Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Vilja kæra þýskt-pólskt fyrirtæki fyrir ólögmæta starfsemi Óhjákvæmilegt er að þýsk-pólska þjónustufyrirtækið Hunnenbeck verði kært fyrir ólögmæta starfsemi hér á landi að mati Starfsgreinasambands Íslands. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá sambandinu. Gerðar eru alvarlegar ahugasemdir við samvinnu GT verktaka við fyrirtækið og því haldið fram að hér á landi séu starfandi fjöldi manns án dvalarleyfis og utan við skattar og skyldur. 3.9.2007 23:51
Ekkert spurst til strokupilta Lögreglunni á Húsavík hefur enn ekki borist neinar vísbendingar um piltana tvo sem struku frá meðferðarheimilinu í Aðaldal í gærkvöldi. Talið er að piltarnir hafi stolið bíl skammt frá heimilinu og hefur lögreglan lýst eftir bifreiðinni. 3.9.2007 22:52
Bush segir hernaðarleg sjónarmið ráða stærð liðsafla í Írak Ákvörðun um að fækka liðsafla Bandaríkjamanna í Írak mun ráðast af hernaðarlegum sjónarmiðum en ekki pólitískum. Þetta kom fram í ræðu sem George Bush, bandaríkjaforseti, hélt fyrir bandaríska hermenn í Írak í dag. Óvænt heimsókn forsetans til Íraks lauk í kvöld þegar hann hélt áleiðis til Sidney í Ástralíu. 3.9.2007 21:28
Þúsundir flýja fellibylinn Felix Þúsundir manna á austurströnd Mið-Ameríku hafa flúið heimili sín vegna komu fellibylsins Felix. Hann stefnir nú í átt að Níkaragva en bylurinn er nú skilgreindur sem 4. stigs fellibylur. 3.9.2007 21:01
Strokupiltar taldir vera á stolinni bifreið Talið er líklegt að piltarnir tveir sem struku frá meðferðarheimilinu Bergi í Aðaldali í gærkvöldi séu nú á stolnum bíl. Formlegri leit var hætt á svæðinu í kringum meðferðarheimilið síðdegis í dag eftir að sporhundur rakti slóð piltanna upp að þjóðvegi. Lögreglan lýsir eftir bifreið með númerið UT-493. 3.9.2007 20:24
Vilja herða eftirlit til að tryggja réttindi erlenda starfsmanna Brotalamir í framkvæmd laga um réttindi erlendra starfsmanna valda því að sum fyrirtæki koma sér hjá því að skrá erlenda verkamenn hérlendis. Um er að ræða innlend og erlend fyrirtæki og sum þeirra hafa margsinnis gerst sek um að brjóta á réttindum starfsmanna. Þverpólitísk samstaða náðist innan félags- og tryggingamálanefndar í dag um að herða eftirlit og gera lögin skilvirkari. 3.9.2007 20:15
Dómsmálaráðuneytið bregst við frávísunardómi Hæstaréttar Dóms- og kirkjumálaráðuneytið mun í samráði við embætti ríkissaksóknara gera viðeigandi ráðstafanir til að bregðast við dómi Hæstaréttar frá því í dag vegna netbankasvindls. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá dóms- og kirkjumálaráðuneytinu. 3.9.2007 19:51
Danskur skattasáttmáli í höfn á elleftu stundu Danska ríkisstjórnin tilkynnti síðdegis að náðst hefði samkomulag við Danska þjóðarflokkinn um nýjan skattasáttmála, en forsætisráðherra hafði gefið frest til miðnættis í kvöld til lausnar málsins. 3.9.2007 19:43
Á annað þúsund manns mótmæla niðurrifi Pakkhússins á Selfossi Á annað þúsund manns hafa skrifað undir áskorun til bæjaryfirvalda á Selfossi að þyrma Pakkhúsinu. Pakkhúsið, sem var reist árið 1941 af Kaupfélagi Árnesinga, á að víkja fyrir nýju skipulagi í miðbæ Selfoss. Frestur til að skila inn athugasemdum við skipulagið rann út á föstudag. 3.9.2007 19:11
9 ára barnshafandi stúlka í mæðrahúsi ÞSSÍ Níu ára barnshafandi stúlka hefur dvalið í mæðrahúsi sem Þróunarsamvinnustofnun Íslands lét byggja í Bluefields í Níkaragva. Stúlkunni var nauðgað af frænda sínum og eru fóstureyðingar með öllu bannaðar í landinu. Líkur eru á að stúlkan lifi ekki fæðinguna af. 3.9.2007 19:10
Sigurður Kári vill selja og einkavæða Íslandspóst Einkavæða á og selja Íslandspóst segir Sigurður Kári Kristjánsson alþingismaður. Hann segir fyrirtækið seilast langt út fyrir starfssvið sitt með samkeppni við einkafyrirtæki. 3.9.2007 19:06
