Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Geir endurkjörinn formaður með um 96 prósentum atkvæða Geir H. Haarde var endurkjörinn formaður Sjálfstæðisflokksins fyrir stundu. Hann hlaut 95,8 prósent atkvæða í formannskosningu á landsfundi Sjálfstæðisflokksins sem er um það bil að ljúka. 15.4.2007 14:10
Brynhildur hlýtur Norrænu barnabókaverðlaunin í ár Brynhildur Þórarinsdóttir rithöfundur hlýtur Norrænu barnabókaverðlaunin í ár fyrir bækurnar Njálu, Eglu og Laxdælu sem komu út á árunum 2002-2006. Verðlaunin eru heiðursverðlaun sem samtök norrænna skólasafnakennara standa að. 15.4.2007 13:57
Kjartan fékk flest atkvæði í kjöri til miðstjórnar Kjartan Gunnarsson flest atkvæði, eða 709, í kjöri til miðstjórnar Sjálfstæðisflokksins á landsfundi hans í Laugardalshöll í dag. Kosið var um ellefu sæti af 29 í miðstjórnina á fundinum. 15.4.2007 13:47
Slys og eignatjón í jarðskjálfta í Japan Snarpur jarðskjálfti upp á 5,4 á Richter skók mið- og vesturhluta Japans í nótt. Fimm manns slösuðust þegar hlutir féllu á þá og hátt í 50 hús skemmdust í skjálftanum. Þá urðu urðu 4300 heimili rafmagnslaus í nokkurn tíma. 15.4.2007 13:32
Íbúar í Bronx æfir yfir þýsku myndbandi Íbúar í Bronx eru æfir vegna myndbands úr þýska hernum þar sem liðþjálfi segir hermanni að ímynda sér að hann sé að skjóta á svertingja í Bronx. Embættismenn í New York hafa krafist afsökunarbeiðni. 15.4.2007 13:30
Páfinn áttræður í dag Páfinn er áttræður í dag. Tugþúsundir kaþólikka báðu fyrir Benedikt sextánda á Péturstorginu í Róm í morgun þar sem hann hélt sjálfur kraftmikla ræðu. 15.4.2007 13:15
Ríkisstjórnin heldur velli Ríkisstjórnin heldur velli samkvæmt nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins. Vinstri -grænir tapa fylgi og fara niður fyrir Samfylkingu. Sjálfstæðisflokkurinn bætir líka við sig. Könnunin var gerð í gær þegar landsfundir Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks voru í fullum gangi. 15.4.2007 13:00
Kjarnorkukapphlaup í Miðausturlöndum veldur áhyggjum Hvert ríkið á fætur öðru hefur sett allt á fullt í þróun kjarnorku, af ótta við þróunina í Íran. Kjarnorkukapphlaupið veldur miklum áhyggjum hjá sérfræðingum í Pentagon. 15.4.2007 12:45
Loftræstikerfi sjúkrahúss lokað vegna sinubruna Loka þurfti loftræstiskerfi Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri vegna sinubruna í gærkvöld. Öll vakt slökkviliðsins var kölluð út til að slökkva eldinn og gekk það greiðlega. 15.4.2007 12:30
Kristinnn í bílveltu á Steingrímsfjarðarheiði Kristinn H. Gunnarsson alþingismaður velti bíl sínum við Steingrímsfjarðarheiði í gærkvöld. Í samtali við fréttastofu sagðist Kristinn hafa verið á leið frá Ísafirði eftir kosningafund Frjálslynda flokksins í bænum þegar bíll hann rann út af í krapa og bleytu og valt 15.4.2007 12:22
Gríðarlegt tjón á Sauðárkróki þegar vatnsstokkur brast Gríðarlegt tjón varð á húsum og bílum á Sauðárkróki í morgun þegar vatnstokkur í eigu RARIKgaf sig. Engin slys urðu á mönnum en tjónið nemur tugum milljóna króna. 15.4.2007 12:00
Ómar og Margrét leiða Íslandshreyfinguna í Reykjavík Ómar Ragnarsson, formaður Íslandshreyfingarinnar, og Margrét Sverrisdóttir, varaformaður flokksins, leiða lista Íslandshreyfingarinnar í Reykjavíkurkjördæmunum tveimur. Flokkurinn tilkynnti um fimm eftstu sætin í kjördæmunum í dag. 15.4.2007 11:35
