Fleiri fréttir

Frístundakort gefin út á Skagaströnd

Hreppsnefnd Höfðahrepps, nú sveitarfélagsins Skagastrandar, ákvað á fundi sínum 27. ágúst að gefa út frístundakort fyrir alla einstaklinga í sveitarfélaginu á grunnskólaaldri.

Á skilið að deyja fyrir að eyðileggja orðstír Tælands

Tælenskur maður hefur verið dæmdur til dauða fyrir að myrða tvær rússneskar konur sem sátu á Pattaya ströndinni og fylgdust með sólarupprásinni. Morðin voru framin í febrúar síðastliðnum. Ekki hefur verið gefin ástæða fyrir ódæðinu, ef hún var þá einhver. Ofursti í Tælensku lögreglunni sagði að morðinginn ætti dauðadóminn skilið fyrir að hafa eyðilagt orðstír landsins.

Bjartur leitar að nýjum Dan Brown

Bókaútgáfan Bjartur stendur fyrir óvenjulegri bókmenntasamkeppni þessa dagana. Tilefnið er ritteppa Dans Browns, höfundar Da Vinci lykilsins, söluhæstu bókar allra tíma. Bókin kom út árið 2003 og síðan þá - undanfarin fjögur ár - hefur Brown reynt að klára næstu skáldsögu sína, sem hefur vinnuheitið Salomons lykilinn.

Sjálfsvíg í Páfagarði

Tuttugu og fimm ára gamall lögreglumaður í Páfagarði lést í dag af skotsárum og er talið að hann hafi framið sjálfsvíg. Lögreglusveit Páfagarðs er talin til úrvalssveita og meðlimir hennar vandlega valdir og þjálfaðir. Ekki síst er fylgst með andlegri heilsu þeirra eftir mikið ofbeldisverk sem var framið í Páfagarði árið 1998.

Rætt við skipaverkfræðing vegna Grímseyjarferju

Málefni Grímseyjarferju verða til umfjöllunar á fundi fjárlaganefndar Alþingis sem hefst nú klukkan tíu. Á fundinn hafa verið boðaðir fulltrúar Ríkiskaupa og samgönguráðuneytisins auk Einars Hermannssonar skipaverkfræðings.

Yfirtökur hafnar í Zimbabwe

Ríkisstjórn Zimbabwes hefur yfirtekið 49 prósenta hlut bandaríska matvælarisans Heinz í stærsta matarolíuframleiðanda landsins. Fyrir þennan hlut voru greiddar 6,8 milljónir dollara. Þetta er fyrsta stóra yfirtakan í Zimbabwe eftir að Robert Mugabe lýsti því yfir að heimamenn myndu fá meiri stjórn á erlendum fyrirtækjum sem starfa í landinu.

Páfi hvetur til umhverfisverndar

Íklæddur grænum hökli hvatti Benedikt páfi í gær hálfa milljón ungmenna sem voru saman komin á umhverfisverndarhátíð á Ítalíu til að bjarga jörðinni áður en það væri um seinan. Í ræðu páfa voru innan um hefðbundnari tilmæli um að viðhalda fjölskyldugildum og lifa dyggðugu lífi ábendingar um að fara betur með umhverfið. Þá bauð páfi upp á meira en innantóm orð. Hann hyggst koma fyrir sólarrafhlöðum í Vatíkaninu, og mun greiða fyrir skógræktarverkefni til að vinna á móti kolefnislosun höfuðstöðva kaþólsku kirkjunnar.

Ferðamaður keyrði á vegþrengingu við Vogaafleggjara

Erlendur ferðamaður slasaðist þegar hann ók bíl sínum á steinsteypta vegþrengingu við Vogaafleggjara á Reykjanesbraut undir morgun. Hann var fluttur í sjúkrabíl á Slysadeild Landsspítalans, en farþega í bílnum sakaði ekki.-

Fellibylurinn Felix sækir í sig veðrið

Hitabeltisstormurinn Felix sækir í sig veðrið og er nú orðinn fimmta stigs fellibylur. Hann fór í nótt þvert yfir suður Karíbahaf og stefnir hraðbyri á Yukatan skaga í Mexíkó. Vindhraði í bylnum er nú um 270 kílómetrar á klukkustund. Stutt er síðan fellibylurinn Dean reið yfir karíbahafið og Miðameríku með þeim afleiðingum að 27 manns létust. Hann var einnig fimmta stigs, en svo sterkir fellibyljir eru afar sjaldgæfir.