Líkur á að bandaríska herliðið verði kallað heim George Bush Bandaríkjaforseti segir líkur á að bandaríska herliðið í Írak verði kallað heim ef öryggisaðstæður í landinu haldi áfram að batna. Forsetinn kom í óvænta heimsókn til Íraks í morgun. 3.9.2007 19:04
Byltingarkenndur íslenskur blöndungur sparar mikið bensín og dregur úr mengun Nýr íslenskur blöndungur getur valdið byltingu í sparnaði á eldsneyti auk þess sem hann dregur verulega úr mengun. Markaður fyrir þessa íslensku uppfinningu er töluvert stærri en heimsmarkaður á nýjum bifreiðum. 3.9.2007 19:00
Olíufélögin hækkuðu á sama tíma um sömu krónutölu - en N1 lækkaði aftur í dag Talsmaður Atlantsolíu segir stórundarlegt að stóru olíufélögin hafi öll hækkað verð um sömu krónutölu á nákvæmlega sama tímanum. Stóru olíufélögin segja að heimsverðshækkun hafi áhrif til hækkunar hér. 3.9.2007 18:53
Heyrnarlausir geta loks talað í gemsa Samfélag heyrnarlausra á Stór-Reykjavíkursvæðinu á líklega eftir að liggja í gemsanum næstu dagana. Arnar Ægisson segir að samskiptin við eiginkonuna eigi eftir að batna til muna frá og með morgundeginum. 3.9.2007 18:45
Iðnaðarráðherra tekur vel í beiðni um hlutafélagavæðingu Meirihluti stjórnar Orkuveitunnar ákvað í morgun að óska eftir því að fyrirtækinu verði breytt í hlutafélag. Til þess að svo geti orðið þarf iðnaðarráðherra að leggja fram frumvarp um málið. Hann segist taka slíkri beiðni vel að því gefnu að tryggt verði að Orkuveitan verði áfram í félagslegri eigu. 3.9.2007 18:42
Rannsóknarleyfi á Gjástykkissvæði felur ekki í sér leyfi til borana Rannsóknarleyfi á Gjástykkissvæði felur ekki í sér leyfi til rannsóknarframkvæmda á svæðinu hvort sem er yfirborðsrannsóknir eða boranir. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá iðnaðarráðuneytinu. Ákvæði laga um mat á umhverfisáhrifum gilda um allar framkvæmdir rannsóknarleyfishafa þrátt fyrir útgáfu rannsóknarleyfis. 3.9.2007 18:32
Fjármálaráðherra ber ábyrgðina Langur fundur fjárlaganefndar í morgun um Grímseyjarferju staðfesti subbuskapinn í stjórnsýslunni, að mati Bjarna Harðarsonar, þingmanns Framsóknarflokksins. Klúðrið má rekja til galopinnar heimildar fjármálaráðuneytisins, að mati Bjarna sem segir þáverandi og núverandi fjármálaráðherra bera ábyrgð á málinu. 3.9.2007 18:22
Hæstiréttur staðfestir frávísun vegna netbankasvindls Hæstiréttur Íslands staðfesti í dag frávísun Héraðsdóms Norðurlands eystra í máli gegn fjórum mönnum sem var gert að sök að hafa með sviksamlegum hætti hagnast á kerfisvillu í netbanka. Mennirnir högnuðust um tugir milljónir króna á villunni. 3.9.2007 17:47
Rafrænir lyfseðlar í gagnið á næstu mánuðum Stefnt er að því að rafrænir lyfseðlar verði orðnir að veruleika alls staðar á landinu á fyrstu mánuðum næsta árs en verkefni þar að lútandi var hleypt af stokkunum í dag. Það var Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra sem hóf verkefnið á Selfossi þegar hann heimsótti Heilbrigðisstofnun Suðurlands. 3.9.2007 17:07
350 sektaðir fyrir hraðakstur í Hvalfjarðargöngum 350 ökumenn sem fóru um Hvalfjarðargöng um helgina mega eiga von á sektum vegna hraðaksturs. Þeir náðust allir á hraðamyndavél í göngunum. 3.9.2007 16:49
Hrein eign lífeyrissjóðanna 1500 milljarðar króna Hrein eign lífeyrissjóða landsins nam tæplega 1500 milljörðum króna í árslok 2006 og jókst um nærri fjórðung á árinu. Þetta kemur fram í skýrslu Fjármálaeftirlitsins um ársreikninga lífeyrissjóða fyrir síðasta ár. 3.9.2007 16:40
Vinnumálastofnun kanni samninga starfsmannaleiga og sjúkrahúsa Ögmundur Jónasson, þingflokksformaður Vinstri - grænna og fulltrúi flokksins í félags- og tryggingamálanefnd, hyggst fara fram á það á fundi nefndarinnar í dag að Vinnumálastofnun kanni samninga sem heilbrigðisstofnanir hafa gert við starfsmannaleigur. Hann segist hafa séð samning hjá sjúkraliða á vegum starfsmannaleigu þar sem launin séu undir ákvæðum kjarasamninga. 3.9.2007 16:21
