Fleiri fréttir

Handtóku leiðtoga Jemaah Islamiah

Yfirvöld í Indónesíu segjast hafa handtekið forsprakka herskáu samtakanna Jemaah Islamiah sem talin eru bera ábyrgð á sprengjutilræðunum á Bali í okótber árið 2002. Þar létust rúmlega 200 manns þegar sprengjur sprungu á vinsælum skemmtistað á eyjunni, flestir þeirra erlendir ferðmenn.

Ólafur Þór Gunnarsson mótmælir ásökunum Gunnars Birgissonar

Ólafur Þór Gunnarsson bæjarfulltrúi VG í Kópavogi hefur sent frá sér yfirlýsingu í kjölfar viðtals við Gunnar I. Birgisson bæjarstóra í Kópavogi í Kastljósinu í gær. Þar hélt Gunnar því fram að fjölmiðlaumfjöllun undanfarinna daga væri runnin undan rifjum pólitískra andstæðinga sinna og að bæjarfulltrúar hefðu farið með róg um hann í fjölmiðla.

Aukin fánasala samhliða vaxandi þjóðerniskennd í Danmörku

Sala á danska þjóðfánanum og fánastöngum hefur aukist í Danmörku síðustu misseri eftir því segir í frétt Jótlandspóstsins. Tengja menn það aukinni þjóðerniskennd í landinu, ekki síst í framhaldinu að deilunum um Múhameðsteikningarnar í fyrra.

Aldraðir Reykvíkingar fá öryggissíma

Hundrað einstaklingar munu fá virk símtæki með þráðlausum neyðarhnappi sett upp heima hjá sér í haust. Um er að ræða tilraunaverkefni. Með öryggissímanum geta notendur náð sambandi við vaktmiðstöð með einu handtaki.

Óttast kjarnorkuöld

Þýskir öryggis- og friðarsérfræðingar eru sannfærðir um að aukin spenna í alþjóðasamfélaginu muni leiða af sér nýja og hættulegri kjarnorkuöld. Átök á Gaza-svæðinu og í Afganistan, hin óleysta kjarnorkudeila í Íran og aukin vopnaframleiðsla eru meðal þess sem þýsku sérfræðingarnir telja að muni auka á spennuna.

Ungmenni festust í rússíbana í Stokkhólmi

Þrjú ungmenni festust í rússíbananum Villtu músinni í tívolíinu Gröna Lund í Stokkhólmi í kvöld. Þetta kemur fram á fréttavef síðdeigisblaðsins Aftonbladet. Mjög vindasamt var á svæðinu og varð sterk vindhviða sem kom á móti vagninum til þess að hann stöðvaðist. Aðrir vagnar sem á eftir komu stöðvuðust sjálfkrafa við þetta og komst fólkið úr þeim af eigin rammleik.

Biskupinn á ferð um Rangárvallarprófastsdæmi

Biskup Íslands, Karl Sigurbjörnsson, hefur vikulanga vísitasíu í Rangarvallaprófastsdæmi föstudaginn 15. júní. Á þeim tíma sækir hann heim Oddaprestakall, Breiðabólsstaðarprestakall og Fellsmúlaprestakall. Vísitasíu í Holtsprestakall var frestað vegna veikinda sóknarprests.

Karlmaður hneig niður á fótboltaleik

Karlmaður hneig niður á leik Keflavíkur og Fram sem fram fór í Keflavík í kvöld. Að sögn lögreglunnar á Suðurnesjum voru það sjúkraflutningamenn á frívakt sem veittu fyrstu skyndihjálp og var maðurinn með meðvitund þegar sjúkrabíll og lögregla komu á staðinn.

McCann hjónin gagnrýna De Telegraaf

Foreldrar Madeleine McCann gagnrýna Hollenska dagblaðið De Telegraaf fyrir að birta nafnlaust bréf sem blaðinu barst með upplýsingum um hvar lík stúlkunnar sé grafið.

Íslensk erfðagreining nær sátt í dómsmáli

Íslensk erfðagreining hefur náð sátt í dómsmáli sem var höfðað gegn bandaríska sjúkrahúsinu Children’s Hospital of Philadelphia (CHOP) og nokkrum fyrrverandi starfsmönnum Íslenskrar erfðagreiningar sem hófu þar störf. Með dómsáttinni hafa allir aðilar dregið kröfur sínar til baka og fellt málið niður.

