Uppgjörið: Skotland - Ísland 1-3 | Fyrsti sigur Arnars Bergmanns við stjörnvölinn hjá íslenska liðinu Hjörvar Ólafsson skrifar 6. júní 2025 20:44 Leikmenn íslenska liðsins fagna marki Guðlaugs Victors Pálssonar Mynd/Steve Welsh/Getty Images Ísland bar sigurorð af Skotlandi þegar liðin áttust við í vináttulandsleik í fótbolta karla á Hampden Park í Glasgow í kvöld. Lokatölur í leiknum urðu 3-1 íslenska liðinu í vil. Þetta var fyrsti sigur íslenska liðsins undir stjórn Arnars Bergmanns Gunnlaugssonar og sömuleiðis í fyrsta skipti sem Ísland vinnur Skotland í A-landsleik í karlaflokki en liðin höfðu mæst sex sinnum fyrir viðureign kvöldsins. Andri Lucas Guðjohnsen kom Íslandi yfir með stórglæsilegu marki þegar tæpar tíu mínútur voru liðnar af leiknum. Stefán Teitur Þórðarson skallaði þá boltann á Andra Lucas sem lét skotið ríða af rétt utan vítateigs og boltinn fór í slána og inn. Miðvörðurinn John Souttar jafnaði svo metin fyrir Skotland um miðjan fyrri hálfleik með skalla eftir hornspyrnu Max Johnston. Andri Lucas Guðjohnsen fagnar hér marki sínu með Jóni Degi Þorsteinssynii Hörður Björgvin Magnússon, sem var að spila sinn fyrsta landsleik eftir að hafa jafnað sig á því að hafa slitið krossband, hefði mátt gera betur í baráttu sinni við Souttar. Hörður Björgvin spilaði síðast landsleik í undankeppni EM 2024 gegn Lúxemborg í september árið 2023. Íslenska liðið náði svo forystunni á nýjan leik skömmu fyrir lok fyrri hálfleiks. Albert Guðmundsson tók þá fyrstu hornspyrnu Íslands í leiknum og eftir vandræðagang leikmanna skoska liðsins hrökk boltinn af Lewis Ferguson og þaðan í netið. Guðlaugur Victor Pálsson kom Íslandi í 3-1 í upphafi seinni hálfleiks þegar hann kastaði sér fram og skoraði með föstum skalla eftir fyrirgjöf Alberts Guðmundssonar úr aukaspyrnu. Albert Guðmundsson lagði upp mark Guðlaugs Victors Pálssonar. Mynd/Mark Scates/Getty Images Niðurstaðan sannfærandi sigur íslenska liðsins og flott frammistaða hjá liðinu sem gefur góð fyrirheit fyrir framhaldið. Það er allavega hægt að fara jákvæðar inn í næstu verkefni en eftir spilamennskuna í fyrsta landsleikjaglugga Arnars Bergmanns þar sem tveir leikir töpuðust gegn Kósóvó í umspili um hvort liðið færi í B og C deild Þjóðadeildarinnar. Elías Rafn Ólafsson var öruggur í sínum aðgerðum í marki íslenska liðsins og varði nokkrum sinnum vel. Hákon Rafn Valdimarsson hefur átt fast sæti í byrjunarliði Íslands undanfarin ár en þessi frammistaða Elíasar Rafns veldur Arnari Bergmanni höfuðverk. Hörður Björgvin og Sverrir Ingi Ingason mynduðu gott miðvarðarpar og Daníel Leó Grétarsson kom vel inn þegar hann leysti Hörð Björgvin af hólmi í hálfleik sem og Aron Einar Gunnarsson sem spilaði síðast stundarfjórðunginn vegna smávægilegra meiðsla Sverris Inga Ingasonar. Mikael Egill Ellertsson spilaði vel í stöðu vinstri bakvarðar. Mynd/Mark Scates/Getty Images Mikael Egill Ellertsson og Guðlaugur Victor Pálsson skiluðu góðu kvöldverki í bakvarðarstöðunum. Dagur Dan Þórhallsson kom öflugur inn í hægri bakvörðinn en hann fyllti skarð Guðlaugs Victors þar eftir rúmlega klukkutíma leik. Ísak Bergmann Jóhannesson og Stefán Teitur Þórðarson voru yfirvegaðir og sannfærandi í uppspili íslenska liðsins. Arnór Ingvi Traustason og Willum Þór Willumsson þær 20 mínútur sem þeir spiluðu saman inni á miðsvæðinu. Albert Guðmundsson var nokkuð mikið í boltanum og Andri Lucas Guðjohnsen var flottur uppspilspunktur. Hákon Arnar Haraldsson og Jón Dagur Þorsteinsson voru síðan sprækir á köntunum. Hákon Arnar var klókur við að kom inn á völlinn, fá boltann í lappir og tengja saman spil og Jón Dagur ógnaði nokkrum sinnum með því að vinna mann í stöðunni einn á móti einum. Mikael Neville Anderson kom af krafti inn á hægri kantinn og kom með jákvætt orkustig inn á völlinn. Ísland spilar annan vináttulandsleik við Norður-Írland á Windsor Park í Belfast á þriðjudaginn kemur. Undankeppni HM 2026 hefst svo föstudaginn 5. september hjá íslenska liðinu þegar það fær Aserbaídsjan í heimsókn á Laugardalsvöll. Þriðjudaginn 9. september sækir Ísland síðan Frakkland heima á Parc des Princes. Ísak Bergmann Jóhannesson í baráttunni við Lewis Ferguson og Hákon Arnar Haraldsson fylgist með. Mynd/Craig Williamson/Getty Images Landslið karla í fótbolta
Uppgjörið: Skotland - Ísland 1-3 | Fyrsti sigur Arnars Bergmanns við stjörnvölinn hjá íslenska liðinu Fótbolti
Uppgjörið: Skotland - Ísland 1-3 | Fyrsti sigur Arnars Bergmanns við stjörnvölinn hjá íslenska liðinu
Uppgjörið: Skotland - Ísland 1-3 | Fyrsti sigur Arnars Bergmanns við stjörnvölinn hjá íslenska liðinu Fótbolti