Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Styttir gæsluvarðhald yfir meintum kókaínsmyglurum Hæstiréttur hefur stytt gæsluvarðhaldsúrskurð héraðsdóms yfir tveimur mönnum sem grunaðir eru um að hafa reynt að smylga ríflega 3,7 kílóum af kókaíni til landsins sem ætlað var til sölu. 14.6.2007 13:15
Tvö torfæruslys á sólarhring Ungur maður lærbrotnaði þegar hann ók torfæruhjóli sínu á kyrrstæðan bíl í íbúðahverfi á Akranesi í gærkvöldi. Þetta er annað slysið af þessu tagi á einum sólarhring. 14.6.2007 13:00
Burns fundar með íslenskum ráðamönnum Nicholas Burns, aðstoðarutanríkisráðherra Bandaríkjanna, kom í gærkvöldi í heimsókn til Íslands í boði Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur utanríkisráðherra. 14.6.2007 12:45
Færri teknir með fölsuð vegabréf Kona á fimmtugsaldri, ættuð frá Srí Lanka og Hvít-Rússi á fertugsaldri voru dæmd í 30 daga fangelsi í Héraðsdómi Suðurnesja í gær fyrir að hafa framvísað fölsuðum vegabréfum við komuna til landsins um helglina. Samkvæmt upplýsingum lögreglu og tollgæslu á Keflavíkurflugvelli hefur heldur dregið úr svona tilvikum upp á síðkastið. 14.6.2007 12:30
Skoða olíuhreinsistöð í Þýskalandi Hópur sveitarstjórnarmanna frá Vestfjörðum fer til Þýskalands innan tíðar til að kynna sér rekstur olíhreinsistöðvar. Mikill áhugi er vestra fyrir hugmyndinni um slíka stöð sem annaðhvort yrði í Dýrafirði eða Arnarfirði. 14.6.2007 12:29
706 sjóliðar í Reykjavík um helgina 706 bandarískir, spænskir og þýskir sjóliðar verða í Reykjavík um helgina. Þrjú herskip Atlantshafsbandalagsins komu til hafnar í morgun og verða til sýnis fyrir almenning laugardag og sunnudag. 14.6.2007 12:14
Sjötugir og eldri geta unnið án þess að ellilífeyrir skerðist Nýsamþykkt lög, sem afnema skerðingu ellilífeyris vegna atvinnutekna sjötugra og eldri, taka gildi um næstu mánaðamót. Talið er að frumvarpið auki útgjöld ríkissjóðs um allt að 700 milljónir króna á ári. 14.6.2007 12:03
Þarf meira fjármagn til að takast á við hvítflibbaglæpi Hvítflibbaglæpir verða algengari með auknu flæði fjármagns í alþjóðasamfélaginu. Arðbærasti glæpurinn í dag er sala á eftirlíkingum tískuvara sem færir mun meiri hagnað en fæst af flutningi og sölu fíkniefna. Mun meira fjármagn þarf til efnahagsrannsókna hér á landi til að takast á við glæpi af þessu tagi. 14.6.2007 12:02
Segja skýrslu um íslenska háskóla rangtúlkaða Úttekt Ríkisendurskoðunar á íslenskum háskólum er ekki endanlegur mælikvarði á ágæti skólana heldur viðleitni til að opna umræðuna um hvernig megi meta þá. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Ríkisendurskoðun. Stofnunin telur að umræðan í fjölmiðlum um úttektina hafi í sumum tilfellum verið röng og hvetur til þess að menn ræði hana á málefnalegum forsendum. 14.6.2007 11:56
Forsætisráðherrar funda í Punkaharju Forsætisráðherrar Norðurlandanna hittast á sumarfundi sínum í bænum Punkaharju í Finnlandi í byrjun næstu viku. Matti Vanhanen forsætisráðherra Finnlands er gestgjafi á fundinum og mun taka á móti starfsbræðrum sínum, þeim Fredrik Reinfeldt, Jens Stoltenberg, Anders Fogh Rasmussen og Geir H. Haarde. 14.6.2007 11:41
Segir Írana sjá talibönum fyrir vopnum Bandaríkjamenn hafa óhrekjanlegar sannanir fyrir því að yfirvöld í Íran sjái uppreisnarmönnum talibana í Afganistan fyrir vopnum í baráttu þeirra gegn afgönskum hersveitum og sveitum NATO. Þetta segir Nicholas Burns, aðstoðarutanríkisráðherra Bandaríkjanna, í samtali við fréttastöðina CNN. 14.6.2007 11:25
