Fleiri fréttir

Vísindamenn finna gen sem eykur líkur á því að verða örvhentur

Vísindamenn hafa uppgötvað fyrsta genið sem virðist auka líkurnar á því að fólk verði örvhent. Vísindamennirnir, sem eru frá Oxford háskóla í Bretlandi, komust einnig að því að það að hafa þetta gen auki líkurnar lítillega á því að fá ýmsa geðsjúkdóma, þar á meðal geðklofa.

Ungmennum bannað að tjalda á Akureyri

Einstaklingum á aldrinum 18 til 23 ára verður bannað að tjalda á Akureyri um verslunarmannahelgina. Í tilkynningu frá Akureyrarbæ kemur fram að fjölskyldufólk á „öllum aldri" verði í forgangi þegar kemur að því að tjalda á tjaldsvæðum bæjarins.

Umferðaróhapp við Hádegismóa

Umferðaróhapp varð á Suðurlandsvegi við Hádegismóa á tólfta tímanum í dag. Slysið varð með þeim hætti að kranabóma á vörubíl rakst upp í brú. Við það féll bóman ofan á framrúðu á bíl sem keyrði á eftir. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var ökumaður bifreiðarinnar fluttur á bráðamóttöku Landspítala-Háskólasjúkrahúss með minniháttar höfuðáverka.

Björgólfur Thor ekki á meðal þeirra 20 tekjuhæstu

Ríkasti Íslendingurinn, Björgólfur Thor Björgólfsson, er ekki á meðal hæstu greiðenda opinberra gjalda á Íslandi. Eignir Björgólfs eru metnar vel á þriðja hundruð milljarða íslenskra króna.

Forstjóri Eimskips gjaldahæstur á Reykjanesi

Baldur Örn Guðnason, forstjóri Eimskips, er sá einstaklingur á Reykjanesi sem greiðir hæstu opinberu gjöldin samkvæmt upplýsingum frá skattstjóranum í Reykjanesumdæmi, en Baldur greiðir rúma 121 milljón króna. Í öðru sæti er Páll Breiðdal Samúelsson, fyrrverandi stjórnarformaður Toyota, með rúmar 104 milljónir og Bjarni Ármannsson, fyrrverandi forstjóri Glitnis er í þriðja sæti.

Jakob Valgeir Flosason greiðir hæstu gjöldin á Vestfjörðum

Jakob Valgeir Flosason, útgerðarmaður í Bolungarvík, greiðir hæstu opinberu gjöldin í umdæmi skattstjóra Vestfjarðaumdæmis samkvæmt álagningarskrá sem birt var í morgun. Jakob Valgeir greiðir rúmar 34,4 milljónir króna en Sigurður Guðjónsson, Þingeyri greiðir tæpar 28,4 milljónir króna. Einar Guðmundsson, Bolungarvík, greiðir rúmar 24 milljónir króna.

Verðbólga yfir hundrað þúsund prósent í Zimbabwe í árslok

Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn sagði í dag að verðbólga í Zimbabwe, á ársgrundvelli, gæti náð hundrað þúsund prósentum í lok þessa árs. Þetta fullyrðir Abdoulaye Bio Tchane, yfirmaður afrískra þróunarmála hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Til þess að takast á við verðbólguna í landinu ætlar seðlabankinn í Zimbabwe sér að gefa út nýjan peningaseðil, sem verður tvöfalt hærri að verðgildi en sá hæsti sem nú er í umferð.

Danir kalla hermenn sína heim frá Írak

Danski herinn mun kalla hermenn sína heim frá Írak á morgun og þar með lýkur þátttöku Dana í hernaðaraðgerðum þar í landi. Breskur her mun taka yfir það svæði sem Danirnir hafa haft umsjón með. Þetta kemur fram á danska fréttavefnum tv2.dk.

Vopnum smyglað á Gaza-svæðið í gegnum göng

Egypski herinn fann um helgina nokkur hundruð metra löng göng í bænum Rafah í Egyptalandi sem talið er að hafi verið notuð til að smygla vopnum inn á Gaza-ströndina. Inngangurinn að göngunum var falinn inni í svefnherbergisskáp.

