Innlent

Settu aftur heimsmet í borun í aðrennslisgöngum

Nýtt heimsmet í borun í göngum var sett í annað sinn á Kárahnjúkasvæðinu í síðustu viku. Eftir því sem fram kemur á vef Kárahnjúka var það áhöfnin á risabor 2 sem boraði rúma 115 metra í aðrennslisgöngum Jökulsárveitu á einum sólarhring.

Bor 2 átti einnig fyrra heimsmet sem sett var þann 23. júní í sumar, en þá boraði áhöfnin rúma 106 metra. Munar því rúmum níu metrum á hinu nýja heimsmeti og því gamla.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×