Íhuga að loka alþjóðlegu geimstöðinni tímabundið Vísindamenn íhuga nú hvort loka eigi alþjóðlegu geimstöðinni tímabundið og flytja þrjá áhafnarmeðlimi hennar til jarðar í kjölfar alvarlegrar tölvubilunar. Tvær rússneskar tölvur sem stjórna súrefnisskömmtun og staðsetningarkerfi stöðvarinnar biluðu í nótt. Náist ekki að laga þær fljótlega mun súrefni geimstöðvarinnar klárast eftir 56 daga. 14.6.2007 11:22
Hamas herðir tökin á Gaza Harðir bardagar geysa nú á Gaza svæðinu á milli Hamas og Fatah. Fregnir herma að Hamas hafi náð stjórn á nær öllu svæðinu. Átökin eiga sér stað þrátt fyrir að leiðtogar fylkinganna tveggja hafi náð samkomulagi um vopnahlé seint í gærkvöldi. 14.6.2007 11:06
Höfuðborgarstofa verðlaunuð fyrir markaðsstarf Höfuðborgarstofa hlaut í gær sérstaka viðurkenningu á ársþingi samtakanna European City Marketing fyrir gott markaðsstarf og kynningu á Reykjavík. 130 borgir eiga aðild að samtökunum og fram kemur í tilkynningu frá borginni að þetta sé í fyrsta sinn sem markaðsverðlaunin séu veitt. 14.6.2007 11:04
Milljónir dýra lifðu af borgarastríð í Suður-Súdan Vísindamenn að störfum í Suður-Súdan eru gáttaðir eftir að hafa rannsakað dýralíf á svæðinu. Milljónir villtra dýra sáust í könnunarflugi vísindamannanna, þar á meðal mikill fjöldi antílópa og fíla. Þetta þykir merkilegt fyrir þær sakir að stríð geisaði í héraðinu í yfir tvo áratugi 14.6.2007 10:45
Íslendingar keyptu byggingu í London fyrir 10 milljarða Íslenskir fjárfestar keyptu nýverið sögufræga byggingu í Belgravia hverfinu í Lundúnum fyrir rúma tíu milljarða íslenskra króna. Húsið var upphaflega byggt sem íbúðarhús en frá lokum seinna stríðs hýsti húsið breska Rauða krossinn. Íslendingarnir hyggjast innrétta þar 14 lúxusíbúðir. 14.6.2007 10:42
Walid Eido grafinn í dag Jarðarför líbanska þingmannsins Walids Eido fór fram í Líbanon í morgun. Hann var harður andstæðingur Sýrlendinga og stefnu þeirra gagnvart Líbanon. Eido var jafnframt sjötti líbanski þingmaðurinn, sem er á móti Sýrlandi, sem myrtur er á tveimur síðustu árum. Bankar, verslanir og skólar eru lokaðir í dag. Eido var grafinn í Beirút, innan við sólarhring eftir að hann lést en það er samkvæmt múslimskri hefð. 14.6.2007 10:30
Samkomulag næst um viðskipti með fílabein Afríkulönd hafa náð samkomulagi um kaup og sölu og á fílabeini á næstu árum. Ríki í suðurhluta Afríku fá leyfi fyrir sérstakri sölu á fílabeinum sem þau hafa komist yfir löglega en síðan verða öll viðskipti með fílabein bönnuð í níu ár. 14.6.2007 10:18
Meira atvinnuleysi meðal kvenna Atvinnuleysi á landinu mældist 1,1 prósent í síðasta mánuði samkvæmt tölum Vinnumálastofnunar. Þetta jafngildir því að 1.759 manns hafi að jafnaði verið atvinnulausir í mánuðinum. Atvinnuleysi mældist meira hjá konum en körlum. 14.6.2007 10:08
Sjítar mótmæla sprengjuárás í Írak Sjíar í Manama, höfuðborg Bahrain, mótmæltu í dag sprengjuárás á eina helgustu mosku sjía múslíma, al-Askari í Írak. Þeir beindu mótmælum sínum að Bandaríkjunum og flokkadráttum í íslam. 13.6.2007 22:36
Sterkur jarðskjálfti í Guatemala og El Salvador Jarðskjálfti sem mældist 6.8 á ricter varð í Guatemala og El Salvador í dag. Upptök skjálftans voru í Kyrrahafinu um 70 km sunnan við höfuðborg Guatemala. Byggingar skulfu í um 30 sekúndur og skelfingu lostið fólk hljóp út á götur. Engar fregnir hafa borist af manntjóni. 13.6.2007 21:40
Baráttan harðnar á milli McCain og Romney John McCain, forsetaframbjóðandi repúblikana, gagnrýnir kosningabaráttu flokksbróðurs síns Mitt Romney. Hann segir afstöðu hans til fóstureyðinga misvísandi. Rommney hefur greint frá því að hann vilji engu breyta um fóstureyðingarlög einstakra fylkja og er hlynntur réttinum til fóstureyðinga. 13.6.2007 20:18
