Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Frétt um frelsun gísla dregin til baka Reuters fréttastofan hefur dregið til baka frétt þess efnis að hernaðaraðgerðir séu hafnar í Afganistan í því augnamiði að frelsa Suður kóresku gíslana sem talíbanar hafa haft í haldi tæpar tvær vikur. Engar aðgerðir munu vera hafnar. Fréttir af aðgerðunum voru hafðar eftir háttsettum embættismanni í Ghazni héraði í samtali við Reuters fréttastofuna. 1.8.2007 12:50
Húnabjörgin kölluð út til bjargar 46 tonna bát Björgunarskip Slysavarnafélagsins Landsbjargar, Húnabjörg á Skagaströnd, fór til aðstoðar 46 tonna bát sem hafði fengið veiðarfærin í skrúfuna rétt við Kálfshamarsvita norðan við Skagaströnd. 1.8.2007 12:41
Danir senda friðargæsluliða til Darfur Danmörk mun að öllum líkindum taka þátt í herliðinu sem er ætlað að gæta friðar í Darfur héraði í Súdan. Þessu lofaði varnarmálaráðherra Dana, Sören Gade, eftir að Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna samþykkti í gær einróma að senda 26.000 friðargæsluliða og lögreglu þangað. 1.8.2007 12:39
Össur hyggst kynna aðgerðir til að styrkja Byggðastofnun Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra segist í dag munu kynna afar mikilvægar aðgerðir til að styrkja Byggðastofnun. Aðgerðirnar eiga að gera henni fært að taka á málum útgerða sem eiga í vanda vegna skerðingar kvóta. 1.8.2007 12:28
Alþjóðlegt friðargæslulið kemur of seint fyrir of marga Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hefur ákveðið að senda tuttugu sex þúsund manna alþjóðlegt friðargæslulið til héraðsins Darfur í Súdan. Allt of seint fyrir of marga segir framkvæmdastjóri Mannréttindavaktarinnar en yfir tvö hundruð þúsund manns hafa látið lífið í átökum í héraðinu síðastliðin fjögur ár. 1.8.2007 12:15
Reykingar drepa Sænsk kona féll út um glugga og niður fimm hæðir á hóteli í Kaupmannahöfn í nótt. Slysið varð þegar konan reyndi að svindla á reykingabanni á Skt Petri hótelinu, með því að reykja út um gluggann. 1.8.2007 11:56
Varðstjóri sakaður um brot í opinberu starfi Varðstjóri hjá lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu hefur verið ákærður fyrir brot í opinberu starfi. Í dagbók lögreglunnar kemur fram að maðurinn sé sakaður um að hafa misnotað stöðu sína þegar hann nýtti sér mannafla og bifreið lögreglu í eigin þágu. 1.8.2007 11:46
Stöðvaður ölvaður við akstur og án ökuréttinda Tvítugur piltur var handtekinn á Seltjarnarnesi í nótt eftir að hafa lent í umferðaróhappi. Pilturinn gat ekki framvísað ökuskírteini en við athugun kom í ljós að hann hefur aldrei haft ökuréttindi. Hann reyndist líka vera ölvaður, eftir því sem fram kemur í dagbók lögreglunnar. 1.8.2007 11:03
Ekkert lát á skjálftum við Öskju Ekkert lát er á skjálftavirkni norðan Vatnajökuls, nánar tiltekið við Upptyppinga, austan Öskju. Síðustu tvo sólarhringa hafa mælst 130 skjálftar á svæðinu og eru skjálftarnir nú orðnir um 2300 frá því í febrúarlok. Það var um klukkan hálffjögur í gærmorgun sem síðasta skjálftahrinan byrjaði, og fara skjálftarnir ívið stækkandi að sögn Steinunnar Jakobsdóttur sem stendur skjálftavakt Veðurstofunnar. 1.8.2007 10:21