Faðernismál Lúðvíks sett í dóm Fyrirtaka í máli Lúðvíks Gizurarsonar á hendur þeim Steingrími og Pálínu Steingrímsbörnum vegna faðernismáls Lúðvíks var tekið fyrir og sett í dóm í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. 3.9.2007 16:01
Össur vill að Birkir líti í eigin barm Össur Skarphéðinsson, iðnaðarráðherra, segir að framsóknarmenn hafi sjálfir beitt því vinnulagi sem notast var við í Grímseyjarferjumálinu. Þetta kemur fram í pistli á heimasíðu Össurar en þar lýsir hann því einnig yfir að hann hyggist láta rannsaka aðkomu Birkis Jóns Jónssonar, að Byrgismálinu svokallaða. 3.9.2007 16:00
Bjarni tekur upp hanskann fyrir Einar Einar Hermannsson skipaverkfræðingur fól Bjarna Harðarsyni, þingmanni Framsóknarflokksins, að biðja Kristján L. Möller samgönguráðherra um rökstuðning á þeim orðum sem ráðherra hefur látið falla um Einar í tengslum við Grímseyjarferjumálið. 3.9.2007 15:43
Þorskurinn að hverfa úr Eystrasalti Fiskimenn á Eystrasalti verða að minnka þorskveiðar sínar um þriðjung á þessu ári ef stofninn á ekki að hverfa, að sögn Evrópusambandsins. Vísindamenn hafa lengi varað við því að ofveiði sé að útrýma þorskstofninum í austurhluta Eystrasaltsins og hafa viljað setja algert veiðibann. Þeir hafa einnig viljað minnka veiðarnar í vesturhlutanum um helming. 3.9.2007 15:42
Forstjóri Orkuveitunnar í sjö mánaða leyfi Guðmundur Þóroddsson, forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur, mun taka sér leyfi frá störfum næstu sjö mánuði. Á meðan á leyfinu stendur mun Guðmundur starfa sem forstjóri Reykjavík Energy Invest. Samkvæmt heimildum Vísis hefur verið boðað til fundar starfsfólks á morgun, þriðjudag. Haukur Leósson, stjórnarformaður Orkuveitunnar, sagði í samtali við Vísi að Guðmundur hefði verið fenginn til verksins vegna yfirburða þekkingar hans á orkumálum. 3.9.2007 15:19
Slógust við karlmann um dósir Slagsmál um dósir voru meðal þeirra líkamsárásarmála sem komu til kasta lögreglunnar um helgina. Eftir því sem segir í frétt lögreglunnar slógust tvær konur við karl á fertugsaldri en þær ætluðu að hafa af honum tómar gosdrykkjaumbúðir sem hann hafði safnað. 3.9.2007 15:13
Guðfríður Lilja framkvæmdastýra þingflokks VG Guðfríður Lilja Grétarsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdarstýra þingflokks Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs. Guðfríður Lilja, sem er varaþingmaður flokksins, er með BA-próf í sagnfræði og stjórnmálafræði frá Harvard-háskóla í Bandaríkjunum og meistaragráðu í hugmyndasögu og heimspeki frá Cambridge-háskóla í Bretlandi. 3.9.2007 14:54
Bandarískur almenningur óánægður með þingið Bandarískur almenningur er ekki hrifinn af stjórn demokrata á þingi landsins. Samkvæmt nýrri skoðanakönnun er aðeins einn af hverjum fimm ánægður. Það er jafnvel verri einkunn en George Bush fær hjá þjóðinni. Demokratar unnu meirihluta í báðum deildum í janúar síðastliðnum og hafa síðan gert hvað þeir hafa getað til þess að þvælast fyrir forsetanum. 3.9.2007 14:48
Vill að matsmaður meti heilaskaða Munnlegur málflutningur var í morgun í máli Jóns Péturssonar, dæmds nauðgara, vegna þeirrar kröfu hans að kallaður verði til matsmaður til að leggja mat á sakhæfi hans. 3.9.2007 14:20
Einungis 13 prósent ferðamanna nýttu Strætó Einungis 13 prósent ferðamanna sem heimsóttu Reykjavík síðastliðinn vetur nýttu sér Strætó. Þetta kemur fram í viðhorfskönnun sem gerð var fyrir Höfuðborgarstofu á fyrri hluta ársins. Könnunin leiddi enn fremur í ljós að rúmlega níu af hverjum tíu töldu reynsluna af borginni frábæra eða góða. 3.9.2007 14:05
