Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Lækkun matvælaverðs skilar sér ekki að fullu til neytenda Lækkun á virðisaukaskatti og vörugjöldum á matvælum hefur ekki skilað sér að fullu til neytenda samkvæmt úttekt verðlagseftirlits Alþýðusambands Íslands. Verslanir 10-11 standa sig áberandi verst. Mest lækkuðu hvers konar gosdrykkir í verði í þeim fimm verslunum sem úttektin náði til. 16.4.2007 13:58
Bandarískir hermenn skutu þrjá írakska lögreglumenn Bandaríski herinn rannsakar nú hvers vegna bandarískir hermenn skutu í dag þrjá írakska lögreglumenn til bana í áhlaupi á híbýli uppreisnarmanna sem taldir eru tengjast al-Qaida. 16.4.2007 13:52
Íranar náða tvo Svía Yfirvöld í Íran hafa náðað tvo Svía sem voru handteknir í fyrra fyrir að taka myndir á hernaðarsvæði. Þeir hafa síðan setið í fangelsi. Sænska utanríkisráðuneytið vill ekkert um málið segja fyrr en mennirnir tveir eru komir heim. Sænska blaðið Dagens Nyherer lætur að því liggja að Mahmoud Ahmadinejad, forseti Íraks, hafi átt þátt í að mönnunum verður sleppt. 16.4.2007 13:42
Þóttist vera skyld skipverja af Borubon Dolphin Kona í Noregi reyndi að svíkja út fé í með því að ljúga því að hún væri ættingi eins mannanna sem saknað er eftir að norska dráttarbátnum Bourbon Dolphin hvolfdi úti fyrir Hjatlandseyjum í síðustu viku. 16.4.2007 13:32
Hæsti turn Danmerkur í Árósum Borgarstjórn Árósa hefur ákveðið að reisa stærsta skýjakljúf Danmerkur á hafnarsvæðí sínu. Það verður 142 metrar að hæð, fjórum sinnum hærra en Sívali turninn í Kaupmannahöfn. Fyrstu íbúarnir eiga að flytja inn eftir þrjú ár. Á efstu hæð hússins verður veitingahús og bar, en þar fyrir neðan verða íbúðir í dýrari kantinum. 16.4.2007 13:23
Búið að slökkva skógarelda í Þýskalandi Slökkviliðsmönnum í Þýskalandi hefur tekist að slökkva skógarelda sem geysað hafa þar í landi frá því á föstudaginn. Aðeins sviðin jörð er nú þar sem áður voru þéttvaxnir skógar. Eldsupptökin eru rakin til loftlagsbreytinga. 16.4.2007 13:09
Ritstjórar Berlingske gengu út Tveir aðalritstjórar danska blaðsins Berlingske Tidende hafa gengið út vegna áforma um sparnað sem mun kosta 350 starfsmenn vinnuna. Sparnaðaráætlanirna voru kynntar í desember síðastliðnum, eftir að bretinn David Montgomery keypti útgáfuna. 16.4.2007 13:01
Framtíð Wolfowitz enn óráðin Framtíð Pauls Wolfowitz, bankastjóra Alþjóðabankans, er enn óráðin þrátt fyrir yfirlýsingar hans um að ætla að sitja sem fastast áfram. Wolfowitz hefur viðurkennt að hafa veitt ástkonu sinni sem einnig starfar við bankann ríflegar launa- og stöðuhækkanir. 16.4.2007 13:00
Frekari refsiaðgerðir hvetja einungis Írana áfram Mahmoud Ahmadinejad Íransforseti lýsti því yfir í morgun að frekari refsiaðgerðir öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna myndu einungis hvetja Írana enn frekar áfram í viðleitni sinni til kjarnorkuþróunar. 16.4.2007 12:45
Hrossahlátur Strákurinn á þessari mynd er ekkert sérlega hræddur við dýr, en það verður að fyrirgefa honum þótt honum brygði við þessa heimsókn. Vinir okkar á Nyhedsavisen, í Danmörku, völdu þetta mynd dagsins, af auljósum orsökum. 16.4.2007 12:38
Enn ekki staðfest hvort Johnston hafi verið myrtur Enn hefur ekki fengist staðfest hvort breski blaðamaðurinn Alan Johnston hefur verið myrtur en honum var rænt á Gaza-ströndinni fyrir rúmum mánuði. 16.4.2007 12:30