Nýr forstjóri Baugs Gunnar Sigurðsson nýr forstjóri Baugs var í viðtali í Íslandi í dag í kvöld. Hann kippir sér lítið upp við uppnefni eins og Baugsstjórn og segist ætla að láta aðra um pólitík. 13.6.2007 20:03
Baugsmál lagt í dóm Málflutningi í Baugsmálinu, hinu síðara, lauk í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag og er dóms að vænta fyrir mánaðamót. Í dag var tekist á um ákæruliði sem vísað var frá fyrir rúmum mánuði. 13.6.2007 19:28
Höft á innflutningi afar forneskjuleg Tilboð í tollkvóta vegna innflutnings á ostum fyrir næsta kvótaár verða opnuð næstkomandi mánudag. Tollkvótarnir nú nema rösklega 100 tonnum af erlendum osti. Innflytjendur á þessari vöru telja að höft á innflutningi séu afar forneskjuleg aðferð til að stýra neyslunni sem bitni mest á neytendum. 13.6.2007 19:25
Háskólaskýrslunni breytt í lokavinnslu Ríkisendurskoðun breytti úttekt sinni á gæðum háskólanna á milli frumskýrslu og lokaskýrslu. Felldar voru út mælistikur sem voru Háskóla Íslands óhagstæðar. Fullyrt er af Háskólanum í Reykjavík að þetta hafi verið gert þvert á ráðleggingar erlendra sérfræðinga. 13.6.2007 19:21
Friðarverðlaunahafi forseti Ísraels, en óöldin heldur áfram Enginn endir virðist á óöldinni í miðausturlöndum. Sautján létust á Gasa í dag og tíu í Beirút í bardögum og sprengjutilræðum. En maðurinn sem hlaut friðarverðlaun Nóbels fyrir þátt sinn í friðarferli sem kvað á um brotthvarf Ísraelshers frá Gaza, er nú öruggur með að verða næsti forseti Ísraels. 13.6.2007 19:00
Breskir barnaníðingar í lyfjameðferð Kynferðisafbrotamenn í Bretlandi eiga nú yfir höfði sér að vera settir á lyfjameðferð til að draga úr kynhvöt og hjálpa þeim að hætta að níðast á börnum. Frumvarpið verður lagt fyrir þingið af innanríkisráðherra landsins sem segir að koma verði í veg fyrir síendurtekin brot barnaníðinga. 13.6.2007 18:45
Ríkisstjórn hins ófullgerða stjórnarsáttmála Tveggja vikna sumarþingi Alþingis lauk nú síðdegis með samþykkt frumvarpa um afnám tekjutengingar á atvinnutekjum aldraðra og um sameiningu ráðuneyta. Stjórnarandstaðan segir þingstörfin hafa leitt í ljós að landsmenn búa við ríkisstjórn hins ófullgerða stjórnarsáttmála. 13.6.2007 18:43
Lóðir í Úlfarsárdal umsetnar Samtals bárust 374 umsóknir um lóðir í Úlfarsárdal en umsóknarfrestur rann út í dag kl. 16:15. Í boði voru samtals 115 lóðir og gat hver umsækjandi sótt um eina lóð. 266 sóttust eftir einbýlishúsalóð, 47 eftir parhúsalóð, 24 eftir raðhúsalóð og 37 eftir fjölbýlishúsalóð. 13.6.2007 18:37
Barist í Drangey Barist var í Drangey í gær í fyrsta sinn í síðan Grettir Ásmundarson var þar veginn árið 1031 en þá lögðu á fimmta tug víkinga undir sig eyjuna. 13.6.2007 18:31
Sexburamóðirin á batavegi Móðir sexbura sem fæddust á mánudag í Arisona í Bandaríkjunum varð fyrir hjartabilun eftir fæðinguna, en er nú á batavegi. Faðir barnanna segir hamingjuna ólýsanlega, en börnin eru komin úr öndunarvélum. 13.6.2007 18:30
Allt niður í þriggja ára börn á torfæruhjólum Hægt er að fá bensíndrifin torfæruhjól fyrir allt niður í þriggja ára börn sem komast á allt að fjörtíu kílómetra hraða. Fimmtán ára piltur hlaut í gærkvöldi opið beinbrot á lærlegg og úlnliðsbrotnaði, þegar hann missti stjórn á torfæruhjóli innanbæjar í Hveragerði. 13.6.2007 18:23
Átta létust í Beirút í dag Að minnsta kosti átta manns létu lífið í dag þegar sprengja sprakk í Beirút í Líbanon í dag. Níu aðrir særðust. Á meðal fórnarlambanna var Walid Eidom, þingmaður á líbanska þinginu. Auk hans létust elsti sonur hans og tveir af lífverðir, auk fjögurra annarra. 13.6.2007 18:16