Dagskrá 17 júní í Reykjavík

Þjóðhátíðardagur Íslendinga er næstkomandi sunnudag og verða hátíðarhöld víða um borgina eins og venja stendur til. Reykjavíkurborg hefur nú birt skemmtidagskrá fyrir þjóðhátíðardaginn.

Litla hafmeyjan of lítil

Litla hafmeyjan, þjóðartákn Dana, sem er staðsett við Langelinie, er of lítil, segir Peter Bech, eigandi kaffihúss á Langelinie. Hann hefur þess vegna afhjúpað nýja útgáfu af Litlu Hafmeyjunni á Langeliniekaj. „Aftur og aftur hef ég hitt fyrir ferðamenn sem verða vonsviknir þegar þeir sjá Litlu hafmeyjuna. Ég hugsaði því með mér að ég þyrfti að gera eitthvað í málinu," segir Peter.

Libby getur ekki frestað afplánun

Dómari í Bandaríkjunum hefur úrskurðað að Lewis Libby geti ekki frestað fangelsisafplánun á meðan áfrýjunarferli er í gangi. Úrskurðurinn þýðir að Libby gæti þurft að fara í fangelsi innan fárra vikna.

Tveggja ára fangelsi fyrir vopnað rán

Ungur karlmaður var í Hæstarétti í dag dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir vopnað rán í verslun. Ránið var framið að kvöldi laugardagsins 15. júlí árið 2006 í Krónunni, Bjarkarholti í Mosfellsbæ. Maðurinn huldi andlit sitt, ógnaði afgreiðslustúlkunni með 24 cm löngum fjaðurhníf og skipaði henni að afhenda sér peninga úr sjóðsvél verslunarinnar.

Herraklippingum fjölgar

Þær eru kallaðar herraklippingar, ófrjósemisaðgerðirnar sem karlar fara í, en töluverð aukning hefur verið í þeim enda endanleg og afar örugg getnaðarvörn.

Lyftukláfur upp í Eyrarfjall

Ferðamenn geta farið með lyftukláfi upp á Eyrarfjall, ofan við Ísafjörð, áður en langt um líður. Þeir sem eru að vinna í málinu benda á að á Vestfjörðum þurfi menn að nýta öllu atvinnutækifæri sem bjóðast. Þeir segja að ef allir útgerðarkallar vestra láta tvö þorskígildistonn í fyrirtækið, dugi það til.

Óléttur fíkill á götunni

Eva Rut er tuttugu og fjögurra ára gömul, hún er ólétt og hefur verið í fíkniefnum frá þrettán ára aldri. Hún neytti fíkniefna fram á tuttugustu viku meðgöngunnar, þegar hún komst að því að hún væri þunguð.

Hálsbrotinn í 10 ár

14 ára drengur í Dorset á suður Englandi var hálsbrotinn í 10 ár. Hann spilaði rúgbý, lék sér á brimbretti og hjólaði um á fjallahjóli án þess að hafa hugmynd um brotið. 14 ára gamall fór hann að finna til og upplifði jafnvægisleysi. Þegar hann missti skyndilega meðvitund komust læknar að því að hann væri hálsbrotinn.

Samvinna þó skiptar skoðanir um Írak

Nicholas Burns, aðstoðarutanríkisráðherra Bandaríkjanna, segist harma það að margir Íslendingar hafi talið Bandaríkjamenn hegað sér með dónalegum hætti þegar varnarliðið var kallað heim frá Íslandi í fyrra. Samvinna þjóðanna verði styrkt. Hann segir skiptar skoðanir um málefni Íraks vel rúmast í samskiptum þjóðanna.

Meira fjármagn þarf til rannsókna efnahagsbrota

Hvítflibbaglæpir verða algengari með auknu flæði fjármagns í alþjóðasamfélaginu. Arðbærasti glæpurinn í dag er sala á eftirlíkingum tískuvara sem færir mun meiri hagnað en fæst af flutningi og sölu fíkniefna. Mun meira fjármagn þarf til efnahagsrannsókna hér á landi til að takast á við glæpi af þessu tagi.

Skipið sem fann Titanic rannsakar eldvirkni við Ísland

Skipið sem fann Titanic á hafsbotni fyrir 22 árum mun næstu þrjátíu daga rannsaka eldvirkni á Reykjaneshrygg í samstarfsverkefni Háskóla Íslands og Háskólans á Hawaii. Rannsóknin er talin geta svarað spurningum um uppruna Íslands.

