Fleiri
Hálka og ófærð 22.12.2006 14:31 Rússar loka fyrir allt gas til Georgíu Rússar tilkynntu í dag að þeir myndu loka fyrir allt gas til nágrannaríkisins Georgíu hinn fyrsta janúar næstkomandi. Það verður gert vegna þess að Georgía vill ekki una við einhliða ákvörðun Rússa um að rúmlega tvöfalda verðið á gasi. 22.12.2006 14:21 Talsverð seinkun á flugi til Bandaríkjanna Eftirmiðdagsbrottfarir til Bandaríkjanna frestast allar á eftir þar sem Evrópuvélarnar fóru seint út í morgun og koma því seint til Íslands á ný á leið sinni til Bandaríkjanna. Eins og er eru flestar brottfarirnar áætlaðar klukkan 20:30 en það gæti tafist enn frekar þar sem bætir í vind með kvöldinu. 22.12.2006 14:16 Lögreglusveit handtekin 22.12.2006 14:06 Fáum fullnægingu klukkan þrjú! Tökum nú öll höndum saman, öll sem vettlingi geta valdið og fáum fullnægingu klukkan þrjú, föstudaginn 22. desember. Þannig hljóma skilaboð bandarískra friðarsinna sem hvetja til þess að fólk um gjörvallan heim fái fullnægingu í dag og tileinka hana heimsfriði og hamingju og nýjum framfaraleiðum fyrir mannkynið. 22.12.2006 14:02 Tveir handteknir vegna þjófnaðar Lögreglan í Reykjavík handtók tvo menn á þrítugsaldri í gær sem grunaðir eru um innbrot í miðborginni. Tölvubúnaði var stolið á báðum stöðum en flest annað sem stolið var er komið í leitirnar. 22.12.2006 14:00 Tólf kertabrunar það sem af er desember Tólf kertabrunar hafa verið tilkynntir til tryggingarfélaganna það sem af er desember. Þetta er mun minna en síðustu sex árin en þá hafa að meðaltali verið 44 kertabrunar fyrstu þrjár vikurnar í desember. 22.12.2006 13:27 Sjá næstu 50 fréttir
Útlit fyrir að yfirstýrimaður hafi gert mistök Allt bendir til þess að yfirstýrimaður á flutningaskipinu Wilson Muuga hafi gert mistök sem ollu því að skipið strandaði. Þetta segir Guðmundur Ásgeirsson, fulltrúi eiganda á Íslandi. Sjópróf fóru fram í gær og þar kom fram að yfirstýrimanninum var ekki kunnugt um nýlega bilun í gírókompás. 23.12.2006 12:22
Skipulagi flugumferðar breytt ef skortur verður á flugumferðarstjórum Alþjóðaflugmálastofnunin hefur samþykkt aðgerðasáætlun flugmálastjóra sem gripið verður til ef skortur verður á íslenskum flugumferðarstjórum þann 1. janúar næstkomandi. Fram kemur í yfirlýsingu frá Flugmálastjórn að viðbragðsáætlunin feli í sér breytingu á skipulagi flugumferðar á íslenska flugstjórnarsvæðinu sem mun að mestu leyti fylgja föstum fyrirfram ákveðnum ferlum og flughæðum. 23.12.2006 12:02
Þrjár vélar farnar til Egilsstaða Þrjár flugvélar fóru fyrir hádegi til Egilsstaða og ein vél er farin til Vestmannaeyja. Nokkur fjöldi bíður þess á Reykjavíkurflugvelli að komast ferða sinna áður en jólahátíðin gengur í garð. 23.12.2006 12:00
Flæddi inn í fjölmarga kjallara á eyrinni á Ísafirði Slökkvilið Ísafjarðar hefur staðið í ströngu vegna óveðursins sem gekk yfir Vesturland og Vestfirði í morgun. Stórstraumsflóð var við Ísafjörð í morgun sem ásamt hvassviðri olli því að það flæddi inn í fjölmarga kjallara á eyrinni á Ísafirði. 23.12.2006 11:36