Kristinn Halldórsson skipaður dómari við héraðsdóm Vestfjarða Björn Bjarnason, dóms- og kirkjumálaráðherra, hefur skipað Kristinn Halldórsson héraðsdómara við héraðsdóm Vestfjarða frá 1. september 2007. 1.8.2007 09:56
Fyrrverandi heimsmeistari í Formúlu-1 í ökutímum Nelson Piquet, fyrrverandi þrefaldur heimsmeistari í Formúlu-1 akstri, hefur verið skikkaður í ökuskóla eftir að hann missti ökuskírteini sitt. Piquet sem er frá Brasilíu missti bílprófið eftir að hafa fengið of marga punkta í bókum lögreglunnar. 31.7.2007 23:29
Liðsmaður Rauðu Khmeranna ákærður Fyrrum yfirmaður í fangelsi Rauðu Khmeranna hefur verið ákærður fyrir glæpi gegn mannkyninu af dómstól í Kambódíu sem Sameinuðu þjóðirnar standa að. Kang Kek Ieu, einnig þekktur sem Duch, stjórnaði hinu illræmda fangelsi S21 í Phnom Penh höfuðborg Kambódíu. 31.7.2007 21:15
Hnýsni eða eðlilegasti hlutur? Næstu tvær vikurnar getur hver sem er skoðað upplýsingar um skattagreiðslur allra Íslendinga og þannig jafnframt fræðst um tekjur fólks. Sjálfsagt mál eða óþarfa afskiptasemi af einkamálum annarra? Þingmennirnir Ögmundur Jónasson og Pétur Blöndal settust hjá Sölva í Íslandi í dag. 31.7.2007 20:11
26.000 friðargæsluliðar sendir til Darfur Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna samþykkti í dag einróma að senda 26.000 friðargæsluliða og lögreglu til Darfur-héraðsins í Súdan. Markmiðið er að draga úr ofbeldi á svæðinu. 31.7.2007 19:56
Al Jazeera sýnir myndbandsupptöku af þýskum gísl Sjónvarpsstöðin Al Jazeera sýndi í dag myndband af þýskum manni sem Talibanar í Afganistan hafa í haldi. Samkvæmt sjónvarpsstöðinni fer Þjóðverjinn fram á að þýsk og bandarísk stjórnvöld dragi heri sína til baka frá Afganistan. 31.7.2007 19:32
Sagnfræðingar ósammála um hlerunarskjal Prófessor í sagnfræði efast um að lögreglan hafi byggt ákvarðanir um símahleranir árið 1968 á nýframkominni lögregluskýrslu, með lýsingum kranabílstjóra á því að hann hafi heyrt menn undirbúa mótmæli. Annar sagnfræðingur telur nýja skjalið hinsvegar skýra mun betur en áður af hverju ákveðið var að leita úrskurðar til símahlerana. 31.7.2007 19:18
Aukið samstarf við Nýfundnaland og Labrador Geir H. Haarde forsætisráðherra og Danny Williams, forsætisráðherra Nýfundnalands og Labrador, vilja vinna að gerð sérstaks samkomulags um aukið samstarf þessara tveggja granna við Norður-Atlantshaf. Geir átt í dag fund með Williams í St. John's þar sem fjallað var um samskiptin við þetta norðvestlægasta fylki Kanada og hugsanlega eflingu á milli Íslands og fylkisins. 31.7.2007 19:03
Ál í bílum minnkar losun gróðurhúsalofttegunda Notkun áls minnkar heildarlosun gróðurhúsalofttegunda frá samgöngutækjum, samkvæmt nýrri rannsókn. Samtökin Sól í Straumi telja álið þó ekki grænan málm. 31.7.2007 18:58
Slysum og tjónum fjölgar hjá erlendum ökumönnum Umferðarslysum hefur fækkað hjá Íslendingum en fjölgað meðal útlendinga. Erlendir ökumenn fara líka miklu hraðar um þjóðvegina en Íslendingar og gera sér litla grein fyrir slysahættu og háum sektarúrræðum. 31.7.2007 18:57
