Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Opnað í Hlíðarfjalli Opnað var í Hliðarfjalli í morgun og segir starfsfólk þar útlit fyrir góðan skíðadag. 15.1.2006 11:57
Erling Ásgeirsson í 1. sæti Erling Ásgeirsson varð í fyrsta sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ sem fór fram í dag. Páll Hilmarsson varð í öðru sæti en Stefán Konráðsson í því þriðja. Kosningaþátttaka svar 81.2% og er prófkjörið því bindandi samkvæmt prófkjörsreglum Sjálfstæðisflokksins. 14.1.2006 22:12
Fjögur sjúkraflug í dag Mikið hefur verið að gera í sjúkraflugi í dag og hefur verið flogið fjórum sinnum. Þar af þurfti að sinna þremur sjúklingum strax. Flugfélag Íslands flaug í öll skiptin. 14.1.2006 19:07
Útilt fyrir að Erling Ásgeirsson leiði Sjálfstæðisflokkinn í Garðabæ Útlit er fyrir að Erling Ásgeirsson leiði lista Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ í komandi sveitarstjórnarkosningum. Búist er við að flokkurinn vilji að Gunnar Einarsson verði bæjarstjóri áfram. 14.1.2006 18:55
Kalt bað í Tokyo Það er víðar kalt en á Íslandi þessa dagana en sumir láta hins vegar kuldabola ekkert á sig fá. Þannig létu tvær tylftir Japana sig ekki muna um að bregða sér í bað í þriggja gráðu kaldri laug við sjintó-hof í Tokyo í dag. 14.1.2006 18:52
Íransforseti þegir þjóð sína ekki þurfa kjarnorkuvopn Íransforseti situr fast við sinn keip og segir þjóð sína ekki þurfa á kjarnorkuvopnum að halda. Einungis þær þjóðir sem leysa vilja deilur með átökum þarfnist slíkra vopna að hans mati. 14.1.2006 18:48
Ekki víst hvort hægri hönd bin Ladens hafi fallið í loftárás í Pakistan 18 liggja í valnum eftir eldflaugaárás á þorp í Pakistan þar sem liðsmenn al-Qaida samtakanna voru sagðir hafast við. Íbúar þorpsins sverja af sér öll slík tengsl og segja konur og börn hafa farist í árásinni. 14.1.2006 18:37
Íslenskan friðargæsluliða sakaði ekki þegar bílasprengja sprakk á Sri Lanka Íslenskan friðargæsluliða sakaði ekki þegar bílsprengja sprakk nálægt höfðustöðvum norrænna friðargæsluliða í borginni Batticaloa á Sri Lanka í gær. Samkvæmt upplýsingum frá utanríkisráðuneytinu lét enginn lífið í árásinni og enginn særðist. 14.1.2006 18:29
Forseti Írans segir þjóð sína ekki þurfa kjarnorkuvopn Mahmoud Ahmadinejad, forseti Írans, sagði á blaðamannafundi í dag að þjóð sín þyrfti ekki á kjarnorkuvopnum að halda. Einungis þær þjóðir sem leysa vildu deilur með átökum þörfnuðust slíkra vopna. 14.1.2006 14:03
Svissneskur þingmaður fullviss um að Bandaríkjamenn hafi rekið leynifangelsi í Evrópu Dick Marty, svissneski þingmaðurinn sem stýrir rannsókn Evrópuráðsins á hvort bandarísk stjórnvöld hafi rekið leynifangelsi í álfunni og stundað umfangsmikla fangaflutninga þeim tengdum, kveðst fullviss um að ásakanirnar eigi við rök að styðjast. 14.1.2006 13:48
Átján féllu í eldflaugaárás í Pakistan Átján féllu í eldflaugaárás sem gerð var á pakistanskt þorp í morgun en þar var talið að liðsmenn al-Kaída hefðust við. 14.1.2006 12:41
Sex á slysadeild vegna líkamsmeiðinga Sex manns komu á slysadeild í morgun vegna líkamsmeiðinga og ofbeldisáverka. Einn maður var fluttur meðvitundarlaus á slysadeild eftir að hann var sleginn niður. 14.1.2006 12:32