Stefnumótun Orkuveitunnar fyrir útivistarsvæði Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur hefur kosið sérstaka stjórn yfir þau útivistarsvæði sem fyrirtækið á eða hefur umsjón með og almenningur nýtir sér. Á meðal þessara svæða er Elliðaárdalurinn, stór hluti Heiðmerkur, verulegur hluti hinna vinsælu útivistarsvæða við Hengilinn og í Grafningi auk umhverfis Deildartunguhvers í Borgarfirði. 13.6.2007 18:15
Ungabarn fannst látið á árbotni í Óðinsvéum Ungabarn fannst látið á árbotni í Óðinsvéum í Danmörku í gær. Verið var að hreinsa ána þegar það fannst. Barnið var drengur, 50 cm langur. Hann var í hvítum plastpoka sem hafði verið þyngdur með steini. Á steininum stendur: "Fyrirgefðu. Hvíl í friði. Mamma og pabbi elska þig, litli drengurinn minn". 13.6.2007 17:51
Eimskip styrkir Fjöltækniskólann Eimskip og Fjöltækniskólinn hafa gert með sér samning um samstarf á sviði fræðslumála. Samningurinn felur í sér að Eimskip styrkir Fjöltækniskólann að fjárhæð kr. 1.000.000 og styrkir nokkra útvalda nemendur hans á hverju ári. 13.6.2007 17:44
Lögreglan í Tokyo lak rannsóknargögnum Lögregluþjónn í Tokyo lak níu þúsund skjölum á Internetið fyrir skömmu. Skjölin innihéldu meðal annars þar á meðal gögn úr yfirheyrslum og 1000 ljósmyndir. Einnig voru upplýsingar um staðsetningu á umferðarmyndavélum og nöfn á afbrotaungmennum sem lögreglan var með til rannsóknar. 13.6.2007 17:35
Greiðslukortavelta jókst í síðasta mánuði Greiðslukortavelta jókst í maí frá fyrri mánuði og var svipuð hækkun á kredit- og debetkortaveltu. Debetkortavelta jókst um 7,7% milli mánaða og var í maí 35 milljarðar króna. 13.6.2007 17:05
Dóms að vænta í Baugsmálinu í lok mánaðar Málsflutningi í Baugsmálinu lauk í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Dóms er að vænta fyrir næstu mánaðamót. 13.6.2007 16:38
Kosið í bankaráð Seðlabankans á Alþingi Nýtt bankaráð Seðlabankans var kjörið á Alþingi nú fyrir stundu. Sjálfstæðisflokkur tilnefndi Halldór Blöndal, Ernu Gísladóttir og Hannes Hólmsteinn Gissurarson. Fyrir hönd Samfylkingar sitja í ráðinu Jón Sigurðsson og Jón Þór Sturluson. Framsóknarflokkur tilnefndi Jónas Hallgrímsson og Vinstri grænir Ragnar Arnalds. 13.6.2007 16:35
Vill efla baráttuna gegn mansali Mikilvægt er að aðildarríki Eystrasaltsráðsins vinni náið saman í baráttunni gegn mansali og ráðist sameiginlega gegn efnhagslegum og félagslegum rótum vandamálsins. Þetta kom fram í ræðu Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, utanríkisráðherra, á fundi utanríkisráðherra ríkja Eystrasaltsráðsins í Malmö í Svíþjóð í dag. Á fundinum ræddur ráðherrarnir meðal annars efnhags- og viðskiptamál og mannréttindi og eflingu lýðræðislegs stjórnarfars. 13.6.2007 16:18
Vísbending í máli Madeleine Mest selda dagblaði í Hollandi barst nafnlaust bréf með lýsingu um hvar lík hinnar fjögurra ára gömlu Madeleine væri að finna. Í bréfinu stóð að telpuna væri að finna undir grjóthrúgu í 15 kílómetra fjarlægð frá staðnum þar sem henni var rænt. Nú er liðinn 41 dagur síðan stelpunni var rænt í Portúgal. 13.6.2007 15:55
Heimildirnar féllu úr gildi 2004 Heimildir sem Íslendingar veittu Bandaríkjamönnum til yfirflugs og lendinga á Keflavíkurflugvelli í tengslum við innrásina í Írak runnu út vorið 2004. Grétar Þór Sigurðsson, ráðuneytisstjóri í utanríkisráðuneytinu segir að heimildirnar hafi runnið út þegar innrásinni lauk og fjölþjóðaherlið tók við í Írak. 13.6.2007 15:37
Keyrði fullur niður Spænsku tröppurnar Ungur maður var handtekinn í Róm fyrir að keyra niður Spænsku tröppurnar. Tröppurnar eru á meðal vinsælustu staða í Róm fyrir ferðamenn að skoða, og þar er meðal annars bannað að drekka og syngja. 13.6.2007 15:10
„Stærsti höfundaréttarþjófnaður sögunnar“: Skora á íslensk stjórnvöld að feta í fótspor Dana Innlent