Myndar kríur og æðakollur Páll Steingrímsson, kvikmyndagerðarmaður vinnur nú að gerð kvikmyndar um æðarvarpið í Norðurkoti við Sandgerði. Í fyrstu átti myndin aðeins að fjalla um kollurnar en það breyttist þegar hann byrjaði að taka. 31.7.2007 18:50
Arngrímur skattakóngur landsbyggðarinnar Skattaumdæmin á landinu eru níu talsins og í hverju umdæmi er gefinn út listi yfir skattakónga þeirra. Ef frá er talið suð-vesturhorn landsins þá er Arngrímur Jóhannsson, flugstjóri og fyrrum eigandi Atlanta ókrýndur skattakóngur landsbyggðarinnar. Í einu umdæmanna vermir kona efsta sætið. 31.7.2007 18:49
Heiðar Már skattakóngur Hreiðar Már Sigurðsson, forstjóri Kaupþings greiðir rúmar 400 milljónir króna í opinber gjöld og er þar með ókrýndur skattakóngur landsins. Fast á hæla hans kemur Hannes Þór Smárason, forstjóri FL Group með tæpar 377 milljónir króna. Ríkasti maður landsins, Björgólfur Thor Björgólfsson, er ekki meðal hæstu greiðenda opinberra gjalda. 31.7.2007 18:48
Þúsundir þurfa að yfirgefa heimili sín vegna skógarelda á Kanaríeyjum Yfir ellefu þúsund manns á Kanaríeyjum hafa þurft að yfirgefa heimili sín vegna skógarelda sem þar hafa logað undanfarna daga. Rúmlega fjórtán þúsund hektarar land hafa orðið eldunum að bráð á eyjunum Grankanaría og Tenerife. 31.7.2007 18:48
Steingrímur vill fund í utanríkismálanefnd vegna lágflugs Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna, hefur farið fram á sérstakan fund í utanríkismálanefnd, til að ræða um nýtt varnarsamkomulag við NATO, og heræfingar hér á landi um miðjan ágúst. 31.7.2007 18:44
Atvinnuháttum og ferðaþjónustu er ógnað með nýjum Vestfjarðaveg Fulltrúi landeigenda í Þorskafirði segir að atvinnuháttum í Reykhólasveit verði ógnað með nýjum Vestfjarðavegi sem mun liggja út norðanverðan Þorskafjörð. Vegurinn setur einnig ferðaþjónustu á svæðinu í uppnám segir landeigandi. 31.7.2007 18:39
Leysisprentarar skaðlegir heilsunni Það getur ógnað heilsu fólk að umgangast leysisprentara. Ástralskir vísindamenn hafa uppgötvað örsmár skaðlegar agnir sem leysisprentarar gefa frá sér í talsverðum mæli. 31.7.2007 18:18
Reykingarbannið leiðir af sér drykkju utandyra Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segir nokkuð hafa borið á því eftir að reykingarbannið á veitingastöðum tók gildi 1. júní síðastliðinn að gestir taki með sér áfengi út og neyti utandyra. Lögreglan vill af þeim sökum vekja athygli á ákvæði 3. málsgreinar 19. greinar áfengislaga sem bannar með öllu að áfengi sem selt er á veitingastað sé borið þaðan út af gestum staðarins eða öðrum. 31.7.2007 18:11
Vegagerðin varar við hvassviðri Mjög hvasst er sumstaðar á Suðaustur- og Austurlandi. Sérstaklega er varað við sterkum vindi í Oddaskarði en einnig í Hvalnesskriðum og við Almannaskarð. 31.7.2007 17:56