Lögregla beitir kylfum gegn mótmælendum Lögregla í Pétursborg í Rússlandi beitti í morgun kylfum gegn stjórnarandstæðingum sem safnast höfðu saman til þess að mótmæla einræðistilburðum Vladímírs Pútíns, forseta landsins. Lögregla í borginni hefur mikinn viðbúnað líkt og lögreglan í Moskvu gerði í gær þegar hún handtók vel á anna hundrað mótmælendur í höfuðborginni. 15.4.2007 11:27
Hvað skal gera við Sanjaya? „Þetta er besta spurning sem ég hef verið spurð lengi,“ sagði öldungadeildarþingmaðurinn Hillary Clinton í gær þegar fréttamaður spurði hana hvað Bandaríkjamenn gætu gert við Sanjaya Malakar, sem kemst alltaf lengra og lengra í American Idol, þrátt fyrir augljósan skort á hæfileikum. 15.4.2007 11:15
Erill hjá lögreglu á höfuðborgarsvæðinu og á Akureyri Talsverður erill var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt og fram undir morgun þótt málin sem upp hafi komið teljist öll minni háttar. Átta manns voru teknir fyrir ölvunarakstur í eftirliti lögreglu á höfðuborgarsvæðinu. 15.4.2007 11:00
Hálkublettir á Hellisheiði Vegagerðin varar við hálkublettum á Hellisheiði. Á Vestfjörðum er snjóþekja á Hálfdán en mokstur stendur yfir, snjóþekja er á Eyrarfjalli, þæfingur er á Hrafnseyraheiði og Dynjandisheiði. Að öðru leyti eru vegir víðast hvar auðir um allt land. 15.4.2007 10:56
Stjórnarandstæðingar mótmæla í Pétursborg Hópur stjórnarandstæðinga í Rússlandi safnaðist saman á torgi í Pétursborg í morgun til þess að mótmæla einræðistilburðum Vladímírs Pútíns, forseta Rússlands. Lögregla í borginni hefur mikinn viðbúnað líkt og lögreglan í Moskvu gerði í gær þegar hún handtók vel á annað hundrað mótmælendur í höfuðborginni. 15.4.2007 10:51
Nágrannaríki Írans þróa kjarnorku Hvert ríkið á fætur öðru hefur sett allt á fullt í þróun kjarnorku af ótta við þróunina í Íran. Sádi-Arabar og Tyrkir hafa hingað til ekki sýnt kjarnorkumálum mikinn áhuga en undanfarið hefur undirbúningur kjarnorkuvera farið í fullan gang auk þess sem aljþóðlegir sérfræðingar hafa verið fengnir til landanna. 15.4.2007 10:30
Sendi sjálfri sér fíkniefni til Eyja með flugi Lögreglan í Vestmannaeyjum handtók í gær konu á þrítugsaldri með nokkrar tegundir fíkniefna. Konan hafði sent sjálfri sér efnin með flugi frá Reykjavík og lögregla fengið pata af því og þegar hún sótti efnin á flugvöllinn var hún handtekin. 15.4.2007 10:15
Landsfundi Sjálfstæðisflokksins lýkur í dag Landsfundi Sjálfstæðisflokksins lýkur í dag klukkan tvö með ræðu formannsins. Ályktanir í sex málaflokkum voru afgreiddar í gær þar sem meðal annars kom fram að flokkurinn ætlar á næstu misserum að fella niður stimpilgjöld, lækka skatta einstaklinga og fyrirtækja og einfalda skattkerfið. 15.4.2007 10:00
Áframhaldandi blóðbað í Írak Átján féllu og fimmtíu manns eru særðir eftir tvær bílsprengjuárásir í fjölförnu hverfi í Baghdad í Írak í morgun. Seinni sprengjan sprakk aðeins nokkrum mínútum á eftir þeirri fyrri, þegar fjöldi fólks hafði safnast saman á staðnum þar sem sú fyrri sprakk. 15.4.2007 09:46
Venstre vill leggja niður konungdæmi í Noregi Það eru haldnir landsfundir víðar en á Íslandi um helgina og á landsfundi borgarlega flokksins Venstre í Noregi var sú tillaga að leggja niður konungdæmi í Noregi samþykkt með meirihluta atkvæða. 14.4.2007 20:37
Sumarveður víða í Evrópu um helgina Sannkallað sumarveður hefur verið í vesturhluta Evrópu í dag og fór hitinn í Þýskalandi nærri því upp í 30 gráður þar sem heitast var. Þar hefur vorið verið einstaklega milt og íbúar helstu stórborga landsins nýtt sér það til að liggja í sólinni og leika sér úti við. 14.4.2007 20:15
