Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Egypsk kona deyr úr fuglaflensu Egypsk kona lést í dag af völdum fuglaflensu en þar með eru mannslát af völdum hennar alls orðin átta í Egyptalandi. Konan dó aðeins nokkrum klukkustundum eftir að próf sýndu að hún væri með fuglaflensu en lækna hafði ekki grunað þar sem hún neitaði því að hafa komist í návígi við hvers konar fugla áður en hún veiktist. 24.12.2006 14:42
Scaramella handtekinn í dag Ítalski tengilliður Alexanders Litvinenko, Mario Scaramella, var handtekinn í dag vegna gruns um vopnasölu og að ljóstra upp ríkisleyndarmálum. Scaramella var einn af þeim síðustu sem að hittu Litvinenko daginn sem eitrað var fyrir honum og fannst meira að segja lítið magn af geislavirka efninu pólóníum í líkama hans. 24.12.2006 14:29
Kókaín finnst á 94% peningaseðla á Spáni Leifar af kókaíni finnast á allt að 94% peningaseðla á Spáni en notkun kókaíns þar í landi er ein sú mesta í heiminum en þetta kom fram í skýrslu sem birt var í dag. 24.12.2006 14:21
Páfi gagnrýnir neysluæði jólanna Í jólaávarpi páfa í Vatíkaninu í dag talaði Benedikt páfi um að fólk mætti ekki gleyma hinum sanna boðskap jólanna, nefnilega það að fagna fæðingu Jesú. Gagnrýndi hann einnig verslunarvæðingu jólanna en það efni hefur honum verið hugleikið undanfarið. 24.12.2006 14:00
Viðgerð í vændum í Bolungarvík Bilun varð í endurvarpssendi Stöðvar tvö fyrir Bolungarvík og nágrenni í gær og liggur útsending þar því niðri. Nýr sendir er hins vegar á leiðinni með flugi og ef flugvélin getur lent á Ísafirði verða útsendingar Stöðvar tvö komnar í lag í kvöld. Ef vélin getur ekki lent þurfa Bolvíkingar hins vegar að bíða til morgundagsins með að njóta jóladagskráar Stöðvar tvö. 24.12.2006 13:48
Ísraelar jafnvel að sleppa föngum Ísraelski forsætisráðherrann, Ehud Olmert, gaf í skyn í dag að Ísraelar gætu sleppt nokkrum palestínskum föngum fyrir áramót þó svo að herskáir Palestínumenn hafi ekki sleppt ísraelskum hermanni sem þeir hafa í haldi í Gaza. 24.12.2006 13:44
Jólahald um víða veröld Á aðfangadegi jóla keppist hinn kristni hluti jarðarbúa við að undirbúa fæðingarhátíð frelsarans sem gengur í garð í kvöld. Sinn er hins vegar siðurinn í hverju landi. 24.12.2006 13:10
Færð með ágætum um land allt Vegir eru auðir nánast um allt land. Á Vestfjörðum er þó hálka á Hálfdán og hálkublettir á Steingrímsfjarðarheiði og Eyrarfjalli en Hrafnseyrarheiði og Dynjandisheiði eru ófærar. Það eru þungatakmarkanir í öllum landshlutum. 24.12.2006 13:06
Ýmislegt opið um jólin Það er af sem áður var að landinu var sama sem lokað yfir helgustu hátíðina. Meginreglan er þó sú flestir sem sinna verslun og þjónustu loka sínum fyrirtækjum yfir jólin. Þannig eru flestir veitingastaðir í höfuðborginni lokaðir í dag og jóladag en allnokkrir opna fyrir kvöldmat á annan í jólum. 24.12.2006 12:57
Ástand Kastró versnar Kúbversk yfirvöld sendu í dag eftir spænskum skurðlækni, lyfjum og áhöldum til þess að annast hinn veika leiðtoga Fídel Kastró. Á hann að framkvæma ýmis próf til þess að athuga hvort að Kastró þurfi að gangast undir frekari aðgerðir vegna innvortis blæðinga sem hann varð fyrir í júlí síðastliðnum. 24.12.2006 12:54
Leiðtogar í friðarhug um jólin Jákvæður andi ríkti á fundi Ehuds Olmert, forsætisráðherra Ísraels, og Mahmoud Abbas, forseta Palestínu, í gærkvöld en þar ákváðu þeir að taka upp friðarviðræður á nýjan leik. Þetta er í fyrsta sinn í tvö ár sem leiðtogarnir ræðast við á formlegum nótum. 24.12.2006 12:31