Deilt um vegaframkvæmdir í Póllandi

Innan Evrópusambandsins er íhugað að leggja lögbann við vegaframkvæmdir í Póllandi sem ógnað gætu friðuðu lífríki. Vegurinn sem á að tengja borgirnar Varsjá og Helsingi liggur í gegnum Rospuda-dalinn - mólendi þar sem fágætar plöntur og dýr þrífast.

Mynbandsupptaka af suður-kóreskum gíslum birt

Al Jazeera sjónvarpsstöðin birti í dag myndbandsupptöku af nokkrum suður-kóreskum gíslum sem eru í haldi talibanskra mannræningja. Myndirnar sýna að minnsta kosti sjö af þeim konum sem rænt var fyrir 11 dögum og hermenn í bakgrunni. Al Jazeera sjónvarpsstöðin segir myndbandið ekki tekið upp í Afghanistan.

Ást og afbrýði

Þjóðin er harmi slegin eftir óhugnalegt morð um hádegisbilið í Reykjavík í gær. Það er algengara en fólk almennt telur að morðingi og fórnarlamb tengist - og eins að ástríða og afbrýðisemi valdi hörmulegum atburðum sem þessum. Helgi Gunnlaugsson afbrotafræðingur settist hjá Sölva í Íslandi í dag.

Myspace heimasíða tileinkuð látnum

Á MyDeathspace.com hefur verið útbúin heimasíða sem minnir um margt á kirkjugarð. Þar er að finna tengingu inn á 2500 Myspace-síður látinna einstaklinga og hefur síðunni verið líkt við minningargreinar dagblaða. Þar fást upplýsingar um einstaklingana sem oftast hafa látið lífið fyrir aldur fram. Sagt er frá nafni, aldri sem og dánarorsök.

Íranar beittir þrýstingi

Gordon Brown forsætisráðherra Bretlands og George Bush forseti Bandaríkjanna telja mikilvægt að beita Írana þrýstingi til að koma í veg fyrir frekari kjarnorkuáætlanir þeirra. Þetta kom fram á blaðamannafundi þeirra í Camp Davíd í Bandaríkjunum í dag.

17 fíkniefnahundar sinna fíkniefnaeftirliti um verslunarmannahelgina

Aron, Týri og Asi eru meðal sautján fíkniefnahunda sem munu aðstoða lögregluna og tollgæsluna í sameiginlegu fíkniefnaeftirliti um Verslunarmannahelgina. Sighvatur Jónsson prófaði að fela á sér fíkniefni í nágrenni við hundana í dag - sjáðu hvernig það gekk, með því að spila innslagið.

Dyraverðir sáu ekki árásina á Kaffi Sólon

Árásin tengist staðnum ekki neitt, þar sem stúlkurnar voru ekki í biðröð inná Kaffi Sólon, segir yfirdyravörður skemmtistaðarins um hrottafengna líkamsárás aðfaranótt sunnudags, þar sem bútur af eyra var bitinn af konu. Móðir konunnar segir sjónarvott sem skakkaði leikinn hafa bjargað lífi dóttur sinnar. Lögregla hefur beðið aðstandendur afsökunar á seinagangi rannsóknar málsins.

Hernaðarandstæðingar ósáttir við lágflug

Samtök hernaðarandstæðinga eru ekki ánægð með að herþotur á vegum Atlantshafsbandalagsins fái að fljúga lágflug yfir hálendinu í tvær klukkustundir í senn dagana fjórtánda og fimmtánda ágúst. Framkvæmdastjóri Íshesta segir að litlu hafi mátt muna að stórslys yrði fyrir nokkrum árum vegna slíks flugs. Formleg umsókn vegna lágflugs hefur borist samgönguráðuneytinu.

Sjóstöngin vinsæl fyrir vestan

Ferðaþjónusta tengd sjóstangaveiði hefur stóraukist á Vestfjörðum og menn sjá mikla möguleika í skemmtisiglingum. Á annað þúsund manns hafa komið á sjóstöng á Flateyri og Suðureyri það sem af er sumri. Þetta er tvöfaldur íbúafjöldinn í þessum tveimur sjávarplássum.

Bergman leikstýrði yfir sextíu kvikmyndum

Sænski kvikmyndaleiksstjórinn Ingmar Bergman lést í morgun á heimili sínu í Faro í Svíþjóð, 89 að aldri. Bergman leikstýrði yfir sextíu kvikmyndum yfir ævina og hlaut óskarsverðlaunin fyrir þrjár myndir.

