku. Hann hefur áður komið við sögu fíkniefnamála. Húsleitin var framkvæmd að undangengnum úrskurði Héraðsdóms Reykjaness. 6.9.2007 09:53
Tíu leitað venga hryðjuverkamáls í Þýskalandi Þýsk yfirvöld leita nú tíu manna sem þau telja hafa aðstoðað mennina þrjá sem voru handteknir í gær grunaðir um að skipuleggja hryðjuverkaárásir í Þýskalandi. Fólkið er talið vera meðlimir í þýskri deild hryðjuverkasamtakanna islamskt Jihad. Aðstoðarinnanríkisráðherra Þýskalands, August Hanning, sagði í sjónvarpsviðtali í morgun að ekki stafaði lengur ógn af þessum tiltekna hópi. Þó væri ekki loku fyrir það skotið að fleiri hyggðu á árásir. 6.9.2007 08:51
Átök við handtöku handrukkara Til átaka kom þegar lögreglan handtók tvo meinta handrukkara á Háaleitisbraut í gærkvöldi, eftir að kvartað hafði verið undan hótunum þeirra. Þar sem mennirnir voru grunaðir um áfengis-og fíkniefnaneyslu og voru á bíl, voru þeir færðir til blóðtöku. Urðu þá aftur ryskingar, án þess að neinn meiddist, og höfðu mennirnir líka í hótunum við lögregluna. Þá fundust tveir stórir hnífar í bíl þeirra. Mennirnir gista fangageymslur og verða yfirheyrðir í dag.- 6.9.2007 08:50
Helmingur bíla ók of hratt Helmingur allra bíla, sem ekið var um Ártúnsbrekku síðastliðinn þriðjudag, var á of miklum hraða samkvæmt mælingum lögreglu. Þar er hámarkshraði 80 kílómetrar á klukkustund en tæplega þrjú þúsund bílar mældust á bilinu 90 til hundrað. 6.9.2007 08:47
Thompson tilkynnir framboð Leikarinn og fyrrverandi öldungardeildarþingmaðurinn Fred Thompsons hefur tilkynnt að hann hyggist sækjast eftir tilnefningu sem forsetaframbjóðandi Repúblíkanaflokksins árið 2008. 6.9.2007 08:45
Sjö handteknir vegna hrottalegrar árásar í Danmörku Lögregla í Danmörku handtók í nótt sjö manns sem hún grunar að hafi ráðist á þrjátíu og fimm ára gamla konu á Jótlandi í gær. Konan fannst í gær nærri dauða en lífi við vegarkant við bæinn Roslev á Jótlandi. Hún var flutt á nærliggjandi sjúkrahús þar sem henni er haldið lifandi í öndunarvél. Málið hefur vakið óhug í Danmörku. Konan var nakin en föt hennar fundust skammt frá staðnum þar sem hún lá. Konan var illa farin og telur lögreglan allt benda til þess að hún hafi orðið fyrir hrottalegu ofbeldi. 6.9.2007 08:44
Fossetts enn leitað Ævintýramannsins og auðkýfingsins Steves Fossetts er enn leitað, en ekkert hefur spurst til hans frá því á mánudaginn þegar hann tók loft í eins hreyfils vél sinni frá flugvelli í Nevada. Ekkert neyðarkall hefur borist frá vélinni, en Fossett var ekki í fjarskiptasambandi á meðan hann var á lofti og ekki með fyrirliggjandi flugáætlun. Steve Fosset varð heimsfrægur þegar hann varð fyrstu manna til að fara hringinn í kringum jörðina í loftbelg árið 2002. Hann er 63 ára gamall og hefur sett 115 heimsmet í ferðalögum á loftbelgjum, flugvélum og seglbátum svo fátt eitt sé nefnt. 6.9.2007 08:41
Craig hættir hugsanlega við afsögn Bandaríski öldungadeildarþingmaðurinn Larry Craig segist hugsanlega ætla að hætta við afsögn sína. Craig sagði af sér eftir að hann var hantekinn fyrir að hafa falast eftir kynmökum við óeinkennisklæddan lögreglumann á flugvelli. Þingmaðurinn segist ekkert rangt hafa gert og þvertekur fyrir það að vera samkynhneigður. Hann hefur á ferli sínum barist hatrammlega gegn auknum réttindum samkynhneigðra. 6.9.2007 08:40
Sextán tillögur bárust um uppbyggingu í Kvosinni Sextán hugmyndir að uppbyggingu í kvosinni, bárust eftir að borgin leitaði eftir slíku í kjölfar brunans á horni Lækjargötu og Austurstrætis í vor. Hugmyndirnar verða kynntar í dag , en sex arkítektastofur voru valdar í forvali til verksins. Hverjum sem var var einnig heimilt að leggja inn hugmynd. Á grundvelli þeirar hugmyndar, sem best þykir, verður væntanlega hægt að hefja uppbyggingu á svæðinu.- 6.9.2007 08:40
Fannst nakin og illa farin við vegarkant Lögreglan í Danmörku fann í dag um fertuga konu nærri dauða en lífi við vegarkant við bæinn Roslev á Jótlandi. Konan var flutt á nærliggjandi sjúkrahús þar sem henni er haldið lifandi í öndunarvél. Allt bendir til þess að hún hafi verið beitt hrottalegu ofbeldi. 5.9.2007 23:37