Á þriðja tug látinn eftir skyndiflóð í Taílandi Að minnsta kosti 21 maður er látinn og fjölmargra er saknað eftir að skyndiflóð óð yfir tvo fossa í suðurhluta landsins í dag. Talið er að um 200 manns hafi verið við fossana Sairung og Praisawan þegar flóðið gekk yfir en það má rekja til mikilla ringning síðustu daga í fjalllendinu þar sem fossarnir eru. 14.4.2007 19:56
Kínverjar halda áfram með eigin GSP-kerfi Kínverjar skutu í gær á loft fjórða gervihnettinum fyrir GPS-leiðsögukerfi sitt. Kostnaður við þetta er gríðarlegur og það er þegar til alþjóðlegt gervihnattaleiðsögukerfi. 14.4.2007 19:45
Kvartmilljón í dagsektir fyrir að vanrækja tilkynningar Fyrirtækið Mest efh. þarf að greiða 250 þúsund krónur í dagssektir vegna ófullnægjandi tilkynningaskyldu um samruna þriggja fyrirtækja sem áttu sér stað í fyrra og árið 2005. Forstjóri Samkeppniseftirlitsins segir ólíðandi að fyrirtæki vanræki tilkynningar um samruna fyrirtækja. 14.4.2007 19:30
Óhjákvæmilegt að fella synjunarvald forseta úr stjórnarskrá Sjálfstæðismenn telja óhjákvæmilegt að fella úr gildi ákvæði um synjunarvald forseta í stjórnarskrá við þá endurskoðun stjórnarskrár sem nú stendur yfir. Þetta kemur fram í ályktun landsfundar flokksins um réttarfars- og stjórnskipunarmál. 14.4.2007 19:24
Fatlaðir sýndu vortískuna í Kringlunni Ungt fólk með fötlun sýndi í dag vortískuna á nýstárlegan hátt. Með tískusýningunni vildu öryrkjar sýna fram á hve ósveigjanlegur veruleiki fatlaðra er. 14.4.2007 19:15
Innflytjendur verða að læra frönsk gildi Nicolas Sarkozy hefur oftar en einusinni verið gagnrýndur fyrir ummæli sín um innflytjendur í Frakklandi. Það var því hent á lofti þegar hann sagði að innflytjendur yrðu að gera sér grein fyrir að í Frakklandi væri frönsk þjóðarvitund og frönsk gildi. 14.4.2007 19:00
Mikilvægt að sjálfstæðismenn sýni samstöðu Formaður Sjálfstæðisflokksins segir mikilvægt að jálfstæðismenn komi einhuga fram í kosningabaráttunni og nái að taka þátt í myndun nýrrar ríkisstjórnar. Hann segir flokkinn ekki leggja til einkavæðingu í heilbrigðismálum, þótt heilbrigðisverkefni yrðu færð til einkaaðila. 14.4.2007 18:45
Haukastúlkur unnu þrefalt í vetur Ljóst varð í dag að Haukastúlkur ynnu alla titla sem í boði voru í vetur þegar þær tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta eftir 88-77 sigur á Keflavík í fjórða leik liðanna í Keflavík. Haukar unnu einvígið því 3-1. 14.4.2007 18:34
Kallaður heim frá útlöndum til yfirheyrslu Viggó Þórir Þórisson, framkvæmdarstjóri verðbréfasjóðs Sparisjóðanna hefur verið kallaður til yfirheyrslu hjá lögreglu vegna meintrar bókhaldsóreiðu. Framkvæmdastjóranum var fyrirvaralaust vikið úr starfi og þótti málið það alvarlegt að hann var kallaður heim frá útlöndum, en hann var á ferðalagi þegar málið kom upp. 14.4.2007 18:30
Með hassmola í sokknum á lögreglustöðinni Heldur óvenjulegt fíkniefnamál kom upp í afgreiðslu lögreglustöðvarinnar á Suðurnesjum í morgun. Fíkniefnahundur frá tollgæslunni á Keflavíkurflugvelli átti leið um afgreiðsluna og hafði hann mikinn áhuga á manni sem þar var staddur. 14.4.2007 18:19
25 sækjast eftir 11 sætum í miðstjórn Kjartan Gunnarsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins, og Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri eru í hópi 25 manna sem bjóða sig fram til setu í miðstjórn flokksins á landsfundi sem fram hefur farið síðustu daga og lýkur á morgun. Kosið verður í miðstjórnina á morgun en ellefu manns eru kosnir í stjórnina á landsfundi. 14.4.2007 17:46