Lést í umferðarslysi Maðurinn sem lést í umferðarslysi á Sæbraut í Reykjavík í gærmorgun, hét Pétur Sigurðsson til heimilis að Geitlandi 8 Reykjavík. Hann var fæddur tuttugasta og sjöunda janúar árið 1946 og hefði því orðið sextugur í þessum mánuði. Pétur, sem var kjötiðnaðarmaður og strætisvagnabílstjóri, lætur eftir sig eiginkonu og uppkomin börn. 14.1.2006 12:28
Bæjarstjóri sækist ekki eftir sæti á lista Sjálfstæðismanna í Garðabæ Sjálfstæðismenn í Garðabæ hafa ekki ákveðið hvort núverandi bæjarstjóri, verði bæjarstjóraefni flokksins vegna sveitastjórnarkosninga í vor. Prófkjör flokksins þar í bæ er haldið í dag í fyrsta sinn í tæpa þrjá áratugi og er bæjarstjórinn ekki í framboði. 14.1.2006 12:17
Býst við fjörugum umræðum á launamálaráðstefnu Formaður launanefndar sveitarfélaganna segir miklar væntingar til launamálaráðstefnu sem haldin verið næsta föstudag en að þau deilumál sem uppi eru í kjaramálum verði ekki leyst strax þann dag. Hann býst við fjörugum umræðum á ráðstefnunni þar sem fjárhagsleg staða sveitarfélaganna sé mjög mismunandi. 14.1.2006 11:45
Dómari í máli Saddams Hussein ætlar ekki að hætta Dómari við dómstólinn sem réttar yfir Saddam Hussein, fyrrverandi einræðisherra í Írak, segir fullyrðingar yfirdómara í málinu um að hann ætli að hætta staðlausa stafi. 14.1.2006 10:13
Fimm námamenn létust í sprengingu Fimm rúmenskir námamenn fórust og tveir slösuðust þegar sprenging varð í kolanámu í vesturhluta landsins. Tveggja er enn saknað. 14.1.2006 10:10
Prófkjör hjá Sjálfstæðismönnum í Garðabæ Prófkjör verður haldið í dag hjá Sjálfstæðismönnum í Garðabæ vegna sveitastjórnakosninga í vor. Aðeins tveir bjóða sig fram í fyrsta sæti en það eru Erling Ásgeirsson og Páll Hilmarsson. 14.1.2006 10:05
Gaus fimm sinnum Eldfjallið Augustine í Alaska gaus að minnsta kosti fimm sinnum í gær. Aflýsa varð flugi og loka skólum vegna gossins og voru um 16.000 íbúar í nágrenni fjallsins varaðir við öskufalli. 14.1.2006 10:04
Tveir menn verða fyrir líkamsárás í nótt. Rólegt var í öllum umdæmum lögreglunnar á landinu í gærkveldi og í nótt. Þó voru tvær líkamsárásir í Reykjavík. Um klukkan 7 í morgun var maður sleginn niður fyrir utan veitingastaðinn Amsterdam í Tryggvagötu. 14.1.2006 10:03
Svín með græn líffæri Vísindamenn við ríkisháskóla í Taívan hafa náð að rækta græn svín, sem glóa í myrkri. Þótt fyrst og fremst séu það trýnið og klaufirnar sem eru græn að lit, er kannski enn sérstakara að öll líffærin í svínunum eru græn. 13.1.2006 23:15
Mannréttindaskrifstofa sækist eftir öllu fénu Mannréttindaskrifstofa Íslands hyggst sækjast eftir öllum þeim átta milljónum króna sem dóms- og kirkjumálaráðuneytið veitir til verkefna á sviði mannréttindamála. Þá mun skrifstofan halda áfram baráttu sinni fyrir því að fá fast fjármagn á fjárlögum. 13.1.2006 23:07
LungA hlaut Eyrarrósina LungA - listahátíð ungs fólks, Austurland varð hlutskarpasta verkefnið sem tilnefnt var til EyrarrósarinnarÞað var Dorrit Moussaieff, forsetafrú og sérlegur verndari Eyrarrósarinnar sem afhenti framkvæmdarstjóra LungA verðlaunin á Bessastöðum. 13.1.2006 22:43