Kúbverjar eygja von -og þó Sumir Kúbverjar þykjast nú eygja vonarglætu eftir ræðu sem settur forseti landsins Raul Castro flutti á byltingardaginn í síðustu viku. Hann sagði þar meðal annars að laun opinberra starfsmanna væru sýnilega alltof lág og að landbúnaðurinn væri hlægilega óskilvirkur. Hann sagði einnig að erlendir fjárfestar væru velkomnir til Kúbu og það þyrfti að gera grundvallarbreytingar til þess að auka matvælaframleiðslu. 31.7.2007 16:44
Átta miljón ára kýprustré finnast Nokkrar afar heillegar leifar af átta miljón ára gömlum kýprustrjám uppgötvuðust í Ungverjalandi á dögunum. Fundurinn þykir merkilegur því upprunalegi viður trjánna hefur varðveist að stóru leyti, en ekki steingerst. Trén gætu því svarað mörgum spurningum um loftslag á nýlífsöld. 31.7.2007 16:29
Fangelsisvist Miriam lýkur væntanlega á morgun Miriam Rose, mótmælandinn sem talsmaður Græningja á Bretlandi hefur krafist að verði leyst úr haldi, situr af sér dóm vegna mótmæla í Hegningarhúsinu við Skólavörðustíg. Heimildir Vísis herma að stúlkan hafi þegar setið í fangelsinu í sjö daga en hún var dæmd fyrir mótmæli á álverslóð Bechtel á Reyðarfirði í ágúst í fyrra. 31.7.2007 15:50
Óhollara lungum að reykja kannabis en tóbak Það er jafn óhollt að reykja eina kannabissjónu og fimm sígarettur. Þetta er niðurstaða vísindamanna á Nýja-Sjálandi sem skoðuðu 339 reykingamenn beggja efna. Samkvæmt rannsókninni hefur kannabisreykur mun víðtækari og meira eyðileggjandi áhrif á lungun. 31.7.2007 15:30
Eiður Smári varð fyrir árás í miðborg Reykjavíkur Eiður Smári Guðjohnsen, landsliðsfyrirliði í knattspyrnu og leikmaður Barcelona, varð fyrir líkamsárás í miðborg Reykjavíkur síðastliðið laugardagskvöld. Eiði var hrint og hann kýldur í andlitið. Hann slapp ómeiddur frá árásinni og ætlar ekki að kæra. 31.7.2007 15:07
Belgar deila um innflytjendastefnu stjórnvalda Belgískir fjölmiðlar og mannréttindafrömuðir önduðu léttar í dag þegar frestað var að reka úr landi unga stúlku frá Ekvador og móður hennar sem eru þar ólöglegir innflytjendur. Málið hefur vakið upp spurningar varðandi innflytjendastefnu í Belgíu. 31.7.2007 15:03
Formaður Vinstri-Grænna vill fund í utanríkisnefnd Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri-grænna, og fulltrúi flokksins í utanríkismálanefnd fer fram á fund í nefndinni við fyrsta tækifæri til að ræða stöðu öryggismála og hlutverk Nató í svokölluðum loftvörnum landsins. 31.7.2007 15:01
Breskir græningjar krefjast þess að mótmælanda verði sleppt úr haldi Talsmaður Græningja, flokks umhverfissinna á Bretlandi þar sem hann krefst þess að íslensk stjórnvöld sleppi mótmælanda úr haldi. Í fréttinni er fullyrt að Miriam Rose, sem sögð er meðlimur í samtökunum Saving Iceland, hafi verið handtekin í mótmælaaðgerðum og að hún sé enn í haldi. Lögregla kannast ekki við málið. 31.7.2007 14:50
Þarf fótboltastjórn í Írak? Fyrst 11 ungir menn gátu vakið þjóðarstolt og samkennd írösku þjóðarinnar, af hverju geta þá ekki 275 þjóðkjörnir stjórnmálamenn gert hið sama ? Þetta er spurning sem menn velta fyrir sér í Írak eftir þann gríðarlega fögnuð sem greip um sig meðal þjóðarinnar þegar knattspyrnulandsliðið vann Asíubikarinn í fótbolta á sunnudaginn. 31.7.2007 14:34