Sárið morandi í lirfum

Öldruð kona sem legið hefur rúmföst árum saman var flutt ásamt eiginmanni sínum á spítala fyrir þremur dögum eftir að nágrannar höfðu fundið megna ólykt frá íbúð þeirra. Aðkoman var skelfileg en þau gatu enga björg sér veitt. Konan var með sár á fæti sem var alsett lirfum.

Ellilífeyrir gæti hækkað verulega hjá mörgum

Lagabreytingin, sem tekur gildi um næstu mánaðamót, og afnemur tekjuskerðingu ellilífeyris hjá sjötugum og eldri, gæti þýtt allt að 126 þúsund króna viðbótargreiðslu til einstaklinga á mánuði og 207 þúsund króna viðbótargreiðslu til hjóna. Fjármálaráðuneytið áætlar að lagabreytingin kosti ríkið allt að 700 milljónir króna á ári.

Þjóðstjórn leyst upp

Mahmoud Abbas, forseti Palestínumanna, ætlar að leysa upp þriggja mánaða þjóðstjórn Palestínumanna og lýsa yfir neyðarástandi á Vesturbakkanum og Gaza-svæðinu. Blóðugir bardagar hafa geisað á Gaza síðustu daga og allt stefnir í að Hamas-samtökin nái þar yfirráðum.

Hver á tugmilljarða eignir Samvinnutrygginga?

Lokaður hópur eignarhaldsfélags Samvinnutrygginga hittist á aðalfundi á morgun en eignir félagsins nema tugum milljarða króna. Lögmaður veltir því upp í blaðagrein í dag hver eigi eiginlega þessar stóreignir, en það virðist engan vegin ljóst.

Flóahreppur hafnar Urriðafossvirkjun

Sveitarstjórn Flóahrepps hefur samþykkt að taka Urriðafossvirkjun út úr drögum að aðalskipulagi. Landsvirkjunarmenn segja þetta koma mjög á óvart og hyggjast ræða betur við hreppinn.

Skora á ráðherra að endurskoða lög um torfæruhjól

Umferðarstofa og forráðamenn Forvarnarhússins skora á samgönguráðherra að endurskoða undanþágu frá umferðarlögum sem leyfa börnum niður í sex ára að keyra torfæruhjól sem ná allt að 100 kílómetra hraða. Um er að ræða undanþágu frá umferðarlögum sem tók gildi í byrjun júnímánaðar. Hún kveður á um að börn niður í sex ára aldur megi nota mótorhjólin til æfinga og keppni.

Keyrði undir áhrifum fíkniefna

karlmaður á fimmtugsaldri var handtekinn í gærmorgun grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. Maðurinn hafði ekið sendibifreið sinni fram af vegkanti þar sem bifreiðin sat síðan föst.

Ókeypis sprautunálar fyrir fíkla?

Haraldur Briem sóttvarnarlæknir segir í samtali við Vísi.is að skoða þurfi ítarlega þann kost að fíklar geti nálgast ókeypis sprautunálar. Hann segir það sérstaklega mikilvægt í ljósi aukinna lifrarbólgu C smita hér á landi.

Dæmdur fyrir bjórauglýsingu

Hæstiréttur dæmdi í dag Ásgeir Johansen, framkvæmdastjóra Rolf Johansen & Company, til að greiða 500 þúsund króna sekt fyrir brot á áfengislögum. Fréttablaðið birti bjórauglýsingar frá fyrirtækinu fyrir ári síðan undir fyrirsögninni „Flott og sexý" með mynd af Heineken bjór.

Alþjóðleikar ungmenna í næstu viku

Alþjóðaleikar ungmenna verða haldnir í Laugardal í næstu viku og hefjast þeir með glæsilegri opnunarhátíð fimmtudaginn 21. júní. Keppni fer fram föstudag og laugardag og úrslitakeppni verður sunnudaginn 24. júní.

Grænlenskum þingmönnum meinað að lenda á Húsavík

Flugvél með fulltrúum grænlenska þjóðþingsins innanborðs var snúið fyrirvaralaust frá lendingu á Húsavíkurflugvelli fyrir skemmstu og henni gert að lenda Akureyrarflugvelli til að fara í gegnum tollskoðun. Sérstök opinber móttökunefnd var mætt á Húsavíkurflugvöll til að taka móti þingmönnunum og kom það henni verulega á óvart þegar vélinni var snúið til Akureyrar.