Fjöldi fólks vitjar leiða Margir leggja leið sína í kirkjugarða til þess að vitja leiða látinna ástvina og var talsverð umferð í kirkjugörðum Reykjavíkur strax upp úr klukkan átta í morgun. 24.12.2006 12:22
Ömmur í fótbolta Hópur eldri kvenna í bænum Jerez á Spáni hefur tekið sig saman og myndað knattspyrnulið. Liðið hefur nú verið starfrækt og vilja konurnar að stofnuð verði deild sem þær geti spilað í. Sú elsta í hópnum er áttræð og meðalaldur kvennanna er um 65 ár. 24.12.2006 12:03
Jólaávarp Benedikts páfa Í jólaávarpi páfa í Vatíkaninu í dag talaði Benedikt páfi um mikilvægi lífs allt frá upphafi þess til eðlilegra loka þess. Mikil umræða hefur verið á Ítalíu undanfarið vegna þess að nú á dögunum framdi ítalskur læknir líknarmorð á frægu ítölsku ljóðskáldi en skáldið hafði beðið hann um það. 24.12.2006 11:23
Jólaveðrið verður með ágætum Ágætlega horfir með veður nú um jólahátíðina. Vindur gengur smám saman niður á landinu í dag og þegar jólaklukkur boða hátíð í bæ ætti víðast hvar að vera komið prýðilegasta veður. Einna síst verður veðrið allra austast á landinu þar sem vindstrengur lónir við ströndina en er í rénun og ætti vindur að vera gengin niður þar í nótt. 24.12.2006 10:43
Universal vill semja við Garðar Thór Universal, stærsta hljómplötufyrirtæki, í heimi hefur lýst yfir áhuga á að semja við Garðar Thór Cortes um útgáfu í Bretlandi og um allann heim. Þetta kemur fram í tilkynningu frá umboðsmanni hans, Einari Bárðarsyni. 23.12.2006 21:01
Friðargæsluliðar SÞ fá að koma til Súdans Súdönsk stjórnvöld hafa fallist á það að hleypa friðargæsluliðum á vegum Sameinuðu þjóðanna inn í landið til þess að efla friðargæslu í hinu stríðshrjáða Darfur-héraði. Þetta staðfesti samningamaður Súdansstjórnar í dag. 23.12.2006 20:51
Íranar segja ályktun öryggisráðsins ólöglega Írönsk yfirvöld fordæmdu í kvöld þá ákvörðun öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna að samþykkja ályktun um að beita refsiaðgerðum gegn Írönum þar sem þeir neita að láta af auðgun úrans. Sögðu þau öryggisráðið fara út fyrir verksvið sitt með samþykkt ályktunarinnar. 23.12.2006 20:41
Olmert og Abbas funduðu í kvöld Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels, og Mahmoud Abbas, forseti Palestínu, áttu í kvöld fund í Jerúsalem. Þetta var fyrsti fundur þeirra eftir að Olmert tók við af Ariel Sharon sem forsætisráðherra snemma á árinu. 23.12.2006 20:32
Slökkvistarfi lokið í Rimaskóla Slökkvistarfi í Rimaskóla lauk nú á áttunda tímanum en þangað var slökkviliðið kallað um sexleytið vegna elds í klæðningu á íþróttahúsi skólans. Allt tiltækt slökkvilið var sent á staðinn og taldi slökkvilið sig hafa komist fyrir eldinn um klukkan hálfsjö. 23.12.2006 19:58
Byssumenn skutu litla stúlku á Gasa Byssumenn á Gasa skutu litla stúlku í dag í tilræði gegn yfirmanni í öryggissveitum. Þrjú ung börn voru skotin til bana fyrir stuttu, en það varð kveikja að aukinni spennu og átökum á svæðinu. 23.12.2006 18:57
Eldur gýs aftur upp í Rimaskóla Eldur gaus aftur upp í Rimaskóla nú kl. 18.40 en slökkviliðið hélt sig hafa komist fyrir hann. Eldurinn gaus upp aftur þegar slökkviliðið fór að rífa þakið. 23.12.2006 18:50
Flugi til Ísafjarðar aflýst í dag Flugi til Ísafjarðar var aflýst í dag en vel gekk að koma fólki til annarra áfangastaða en raskanir hafa verið á innanlandsflugi síðustu daga. 23.12.2006 18:45
