Bjarni tekur upp hanskann fyrir Einar Björn Gíslason skrifar 3. september 2007 15:43 MYND/Hörður
Einar Hermannsson skipaverkfræðingur fól Bjarna Harðarsyni, þingmanni Framsóknarflokksins, að biðja Kristján L. Möller samgönguráðherra um rökstuðning á þeim orðum sem ráðherra hefur látið falla um Einar í tengslum við Grímseyjarferjumálið. Einar var gestur á fundi fjárlaganefndar í morgun þar sem rætt var um Grímseyjarferjumál en eins og fram hefur komið hafa kaup og endurbætur á ferjunni farið langt fram úr áætlunum. Kristján L. Möller sagði eftir að skýrsla Ríkisendurskoðunar um málið var birt að Vegagerðin yrði að skipta um ráðgjafa þar sem ráðgjöfin í málinu hefði verið slæm, en það Einar Hermannsson sem veitti stjórnvöldum og Vegagerðinni ráð við ferjukaupin. Hann segir ráðherra hafa gert sig að blóraböggli í málinu. Einar sagði í samtali við Vísi í dag að á fundi fjárlaganefndar hefði hann verið að fyglja eftir erindi sem hann sendi nefndinni vegna orða samgönguráðherra. Hann hefði viljað að fjárlaganefnd kæmist að niðurstöðu hver hans ábyrgð væri í málinu og hvort hún væri nokkur. „Nefndarmenn töldu hins vegar að það væri ekki á verksviði nefndarinnar að taka afstöðu til þess," segir Einar. Einar segir enn fremur að á fundinum hafi einn nefndarmanna, Pétur Blöndal, bent honum á að hann gæti fengið þingmann til þess að taka málið upp í fyrirspurnartíma á Alþingi og fengið þannig rökstuðning fyrir orðum samgönguráðherra. Einar segist hafa beðið Pétur um að bera fram fyrirspurnina en fengið þau svör að það væri fremur stjórnarandstöðunnar að gera það. Bjarni Harðarson, fulltrúi Framsóknarflokksins í fjárlaganefnd, hafi gengist við því að bera fram fyrirspurnina. Einar segist enn vænta þess og vona að ráðherra taki orð sín til baka. „Það kann vel að vera að hann hafi verið rangt upplýstur af sínum ráðgjöfum en þrátt fyrir allt sit ég enn þá undir orðum hans," segir Einar.
Mest lesið Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Innlent Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla Innlent „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Innlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Innlent Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Erlent Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Erlent Talinn ætla að ráðast á Trump og fleiri háttsetta Erlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Fleiri fréttir Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Sjá meira