Strokudrengir enn týndir Lögreglan á Húsavík leitar enn tveggja fimmtán ára pilta sem hurfu frá meðferðarheimilinu Bergi í Aðaldal. Drengirnir fóru frá heimilinu í gærkvöldi og hefur ekkert spurst til þeirra síðan. Hundar eru notaðir við leitina en að sögn lögreglu er erfitt að leita að fólki sem ekki vill láta finna sig. 3.9.2007 13:42
Níu ára barnshafandi stúlka í umsjá Þróunarsamvinnustofnunar Á meðal ungra tilvonandi mæðra sem dvelja í mæðrahúsinu í Bluefields í Níkarakva, sem Þróunarsamvinnustofnun Íslands lét byggja, dvelur nú níu ára barnshafandi stúlka. Mál stúlkunnar hefur vakið fjölmiðlaathygli í landinu en hún var misnotuð af frænda sínum. Fóstureyðingar eru ólöglegar með öllu í landinu. 3.9.2007 13:13
Bush í óvæntri heimsókn í Írak George Bush forseti Bandaríkjanna kom í óvænta heimsókn til Íraks, í dag. Robert Gates, varnarmálaráðherra landsins er með honum í ferðinni. Bandaríska varnarmálaráðuneytið segir að forsetinn og ráðherrann muni eiga fundi með æðstu foringjum hersins í Írak. 3.9.2007 13:08
Verðlaunaður fyrir að stuðla að framgangi stærðfræði í Lettlandi Benedikt Jóhannesson, framkvæmdastjóri Heims og fyrrverandi formaður Íslenska stærðfræðifélagsins, hlaut í síðustu viku Atis Kronvalds verðalunin í Lettlandi, sem eru virtustu verðlaun Letta í menntamálum. Hann er jafnframt fyrsti útlendingurinn til þess að hljóta þessi verðlaun. 3.9.2007 12:35
Hvíldartímareglur að ganga að flutningabílstjórastéttinni dauðri Aksturs- og hvíldartímareglur Evrópusambandsins eru að gagna af stétt flutningabílstjóra dauðri, að mati flutningahóps heildarsamtaka atvinnulífsins í Evrópu. Sömu reglur gilda hér á landi. 3.9.2007 12:15
12 börn á sjúkrahús eftir flugskeytaárás í Ísrael Tólf börn voru flutt á sjúkrahús í bænum SDEROT í suðurhluta Ísraels eftir að flugskeyti lenti í garðinum við leikskólann þar í bæ í morgun. 3.9.2007 12:12
Nærri þrjú þúsund hlýddu á Noruh Jones Tæplega þrjú þúsund manns voru á tónleikum bandarísku jass og kántrýsöngkonunnar Noruh Jones sem haldnir voru í Laugardagshöllinni í gærkvöld. 3.9.2007 12:05
Tjónið á Norðurbrú eftir mótmælin nemur tugum milljóna Talið er að tjónið og eyðileggingin vegna mótmælanna á Norðurbrú í Kaupmannahöfn um helgina nemi tugum milljónum króna og eru íbúar og verslunareigendur á Norðurbrú orðnir langþreyttir á ástandinu. Sextíu og fjögur ungmenni voru handtekin aðfaranótt sunnudags og þrjú þeirra sitja í fangelsi. 3.9.2007 12:00
Minni hækkun á bensínverði hjá Atlantsolíu en stóru olíufélögunum Atlantsolía hækkar verð á bensíni í dag um eina krónu og fimmtíu aura en stóru olíufélögin hækkuðu verðið um tvær krónur fyrir helgi. 3.9.2007 12:00
Vilja selja nýja Grímseyjarferju og láta smíða nýja Jón Bjarnason og Árni Þór Sigurðsson, fulltrúar Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs í fjárlaganefnd og samgöngunefnd Alþingis, hafa farið fram á að samgönguráðherra skipi nú þegar óháða nefnd með aðild heimamanna í Grímsey til að fara yfir þá kosti sem eru nú í stöðunni varðandi nýja Grímseyjarferju. 3.9.2007 11:50
Ahmadinejad „sannar" að ekki verði ráðist inn í Íran Mahmoud Ahmadinejad forseti Írans segist þess fullviss að Bandaríkin muni ekki ráðast inn í landið þrátt fyrir sögusagnir um að slík aðgerð sé yfirvofandi. Hann vísar í hæfileika sína sem verkfræðings og staðfasta trú á orð guðs máli sínu til stuðnings. 3.9.2007 11:46
Ákærður fyrir sértaklega hættulega árás með ölkönnu Ríkissaksóknari ákærði í morgun mann fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás með því að hafa aðfararnótt 17. desember í fyrra veist að öðrum manni á veitingahúsinu Hverfisbarnum í Reykjavík og slegið hann hnefahöggum í andlit og með ölkönnu í höfuðið. 3.9.2007 11:08