Slævandi lyf og lágt sætisbak dráttarvélar orsakir banaslyss Árni Sæberg skrifar 6. júní 2025 11:42 Banaslysið varð skammt frá Sólheimasandi. Vísir/Vilhelm Meginorsök banaslyss sem varð á Suðurlandsvegi, skammt vestan Péturseyjar, í janúar í fyrra var að ökumaður jeppa gætti ekki að umferð fyrir framan sig. Hann ók aftan á dráttarvél á áttatíu kílómetra hraða. Aðrar orsakir slyssins voru að ökumaðurinn var undir áhrifum slævandi lyfja, í lækningalegum skammti þó, og að sætisbak dráttarvélarinnar var aðeins 35 sentimetra hátt.
Þetta kemur fram í skýrslu Rannsóknarnefndar samgönguslysa um banaslys sem varð á Suðurlandsvegi við afleggjara að Eystri-Sólheimum þann 29. janúar í fyrra. 65 ára ökumaður dráttarvélar lést á vettvangi af innvortis áverkum. Í samantekt segir að Massey Ferguson dráttarvél hafi verið ekið vestur Suðurlandsveg við afleggjara að Eystri-Sólheimum. Á sama tíma hafi Jeep Wrangler jeppa verið ekið úr sömu átt og aftan á dráttarvélina. Dráttarvélin hafi stöðvaðist fyrir utan veg en fólksbifreiðin oltið yfir á vinstri hlið á veginum. Ökumaður dráttarvélarinnar hafi látist á slysstað. Tveir farþegar í aftursæti fólksbifreiðarinnar hafi verið fluttir með þyrlu af slysstað. Ökumaður og farþegi í framsæti bifreiðarinnar hafi verið fluttir með sjúkrabifreið á sjúkrahús. Leit eftir farþegum í aftursæti áður en dráttarvélin birtist fyrir framan Í greiningu segir að ákoman á dráttarvélinni hafi verið vinstra megin að aftan og því líklegt að vélin hafi verið komin í hægri beygju eða verið vel hægra megin á akreininni. Því sé sennilegt að hraði dráttarvélarinnar hafi verið lítill. Eftir áreksturinn hafi hún haldið áfram í víðri hægri beygju rúmlega þrjátíu metra og stöðvast utan vegar við girðingu. Ökumaður jeppans hafi sagst hafa verið verið vel vakandi þegar slysið varð. Hann hafi vaknað klukkan 06 á slysdag en farið að sofa klukkan 22 kvöldið áður og því verið vel úthvíldur. Hann hafi ekið farþegum sínum austur frá Keflavíkurflugvelli í skipulagðri dagsferð. Þau hafi verið á leið á Hvolsvöll þegar slysið átti sér stað. Hann hafi verið að líta eftir farþegum í bifreiðinni rétt fyrir slysið og hafi þeir allir verið sofandi. „Þegar hann leit aftur fram hafi dráttarvélin birst skyndilega fyrir framan hann, en hún hafi ekki verið honum sýnileg fyrir þann tíma. Hann hafi ekki slasast mikið í árekstrinum og farið í að aðstoða slasaða á vettvangi.“ Gætti ekki að umferð fyrir framan Í niðurstöðukafla skýrslunnar segir að meginorsök slyssins hafi verið að ökumaður jeppans hafi ekki gætt að umferð framan við bifreiðina. Aðrar orsakir hafi verið að ökumaður jeppans hafi greinst með slævandi lyf í blóði í lækningalegum skammti og að lágt sætisbak hafi verið í dráttarvélinni. Sætisbak með góðum bak- og höfuðstuðningi verndi ökumann mun betur við högg sem myndast við aftanákeyrslu. Hæð á sætisbaki ökumanns dráttarvélarinnar hafi verið um það bil 35 sentimetrar og það hafi veitt lítinn stuðning við áreksturinn og ökumaðurinn hafi hlotið alvarlega innvortis áverka. Vilja reglur um akstur undir áhrifum slævandi lyfja Í skýrslunni segir að rannsóknarnefndin beini þeirri tillögu til innviðaráðuneytisins að setja í reglugerð með nánari hætti ákvæði um vanhæfismörk, það er hvenær ökumaður teljist vera óhæfur til að stjórna ökutæki vegna neyslu lyfja. Undanfarið hafi komið inn á borð nefndarinnar atvik þar sem ökumenn séu við akstur og greinist með slævandi lyf í blóði í lækningalegum skammti, sem hafi verið ávísað af lækni. Á Íslandi hafi ekki verið gerð grein fyrir vanhæfismörkum vegna aksturs undir áhrifum slævandi lyfja en í flestum tilvikum komi fram í leiðbeiningum með lyfjunum að ekki skuli aka á meðan meðferð stendur. Í Noregi hafi til dæmis verið farin