Fótboltabullur réðust að 14 ára dreng í Danmörku

Hópur drukkinna áhangenda AGF fótboltaliðsins í Danmörku réðst að fjórtán ára dreng af írökskum uppruna í lest á leið til Árhúsa í gær. Hvorki lestarstjórinn né aðrir starfsmenn lestarinnar brugðust við þegar mennirnir hreyttu fúkyrðum og hentu rusli í drenginn og rúmlega áttræða konu sem ferðaðist með honum. Aðrir áhangendur liðsins komu drengnum til bjargar, en enginn slasaðist í hamagangnum.

Tveir vélhjólamenn slösuðust

Tveir vélhjólamenn slösuðust og tveir aðrir sluppu naumlega þegar þeir voru að forða sér undan bíl, sem kom á móti þeim á öfugum vegarhelmingi á Reykjanesbraut undir kvöld í gær. Þeir sem slösuðust hlutu meðal annars beinbrot. Tildrög voru þau að bíllinn var að fara fram úr öðrum bíl og ók beint á móti bifhjólamönnunum. Þegar ökumaður varð þeirra var hafði hann ekki svigrúm til að beygja aftur inn á réttan vegarhelming.

Þyrla Landhelgisgæslunnar sækir slasaðan mann í Flatey

Maður meiddist í Flatey á Breiðafirði í gær og var óskað eftir þyrlu Landhelgisgæslunnar, sem sótti hann og flutti á Landsspítalann í Reykjavík. Maðurinn reyndist ekki alvarlega slasaður. Þá sótti þyrla veikan mann á bæ við Ísafjarðardjúp og flutti á sjúkrahús í Reykjavík. Hann var nýlega útskrifaður af sjúkrahúsinu á Ísafirði, en honum sló niður.

Kviknaði í bíl í Hafnarfirði

Minnstu munaði að illa færi þegar eldur kom upp í bíl sem stóð við iðnaðarhúsnæði í Hafnarfirði í nótt. Talsverður eldur logaði í honum þegar slökkivllið kom á vettvagng og sleiktu eldtungur húsvegginn, en slökkviliði tókst að slökkva eldinn áður en hann næði að læsa sig í húsið. Grunur leikur á að kveikt hafi verið í bílnum, sem er stórskemmdur, ef ekki ónýtur.

LHG í sjúkraflugi til Flateyjar

Þyrla Landhelgisgæslunnar var send til Flateyjar í dag en þar hafði maður handleggsbrotnað. Engar aðstæður eru í eyjunni til að gera að broti sem þessu og því ákveðið að senda þyrluna eftir manninum. Var komið með manninn á slysadeildina í Reykjavík skömmu eftir klukkan tvö í dag.

Setja þarf reglur um ferðalög á hálendinu

Ómar Ragnarsson telur að æskilegt sé að setja reglur um ferðalög manna um hálendið til að tryggja öryggi þeirra. Setja þurfi upp kerfi sem geri einfalt að sjá hvar ferðamenn séu staddir í óbyggðum.

Óhefðbundin hetja

Ungur glæpamaður sem notar snilligáfu sína til að ræna og drepa er fremur óhefðbundin hetja í unglingabókum. Írski rithöfundurinn Eoins Colfers skrifar bækurnar um Artemis Fowl í þeim tilgangi að fá drengi til að lesa.

Snorri sigraði Hannes Hlífar á Íslandsmótinu

FIDE-meistarinn Snorri G. Bergsson sigraði stórmeistarann Hannes Hlífar Stefánsson í 6. umferð Íslandsmótsins í skák, sem tefld var í dag. Snorri, sem hafði svart, kom með nýjung í 16. leik og vann sigur í 29. leikjum á glæsilegan hátt.

60 prósent gætu losnað undan framtalsskyldu

Árið 2009 gefst almenningi kostur á því að sleppa við að fylla út hefðbundið skattframtal, en senda í staðinn nauðsynlegar upplýsingar til ríkisskattstjóra í gegnum heimabanka. Ríkisskattstjóri segir að þannig geti embættið talið fram fyrir allt að sextíu prósent landsmanna.