Ný útgáfa Lyfjabókarinnar Lyfja hefur gefið út nýja og endurbætta útgáfu Lyfjabókarinnar - handbókar um lyf á Íslandi, og var Siv Friðleifsdóttur, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, afhent fyrsta eintak hennar við athöfn á dögunum. "Mér finnst frábært framtak að birta í bókinni myndir af lyfjunum í raunstærð sem mun nýtast vel til að stuðla að auknu öruggi við lyfjanotkun" sagði Siv. 16.4.2007 12:26
Óæskilegt að bújarðir safnist á fárra manna hendur Forsætisráðherra telur óæskilegt að eignarhald á bújörðum, þar sem ekki er stundaður búskapur, safnist á fárra manna hendur. Um 40 prósent bújarða í Borgarfirði eru nú í eigu aðila sem ekki stunda búskap. 16.4.2007 12:14
60 ára aðrennslislögn gaf sig Aðrennslislögn að Gönguskarðsárvirkjun brast og féll þá aurskriða féll á Sauðárkrók í gærmorgun. Högg kom á lögnina eftir að verktakar tóku í sundur háspennujarðstreng. 16.4.2007 11:59
Samkynhneigðir karlmenn oftar með átröskun Samkynhneigðir menn eru þrisvar sinnum oftar greindir með átröskun, þ.e. lystastol, anorexíu og átsýki, heldur en gangkynhneigðir menn samkvæmt nýrri könnun frá Columbia University. Ástæðan fyrir því er talin vera mun meiri pressa sem er gerð á menn í innan hinnar svokölluðu samkynhneigðu menningar um að vera grannir heldur en gerð er hjá gagnkynhneigðum mönnum. Enginn munur fannst á átröskunareinkennum á milli gagnkynhneigðra og samkynhneigðar kvenna. 16.4.2007 11:47
Búið að landa um 80 þúsund tonnum af kolmunna Búið er að landa um 80 þúsund tonnum af kolmunna til mjölverksmiðja hér landi frá áramótum samkvæmt samantekt Samtaka Fiskvinnslustöðva. Þar af nema landanir íslenskra skipa um 55 þúsund tonnum. 16.4.2007 11:45
Margrét Danadrottning 67 ára í dag Þúsundir Dana söfnuðust saman á torginu fyrir framan Amalienborgarhöll í Kaupmannahöfn í morgun til að samfagna Margréti Þórhildi Danadrottningu sem í dag er 67 ára. 16.4.2007 11:33
Baugur vex hraðast af smásölufyrirtækjum í heiminum Baugur Group er í 51. sæti yfir 250 stærstu smásölufyrirtæki í heiminum samkvæmt samantekt Deloitte Touche og Stores, tímariti bandarísku samtaka smásölufyrirtækjanna NRF. Fyrirtækið óx jafnframt hraðast af öllum smásölufyrirtækjum á listanum á árunum 2000-2005. 16.4.2007 11:12
Slasaðist eftir verðlaunaafhendingu Ung stúlka slasaðist á Rangárbökkum við Gaddstaðaflatir á laugardaginn þegar hestur hennar fældist. Talið var að hófhlíf á framfæti hestsins hafi losnað með fyrrgreindum afleiðingum en stúlkan var að koma úr heiðurshring eftir verðlaunaafhendingu þegar óhappið átti sér stað. Þá þurfti lögreglan á Hvolsvelli að kalla út sprengjusérfræðinga Landhelgisgæslunnar þegar dularfullt dufl rak á land í fjörunni við Garða í Mýrdal. 16.4.2007 10:55
Gefa út leiðarvísi fyrir bestu kynlífsstaðina í danskri náttúru Dönsk náttúruverndarsamtök róa nú á ný mið en þau ætla að gefa út leiðarvísi yfir þá staði í danskri náttúru þar sem best er að njóta ásta. Haft er eftir upplýsingafulltrúa samtakanna á vef Jótlandspóstins að með þessu vilji samtökin vekja athygli á að það megi nýta náttúruna og njóta hennar á ýmsan hátt. 16.4.2007 10:51
Kviknað í nokkrum klósettum Kviknað hefur í nokkrum klósettum sem hafa sér hitablásara, lyktarsprey, og setu hitara í frá fyrirtækinu Toto. Ltd. í Japan. Svo virðist sem hitaseturnar hafi brunnið yfir um og reykur byrjað að stíga upp frá þeim. Fyrirtækið segir að engin meiðsl hafi orðið á fólki, þó svo þeir viðurkenni að það sé mjög óþægileg staða þegar kvikni í klósetti heimilisins. 16.4.2007 10:43