Vill þjóðarsátt um nýtt jafnvægi í efnahagsmálum Samfylkingin vill þjóðarsátt um nýtt jafnvægi í efnahagsmálum og hyggst hrinda í framkvæmd aðgerðaáætlun gegn fátækt. Þetta er meðal þess sem fram kemur í stjórnmálaályktun flokksins sem samþykkt var á landsfundi hans í dag. 14.4.2007 17:29
Farþegalistinn af Titanic birtur á Netinu Farþegalistinnn af frægasta farþegaskipi heims, Titanic, var í dag birtur í fyrsta sinn á Netinu, 95 árum eftir að skipið steytti á ísjaka og sökk í Atlantshafið. Alls týndu ríflega 1500 manns lífi í slysinu í þessari jómfrúrferð Titanic frá Southampton til Bandaríkjanna en skipið var á sínum tíma talið ósökkvandi. 14.4.2007 17:09
KR nær forystunni í einvíginu um Íslandsmeistaratitilinn KR-ingar tóku í dag 2-1 forystu úrslitaeinvíginu í Iceland Express deild karla í körfubolta með því að leggja Njarðvíkinga í Njarðvík, 96-92. 14.4.2007 16:47
Kasparov: Rússnesk yfirvöld sýndu sitt rétta andlit Garrí Kasparov, fyrrverandi heimsmeistari í skák og nú leiðtogi stjórnarandstöðuflokks í Rússlandi, sakaði rússnesk stjórnvöld um að brjóta á bak aftur með ólöglegum hætti mótmæli sem stjórnarandstæðingar höfðu boðað til í Moskvu í dag. Þá sagði hann Rússlandsstjórn hafa sýnt sitt rétta andlit með aðgerðunum í dag. 14.4.2007 16:29
Rannveig sjálfkjörin formaður framkvæmdastjórnar Rannveig Guðmundsdóttir, fráfarandi þingmaður, var í dag kjörin formaður framkvæmdastjórnar Samfylkingarinnar á landsfundi flokksins í Egilshöll. Hún var ein í framboði og því sjálfkjörin. 14.4.2007 16:15
Tilræði við sparnað að hækka fjármagnstekjuskatt Landsfundur Sjálfstæðisflokksins leggst algjörlega gegn þeim hugmyndum að hækka fjármagnstekjuskatt og segir slíkt tilræði við sparnað í landinu sem myndi án efa leiða til fjármagnsflótta úr landinu. 14.4.2007 16:00
Landsfundur Sjálfstæðisflokksins styður hvalveiðar Mikilvægur áfangi náðist þegar hvalveiðar í atvinnuskyni hófust á ný á síðasta ári, segir í ályktun landsfundar Sjálfstæðisflokksins um sjávarútvegsmáls sem samþykkt var í dag. 14.4.2007 15:24
Framkvæmdastjóri Verðbréfaþjónustu sparisjóðanna rekinn Stjórn Verðbréfaþjónustu sparisjóðanna hefur vikið Viggó Þórissyni, framkvæmdastjóra þjónustunnar, fyrirvaralaust úr starfi. Í tilkynningu frá Verðbréfaþjónustunni segir að mistök hafi átt sér stað í störfum framkvæmdastjórans. 14.4.2007 15:06
Benedikt og Bush funda í júní George Bush Bandaríkjaforseti mun hitta Benedikt sextánda páfa í fyrsta sinn í júní. Frá þessu greindi Vatíkanið í dag. Forsetinn og páfinn ræða saman 9. og 10. júní eftir að Bush hefur sótt fund átta helstu iðnríkja heims í Þýskalandi. 14.4.2007 15:01
Vopnahlé framlengt í Úganda Ríkisstjórnin í Úganda og fulltrúar í Frelsisher Drottins samþykktu í dag að framlengja vopnahlé sem verið hefur í gildi á milli þeirra um tvo mánuði. Þá var jafnframt samþykkt að efna til friðarfundar 26. apríl í borginni Júba í suðurhluta landsins. 14.4.2007 14:30
Tónleikar á Ísafirði líklega ekki fyrr en á næsta starfsári Sinfó Tónleikar sem Sinfóníuhljómsveit Íslands hugðist halda á Ísafirði í gær undir stjórn Vladimirs Ashkenazys verða að líkindum ekki fyrr en á næsta starfsári sveitarinnar. 14.4.2007 14:19
Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Innlent