Sigvaldi Kaldalóns 125 ára Sigvaldi Kaldalóns, eitt ástsælasta tónskáld þjóðarinnar, hefði orðið hundrað tuttugu og fimm ára í dag. Sigvaldi samdi á annað hundrað söng- og kórlaga sem mörg hver njóta enn mikilla vinsælda. 13.1.2006 22:28
Fádæma mikið álag á slökkviliði Fádæma mikið hefur verið að gera hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins við sjúkraflutninga í dag. Frá klukkan hálfátta í morgun til klukkan tíu í kvöld fór slökkviliðið í 76 sjúkraflutninga en á meðaldegi eru flutningarnir á milli fjörutíu og fimmtíu talsins. 13.1.2006 22:11
Börnum boðið á fjármálakvöld Ófjárráða börn í Kópavoginu fengu í vikunni boð um að mæta á fjármálakvöld Landsbankans. Framkvæmdastjóri Landsbankans segir um misskiling að ræða. 13.1.2006 22:00
Dómari í máli Saddams hættir Dómstjórinn í réttarhöldunum yfir Saddam Hussein hyggst láta af embætti sínu og mun greina frá ákvörðun sinni þess efnis næst þegar réttað verður í málinu, 24. janúar. 13.1.2006 21:20
Ódýrari tryggingar til skemmri tíma Nýtt tryggingafélag, sem er í eigu Tryggingamiðstöðvarinnar, býður bílatryggingar til mánaðar í senn. Félagið ætlar að bjóða tryggingar allt að fjórðungi undir listaverði tryggingafélaganna. 13.1.2006 21:15
Svíakóngur í umdeildum viðskiptum Karl Gústaf Svíakóngur lætur sér ekki nægja að ríkja yfir þegnum sínum. Hann er líka umfangsmikill kaupsýslumaður og það þykir vera á gráu svæði. 13.1.2006 21:00
Mótmæla lögregluvaldi Vegagerðar Landssamband lögreglumanna mótmælir því harðlega að starfsmönnum Vegagerðarinnar verði veitt víðtækt lögregluvald og telur svo vanhugsaðar lagabreytingar illskiljanlegar. Þá hafa atvinnubílstjórar hafið undirskriftasöfnun gegn áformunum. 13.1.2006 20:55
Byrjaði með því að nokkrar töskur hrundu Farangur hrundi úr rútum á ferð í veg fyrir innganginn að Jamarat-brúnni í Sádi-Arabíu í gær. Nokkrir pílagrímar duttu og ekki þurfti að spyrja að leikslokum. Svona var atburðarásin þegar vel á fjórða hundrað manns fórst á Hajj-hátíðinni nærri hinni heilögu borg Mekka í gær. 13.1.2006 20:38
Um tuttugu árekstrar í dag Það urðu fjölmargir árekstrar í höfuðborginni í dag vegna ófærðar og mikill erill var hjá lögreglu. Þetta er mesti snjór í Reykjavík í nokkurn tíma, en hætta er á að ekkert ferðaveður verði á vestanverðu landinu í kvöld. 13.1.2006 20:35
Ekkert banaslys frá tvöföldun Ekkert dauðaslys hefur orðið á Reykjanesbrautinni frá því hluti hennar var tvöfaldaður. Áður voru banaslysin þar fimm að jafnaði á hverju ári. Breikkun næsta áfanga, milli Strandarheiðar og Njarðvíkur, er nú hafin. 13.1.2006 20:20
Íranar æfir vegna viðbragða vesturlanda Íranar eru æfir vegna áætlana um að vísa kjarnorkuáætlun þeirra fyrir Öryggisráð Sameinuðu Þjóðanna. Stjórnvöld í landinu hóta að hætta öllu samstarfi við Alþjóðakjarnorkumálastofnunina. Íslendingur sem er yfirmaður þar segir þetta slæm tíðindi, sem þýði að ekki verði hægt að fylgjast með þróun mála í Íran. 13.1.2006 19:10
