Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Meiri vinna en menn bjuggust við Nýbýlavegur verður ekki opnaður við Sæbólsbraut fyrr en á morgun, þremur dögum eftir að framkvæmdum þar átti að ljúka. Eins og fram hefur komið í fréttum hafa orðið miklar umferðartafir við Nýbýlaveg vegna færslu háspennustrengs og sátu menn fastir í umferðarhnútum í allt að klukkutíma fyrir helgi. 27.8.2007 12:54
Grunur um að kveikt hafi verið í sófa Grunur leikur á að kveikt hafi verið í sófa að Stuðlum með þeim afleiðingum að tvær stúlkur voru fluttar á sjúkrahús og húsið skemmdist töluvert. Rannsókn málsins stendur yfir og er búist við að stúlkurnar tvær verði yfirheyrðar síðar í dag. 27.8.2007 12:45
Bílstjórinn hafi brugðist hárrétt við Framkvæmdastjóri næststærsta rútubílafyrirtækis landsins segir að bílstjórinn sem lenti í slysi í Bessastaðafjalli í gærdag hafi brugðist hárrétt við í erfiðum aðstæðum. 27.8.2007 12:31
Götuhátíð í Lundúnum Dansað var um götur Notting Hill hverfisins í Lundúnum í gær á árlegri götuhátíð. Mikið var um dýrðir en talið er að um ein milljón manna taki þátt í hátíðinni sem hófst í gær en lýkur í dag. 27.8.2007 12:19
Björn Th. Björnsson látinn Björn Th. Björnsson listfræðingur og rithöfundur er látinn. Björn nam listasögu í Edinborg, Lundúnum og Kaupmannahöfn, var formaður Rithöfundasambands Íslands og forstöðumaður Listasafns Háskóla Íslands. 27.8.2007 12:17
Merkel í Kína Angela Merkel kanslari Þýskalands hitti Wen Jiabao forsætisráðherra Kína á fundi í morgun. Fundurinn markaði upphaf vikulangrar ferðar Merkel um Asíu. 27.8.2007 12:17
560 tré fjarlægð vegna vatnsveitulagnar í Heiðmörk Nærri 560 tré voru fjarlægð við Þjóðhátíðarlund í Heiðmörk í tengslum við lagningu vatnslagnar á vegum Kópavogsbæjar fyrr árinu. Þetta kemur fram í skýrslu matsmanna sem Skógræktarfélag Reykjavíkur og Kópavogsbær létu vinna vegna málsins. 27.8.2007 11:59
Kvartanaherferð segir bareigandi, öskrandi óþolandi skríll segir íbúi Íbúar við Laugaveg 76 eru fyrir löngu búnir að fá sig fullsadda af gestum barsins Monakó. Margeir Margeirsson eigandi barsins segir að íbúarnir stundi skipulagða kvartanaherferð gegn sér. Teitur Þorkelsson einn íbúanna segir að bargestirnir séu öskrandi, óþolandi skríll og kvartanir til lögreglunnar undan þeim tilkomnar þar sem ekkert þýði að kvarta við gestina sjálfa , slíku sé mætt með hótunum. 27.8.2007 11:57
RJF vill bjarga fleirum Einar S. Einarsson, talsmaður RJF hópsins, segir að stjórn hópsins hafi áhuga á því að bjarga fleira fólki sem lent hefur í hremmingum. RJF hópurinn háði ötula baráttu fyrir frelsi Arons Pálma Ágústssonar eins og þekkt er. Einar segir að RJF hópurinn ætli að hittast í hádeginu í dag og fagna frelsi Arons. 27.8.2007 11:44
Grunuðum sleppt Fjórum þeirra sem voru handteknir í tengslum við morðið á hinum ellefu ára Rhys Jones í Liverpool á miðvikudaginn hefur verið sleppt án ákæru. Fólkið, var á aldrinum 15-19 ára, tveir drengir og tvær stúlkur. Tveimur öðrum drengjum, 16 og 19 ára, var sleppt gegn tryggingu meðan rannsókn málsins fer fram. 27.8.2007 11:37
Snúa flestir aftur til vinnu í vikunni Flestir starfsmanna Arnarfells sem lentu í rútuslysinu í Bessastaðabrekku á Fljótsdalsheiði í gærdag snúa til vinnu síðar í vikunni. Slysið hefur ekki áhrif á gang framkvæmda á vegum fyrirtækisins. 27.8.2007 11:28
Hroðaleg hefnd Argentínskur unglingur fór á húðflúrstofu nýlega til þess að láta tattóvera nafn uppáhalds fótboltaliðsins stórum stöfum á bakið á sér. Liðið heitir Boca Juniors. Ekkert óvenjulegt við það, í Argentínu. Unglingurinn var hinsvegar svo óheppinn að rata inn á stofu þar sem eigandinn hélt ákaflega upp á knattspyrnuliðið River Plate. 27.8.2007 11:11