Áttatíu prósent þjóðarinnar jákvæð í garð Íbúðalánasjóðs Tæplega 80 prósent landsmanna eru jákvæð í garð Íbúðalánasjóðs samkvæmt könnun sem Capacent gerði á dögunum. Þar kemur einnig fram að innan við fjögur prósent aðspurðra eru neikvæð í garð sjóðsins. 23.12.2006 11:30
Bandaríkjaher vegur einn af leiðtogum talibana Bandaríski herinn greindi frá því nú í morgun að hermenn hefðu drepið einn af fjórum helstu leiðtogum talibana í Afganistan. Akhtar Mohammed Osmani og tveir liðsmenn í uppreisnarsveitum talibana féllu í loftárás bandaríska hersins nærri landamærunum að Pakistan á þriðjudaginn var. 23.12.2006 11:07
Discovery lenti heilu og höldnu í gærkvöld Bandaríska geimskutlan Discovery lenti heilu og höldnu í Flórdía í gærkvöld eftir óvissu um lendinguna vegna veðurs. 23.12.2006 11:00
Öryggisráðið greiðir atkvæði um refsiaðgerðir gegn Íran Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna greiðir í dag atkvæði um tillögu að ályktun um refsiaðgerðir á hendur Írönum vegna kjarnorkutilrauna þeirra. Vestuveldin hafa farið fram á það að Íranar hætti auðgun úrans þar sem óttast er að þeir séu með því að reyna að koma sér upp kjarnavopnum. 23.12.2006 10:45
Níu látast í átökum á Haiti Að minnsta kosti níu manns létu lífið í ofbeldi á eyjunni Haiti en lögregla þar er um þessar mundir að herða aðgerðir gegn glæpagengjum í fátækrahverfum höfuðborgarinnar, Port-au-Prince. 22.12.2006 23:45
Breski herinn upprætir dauðasveit í Írak Breski herinn réðist á og handtók sjö íraska lögreglumenn sem grunaðir eru um að stjórna umfangsmikilli glæpastarfsemi sem og svokölluðum dauðasveitum. Sögðu Bretar að Írakarnir hefðu notað sérstaka sérsveit gegn glæpum sem yfirskin til þess að fremja glæpi. 22.12.2006 23:16
Öryggisráðið mun greiða atkvæði á morgun Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna mun að öllum líkindum greiða atkvæði á morgun varðandi þær refsiaðgerðir sem á að beita gegn Íran. Snuðra gæti þó hlaupið á þráðinn því Vladimir Putin, Rússlandsforseti, mun ekki skoða tillöguna fyrr en í fyrramálið. 22.12.2006 23:10
Discovery lent Geimskutlan Discovery lenti við höfuðstöðvar Geimferðastofnunnar Bandaríkjanna, NASA, í Flórída klukkan 22:32 í kvöld. Fyrr í dag hafði lendingu hennar verið frestað vegna veðurs. 22.12.2006 22:32
Ástandið versnar í Sómalíu Eþíópískar árásarþyrlur og skriðdrekar fóru til bardaga í kvöld á fjórða degi átaka milli íslamskra uppreisnarmanna og stjórnvalda í Sómalíu sem Eþíópía styður. Tugir þúsunda hafa flúið heimili sín undanfarna daga útaf þessu. 22.12.2006 22:12
Dýrasti hamborgari í heimi Hótel eitt í Indónesíu hefur tekið upp á því að bjóða upp á hamborgara á matseðli sínum og vilja þeir með því reyna að sameina vestrænar og asískar matarhefðir. Það merkilegasta við hamborgarann er samt verðið en hamborgarinn kostar ekki nema 7.990 íslenskar krónur. 22.12.2006 21:49
„Má ég fá meiri leðurblöku?“ Hundar, leðurblökur, skyndibitar frá Kentucky Fried Chicken og fiskur. Ekki beint hefðbundinn jólamatur en hann verður engu að síður á borðum margra við Kyrrahafsstrendur Asíu um þessi jól. 22.12.2006 21:37