Þjóðarmorð eru að eiga sér stað í Darfur

Þjóðarmorð eru að eiga sér stað í héraðinu Darfur í Súdan og umheimurinn bregst allt of hægt við. Þetta segir ljósmyndari sem farið hefur reglulega um svæðið síðustu tvo áratugi. Hann segir íbúa flýja undan hersveitum sem brenni ofan af þeim húsin og drepi þá sem ekki nái að flýja.

Ætla að leggja niður kjarnorkuver sín

Norður-Kóreustjórn ætlar að leggja niður kjarnorkuver sín fyrir árslok. Á sama tíma berast fréttir af því að Bandaríkjamenn séu að undirbúa árás á Íran.

Police aldrei betri að mati Magna og félaga

Hljómsveitin Police er betri enn nokkru sinni fyrr. Þetta er samhljóma álit íslenskra tónlistarmanna sem sáu endurkomu sveitarinnar á tónleikum í Danmörku í gærkvöldi.

Aftur boðað til mótmæla á Norðurbrú í kvöld

Ungmenni í Kaupmannahöfn ætla að halda mótmælaaðgerðum áfram í kvöld til að knýja á um nýtt Ungdómshús. Í gærkvöldi voru rúmlega 60 manns handteknir í óeirðum á Norðurbrú. Umfang átakanna kom dönsku lögreglunni í opna skjöldu.

Fjögur vélhjól í óhappi á Reykjanesbraut

Skömmu eftir klukkan fimm í dag skullu fjögur vélhjól saman í umferðaróhappi á Reykjanesbraut með þeim afleiðingum að tvennt slasaðist. Að sögn lögreglunnar virðist ekki um árekstur að ræða heldur að ökumönnum hjólanna hafi fipast þegar bifreið sem kom úr gagnstæðri átt reyndi framúrakstur á ólöglegan hátt.

Öryggishliðið á Saga-class verður áfram ef flugfélögin greiða fyrir það

Höskuldur Ásgeirsson framkvæmdastjóri FLE á Keflavíkurflugvelli segir að öryggishliðið á Saga-class muni verða áfram ef flugfélögin séu tilbúin að greiða fyrir það. Björn Bjarnason dómsmálaráðherra segir á heimasíðu sinni að tilraunin með hliðið muni hafa leitt í ljós, að það sé ónauðsynlegt.

Bush forseti ætlar að eyða ellinni í Dallas

George Bush bandaríkjaforseti hefur hingað til ekki viljað ræða mikið um hvað hann ætli að taka sér fyrir hendur þegar hann lætur af embætti á næsta ári. Nú hefur hann sagt rithöfundinum Robert Draper að hann hyggist eyða ellinni í Dallas í Texas. Og ef honum leiðist mun hann hoppa upp í bílinn og keyra á nálægan búgarð sinn.

Dönsk, norsk og sænsk lögreglukona á Ljósanótt

Meðal þeirra sem sinntu lögreglustörfum á Ljósnótt í Reykjanesbæ voru þrjár ungar lögreglukonur frá Norðurlöndunum, ein dönsk, ein norsk og ein sænsk. Þær munu vera nemendur í lögregluskólum viðkomandi landa. Koma þeirra hingað er liður í norrænu samstarfi lögregluembætta á Norðurlöndunum.

Hákarl veldur skelfingu í Queens

Tveggja metra langur hákarl olli töluverðri skelfingu á vinsælli baðströnd við hverfið Queens í New York um helgina. Strandverðir ráku alla baðgesti upp á land um leið og bakuggi hákarlsins sást skera vatnið rétt fyrir utan fjöruborðið í gærdag.

Bréf Landsvirkjunnar er ekki ítrekun heldur beiðni um nýja rannsókn

Ingólfur Jóhannsson formaður SUNN, Samtaka um náttúruvernd á Norðurlandi, segir að bréf það sem Landsvirkjun sendi iðnaðarráðuneytinu í vor um Gjástykki sé ekki ítrekun heldur beiðni um nýja rannsókn. Þetta sé augljóst ef rýnt er í gögn málsins, sem samtökin fengu frá iðnaðarráðuneytinu fyrr í sunmar.

Báðu þjóð sína afsökunar

Nítján suður-kóreskir gíslar, sem voru í haldi Talibana í Afganistan í sex vikur, báðu þjóð sína afsökunar í dag á öllum vandræðunum sem þeir orsökuðu.