sú leið að skilgreina mörk á styrk tuttugu mismunandi lyfja, sem rannsóknir sýni að geti haft áhrif á umferðaröryggi. Sambærilegar reglur vanti á Íslandi. Þá beini nefndin því til Lyfjastofnunar að hún beiti sér fyrir samræmingu á merkingum umbúða lyfja sem geta dregið úr hæfni til akstur og notkunar véla. Misjafnt sé hvort rauður varúðarþríhyrningur sé á umbúðum slíkra lyfja. Rauða þríhyrninginn vanti í mörgum tilfellum Við rannsókn banaslyssins hafi komið í ljós að misræmi sé á varúðarmerkingum á umbúðum lyfja. Lyf, sem séu varhugaverð gagnvart akstri, séu seld án þess að rauður viðvörunarþríhyrningur sé á umbúðunum þrátt fyrir að í fylgiseðli komi fram að akstur sé varhugaverður eða jafnvel að ekki skuli aka eða nota vélar eftir töku lyfsins. Á Íslandi hafi um langa tíð verið þekkt, og kennt í ökukennslu, að rauður þríhyrningur tákni að ekki megi aka bifreið. Samkvæmt upplýsingum frá Lyfjastofnun komi þetta misræmi meðal annars til vegna mismunandi krafna á milli landa á viðbótaráletrunum fyrir umbúðir lyfja, en rauði þríhyrningurinn sé hluti af sérkröfum sem Ísland geri um áletranir. Lyf á íslenskum markaði séu oft í fjöllanda pakkningum og vegna smæðar markaðarins deili Ísland oftar en ekki pakkningum með öðru landi. Lyfjastofnun hafi því gert fyrirvara um þessar merkingar á síðustu árum á þeim forsendum að vegna fjöllanda pakkninga séu þessi lyf ekki öll merkt rauðum varúðarþríhyrningi og því sé mikilvægt í öllum tilfellum að lesa fylgiseðilinn, en hann veiti notenda ávallt bestu upplýsingarnar.
Samgönguslys Umferðaröryggi Lyf Mýrdalshreppur Mest lesið Vaktin: Þjóðin býr sig undir illviðri Veður Framíköll Jóns féllu í grýttan jarðveg: „Flissandi og dónalegur“ Innlent Love, Hannah og Pia í lagi en Curver ekki: Það þekkja mig allir með þessu nafni Innlent Ragnar brosir allan hringinn eftir símtal frá Góu og Omnom Innlent Státum af klárasta barþjóni Evrópu Innlent Þungaflutningarnir með þeim mestu á Íslandi Innlent Ógni þjóðaröryggi að ekkert íslenskt kaupskip sé skráð hér á landi Innlent Önnur furðuræða Jóns Péturs: „Þunn í Brussel, saga gjaldþrota drykkjukonu“ Innlent Gremja innan Landspítala vegna stóra páskaeggjahallærisins Innlent Bíll í ljósum logum Innlent Fleiri fréttir Státum af klárasta barþjóni Evrópu Love, Hannah og Pia í lagi en Curver ekki: Það þekkja mig allir með þessu nafni Ógni þjóðaröryggi að ekkert íslenskt kaupskip sé skráð hér á landi Þungaflutningarnir með þeim mestu á Íslandi Framíköll Jóns féllu í grýttan jarðveg: „Flissandi og dónalegur“ Ragnar brosir allan hringinn eftir símtal frá Góu og Omnom Almannavarnir í beinni og ótti um að launafólk verðleggi sig út af markaðnum Aflýsa og seinka flugferðum Önnur furðuræða Jóns Péturs: „Þunn í Brussel, saga gjaldþrota drykkjukonu“ Auka viðbúnað í Grindavík vegna veðurs „Þetta er fréttamennska sem er stórhættuleg“ Loka Sorpu vegna veðurs Áfram í gæsluvarðhaldi vegna líkamsárásar í Túnunum Taka ákvörðun um skólahald síðdegis Bíll í ljósum logum Fjölga plássum og breyta nafni eins leikskóla Þau skipa lista Miðflokksins í Reykjanesbæ Margrét fær ekki að leiða dómaratríóið fyrir dóm Kolin hitna undir menningarhúsinu á Króknum Gert ráð fyrir að aðildarviðræður klárist á kjörtímabilinu Hafa áhyggjur af húsnæðis- og byggingamarkaði Ekkert bendi til tengsla við Hamas-samtökin „Umferðin kemur til með að hægja verulega á sér“ Gera ráð fyrir að aðildarviðræður klárist fyrir lok kjörtímabilsins Tókust á um Borgarlínuna Gremja innan Landspítala vegna stóra páskaeggjahallærisins Rukka ekki skólagjöld í nýjum einkaskóla í Kópavogi Hæddist að Kristrúnu: „Halló! Ég er orðinn pirripú“ Engin samtöl hafi átt sér stað um „fiskveiðikommissar“ Aflýsa hættustigi og rýmingum á Seyðisfirði Sjá meira