Það getur hent alla að lenda í aðstæðum sem þeir ráða ekki við

Lögregla rannsakar aðdraganda voðaverkanna í gær þegar maður skaut annan til bana og svifti sig síðan lífi. Sérfræðingur í áfallahjálp segir að það geti hent alla á lífsleiðinni að lenda í aðstæðum sem þeir ráði ekki við, en þá sé mjög mikilvægt að þeim einstaklingum sé veitt aðstoð.

Afleitt gsm samband skapar hættu í Dalabyggð

Gunnólfur Lárusson, sveitastjóri Dalabyggð, segir að afleitt gsm-samband í Dölunum sé til skammar en sveitirnar í nágrenni Búðardals eru flestar utan slíkrar þjónustu. Sveitarstjórinn segir að fólk sem lendi í slysum á þjóðvegunum þar í sveit verði að treysta á guð og lukkuna.

Lýst eftir vitnum að skemmdum á bensíndælu

Lögreglan á Suðurnesjum lýsir eftir vitnum að skemmdum sem urðu á bensíndælu hjá N1 í Grindavík aðfaranótt sunnudags. Óþekktur aðili var að dæla bensíni en ók á brott án þess að taka slöngu bensíndælunnar úr bensíntanki bifreiðarinnar. Af þessu hlutust nokkrar skemmdir.

Bæjarstjóri vísar því á bug að minnihlutinn hafi ekki fengið að leggja fram bókanir

Gísli S. Einarsson, bæjarstjóri á Akranesi, vísar því til föðurhúsanna að minnihluti í bæjarstjórn hafi ekki fengið að bóka sitt álit á samkomulagi bæjarstjórnar við Kalmansvík ehf. Samkomulagið gefur Kalmansvík ehf. heimild til að útfæra allt að sjö hektara land við Kalmansvík þar sem fyrirhugað er að reisa allt að 450 íbúðir fyrir 50 ára og eldri.

Heimildarmynd Sigur Rósar frumsýnd í haust

Heimildamynd Sigur Rósar, Heima, verður frumsýnd í haust. Myndin sýnir tónleikaferðalag hljómsveitarinnar um Ísland á síðasta ári. Ferðalagið var endapunktur tónleikaferðar sveitarinnar um heiminn sem farin var í kjölfar útgáfu plötunnar Takk.

Elsti gerviútlimur í heimi

Gervitá sem fannst á fæti egypskrar múmíu gæti hafa verið fyrsti nothæfi gerviútlimur í heimi. Fornleifafræðingar geta sér til að táin hafi verið smíðuð milli 1069 til 664 fyrir Krist. Ef satt reynist er táin nokkrum öldum eldri en rómanskur bronsfótur sem áður var talinn elsti gerviútlimur heims.

Bílvelta á Biskupstungnabraut

Bifreið valt á Biskupstungnabraut á fjórða tímanum í dag. Bifreiðin var á norðurleið og í nánd við afleggjarann að Þingvöllum fipaðist ökumaðurinn með þeim afleiðingum að bifreiðin valt. Konan sem var við stýrið var flutt á Selfoss til skoðunnar en meiðsl hennar eru ekki talin alvarleg. Bíllinn skemmdist nokkuð og var hann dreginn á brott með kranabíl.

Íslensk stúlka í róðrarliði Oxford

Íslensk stúlka, Margrét Helga Ögmundsdóttir doktorsnemi í lífefnafræði við Oxford háskóla hefur verið valin í úrvalslið skólans í róðri, aðeins hálfu ári eftir að hún hóf æfingar. Liðið mun yfirleitt vera skipað landsliðsmönnum og Ólympíuförum, en 150 ára hefð er fyrir róðrarkeppni Oxford og Cambridge.

Marta Lovísa í veikindafrí

Norska prinsessan Marta Lovísa hefur tekið sér tveggja vikna veikindafrí. Ekki hefur verið greint frá því hvað hrjáir hana. Prinsessan er 35 ára gömul og á tvö börn með eiginmanni sínum Ara Behn. Hún vakti heimsathygli í síðustu viku þegar hún upplýsti að hún gæti talað við dýr og engla.

Margir grunnskólar eiga eftir að ráða kennara

Tuttugu og sjö grunnskólar í Reykjavík auglýstu eftir kennurum í Fréttablaðinu í gær, fyrir komandi skólaár sem hefst um miðjan ágúst. Skólastjórar sem Vísir talaði við segja að útlitið sé verra en í meðalári og sumir tala jafnvel um ófremdarástand.

