Össur vill að Birkir líti í eigin barm 3. september 2007 16:00 Birkir Jón Jónsson, þingmaður Framsóknarflokksins.
Össur Skarphéðinsson, iðnaðarráðherra, segir að framsóknarmenn hafi sjálfir beitt því vinnulagi sem notast var við í Grímseyjarferjumálinu. Hann undrist því hneykslun framsóknarmanna. Þetta kemur fram í pistli á heimasíðu Össurar en þar lýsir hann því einnig yfir að hann hyggist láta rannsaka aðkomu Birkis Jóns Jónssonar, framsóknarþingmanns, að Byrgismálinu svokallaða. „Ef vinnubrögðin við Grímseyjarferjuna voru óalandi þá voru þau jafn óalandi þegar Framsókn beitt sömu vinnubrögðum í sínum ráðuneytum," segir Össur í pistlinum. Hann spyr hvort ekki sé réttast að „nota ferðina", ætli framsóknarmenn að knýja fram rannsókn á málinu á Alþingi, og skoða skyld dæmi úr ráðuneytum Framsóknarflokksins. „Það finnst mér að minnsta kosti," segir Össur. „Þegar hinn norðlenski vonarpeningur framsóknarmaddömunnar, Birkir Jón Jónsson, leggur til rannsóknina á fjárreiðum ríkisins við þingsetningu í haust, gæti ég vel hugsað mér að skjóta inn breytingartillögu um það. Öruggt er að minnsta kosti að ég mun barna væntanlega rannsóknartillögu hans með því að leggja til að Birkir noti ferðina og láti rannsaka aðkomu hans sjálfs að Byrgismálinu - bæði sem formanns fjárlaganefndar og aðstoðarmanns félagsmálaráðherra - því auðvitað var hann á bólakafi í því máli öllu saman." Ráðherrann lýkur máli sínu svo á þeim orðum að það verði ekki bæði sleppt og haldið.
Mest lesið Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Innlent Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Innlent Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla Innlent Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Innlent Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Erlent Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Erlent Talinn ætla að ráðast á Trump og fleiri háttsetta Erlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Fleiri fréttir Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Sjá meira