Bretar vilja að jólatré séu gróðursett aftur Jólaundirbúningur stendur nú sem hæst víða um heim en er með afar misjöfnu yfirbragði eftir heimshlutum, og eru áherslur mismunandi eftir löndum. Umhverfisverndarsinnar í Bretlandi hvetja nú Breta til að halda umhverfisvæn jól með því að endurvinna rusl og kaupa jólatré með rótum svo hægt sé að planta þeim aftur. 23.12.2006 18:30
Heitir á verslunina að lækka matarverð Forsætisráðherra heitir á heildsala og smásala að standa með stjórnvöldum í lækkun matarverðs. Hann telur að verð á matvælum geti lækkað um allt að 15 prósentum, þegar virðisaukaskattur og vörugjöld lækka á matvælum í marsmánuði. 23.12.2006 18:30
Ríkisstjórnin stendur ekki í hagstjórn Ríkisstjórnin ætlar sér ekkert hlutverk í hagstjórninni. Þetta staðfestir nýtt lánshæfismat Standard og Poor's, segir formaður Samfylkingarinnar. Forsætisráðherra efast um forsendur matsfyrirtækisins. 23.12.2006 18:30
Búið að dæla upp úr kjöllurum á Ísafirði Sjór flaut yfir stóran hluta Eyrarinnar á Ísafirði í dag. Slökkvilið og bæjarstarfsmenn áttu í fullu fangi með að dæla vatni upp úr kjöllurum húsa og af götum bæjarins. Ekki liggur fyrir hversu mikið tjón varð vegna þessa en það þó ekki talið mikið. Dælingu úr kjöllurum er lokið. 23.12.2006 18:29
Eldur í Rimaskóla í Grafarvogi Eldur kom upp í Rimaskóla í Grafarvogi í Reykjavík upp úr klukkan sex í dag. Allt tiltækt slökkvilið var sent á staðinn ásamt lögreglu og sjúkrabifreið. 23.12.2006 18:26
Svartolía lak úr Wilson Muuga í dag Svartolía lak í dag úr kýpverska flutningaskipinu Wilson Muuga sem strandaði við Hvalsnes á þriðjudag. Eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá Umhverfisstofnun er olíubrákin kílómetri á lengd og 200 metra breið en hún er ekki samfelld. 23.12.2006 17:42
Samþykkt að beita Írana refsiaðgerðum vegna kjarnorkumála Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna samþykkkti fyrir stundu samhljóða að tillögu að ályktun um að beita Írana refsiaðgerðum vegna kjarnorkuáætlana þeirra. 23.12.2006 17:00
Von á tugþúsundum í miðbæinn í kvöld Búast má við að tugþúsundir manna leggi leið sína í miðbæinn í kvöld, Þorláksmessukvöld, enda er veðrið í borginni með ágætum og útlit fyrir að svo verði áfram. Lögreglan í Reykjavík verður með töluverðan viðbúnað eins og jafnan þegar svo margir koma saman en í dag allt gengið vel fyrir sig í miðbænum og annars staðar í borginni. 23.12.2006 16:47
Herjólfur fer seinni ferð til Eyja um klukkan 18 Herjólfur fer seinni ferð sína í kvöld til og frá Eyjum en hann er nú á leið til Eyja með um 200 manns. Að sögn Ívars Gunnlaugssonar, skipstjóra á Herjólfi, verður lagt af stað frá Eyjum um klukkan 18 og svo aftur siglt frá Þorlákshöfn til Eyja um klukkan 22. 23.12.2006 16:34
Búist við prýðilegasta veðri þegar hátíð gengur í garð Þó enn sé mjög hvasst víða á Vestfjörðum, Norðurlandi og sumstaðar á Suðausturlandi er veður að byrja að ganga niður á þessum slóðum. Reikna má með prýðilegasta veðri annað kvöld þegar jólin ganga í garð að sögn Sigurðar Þ. Ragnarssonar, veðurfræðings á Veðurstofu Stöðvar 2. 23.12.2006 16:21
Nörreport-stöðinni lokað vegna grunsamlegs pakka Lestarsamgöngur á Nörreport-stöðinni í Kaupmannahöfn voru stöðvaðar í tvo og hálfan tíma í dag eftir að grunsamleg taska fannst á brautarpalli þar. Vegna ótta við að þarna væri á ferðinni sprengja voru sprengjusérfræðingar á vegum danska hersins kallaðir á vettvang og notuðu þeir fjarstýrt vélmenni til að sprengja upp töskuna. 23.12.2006 16:15
