Á annað þúsund manns mótmæla niðurrifi Pakkhússins á Selfossi 3. september 2007 19:11
Á annað þúsund manns hafa skrifað undir áskorun til bæjaryfirvalda á Selfossi að þyrma Pakkhúsinu. Pakkhúsið, sem var reist árið 1941 af Kaupfélagi Árnesinga, á að víkja fyrir nýju skipulagi í miðbæ Selfoss. Frestur til að skila inn athugasemdum við skipulagið rann út á föstudag. Hátt á annað hundrað manns hafa skráð sig sem stofnfélaga í samtökum til bjargar Pakkhúsinu á Selfossi. Pakkhúsið stendur sunnan við bæjarskrifstofurnar á Selfossi og hýsir nú Rannsóknarmiðstöð í jarðskjálftaverkfræði. Árni Valdimarsson, talsmaður hollvinasamtaka Pakkhússins, segir að samtökin hafi safnað undirskriftum undanfarið til að skora á bæjaryfirvöld að hætta við áform um niðurrif hússins. Hann segir að yfir níutíu prósent þeirra sem samtökin hafi haft samband við skrifi nafn sitt á þessa áskorun. Árni segir að samtökin ætli að berjast fyrir því að Pakkhúsið muni standa áfram til prýði fyrir Selfossbæ. Hann segist ekkert skilja í því hvers vegna bæjaryfirvöld vilji að húsið víki. Að sögn Ragnheiðar Hergeirsdóttur, bæjarstjóra Árborgar, rann frestur til að gera athugasemdir við deiliskipulagið sem gerir ráð fyrir niðurrifi Pakkhússins, út á síðastliðinn föstudag. Bæjarstjórinn á Selfossi segir að endanleg ákvörðun um afdrif hússins verði tekin í framhaldi af skoðun á öllum athugasemdum sem berast við deiliskipulagið. Starfsfólkið í Pakkhúsinu er flest andvígt því að húsið víki og þeir starfsmenn sem Stöð 2 ræddi við sögðust einfaldlega ekki trúa því að til þess kæmi. Árni Valdimarsson hefur barist lengi gegn áformum yfirvalda á Selfossi um að breyta ásýnd miðbæjarins. Hann hefur meðal annars staðið gegn hugmyndum um veg sem á að liggja í gegnum garðinn hans. Nýlega var lagður eldur að bílskúr sem er í byggingu við hús Árna en hann segir að það stöðvi sig ekkert í baráttunni.
Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Fleiri fréttir Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Sjá meira