Handtökur vegna morðs á rússneskri blaðakonu Tíu manns hafa verið handteknir vegna morðsins á rússnesku blaðakonunni Önnu Politkovskaju. Hún var skotin til bana fyrir utan heimili sitt í Moskvu 7. október á síðasta ári. Tass fréttastofan segir að ákærur á hendur mönnunum verði birtar innan skamms. 27.8.2007 10:57
Settu aftur heimsmet í borun í aðrennslisgöngum Nýtt heimsmet í borun í göngum var sett í annað sinn á Kárahnjúkasvæðinu í síðustu viku. Eftir því sem fram kemur á vef Kárahnjúka var það áhöfnin á risabor 2 sem boraði rúma 115 metra í aðrennslisgöngum Jökulsárveitu á einum sólarhring. 27.8.2007 10:50
Áfram lokanir á Nýbýlavegi vegna framkvæmda Nýbýlavegur verður áfram lokaður við Sæbólsbraut vegna tafa á framkvæmdum við færslu háspennustrengs. Framkvæmdirnar hófust á fimmtudag og átti að vera lokið í gær en ófyrirséð mál hafa tafið vinnuna 27.8.2007 10:37
Grafarholtsbúar hafa dýralækni en ekki heilsugæslustöð Íbúar í Grafarholti og nærliggjandi hverfum geta nýtt sér þjónustu dýralæknis í hverfinu en hafa ekki heilsugæslustöð. Sem stendur er þeim bent á heilsugæslustöðina í Árbæ en hún er of lítil til að sinna öllu svæðinu. Að sögn Guðmundar Einarssonar forstjóra Heilsugæslu Reykjavíkur stendur til að stöðin í Árbæ verði stækkuð á næsta ári. 27.8.2007 10:30
Eldar loga um helming Grikklands Eldar loga nú um meira en helming Grikklands, og hafa fleiri en sextíu látist þeim. Grísk stjórnvöld heitið milljón evrum í verðlaun fyrir upplýsingar sem geta leitt til handtöku þeirra sem kveiktu þá. 27.8.2007 10:01
Eldur í öskutunnum við Framheimilið Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað að Framheimilinu í Safamýri á níunda tímanum í kvöld. Eldur kviknaði í ruslatunnum þar. Greiðlega gekk að slökkva eldinn að sögn slökkviliðsins. 26.8.2007 20:37
Met í brjóstagjöf Víetnamar settu í dag heimsmet í brjóstagjöf þegar rúmlega tólfhundruð mæður komu saman í þremur borgum og gáfu börnum sínum brjóst samtímis. Með þessu vildu mæðurnar leggja áherslu á mikilvægi brjóstagjafar fyrir hvítvoðunga. 26.8.2007 19:30
Aron Pálmi glímir við áfallastreituröskun Aron Pálmi Ágústsson sem setið hefur í fangelsi í 10 ár í Texasfylki í Bandaríkjunum segist glíma við áfallastreituröskun eftir fangavistina. Hann kom til landsins í morgun og segist feginn að vera loksins kominn heim eftir langt ferðalag. 26.8.2007 19:28
Sextán manns slösuðust í rútuslysi í Bessastaðabrekku við Kárahnjúka Sextán manns slösuðust þar af tveir alvarlega þegar rúta ók í Klettavegg í Bessastaðabrekku í Fljótsdal rétt hjá Kárahnjúkum í dag. Þrjátíu og einn maður var í rútunni, allt útlendir starfsmenn við Kárahnjúkavirkjun. Enginn er talinn í lífshættu. 26.8.2007 19:16
Fargað vegna fuglaflensu Fuglaflensa af hinum hættulega H5N1 stofni hefur greinst í fuglum á fuglabúi í suðurhluta Þýskalands. 400 fuglar drápust úr flensunni þar á skömmum tíma. Öðrum fuglum þar verður nú fargað - öllum 160 þúsund. Ekki er vitað með vissu hvernig sjúkdómurinn barst í fuglana á búinu. 26.8.2007 19:15
Hákon styður systur sína Hákon krónprins Noregs styður englaskóla Mörtu Lovísu systur sinnar þar sem hún ætlar að kenna fólki að tala við engla og dýr. Þetta sagði prinsinn við blaðamenn þar sem hann og Mette Marit kona hans afhentu góðgerðarsamtökum jafnvirði nærri 6 milljóna króna úr sjóði sínum sem notaðar verða til að hjálpa munaðarlausum börnum í Rússlandi. 26.8.2007 19:15