Stríðið hefur alvarleg áhrif á íröksk börn Sjö af hverjum tíu börnum í grunnskólum í hverfi í Norður-Bagdad þjást af áfallaröskun þannig að þau stama eða pissa undir. Þetta leiðir ný skýrsla á vegum írakska heilbrigðisráðuneytisins í ljós en í rannsókninni var kannað hvaða áhrif stríðið í Írak hefði á börnin. 16.4.2007 10:34
BSRB með undirskriftaherferð til eflingar almannaþjónustu Bandalag starfsmanna ríkis og bæja hefur hafið undirskriftaherferð til eflingar almannaþjónustu . Herferðin er liður í alþjóðlegri undirskriftaherferð evrópskra verkalýðshreyfinga en markmiðið er að safna yfir milljón undirskriftum. 16.4.2007 10:27
Fimm börn brunnu inni Fimm börn dóu í íkveikju sem var St. Louis í Bandaríkjunum í morgun. Börnin voru á aldrinum 5 mánaða upp í tíu ára gömul. Fjórir aðrir særðust lítilháttar. Þegar slökkviliðið kom á vettvang var húsið alelda og vissu þeir ekki af börnunum inn í húsinu, en foreldrar þeirra voru ekki á svæðinu. 16.4.2007 10:04
Kaupmáttur jókst um 56 prósent frá 1994-2005 Kaupmáttur á hvern íbúa landsins jókst um 56 prósent frá árinu 1994-2005 samkvæmt tölum sem Hagstofa Íslands birtir í dag um ráðstöfunartekjur heimilisgeirans eins og það er nefnt. Ráðstöfunartekjur á mann hækkuðu að meðaltali um 4,2 prósent á tímabilinu. 16.4.2007 10:03
Skemmdarvargar í Hveragerði Alls voru 56 ökumenn kærðir fyrir hraðakstur í umdæmi lögreglunnar á Selfossi í vikunni sem leið. Tveir ökumenn voru kærðir fyrir ölvunarakstur og tveir fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna. Þá braust óprúttinn þjófur inn í bíl í Hveragerði og stal myndavél og um eitt hundrað geisladiskum. Miklar skemmdir voru unnar í gróðrastöðinni Fagrahvammi á fimmtudaginn. 16.4.2007 09:52
Blair: Látið Vilhjálm og Kate í friði Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, hefur beðið bæði fjölmiðla og bresku þjóðina að gefa Vilhjálmi prins og Kate Middleton frið eftir að upp úr sambandi þeirra slitnaði. 15.4.2007 21:00
Mið- og hægristjórn mynduð í Finnlandi Samkomulag hefur náðst um nýja fjögurra flokka ríkisstjórn í Finnlandi undir forystu Mattis Vanhanens, forsætisráðherra. Ríkisstjórninn telst hægri- og miðstjórn og aðild að henni eiga Miðflokkur Vanhanens, Þjóðarbandalagið, Græningjar og Sænski þjóðarflokkurinn. 15.4.2007 20:14
Hreyfing Sadrs ætlar úr ríkisstjórn Stjórnmálahreyfing herskáa sjíaklerksins Moqtada al-Sadrs tilkynnti í dag að hún hygðist draga sig út úr ríkisstjórn Íraks á morgun til þess að þrýsta á um að Bandaríkjamenn legðu fram áætlun um brotthvarf hermanna sinna. 15.4.2007 20:01
Wolfowitz ekki rekinn úr starfi Stjórn Alþjóðabankans lýsti yfir miklum af áhyggjum af orðspori bankans vegna mál Pauls Wolfowitz, forstjóra bankans, eftir fund í kvöld. Hins vegar var ekki ákveðið að reka hann úr starfi. 15.4.2007 19:45
Vel á annað hundrað látinn eftir helgina í Írak Vel á annað hundrað hafa fallið í hrinu ofbeldisverka í Írak um helgina. Mörg hundruð liggja þungt haldnir eftir röð bílsprengjuárása um allt landið í dag og í gær. Þá fórust tveir breskir hermenn þegar tvær herþyrlur skullu saman rétt utan við höfuðborgina Bagdad í morgun. 15.4.2007 19:45
Stefnir í metfjölda skemmtiferðaskipa í sumar Það stefnir í metfjölda ferðalanga til Íslands með skemmtiferðaskipum í sumar. Tekjur af þessum ferðalöngum eru vanmetnar, segir markaðsstjóri Akureyrarhafnar. 15.4.2007 19:30
Hlupu nakin um götur Akureyrar Gríðarlegt annríki var hjá lögreglu á Akureyri í gær þar sem mikill fjöldi unglinga var í bænum langt fram á morgun. Lögregla segir þó að nóttin hafi gengið vonum framar. 15.4.2007 19:15