Skurðaðgerð við farsímaljós Skurðlæknum við sjúkrahúsið í smábænum Villa Mercedes Argentínu brá í brún þegar rafmagn fór af stórum hluta bæjarins. Þarmeð talið sjúkrahúsinu. Og vararafstöðin fór ekki í gang. Á skurðborðinu lá hinn 29 ára gamli Leonardo Molina. 31.7.2007 14:21
Heilbrigðisráðherra skipar stjórn Tryggingastofnunar ríkisins Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, hefur skipað fimm manna stjórn Tryggingastofnunar ríkisins. Stjórnina skipa Benedikt Jóhannesson, formaður, Karl V. Matthíasson, varaformaður, Margrét S. Einarsdóttir, Sigríður Jóhannesdóttir og Sigursteinn Másson. 31.7.2007 14:16
Umferð verður hæg um Mosfellsbæ um verslunarmannahelgina Umferð um Mosfellsbæ er nokkuð hægari þessa dagana en venja er. Þetta ástand mun vara fram yfir verslunarmannahelgi. Ástæðan er sú að unnið er við vegaframkvæmdir á hringtorgi á mótum Vesturlandsvegar og Þingvallavegar. 31.7.2007 14:06
440 íslenskir skátar á alheimsmóti Nú stendur yfir á Englandi alheimsmót skáta og þar eru staddir 440 íslenskir skátar. Á alheimsmóti koma skátar saman til að endurnýja skátaheitin og fagna 100 ára afmæli skátahreyfingarinnar á morgun. Af því tilefni hyggjast Íslendingarnir baka 1000 pönnukökur fyrir gesti og gangandi. 31.7.2007 14:02
11 þúsund flýja skógarelda á Kanaríeyjum Skógareldar geisa nú á fjórum stöðum á Kanaríeyjum og hafa leitt til þess að ellefu þúsund manns hafa orðið að flýja heimili sín og gististaði. Slökkviliðsmenn berjast við eldana allan sólarhringinn og er beitt bæði flugvélum og þyrlum. Sjóðheitir sterkir vindar halda hinsvegar áfram að breiða eldana út. 31.7.2007 13:52
Snuðrurum boðið að skrifa í gestabók Skattayfirvöld leggja í dag fram upplýsingar um skattgreiðslur allra Íslendinga. Ungir sjálfstæðismenn mótmæla þessum görningi nú sem endranær og hafa lagt fram gestabók hjá tollstjóranum í Tryggvagötu „og bjóða þeim, sem telja sig hafa ástæðu til þess að snuðra í upplýsingum um samborgara sína, tækifæri til þess að skrá nafn sitt og upplýsingar um hvaða gögn þeir hafa skoðað," eins og það er orðað í tilkynningu frá þeim. "Þeir sem telja eðlilegt að mega skoða slík gögn um náungann hljóta að fagna því ef annað eins gagnsæi ríkir um þeirra eigin gjörðir." 31.7.2007 13:38
Greiðir 400 milljónir í opinber gjöld Hreiðar Már Sigurðsson, forstjóri Kaupþings er skattakóngur Íslands en opinber gjöld hans námu rúmum 400 milljónum króna fyrir árið 2006. Fast á hæla hans kemur Hannes Þór Smárason, forstjóri FL Group með tæpar 377 milljónir króna. Björgólfur Thor Björgólfsson, sem vermir lista Forbes yfir 500 tekjuhæstu menn heims er ekki meðal hæstu greiðendum opinberra gjalda. 31.7.2007 13:33
Fjögur fyrirburalík fundust í húsi konu í Maryland í Bandaríkjunum Fjögur fyrirburalík fundust á heimili 37 ára gamallar konu í Maryland fylki í Bandaríkjunum í gær. Konan sem gekk með börnin hafði sett líkin af þeim í plastpoka og geymt þau víða um heimili sitt þegar lögreglan fann þau. 31.7.2007 13:33