Innlent

Guðfríður Lilja framkvæmdastýra þingflokks VG

Guðfríður Lilja Grétarsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdarstýra þingflokks Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs. Guðfríður Lilja, sem er varaþingmaður flokksins, er með BA-próf í sagnfræði og stjórnmálafræði frá Harvard-háskóla í Bandaríkjunum og meistaragráðu í hugmyndasögu og heimspeki frá Cambridge-háskóla í Bretlandi.

Guðfríður Lilja er ekki ókunn störfum á Alþingi því þar hefur hún starfað þar sem alþjóðaritari frá árinu 2001. Guðfríður Lilja Grétarsdóttir tekur við starfinu af Drífu Snædal sem áfram mun gegna starfi framkvæmdarstýru Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×