Berst fyrir því að dóttir sín fái meðferð Faðir 6 ára palestínskrar stúlku, sem lamaðist í loftárás Ísraela fyrir rúmu ári, berst fyrir því að hún fái áfram meðferð á sjúkrahúsi í Jerúsalem. Ísraelar vilja ekki leyfa það þeir vilja senda hana í meðferð á Vesturbakkanum þar sem vantar tæki sem halda henni á lífi. 26.8.2007 19:00
Enn loga eldar í Grikklandi Hvítri ösku rignir yfir íbúa Aþenu, höfuðborgar Grikklands, en skógareldar þar í landi hafa teygt sig að jaðri borgarinnar. Enn logar víða á Pelops-skaga og slökkvistarf gengur hægt. 56 hið minsta hafa týnt lífi í eldunum og menningarsöguleg verðmæti Grikkja í hættu. 26.8.2007 18:45
Mynd af morðingja og vitni gefur sig fram Lögreglan í Liverpool segist hafa upptökur úr öryggismyndavélum af þeim sem myrti hinn 11 ára gamla Rhys Jones. Hettuklæddur unglingur hjóli skaut Rhys þar sem hann var að ganga heim af knattspyrnuæfingu á miðvikudagskvöldið. Enginn hefur formlega verið kærður fyrir morðið. 26.8.2007 18:45
Leit hætt, Þjóðverjarnir taldir látnir Leitin að Þjóðverjunum Matthiasi Hinz og Thomasi Grundt hefur staðið yfir undanfarna viku og hafa sjálfboðaliðar lagt sig í mikla hættu á Öræfajökli. Aðstæður til leitar hafa verið með þeim erfiðustu sem björgunarmenn hafa kynnst hér á landi sagði þyrluflugstjórinn Benóný Ásgrímsson. 26.8.2007 18:39
Tveimur stúlkum bjargað úr eldsvoða með snarræði reykkafara Tveimur heimilismönnum á meðferðarheimilinu á Stuðlum í Reykjavík var bjargað með snarræði reykkafara slökkviliðsins í dag. Slökkviliðsstjórinn í Reykjavík telur að brunakerfi hafi bjargað fólkinu. Ekki er útilokað að um íkveikju hafi verið að ræða. Stuðlar eru meðferðarheimili fyrir unglinga. 26.8.2007 18:30
Ólympía úr hættu Rústir forna helgistaðarins Ólympíu á Grikklandi eru úr hættu. Svo virðist sem svæðinu þar sem fyrstu Ólypíuleikarnir voru haldnir hafi verið þyrmt í skógareldum sem brenna nú víða í Grikklandi. Logar munu aðeins hafa sleikt jaðar svæðisins þar sem þekkt menningarsöguleg verðmæti er að finna. Slökkviliðsmenn segja Ólypíu úr hættu. 26.8.2007 17:22
Morðingjar Rhys Jones náðust á mynd Lögreglan í Liverpool segist hafa upptökur úr öryggismyndavélum af þeim sem myrtu hinn 11 ára gamla Rhys Jones. Þetta var upplýst eftir að sjö ungmenni voru handtekin í gær. Kona sem lögreglan telur að geti verið lykilvitni í málinu hefur gefið sig fram við lögreglu. 26.8.2007 17:16
Þrír á sjúkrahús vegna umferðarslyss í Hvalfjarðargöngum Þrír slösuðust þegar bílar rákust saman í Hvalfjarðargöngunum á fjórða tímanum í dag. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var fólkið flutt á sjúkrahúsið á Akranesi. Meiðsl þeirra eru ekki talin alvarleg. Loka þurfti Hvalfjarðargöngunum vegna slyssins. Þau hafa verið opnuð aftur. 26.8.2007 15:49
Konan sem leitað var að við Kverkfjöll er fundin Konan sem leitað var að í Kverkfjöllum er fundin. Hún kom að Sigurðarskála um fjögurleytið í dag. Hátt í þrjátíu björgunarsveitarmenn leituðu að 25 ára gamalli ísraelskri konu sem var saknað í rúman sólarhring.. 26.8.2007 15:33
Eldur á Stuðlum Nú er að mestu búið að slökkva eldinn sem kviknaði á meðferðarheimilinu Stuðlum í Grafarvogi á þriðja tímanum. Samkvæmt heimildum Vísis voru þrír fluttir á slysadeild með reykeitrun, einn starfsmaður og tveir unglingar. Ekki er vitað um eldsupptök. 26.8.2007 14:40
Tveir alvarlega slasaðir eftir rútuslysið í Bessastaðabrekku Sextán manns slösuðust og þar af tveir mjög alvarlega þegar rúta með 31 farþega ók á klettavegg í Bessastaðabrekku í Fljótsdal á Héraði um eitt leytið í dag. 26.8.2007 13:20