Þurfa að flytja tímabundið vegna aurflóðs Gríðarlegt eignatjón varð á Sauðárkróki í morgun þegar vatnsstokkur fyrir ofan bæinn sprakk. Mikið mildi þykir að ekki fór fer þegar vatnselgurinn steyptist niður Nafirnar. Hreinsunarstarf tekur nokkurn tíma og því þurfa tvær fjölskyldur að flytjast búferlum á meðan. 15.4.2007 19:00
Hlutu bæði rússneska kosningu í embætti Landsfundi Sjálfstæðismanna lauk í dag með kosningum í miðstjórn flokksins og í embætti formanns og varaformanns. Bæði formaður og varaformaður flokksins fengu rússneska kosningu í embættin. 15.4.2007 19:00
Þrír flokkar vilja græna skatta Allir stjórnmálaflokkar, nema Frjálslyndir, vilja beita sköttum eða lækkun gjalda til að hvetja landsmenn til að nota umhverfisvæna bíla. Samfylking, Íslandshreyfingin og Vinstri grænir vilja einir flokka leggja á græna skatta samkvæmt reglunni - þeir borgi sem mengi. 15.4.2007 18:40
Skuldayfirlýsing skaðar líklega ekki VSP Skuldayfirlýsingin sem framkvæmdarstjóri VSP gaf út kemur líklega ekki til með að skaða fyrirtækið. Snarræði starfsmanna þjónustunnar í síðustu viku gerði það að verkum að að hægt var að kalla yfirlýsinguna til baka. 15.4.2007 18:30
Byrjað að selja aðgöngumiða á Ólympíuleikana Byrjað var að selja miða á Ólympíuleikana í Peking, sem fram fara á næsta ári, í dag. Í boði eru yfir sjö milljónir miða til almennings og er búist við að Kínverjar kaupi þrjá af hverjum fjórum þeirra. 15.4.2007 18:16
Saka Bandaríkjamenn um hræðsluáróður Yfirvöld í Alsír sökuðu í dag talsmenn sendiráðs Bandaríkjanna í landinu um um að vera óábyrgir með því að vara við hugsanlegum árásum í höfuðborginni Algeirsborg á næstunni. 15.4.2007 17:43
Herskár hópur segist hafa drepið Johnston Herskár palestínskur hópur sem nefnist Al Tawhid Al Jihad hefur gefið út yfirlýsingu um að hann hafi tekið Alan Johnston, fréttamann BBC á Gasa, af lífi. Johnston var numinn á brott á Gasa þann 12. mars en fyrr í vikunni bárust fregnir af því að hann væri á lífi. 15.4.2007 17:15
Búfjárrækt stunduð á um þrjú þúsund býlum Um 4.300 lögbýli eru í ábúð á Íslandi og er búfjárrækt stunduð á þrjú þúsund þeirrra. Þetta kemur fram í nýjum bæklingi Bændasamtaka Íslands sem nefnist Sveit og borg - saman í starfi og hefur að geyma helstu hagstærðir í landbúnaði. 15.4.2007 17:03
Hvalreki í Þorlákshafnarfjöru Lögreglunni á Selfossi var tilkynnt um hvalreka í fjörunni austan við Þorlákshöfn um hálftvö í dag. Að sögn lögreglunnar er skepnan um 10-12 metrar á lengd en ekki er vitað um hvaða tegund er að ræða. Hvalurinn er í flæðarmálinu en ekki liggur fyrir hvað varð dýrinu að aldurtila. 15.4.2007 16:55
Miðjarðarhafsveður í Bretlandi Sannkallað Miðjarðarhafsveður hefur verið á Bretlandi um helgina og hefur hitinn farið yfir 25 stig sums staðar í landinu. Það er um 10 gráðum heitara en venja er á þessum árstíma. 15.4.2007 16:27
Rætt um framtíð landbúnaðarins á fjórum fundum Bændasamtök Íslands og frambjóðendur til Alþingis standa á næstu dögum fyrir fjórum fundum um stöðu og framtíð landbúnaðarins. 15.4.2007 16:10
Hreinsunarstarf á Króknum fram á kvöld Hreinsunarstarf á Sauðárkróki eftir að aurflóð féllu þar á hús og vegi í morgun gengur vel að sögn lögreglu en hún reiknar með að ekki verið lokið við að moka aurnum burt fyrr en í kvöld. 15.4.2007 16:02
Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Innlent