Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Eldskírn í áfallahjálp í snjóflóðunum Landlæknir segir Íslendinga hafa hlotið eldskírn sína í áfallahjálp þegar snjóflóðin féllu á Vestfjörðum fyrir tíu árum. Þetta kom fram á blaðamannafundi í dag þar sem skýrsla um áfallahjálp á landsvísu var afhent landlækni. 15.11.2005 17:53
Sumarið eftir 10. bekk er áhættutími Sumarið eftir 10. bekk fara daglegar reykingar unglinga úr 11,7% í 15,1%. Þá fer hlutfall þeirra sem höfðu orðið ölvaðir síðustu þrjátíu daga úr 26% í 53%. Þetta kom fram á kynningarfundi Lýðheilsustöðvar og Rannsóknar og greiningar í dag sem gerðu kannanir á nemendum í 10. bekk grunnskóla vorið 2004 og á sama árgangi nemenda í fyrsta bekk framhaldsskóla. 15.11.2005 17:44
Kosningar á Grænlandi í dag Heimastjórnarkosningar eru á Grænlandi í dag. Ágreiningur er milli sósíal-demókratíska flokksins Siumut og samstarfsflokks hans í stjórn, Inuit Ataqatigiit, sem gæti kostað Siumut völdin í landinu. 15.11.2005 17:42
Ríkisstjórnin tilbúin að greiða fyrir samningum Ríkisstjórnin lýsir sig reiðubúna til samstarfs við Alþýðusamband Íslands og Samtök atvinnulífsins um leiðir sem, auk aðgerða á vettvangi lífeyrissjóðanna sjálfra, draga úr vaxandi örorkubyrði lífeyrissjóða og jafna stöðuna milli einstakra sjóða. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá henni. 15.11.2005 17:40
Lést í vinnuslysi við álverið í Straumsvík Maðurinn sem lést í vinnuslys á athafnasvæði álversins í Straumsvík í gær hét Róbert Þór Ragnarsson, fæddur 15. apríl 1966, til heimilis að Hveralind 6, Kópavogi. Hann lætur eftir sig sambýliskonu. Róbert var starfsmaður fyrirtækisins Stálafl Orkuiðnaður í Garðabæ. Rannsókn málsins stendur yfir. 15.11.2005 17:35
Villepin í óvæntri heimsókn í úthverfi Parísar Dominque de Villepin, forsætisráðherra Frakklands, kom í dag í óvænta heimsókn í Aulnay-sous-Bois, eitt af úthverfum Parísar þar sem óeirðir hafa geisað undanfarnar vikur. Ráðherrann ræddi við íbúa í hverfinu, kennara og viðskiptamenn á svæðinu og hann lýsti yfir vilja til að hjálpa þeim fjölmörgu ungmennum sem eru atvinnulaus í fátækustu úthverfum borgarinnar. 15.11.2005 17:30
Spánverjar rannsaka meint fangaflug um Palma-flugvöll Spænsk yfirvöld hafa bæst í hóp þeirra ríkja sem ætla að rannsaka meint flug bandarísku leyniþjónustunnar, CIA, með grunaða hryðjuverkamenn í fangelsi í löndum þar sem pyntingar eru leyfðar. Talið er að CIA hafi notað flugvöllinn á Majorka til fangaflutninga. 15.11.2005 16:52
Sjálfstæðismenn ósáttir við fjárhagsáætlun Sjálfstæðismenn eru ákaflega óánægðir með fjárhagsáætlun R-listans sem lögð var fyrir í dag og segja þar seilst djúpt í vasa launafólks með skattahækkunum og að áætlunin beri einkenni glundroða. 15.11.2005 16:42
Aldrei óvinsælli Óvinsældir Bush Bandaríkjaforseta hafa aldrei verið meiri samkvæmt skoðanakönnun sem CNN, USA Today og Gallup birtu í gær. Aðeins þrjátíu og sjö prósent Bandaríkjamanna sögðust ánægð með störf forsetans en það er tveimur prósentum minna en í síðasta mánuði. Þá má þess geta að tuttugu og sjö prósent Bandaríkjamanna voru ánægð með störf Richards Nixons í nóvember árið 1973 eftir að Watergate-hneykslið kom upp. 15.11.2005 16:24
Slysum erlendra ferðamanna fer fjölgandi Erlendum ferðamönnum fjölgaði um rúmlega helming á árunum 1993-2003. Slysatíðni erlendra ferðamanna eykst í samræmi við það og hefur tvöfaldast á undanförnu fimm ára tímabili. 15.11.2005 16:23
Rekinn úr Hjálpræðishernum fyrir samkynhneigð Hjálpræðisherinn í Noregi virðist ekki reiðubúinn að styðja við bakið á hverjum sem er, til dæmis ekki einum starfsmanni hersins sem starfað hefur innan hans í áratugi. Maðurinn var rekinn fyrir að vera samkynhneigður. 15.11.2005 16:05
Omri Sharon semur við saksóknara vegna spillingarmáls Elsti sonur Ariels Sharons, forsætisráðherra Ísraels, sem ákærður er fyrir spillingu í tengslum við fjáröflun fyrir kosningabaráttu föður síns hefur náð samkomulagi við saksóknara. Omri Sharon er gefið að sök að hafa komið á fót gervifyrirtækjum til þess að dylja ólögleg framlög í kosningasjóð föður hans fyrir leiðtogakosningar í Likud-bandalaginu árið 1999, en Sharon eldri sigraði í kosningunum og varð í kjölfarið forsætisráðherra Ísraels. 15.11.2005 16:04