Aron Pálmi segir ólýsanlegt að vera kominn til landsins Aron Pálmi Ágústsson sem setið hefur í fangelsi í Texas fylki í Bandaríkjunum í 10 ár kom til landsins í morgun ásamt móðurfjölskyldu sinni. Hann segir ólýsanlegt að vera loksins kominn til landsins í fyrsta sinn í rúman áratug og þungu fargi sé af sér létt. 26.8.2007 12:25
Skýstrókur vekur athygli í Bogota Hundruð þúsunda eru án rafmagns eftir flóð og hvifrilbyli í Miðvesturríkjum Bandaríkjanna. Á sama tíma festu íbúar í Bogota í Kólubmíu mikinn skýstrók á filmu en þeir sjást nær aldrei þar í borg. 26.8.2007 12:17
Fluttir á slysadeild eftir líkamsárásir Karlmaður um fimmtugt var fluttur á sjúkrahús eftir að hann varð fyrir árás í Sandgerði í nótt. Hann slasaðist töluvert en er á batavegi að sögn lögreglu. Árásarmaðurinn var handtekinn og bíður yfirheyrslu. Þá var ráðist á tuttugu og fimm ára gamlan mann í Hafnargötu í Keflavík í nótt og tvær tennur slegnar úr honum. Árásarmaðurinn var handtekinn á staðnum og verður yfirheyrður í dag. 26.8.2007 11:39
Vann 20 milljarða í lottói Það var einn heppinn íbúi í Indiana-ríki í Bandaríkjunum sem vann jafnvirði rúmlega tuttugu milljarða íslenskra króna í bandaríska ofurlottóinu í gær. Potturinn var orðinn svona stór því enginn hafi hreppt fyrsta vinning síðan í lok júní. Hægt er að kaupa miða í tuttugu og níu ríkjum Bandaríkjanna. 26.8.2007 11:28
Þýsku ferðamennirnir taldir af Þýsku ferðamennirnir sem leitað hefur verið að síðastliðna viku eru taldir af. Slysavarnarfélagið Landsbjörg boðaði til blaðamannafundar í morgun. Þar var greint frá atburðarrás leitarinnar. Hún hefur engan árangur borið og er formlegri leit hætt. 26.8.2007 11:17
Fjörutíu og tveir fórust í sprengingu á Indlandi Lögreglan á Indlandi leitar vísbendinga um hver hafi komið fyrir tveimur sprengjum sem urðu minnst fjörutíu og tveimur að bana í borginni Híderabad í suðurhluta landsins í gær. Nærri fimmtíu særðust í ársinni. Sprengjurnar sprungu með stuttu millibili nærri vinsælum veitingastað þar sem fjölmargir sátu utandyra og snæddu. 26.8.2007 11:06
Allt tiltækt slökkvilið kallað að Lynghálsi 11 í nótt Allt tiltækt lið slökkviliðsins var kallað að Lynghálsi 11 á þriðja tímanum í nótt. Mikill eldur logaði þar á vélaverkstæði. Talsverð olía er geymd á staðnum. Að sögn slökkviliðsins voru 6 reykkafarar sendir inn í bygginguna til að kanna aðstæður. 26.8.2007 11:02
Fangageymslur fylltust í nótt Fangageymslur fylltust á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Meðal þess sem bókað er í dagbók lögreglunnar er að dyravörður á Gauki á Stöng var laminn með glasi í andltið. Hópslagsmál brutust út á Sportbarnum í Hafnarfirði og maður varð fyrir árás í Hlégarði í Mosfellsbæ. 26.8.2007 10:38
Ráðist að lögreglu á Stuðmannadansleik Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð út að íþróttamiðstöðinni á Seltjarnarnesi vegna óláta á Stuðmannadansleik. Þegar lögreglan kom á staðinn voru dyraverðir búnir að yfirbuga þrjá. Hópur fólks veittist að lögreglu þegar hún kom á staðinn. 26.8.2007 10:06
Hæstaréttardómarar vilja ekki taka afstöðu Hæstaréttardómararnir Ólafur Börkur Þorvaldsson og Jón Steinar Gunnlaugsson telja það ekki í verkahring Hæstaréttar að raða umsækjendum í hæfnisröð. Skipað verður í embætti hæstaréttardómara frá og með 1. september næstkomandi. Hæstiréttur hefur skilað umsögn um umsækjendur. 25.8.2007 20:13
Formaður skipulagsráðs vísar ásökunum íbúa við Keilugranda á bug Formaður skipulagsráðs Reykjavíkurborgar vísar því alfarið á bug að borgaryfirvöld hafi gengið á bak orða sinna vegna byggingar níu hæða háhýsis við Keilugranda eitt. Mikil óánægja ríkir meðal íbúa á svæðinu vegna fyrirhugaðrar byggingar. 25.8.2007 19:18