Discovery á að lenda klukkan 22:32 í kvöld Geimferðastofnun Bandaríkjanna, NASA, hefur ákveðið að geimskutlunni Discovery verði lent við höfuðstöðvar þeirra í Flórída klukkan 22:32 í kvöld. Fyrr í dag hafði lendingu hennar verið frestað vegna veðurs. 22.12.2006 21:23
Annan býður fram aðstoð SÞ Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, bauð í kvöld hjálp samtakanna við að reyna að greiða úr dómsmálinu í Líbíu en þar voru fimm erlendir hjúkrunarfræðingar og einn erlendur læknir sakfelldir fyrir að hafa vísvitandi smitað yfir 400 börn af alnæmi. 22.12.2006 20:54
Byssukúla í hausnum Bandarísk yfirvöld hafa gefið út leitarheimild til þess að finna mikilvæga vísbendingu í morðmáli einu. En sönnunargagnið sem leitað er að er byssukúla sem föst er í enni hins grunaða. 22.12.2006 20:27
Ekki hægt að dæla olíu úr flutningaskipinu fyrr en eftir hátíðarnar Ólíklegt er að hægt verði að hefja dælingu úr flutningaskipinu Wilson Muuga, sem strandaði við Hvalsnes, fyrr en eftir hátíðarnar. Könnunarleiðangur sem farinn var í dag leiddi í ljós að olía hefur lekið úr skipinu en hún hefur ekki náð upp í fjöru. Í nótt er spáð vonskuveðri sem kemur til með að reyna mjög á skipið. 22.12.2006 19:12
al-Kaída gerir Bandaríkjamönnum tilboð Leiðtogi hóps í Írak, sem al-Kaída styður, sagði í dag að þeir myndu hleypa Bandaríkjamönnum friðsamlega úr landinu ef þeir skyldu eftir öll sín þungavopn og yrðu farnir úr landinu innan mánaðartíma. Þetta kom fram í hljóðbúti sem var settur á internetið í dag. 22.12.2006 19:11
Alþingi verður að taka á hlerunarmálum Alþingi verður að fara að dæmi Norðmanna og skipa rannsóknarnefnd um hleranir. Þetta segir Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi utanríkisráðherra, eftir að ríkissaksóknari lýsti því yfir að ekkert væri fram komið sem styddi fullyrðingar hans um hleranir og ekki væri tilefni til að halda rannsókn málsins áfram. Hann segir hlerunarmál föður síns sína að það voru pólitískar njósnir. 22.12.2006 19:11
Fólksfjölgun á Íslandi sú mesta í Evrópu Íbúar á Íslandi eru rétt liðlega 307 þúsund talsins, samkvæmt tölum Hagstofunnar. Fólksfjölgun var óvenju mikil á árinu, eða 2,6 prósent, og er hún hvergi í Evrópu svo mikil um þessar mundir. Fólki fjölgaði í öllum landshlutum nema á Vestfjörðum og Norðurlandi vestra. 22.12.2006 19:07
Gengi krónunnar og hlutabréf lækkuðu vegna lækkaðs lánshæfismats ríkissjóðs Gengi íslensku krónunnar lækkaði um tæp þrjú prósent í dag og hlutabréf í Kauphöll Íslands lækkuðu um tæp tvö prósent eftir að matsfyrirtækið Standard & Poor's lækkaði lánshæfiseinkunn ríkissjóðs Íslands um leið og það gagnrýndi þensluhvetjandi kosningafjárlög. Geir H. Haarde forsætisráðherra segir þetta rangan dóm yfir fjárlögunum. 22.12.2006 18:48
Aðeins brot af jörðinni fór ekki undir vatn Aðeins brot úr hektara af landi Björnskots á Skeiðum fór ekki undir vatn þegar flóðið í Hvítá stóð sem hæst. Fjöldi heyrúlla eyðilagðist og mun hey fyrir mjólkurkýrnar ekki duga út veturinn. Enn er ófært að Vatnsnesi í Grímsnesi en fært er orðið heim að öðrum bæjum í sýslunni. 22.12.2006 18:45