Eins og hálfs árs fangelsi fyrir kókaínsmygl

Hæstiréttur hefur staðfest eins og hálfs árs fangelsisdóm yfir karlmanni sem sakfelldur var fyrir stórfellt fíkniefnabrot með því að hafa staðið að innflutningi á nærri 700 grömmum af kókaíni til Íslands sem ætluð voru til sölu.

Breskum réttardómstjóra falið að rannsaka banaslys í Hallormsstaðarskógi

Réttarrannsókn á Englandi sem staðið hefur yfir vegna banaslyss í Hallormsstaðarskógi í ágúst 2005 hefur verið frestað. Beðið er eftir frekari upplýsingum frá íslenskum yfirvöldum. Ættingjar hjóna sem létust þegar bíll þeirra lenti í árekstri við flutningabíl eru ósátt við að bílstjórinn skuli ekki hafa verið kærður.

Sýknaður af áfengislagabroti í Hæstarétti

Hæstiréttur sýknaði í dag mann af ákæru um að hafa brotið áfengislög með því að hafa sem starfandi stjórnarformaður heildsölu látið birta auglýsingu á léttvíni í Gestgjafanum árið 2003.

Þriggja ára fangelsi fyrir fjölmörg brot

Hæstiréttur dæmdi í dag Ívar Smára Guðmundsson í þriggja ára fangelsi fyrir ýmis brot, þar á meðal fyrir tvö rán, líkamsárás, eignaspjöll og fíkniefna- og umferðalagabrot. Hann var meðal annars ákærður fyrir rán í Bónusvídeó í Hafnarfirði í júlí fyrra en þar komst hann á brott með hátt í tvær milljónir króna.

Reynir íhugar að kæra Gunnar

Reynir Traustason, ritstjóri Mannlífs, íhugar að kæra Gunnar Birgisson, bæjarstóra í Kópavogi fyrir ummæli hans á Vísi fyrr í dag. Hann segist hafa falið lögfræðingum að fara yfir málið og skoða hvort Gunnar hafi gerst brotlegur við meiðyrðalöggjöf.

Fjórir Palestínumenn létust í sprengingu

Fjórir ungir Palestínumenn létust í sprengingu í bænum Rafah á suðurhluta Gasastrandarinnar í dag. Reuters-fréttastofan hefur eftir talsmönnum sjúkrahúss á svæðinu að piltarnir hafi allir verið yngri en 18 ára og að sprengin hafi orðið nærri stöðvum Ísraelshers.

Hinn þýski Hrói höttur dæmdur í fangelsi

Dómstóll í Suður-Þýskalandi dæmdi í dag fyrrverandi bankastarfsmann í tveggja ára og tíu mánaða fangelsi fyrir að hafa í starfi sínu fært fjármuni frá ríkum til fátækra. Maðurinn, sem nefndur hefur verið hinn þýski Hrói höttur, færði jafnvirði rúmlega 170 milljóna króna frá reikningum efnaðri viðskiptavina bankans yfir á reikninga þeirra fátækari.

Fyrstu trén gróðursett á Geitasandi

Fyrstu trén í svokölluðum Kolviðarskógi voru gróðursett á Geitasandi í dag. Skógurinn er hluti af Kolviðarsjóðsverkefninu sem miðar að því að binda kolefni úr andrúmsloftinu og vinna þannig gegn loftlagsbreytingum í heiminum.

Gunnar Birgisson ætlar að kæra Mannlíf og Ísafold

Gunnar Birgisson, bæjarstjóri í Kópavogi ætlar að kæra umfjallanir tímaritanna Ísafoldar og Mannlífs en bæði blöðin hafa fjallað ítarlega um meint hneyklismál sem Gunnar er bendlaður við. Gunnar segir umfjöllun Mannlífs mestu lágkúru íslenskrar blaðamennsku og hann ætlar ekki að svara efnislega þeim ávirðingum sem á hann eru bornar í blaðinu.

Byggingarkrani féll á götuna

Hluti af stórum byggingarkrana féll á götuna og skemmdi gangstétt við gatnamót Lönguhliðar og Flókagötu. Engin slys urðu á fólki en ökumaður sem á eftir krananum ók þurfti að hafa snör handtök til að forða árekstri.

Sjá næstu 50 fréttir