Varað við vegaskemmdum í Hestfirði og Skötufirði Vegagerðin varar við vegaskemmdum á vegi í Hestfirði og Skötufirði í Ísafjarðardjúpi. Hún segir að enn sé óveður víða á Vestfjörðum og á Ströndum. Vegir víðast auðir, þó er hálka á Steingrímsfjarðarheiði og hálkublettir víðar á heiðum og hálsum á Vestfjörðum. 23.12.2006 16:00
200-300 bíla árekstur í Frakklandi Ferðalag hundraða Frakka í suðvesturhluta Frakklands leystist upp í martröð í dag þegar á bilinu 200 og 300 bílar rákust saman á hraðbrautinni milli borganna Bordeaux og Bayonne. 23.12.2006 15:42
Verstu flóð í Indónesíu og Malasíu í 40 ár Að minnsta kosti 12 eru látnir og nærri hundrað þúsund manns hafa þurft að yfirgefa heimili sína í verstu flóðum i Malasíu og Indónesíu í fjörtíu ár. Héruðin Johor, Negri Sembilan, Kelanta og Pahang í Malasíu urðu verst úti í flóðunum en í Inódnesíu varð tjónið mest á norðanverðri Súmötru. 23.12.2006 15:34
Vodafone safnar um þúsund GSM-símum Vodafone áætlar að safna um þúsund GSM-símum í GSM-söfnun sinni en mikill kippur hefur hlaupið í söfnunina síðustu daga fyrir jól. Fram kemur í tilkynningu frá félaginu að nær allir söfnunarstandar séu að fyllast og því ljóst að landsmenn taka vel í þessa nýbreytni. 23.12.2006 15:15
Fimm flugvélar fóru til Akureyrar eftir hádegið Fimm flugvélar frá Flugfélagi Íslands hafa farið eftir hádegið til Akureyrar og því hafa um 250 manns sem beðið hafa eftir flugi þangað komist á áfangastað. Enn bíða þó á annað hundrað manns eftir flugi til Akureyrar og vonast forsvarsmenn fyrirtækisins eftir því að geta komið þeim öllum þangað í dag en veðurútlitið er ágætt. 23.12.2006 14:53
Búið að dæla upp úr tíu kjöllurum á Ísafirði Slökkviliðsmenn og bæjarstarfsmenn á Ísafirði vinna enn að því að dæla vatni upp úr kjöllurum húsa á eyrinni eftir flóð í morgun. Þá fóru saman stórstraumsflóð og hvassviðri með þeim afleiðingum að það flæddi inn í fjölmarga kjallara og götur bæjarins fóru á flot. 23.12.2006 14:42
Enn varað við óveðri á Vestfjörðum Vegagerðin varar enn við óveðri víða á Vestfjörðum og á Ströndum. Vegir eru víðast auðir, þó er hálka á Steingrímsfjarðarheiði og hálkublettir víðar á heiðum og hálsum á Vestfjörðum. Einnig eru hálkublettir á Vatnsskarði, Öxnadalsheiði og Lágheiði. Hrafnseyrarheiði er ófær. 23.12.2006 14:30
Sakar bresk stjórnvöld um að stofna lífi kristinna í hættu Dr. Rowan Williams, erkibiskup af Kantaraborg og leiðtogi enskubiskupakirkjunna, sakar bresku ríkisstjórnina um að stefna lífi kristinna manna í Miðausturlöndum í hættu með aðgerðum sínum í Írak. 23.12.2006 14:15
Pútín og Bush ræddu málefni Írans í síma í dag Vladímír Pútín Rússlandsforseti og George Bush, forseti Bandaríkjanna, ræddust í dag í síma um fyrirhugaða atkvæðagreiðslu í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna um refsiaðgerðir gagnvart Írönum vegna kjarnorkuáætlunar þeirra. 23.12.2006 13:58
Á bilinu 600-700 messur og helgistundir yfir hátíðarnar Messur og helgistundir á vegum Þjóðkirkjunnar verða á bilinu 600-700 á landinu nú yfir hátíðarnar og áramótin, eftir því sem segir í tilkynningu frá Biskupsstofu. 23.12.2006 13:45
Bono hlýtur heiðursriddaratign Elísabet Bretlandsdrottning hefur ákveðið að sæma írska rokkarann, Bono, söngvara sveitarinnar U2, heiðursriddaratign fyrir störf hans innan tónlistargeirans og að mannúðarmálum. Frá þessu var greint í tilkynningu frá breska sendiráðinu í Dublin í dag. 23.12.2006 13:40