Þúsundir flugfarþega biðu í dag Þúsundir flugfarþega máttu bíða klukkustundum saman annan daginn í röð, bæði í innanlands- og millilandaflugi. Nokkrir komust þó á leiðarenda í dag eftir langa bið og fréttastofa hitti mann sem hafði beðið í fimm daga eftir að hitta barnabörnin. Engar flugvélar fóru frá Reykjavíkurflugvelli eftir klukkan fimm í dag og spáin er tvísýn fyrir fyrripartinn á morgun. 22.12.2006 18:35
Grunur um að starfsmenn Byrgis hafi getið vistkonum börn Grunur leikur á að fleiri en ein kona í meðferð í Byrginu hafi orðið barnshafandi eftir starfsmenn þar. Kona kærði í dag Guðmund Jónsson forstöðumann fyrir kynferðisbrot. Þrjár að auki hafa haft samband við lögreglu vegna tengsla sinna við Guðmund. Formaður Samfylkingarinnar vill opinbera rannsókn á starfsemi Byrgisins. 22.12.2006 18:30
Fyrirsætur skulu fitna Ítölsk yfirvöld og fulltrúar ítalska tískuiðnaðarins undirrituðu í dag viljayfirlýsingu varðandi útlit fyrirsætna og sýningarstúlkna en það hversu grannar margar þeirra eru hefur farið fyrir brjóstið á fólki eftir að brasilísk fyrirsæta lést úr anorexíu þann 14. nóvember síðastliðinn. 22.12.2006 18:15
Ofsaveður og sumstaðar fárviðri Afar slæmt veðurútlit er fyrir Vesturland og Vestfirði í nótt og norðanvert landið fyrir hádegi á morgun, gangi spár eftir. Eru horfur á að vindhviður á þessu svæðum geti farið um og yfir 50 m/s og að jafnaðarvindhraði verði á bilinu 23-33 m/s á þegar veðrið verður verst. 22.12.2006 17:48
Kastró hvergi sjáanlegur Kúbverska þingið var sett í dag í fjarveru Fídels Kastró, hins áttræða leiðtoga Kúbu, en hann sást síðast opinberlega í júlí á þessu ári. Kastró var þá hraðað á sjúkrahús vegna „mikilla innvortis blæðinga" og hefur hann ekki komið fram opinberlega síðan. 22.12.2006 17:39
Olíuleki talinn í lágmarki Könnun á aðstæðum við strandstað Wilson Muuga sýna að ef skipið stendur af sér komandi veður er líklegt að það verði lengi á sama stað þar sem straumur fer minnkandi. Olíuleki er í lágmarki en ekki verður hægt að mæla hann nákvæmlega fyrr en veður batnar. 22.12.2006 17:25
Davíð Oddsson er ekki hress yfir matinu Gengi krónunnar lækkaði um 2,72 prósent og gengi hlutabréfa í Kauphöll Íslands lækkaði talsvert eftir að matsfyrirtækið Standard & Poor's greindi frá því í dag að það hefði lækkað lánshæfiseinkunnir ríkissjóðs Íslands. Davíð Oddsson, seðlabankastjóri, segist ekki hress yfir matinu og að menn hefðu gjarnan viljað vera lausir við það. Moody´s matsfyrirtækið staðfestir hinsvegar gildandi mat sitt á lánshæfi ríkissjóðs. 22.12.2006 16:54
Vilja gjörbreyta Ráðhústorginu í Kaupmannahöfn Það supu margir hveljur þegar þeir sáu hvernig Samtök iðnaðarins, í Danmörku, vilja breyta Ráðhústorginu í Kaupmannahöfn. Þau vilja setja upp risastóran, og þá erum við að tala um RISASTÓRAN skjá á þeirri hlið hússins sem snýr að torginu. (Sjá mynd) 22.12.2006 16:34
Georgía gafst upp fyrir Rússum Rússland og Georgía hafa undirritað samning um að Rússar haldi áfram að selja gas til Georgíu á næsta ári, á rúmlega tvöföldu því verði sem greitt hefur verið hingaðtil. Georgía hafði hafnað þessari hækkun og meðal annars leitað til annarra landa um gaskaup. 22.12.2006 15:58