Úrbætur á háum FIT-kostnaði neytenda í bígerð

Gísli Tryggvason talsmaður neytenda segir að hann hafi nú lokið viðræðum við Guðjón Rúnarsson framkvæmdastjóra Samtaka banka og verðbréfafyrirtækja og fulltrúa fimm banka um FIT-kostnað neytenda. Gísli segir að nánar verði greint frá efni viðræðnanna á heimsíðu hans í vikunni en að úrbætur á háum FIT-kostnaði neytenda séu í bígerð.

Danir vilja sjálfstæði Grænlands

Þrír af hverjum fjórum Dönum vilja að Grænlendingar fái fullt sjálfstæði. Þetta kemur fram í nýrri könnun sem birt var á vef danska blaðsins Politiken. Sextíu og þrjú prósent segjast vilja að Grænlendingar ráði sjálfir yfir málmi olíu og örðum auðlindum sem finnast á grænlenskum hafsbotni.

Átök á Norðurbrú vegna Ungdómshússins

Sextíu og þrír voru handteknir í óeirðum á Norðurbrú í Kaupmannahöfn í nótt. Þúsund ungmenni söfnuðust saman til að minnast þess að hálft ár var í gær liðið frá því að Ungdómshúsið var rifið.

Ölvaðir ökumenn í Borgarfirði

Ökumaður var tekinn undir áhrifum áfengis, seinnipartinn í gær, sunnan við Borgarnes. Maðurinn sinnti ekki stöðvunarmerkjum lögreglu og var honum veitt eftirför skamma stund. Skapaði það verulega hættu að sögn lögreglu.

Metþátttaka er í kvartmílukeppninni í dag

Metþátttaka er í kvartmílukeppni Kvartmíluklúbbsins sem hefst kl. eitt í dag á keppnisbrautinni í Kapelluhrauni við hliðina á Straumsvík. Jón Gunnar Kristinsson, varaformaður klúbbsins segir að 60 bílar séu skráðir til leiks en undanfarin ár hafa þetta verið á milli 20 og 30 bílar.

FÍB telur engar forsendur fyrir hækkunum olíufélaganna

Runólfur Ólafsson framkvæmdastjóri FÍB segir að samtökin telji engar forsendur og rök til staðar fyrir nýjustu hækkunum olíufélaganna á bensíni og olíu. Runólfur segir að miðað við þróun á verði olíu á heimsmarkaði og gengi krónunnar sé ekki hægt að álykta annað en að olíufélögin séu að hækka álagingu sína.

Ljósanótt gekk ljómandi vel

Ljósanótt í Reykjanesbæ hefur gengið afar vel að sögn lögreglunnar einungis minniháttar mál komu upp, aðallega vegna ölvunar, en fangageymslur voru fullar af þeim sökum.

Öryggismat sagt gert eftir forskrift forseta

Athafnamaðurinn Þorsteinn Jónsson telur ríkislögreglustjóra kunna að hafa „búið til sjónarmið“ um öryggi gesta forseta Íslands á Laufásvegi eftir forskrift forsetaembættisins til að stöðva framkvæmdir sem falli embættinu ekki í geð.

Ofbeldi á heimilum mjög sjaldan kært

Um 200 kærur vegna heimilisofbeldis og annars ófriðar hafa komið fram á höfuðborgarsvæðinu á þessu ári. 800 sinnum á árinu hafa slík brot verið tilkynnt. Sextán prósent kvenna sem komu í Kvennaathvarfið í fyrra kærðu ofbeldið.

Dreifa strætókortum til 30.000 námsmanna

Nemendafélög framhalds- og háskóla á höfuðborgarsvæðinu útdeila kortum til námsmanna, sem veita gjaldfrjálsar ferðir í strætó. Rúmlega þrjátíu þúsund nemar úr um 25 skólum fá frítt í strætó. „Algjör geðveiki,“ segir formaður Stúdentaráðs.

Aftur á vinnumarkað í kjölfar veikinda

Hafin er þriggja ára tilraun þar sem fólki sem er nýdottið út af vinnumarkaði vegna alvarlegra veikinda er hjálpað í endurhæfingu og svo aftur í vinnu. Af sextíu eru sex þegar komnir út á vinnumarkaðinn. Verkefnið er rétt að hefjast.

Sjá næstu 50 fréttir