Sr. Elínborg Gísladóttir valin sóknarprestur í Grindavíkurprestakalli Séra Elínborg Gísladóttir var í dag valin til að gegna embætti sóknarprests í Grindavíkurprestakalli. Fjórir sóttu um embættið sem auglýst var laust til umsóknar í júlímánuði. 5.9.2007 23:10
Tugir manna láta lífið í hitabylgju í Kaliforníu Að minnsta kosti 25 hafa látið lífið í mikilli hitabylgju sem hefur gengið yfir suðurhluta Kaliforníu í Bandaríkjunum síðustu daga. Hiti fór í fyrsta skipti í dag niður fyrir 40 gráður í Los Angeles og mælist nú 38 gráður. Rafmagnslaust varð á stórum svæðum í kjölfar hitabylgjunnar vegna mikillar rafmagnsnotkunar. 5.9.2007 22:59
Köstuðu grjótum í bifreiðar Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði laust fyrir klukkan átta í kvöld afskipti af tveimur drengjum sem voru að kasta grjótum í bifreiðar við Hátún í Reykjavík. Drengirnir, sem eru 16 og 18 ára gamlir, reyndust báðir vera ölvaðir. 5.9.2007 22:19
Skutu á gæsahóp út úr bifreið Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði um klukkan sex í kvöld ferð tveggja manna í Mosfellsdal eftir að tilkynning barst um þeir hefðu verið að skjóta úr haglabyssu út úr bifreið. Lögreglan lagði hald á haglabyssu sem fannst í bílnum en mennirnir neituðu sök. 5.9.2007 22:09
Flytja allt plútóníum á einn stað Bandarísk stjórnvöld hafa ákveðið að flytja allar birgðir af geislavirku plútóníum sem nota má í kjarnorkuvopn til Savannah River í Suður-Karólínu fylki. Er þetta gert til að einfalda öryggisgæslu, draga úr kostnaði og koma í veg fyrir hryðjuverkaárásir. Alls verða um þrjú þúsund gámar af plútóníum fluttir á hið nýja öryggissvæðið. 5.9.2007 21:30
Um 200 manns enn saknað í Níkaragva Að minnsta kosti 21 lét lífið þegar fellibylurinn Felix gekk yfir austurströnd Níkaragva í Mið-Ameríku í gær samkvæmt þarlendum yfirvöldum. Um 200 manns er enn saknað en þúsundir heimila eyðilögðust af völdum fellibylsins. 5.9.2007 20:59
Ræningjar með góða þjónustulund Þrír menn sem rændu sportvöruverslun nálægt borginni Montevideo í Úrúgvæ í dag héldu áfram að afgreiða viðskiptavini á meðan á ráninu stóð. Mennirnir lokuðu starfsmenn verslunarinnar inni í bakherbergi og afgreiddu viðskiptavini í tæpan hálftíma áður en þeir hurfu á braut. 5.9.2007 20:27
Vilja stöðva starfsemi fyrirtækja sem hunsa reglur vinnumarkaðarins Stöðva verður umsvifalaust starfsemi þeirra fyrirtækja sem ekki virða leikreglur íslensks vinnumarkaðar. Þetta kemur fram í ályktun sem miðstjórn Alþýðusambands Íslands samþykkti í dag. Forseti sambandsins segir þolinmæði gagnvart fyrirtækjum sem brjóta á rétti starfsmanna á þrotum. 5.9.2007 20:00
Flaug með fimm kjarnorkusprengjur fyrir mistök Bandarísk herflugvél flaug fyrir mistök með fimm kjarnorkusprengjur um borð yfir Bandaríkin í síðustu viku. Mistökin uppgötvuðust fyrir tilviljun en yfirmenn flughersins segja að þrátt fyrir þau hafi aldrei verið nein hætta á ferðum. 5.9.2007 19:35
Heilsu Pavarottis hrakar Heilsu stórsöngvarans Lucianos Pavarottis hefur hrakað mjög og ástand hans er nú sagt mjög alvarlegt. Pavarotti þjáist af krabbameini. Læknar sinna honum á heimili hans á Ítalíu. 5.9.2007 19:21
Yfirmaður herja NATO óánægður með Íslendinga Æðsti yfirmaður herja Atlantshafsbandalagsins í Evrópu gagnrýndi í dag ákvörðun utanríkisráðherra að kalla íslenskan friðargæsluliða heim frá Írak. Hann segist hafa orðið fyrir vonbrigðum. 5.9.2007 19:07
Smánar píslarsögu Siguður Líndal lagaprófessor segir að umdeild Símaauglýsing kunni að brjóta gegn lögum. Hún smáni píslarsögu Krists. 5.9.2007 19:05
Vill kalla friðargæsluliða heim frá Afganistan Formaður Vinstri grænna vill að íslenskir friðargæsluliðar í Afganistan verði kallaðir heim. Vera þeirra þar samræmist ekki lögum. Hann segir heimkvaðningu friðargæsluliða í Írak aldrei hafa komið á borð utanríkismálanefndar Alþingis. 5.9.2007 19:03