Ekki þrýst á ritstjóra DV Gunnar Smári Egilsson framkvæmdastjóri Dagsbrúnar segir að ekki hafi verið þrýst á ritstjóra DV um að hætta störfum. Þeir hafi kosið að gera það sjálfir í ljósi umræðu síðustu daga. Hann kannast ekki við tilboð Björgólfs Guðmundssonar um að kaupa blaðið til að koma í veg fyrir umfjöllun um sjálfa sig. Það sé þó ótrúlegt ef mönnum detti slíkt í hug á Vesturlöndum. 13.1.2006 19:04
Ritstjóraskipti á DV Jónas Kristjánsson og Mikael Torfason hafa látið af störfum sem ritstjórar DV að eigin ósk. Í yfirlýsingu þeirra segir að nauðsynlegt sé að skapa ró um blaðið og koma á vinnufriði. Páll Baldvin Baldvinsson og Björgvin Guðmundsson eru nýir ritstjórar blaðsins. 13.1.2006 18:49
Strætisvagnsstjóri beið bana Strætisvagnabílstjóri beið bana í morgun, þegar vagninn hans lenti aftan á vöruflutningabíl. Engir farþegar voru í strætisvagninum. 13.1.2006 18:47
Bush neitaði að loka Guantanamo George Bush Bandaríkjaforseti hafnaði í dag tillögu Angelu Merkel, kanslara Þýskalands, um að fangabúðunum í Guantanamo yrði lokað. 13.1.2006 18:30
Minntust átaka við Sovétmenn Litháar minntust þess í dag að fimmtán ár eru frá umsátrinu um sjónvarpsturninn í Vilníus. Fjórtán manns létust í átökum við sovéska hermenn en þrátt fyrir það er sú stund talin marka endalok sovéskra yfirráða í landinu. 13.1.2006 17:45
Kanna sameiningu HÍ og KHÍ Kanna á kosti þess að sameina Háskóla Íslands og Kennaraháskóla Íslands. Menntamálaráðuneytið hefur skipað starfshóp sem fer yfir kosti og galla sameiningar. 13.1.2006 17:36
Tveir skjálftar á rúmlega hálftíma Tveir skjálftar hafa mælst í dag sem eru sterkari en þrír á Richterkvarða. Fyrri skjálftinn mældist um þrír á Richter og varð í Vatnajökli, norðan við Bárðarbungu, og reið yfir rétt fyrir klukkan þrjú. Seinni skjálftinn varð rétt út af Tjörnesi um hálftíma síðar og mældist hann 3,5 á Richterkvarða. 13.1.2006 17:28
Tekist á um aðfarahæfi Mál Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar og Jóns Ólafssonar var tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Annars vegar var tekinn fyrir ágreiningur um aðfararhæfni enska dómsins á Íslandi og hins vegar krafa um að fjárnámsgerð sýslumanns yrði felld úr gildi. 13.1.2006 17:04
Ekki góð blanda Fullt tungl hefur löngum vakið forvitni meðal mann og hugsanleg áhrif þess á menn og málleysingja. Sumir vilja meina að fleiri börn fæðist á fullu tungli en ella og á fullu tungli komi einnig í ljós hvorf varúlfar séu manna á meðal eður ei. Við leituðum til spákonu til að fræðast um áhrif fulls tungls og hjátrúnna í kringum föstudaginn þrettánda. 13.1.2006 16:59
Él um allt vestanvert landið Gengið hefur á með éljum um allt vestanvert landið og snjór og hálka er á vegum. Þrátt fyrir þetta eru allar helstu leiðir færar samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni. Hálka eða hálkublettir eru einnig í öðrum landshlutum. 13.1.2006 16:42
Fylgja siðareglum Blaðamannafélagsins Ritstjórn DV mun hér eftir fylgja siðareglum Blaðamannafélags Íslands segir Björgvin Guðmundsson, annar tveggja nýráðinna ritstjóra blaðsins. Hann segir að í framtíðinni verði lögð meiri áhersla en verið hefur á að segja fréttir af stjórnmálum og viðskiptum. 13.1.2006 16:29