Leit hætt, Þjóðverjarnir taldir látnir 26. ágúst 2007 18:39
Leitin að Þjóðverjunum Matthiasi Hinz og Thomasi Grundt hefur staðið yfir undanfarna viku og hafa sjálfboðaliðar lagt sig í mikla hættu á Öræfajökli. Aðstæður til leitar hafa verið með þeim erfiðustu sem björgunarmenn hafa kynnst hér á landi sagði þyrluflugstjórinn Benóný Ásgrímsson. Þjóðverjarnir tveir létu engan vita hvert þeir hygðust fara og setti það leitarmenn í mikinn vanda. Vísbendingar leiddu þó leitarmenn smám saman á rétta slóð sem varð til þess að tjöld þeirra fundust. Ekkert hafði spurst til Þjóðverjanna í rúmar þrjár vikur þegar leit hófst. Við leitina í gær var meðal annar stuðst við vísbendingar frá þýskum miðli við leitina og auk þess höfð hliðsjón af upplýsingum frá íslenskum miðlum. Reyndustu fjallamenn björgunarsveitanna leituðu á svæði sem tekur mið af tjaldbúðum þjóðverjanna fundust. Í gær hafði svæði sem er einn kílómetri í radíus umhverfis tjöldin verið fínkembt, en án árangurs. Á annað hundrað björgunarsveitarmenn frá Slysavarnarfélaginu Landsbjörgu voru að störfum við leitina þegar mest var og sá tími sem menn hafa varið á jöklinum við leit er á sjötta þúsund. Auk þeirra sem tóku þátt í leitinni sjálfri var mikill fjöldi fólks sem kom að leitinni með óbeinum hætti. Móðir annars mannanna er stödd hér á landi og var henni tilkynnt um að leitinni hefði verið hætt nú í morgun. Hún vildi koma á framfæri þakklæti til allra þeirra sem að leitinni stóðu. Þá var samráð haft við stjórnvöld við þá ákvörðun að hætta leitinni. Víðir Reynisson hjá ríkislögreglustjóra telur að ekki hafi verið verjandi að halda leitinni áfram, meðal annars miðað við þá hættu sem var orðin á leitarsvæðinu en snjóað hefur á svæðinu undanfarið og snjóflóð hafa fallið. Hann segir að enginn hafi verið sáttur við málalyktir því auðvitað hefði alltaf verið stefnt að því að finna mennina. Ákvörðun um að hætta leit hafi því verið gríðarlega erfið.
Mest lesið Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Innlent Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Innlent Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Innlent Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Innlent „Andlitið á honum var skakkt“ Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rekinn vegna viðvörunar um „samfélagskrísu“ í Rússlandi Erlent Bílasali gerður að prinsi eftir faðernispróf Erlent Eldur kviknaði við Stálhellu Innlent Ný meðferð gegn sortuæxlum lofar góðu Erlent Bandero kyrrsettur að kröfu Hvals hf. Innlent Fleiri fréttir Gestum komið fyrir á öðru hóteli Samfylkingin aftur stærst en ríkisstjórnin stendur í stað Kaup Icelandair og ný fylgiskönnun í kvöldfréttum Sýnar Bandbrjálaðist og hrækti á lögreglumann Bíll og mótorhjól skullu saman við Vaðlaheiðargöng Bandero kyrrsettur að kröfu Hvals hf. „Jafnvel betur undirbúin en margur hver“ „Breytist nánast ekki neitt ef við myndum ganga inn í ESB“ Bein útsending: Málþing um Biskupsmálið „Þetta er auðvitað snilldarmarkaðsbrella“ Bæta umferðaröryggi við gatnamót Miklubrautar og Grensásvegar „Andlitið á honum var skakkt“ Ari orðinn stjórnarformaður Rafleiðni aukist skarpt í Múlakvísl Ákærði hafði afskipti af vitnisburði í gegnum fjarfundarbúnað Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Kjartan Hreinn aftur aðstoðarmaður Ölmu Tekjulágir borga minna fyrir matinn og borgarfulltrúar meira Hvað ætti ungt fólk að kjósa 29. ágúst? Skóli hefst á ný í Grindavík og þingmenn efast um fullyrðingar Rússa Ókeypis strætó-skutlur á Menningarnótt og tæming frá Sólfarinu Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Ráðast í byltingarkenndar endurbætur í Kvosinni „Tengsl Íslands og Eistlands eiga sér sérstaka sögu“ Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Eldur kviknaði við Stálhellu Vaxtahækkunin geti gert illt verra Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Settu saman fyrsta íslenska fjölerfðamengið Sjá meira