Fimmtíu ár frá komu fyrstu flóttamannanna Fimmtíu ár eru á aðfangadag liðin frá því að flóttamönnum var fyrst veitt hæli á Íslandi. Þá komu flóttamenn frá Ungverjalandi sem flúið höfðu til Austurríkis undan innrás Sovétmanna. Alls hafa íslensk stjórnvöld boðið 531 flóttamanni vernd hér landi í samvinnu við Flóttamannastofnun, Rauða kross Íslands og sveitarfélög í landinu. 22.12.2006 15:51
Dró eiginkonu sína á hárinu eftir hótelgangi Karlmaður á fimmtugsaldri var í dag dæmdur í Héraðsdómi Reykjavíkur í fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir árás á eiginkonu sína. Maðurinn dró konuna meðal annars á hárinu eftir hótelgangi og stakk höfði hennar ofan í klósettskál 22.12.2006 15:29
Svo til vinstri......KRASS Sumir ökumenn sem hafa gervihnatta-leiðsögutæki i í bílum sínum, virðast slökkva á heilanum um leið og þeir kveikja á tækinu. Sum tækin eru þannig að það er rödd sem leiðbeinir bílstjórum um að beygja til vinstri eða hægri og sumir virðast hlýða henni í blindni. 22.12.2006 15:28
Rauði krossinn krefst lausnar starfsmanna Hátt á annan tug starfsmanna og sjálfboðaliða Rauða hálfmánans í Írak var numinn á brott frá einni af skrifstofum félagsins í Bagdad, síðastliðinn sunnudag. Nokkrum hefur þegar verið sleppt en margir eru enn í haldi. Rauði kross Íslands sameinast alþjóðahreyfingu Rauða krossins og Rauða hálfmánans í að krefjast þess að þeir verði leystir skilyrðislaust úr haldi nú þegar. 22.12.2006 15:03
Róbert Wessman maður ársins í íslensku atvinnulífi Róbert Wessman, forstjóri Actavis Group, er maður ársins í íslensku atvinnulífi árið 2006 að mati dómnefndar Frjálsrar verslunar. 22.12.2006 14:33
Rússar loka fyrir allt gas til Georgíu Rússar tilkynntu í dag að þeir myndu loka fyrir allt gas til nágrannaríkisins Georgíu hinn fyrsta janúar næstkomandi. Það verður gert vegna þess að Georgía vill ekki una við einhliða ákvörðun Rússa um að rúmlega tvöfalda verðið á gasi. 22.12.2006 14:21
Talsverð seinkun á flugi til Bandaríkjanna Eftirmiðdagsbrottfarir til Bandaríkjanna frestast allar á eftir þar sem Evrópuvélarnar fóru seint út í morgun og koma því seint til Íslands á ný á leið sinni til Bandaríkjanna. Eins og er eru flestar brottfarirnar áætlaðar klukkan 20:30 en það gæti tafist enn frekar þar sem bætir í vind með kvöldinu. 22.12.2006 14:16
Fáum fullnægingu klukkan þrjú! Tökum nú öll höndum saman, öll sem vettlingi geta valdið og fáum fullnægingu klukkan þrjú, föstudaginn 22. desember. Þannig hljóma skilaboð bandarískra friðarsinna sem hvetja til þess að fólk um gjörvallan heim fái fullnægingu í dag og tileinka hana heimsfriði og hamingju og nýjum framfaraleiðum fyrir mannkynið. 22.12.2006 14:02
Tveir handteknir vegna þjófnaðar Lögreglan í Reykjavík handtók tvo menn á þrítugsaldri í gær sem grunaðir eru um innbrot í miðborginni. Tölvubúnaði var stolið á báðum stöðum en flest annað sem stolið var er komið í leitirnar. 22.12.2006 14:00
Tólf kertabrunar það sem af er desember Tólf kertabrunar hafa verið tilkynntir til tryggingarfélaganna það sem af er desember. Þetta er mun minna en síðustu sex árin en þá hafa að meðaltali verið 44 kertabrunar fyrstu þrjár vikurnar í desember. 22.12.2006 13:27