Náttúrusamtök leggjast gegn nýrri veglínu þjóðvegar 1

Stjórn Náttúruverndarsamtaka Suðurlands legst gegn því að veglínu þjóðvegar 1 verði breytt þar sem hann liggur um Mýrdal en hreppsnefndin hefur tekið ákvörðun um breytingu á aðalskipulagstillögu þess efnis. Stjórn samtakanna telur ljóst að samþykkt sveitarstjórnar Mýrdalshrepps um veglínu muni valda verulegum óafturkræfum breytingum á svæðinu.

Aulagangur CIA

Þekktur bandarískur blaðamaður við New York Times hefur skrifað bók um bandarísku leyniþjónustuna, CIA, og fer háðuglegum orðum um ódugnað hennar. Tim Weiner segir að stofnunin sé svo léleg að hún sé ógn við öryggi Bandaríkjanna. Hann nefnir mörg dæmi.

Brown og Bush hyggja á nánara samstarf

Bein útsending var á Vísi frá fyrsta fréttamannafundi Gordons Browns og George W. Bush, forseta Bandaríkjanna, í dag. Brown er nú í sinni fyrstu opinberu heimsókn í Bandaríkjunum. Hægt er að horfa á hann hér á Vísi með því að smella á „Spila“ hnappinn.

Fengu ekki að leggja fram bókanir í bæjarstjórn

Fulltrúar minnihlutans í bæjarstjórn Akraneskaupstaðar eru ósáttir við vinnubrögð meirihlutans varðandi samkomulag sem gert hefur verið við Kalmansvík ehf. um heimild til að útfæra land þar sem fyrirhugað er að reisa allt að 450 íbúðir fyrir 50 ára og eldri. Á aukafundi í bæjarstjórn sem haldinn var á laugardaginn var fulltrúum minnihlutans meinað að leggja fram bókanir vegna málsins.

Fellibylir tvöfalt fleiri nú en árið 1900

Tíðni fellibylja við Atlandshafið er tvöfalt hærri nú en við upphaf síðustu aldar. Þetta kemur fram í nýlegri rannsókn sem birtist í breska tímaritinu Philosophical Transactions. Grandskoðaðir voru fellibylir við Atlandshafið allt frá aldarmótum 1900 og hvernig þeim hefur fjölgað frá ári til árs til dagsins í dag.

Bandaríkin semja um hernaðaraðstoð við ríki í Mið-Austurlöndum

Bandaríkin skýrðu í dag frá því að þau ætli sér að semja um 13 milljarða dollara heraðstoð við Egypta og 30 milljarða dollara varnarsamning við Ísrael. Þá ætla þeir sér einnig að semja um styrki í hermálum við Sádi-Arabíu og fleiri ríki við Persaflóann.

Suðaustur-Asíuríki setja á fót mannréttindastofnun

Utanríkisráðherrar Suðaustur-Asíuríkja fögnuðu sögulegum áfanga í dag þegar þeir náðu samkomulagi um að setja á fót mannréttindastofnun fyrir svæðið. Gagnrýnendur segja þó að þeir hafi ekki verið nógu harðorðir í garð herstjórnarinnar í Myanmar, áður Búrma.

Mikill húmoristi fallinn frá

Leikstjórinn Ingmar Bergman lést í gær. Hrafn Gunnlaugsson leikstjóri segir að hann hafi verið mikill húmoristi og sálkönnuður. Hann hafi verið virtur leikstjóri og muni verða sárt saknað.

Rússar styðja Abbas sem forseta allra Palestínumanna

Rússar viðurkenna Mahmoud Abbas sem forseta allra Palestínumanna og segjast munu styðja hann eftir megni í því að sameina palestinsku þjóðina og semja frið við Ísrael. Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands lýsti þessu yfir við komu Abbas til Moskvu, þar sem hann er nú í opinberri heimsókn.

Sett á geðsjúkrahús gegn vilja sínum

Einn af meðlimum stjórnarandstöðusamtakanna í Rússlandi, sem leidd eru af Garry Kasparpov, heimsmeistara í skák, var í dag settur á geðsjúkrahús gegn vilja sínum.

Sjá næstu 50 fréttir