Ríflega 50 smáfuglar drápust í sóttkví í Bretlandi Ríflega 50 smáfuglar frá Taívan drápust í sóttkví í Lundúnum í síðasta mánuði og leikur grunur á að einhverjir þeirra hafi drepist úr fuglaflensu. Frá þessu greindu yfirvöld í Bretlandi í dag. 15.11.2005 15:41
Lentu á Spáni Samskipti Spánar og Bandaríkjanna munu skaðast ef í ljóst kemur að leyniþjónustan CIA hafi millilent á laun á Spáni með meinta hryðjuverkamenn. Þetta segir innanríkisráðherra Spánar sem hefur farið fram á rannsókn um málið. 15.11.2005 15:21
Ágóði rokktónleika rennur til UNICEF Alls söfnuðust hundrað þúsund krónur til styrktar Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna á Rokkveislu sem nemendafélag Framhaldsskólans í Austur-Skaftafellssýslu stóð fyrir um helgina. 15.11.2005 14:02
Dæmd í 30 ára fangelsi Kona var í dag dæmd í 30 ára fangelsi í Colorado í Bandaríkjunum, fyrir að hafa haft mök við unglingsdrengi í partíum þar sem áfengi og fíkniefni voru höfð um hönd. Konan, sem er 41 árs gömul, sagðist aldrei hafa verið vinsæl meðal bekkjarsystkina sinna þegar hún var í skóla. Í fyrsta skipti hafi henni liði sem einni af hópnum. 15.11.2005 13:29
Hlýindatímabili lokið í bili Hlýindatímabilið er búið í bili og hitatölur eru aftur farnar að nálgast meðallag. Hiti var yfir meðallagi á Íslandi 31 mánuð í röð og árið 2003 var eitt hlýjasta ár sem mælst hefur hér á landi síðan um 1940. 15.11.2005 13:27
Sprengt í Grikklandi Bensínsprengjum var kastað á franska bílasölu og fransk-gríska matvöruverslun í norðurhluta Grikklands í nótt. Ekki er vitað hverjir stóðu á bak við árásirnar en í þeim skemmdust átta bifreiðar og eru verslanirnar afar illa leiknar. Yfirvöld í Grikklandi telja að árásirnar tengist óeirðunum í Frakklandi. Enginn hefur þó látist eða slasast í árásunum. 15.11.2005 13:16
Fuglaflensan breiðist út Tvö ný tilfelli fuglaflensu eru komin upp í vesturhluta Kína. Eru tilfellin þau tíundu og elleftu sem koma upp í landinu síðastliðinn mánuð. Frá þessu greinir Alþjóðaheilbrigðisstofnunin. Um 320 þúsundum fugla hefur verið fargað til að koma í veg fyrir frekari útbreiðslu veirunnar. Sýkingar hafa nú greinst í nær öllum hlutum Kína síðastliðinn mánuð. 15.11.2005 13:07
Nær til 65% heimila á Írlandi Industria ehf. hefur samið við Magnet Networks á Írlandi um uppbyggingu stafræns dreifikerfis fyrir sjónvarp, síma og netsamskipti, byggðu á svokallaðri ADSL 2+ tækni. Samningurinn felur í sér tengingu við allt að sextíu og fimm prósent heimila á Írlandi og verður netið hið fyrsta sinnar tegundar þar í landi. 15.11.2005 12:56
Enn betri 747 Samkeppni flugvélarisanna Boeing og Airbus harðnar stöðugt og virðist sem ekkert lát ætli að verða á framleiðslu nýrra flugvéla. 15.11.2005 12:48
Flokkarnir semja Kristilegir demókratar og jafnaðarmenn í Þýskalandi hafa samþykkt stjórnarsáttmála flokkanna með miklum meirihluta atkvæða og þar með Angelu Merkel sem næsta kanslara landsins. 15.11.2005 12:45
Hlutdeild bankanna í húsnæðislánum hefur stóraukist Hlutdeild bankanna í húsnæðislánum hefur stóraukist síðastliðið ár. Þetta kemur fram í svari félagsmálaráðherra við fyrirspurn Jóhönnu Sigurðardóttur þingkonu Samfylkingarinnar. 15.11.2005 12:43
Þjófar gómaðir með matvæli og mikið af lausamunum Lögreglan í Reykjavík handtók þrjá þjófa í nótt þegar þeir voru að forða sér á bíl af innbrotsstað í Grafarholti, eftir að húsráðandi hafði komið að þeim. Þá voru þeir búnir að pakka niður nánast öllum lausamunum úr íbúðinni, meira að segja matvælum, í töskur, poka og fleiri ílát, og voru búnir að bera eitthvað út í bíl. Húsráðandinn náði númerinu á flóttabílnum, sem leiddi til handtökunnar. 15.11.2005 12:40
Úrvalsvísitalan aldrei mælst hærri Úrvalsvísitalan í Kauphöllinni varð hærri í gær en nokkru sinni fyrr og var 4,753 stig við lokun markaðarins. Hún hefur hækkað um rösklega 41 prósent frá áramótum. Haldist þessi hækkun verður þetta fjórða árið í röð sem úrvalsvísitalan hækkar um yfir 40 prósent, en úrvalsvísitalan endurspeglar gengi 15 stærstu hlutafélaganna í kauphöllinni. 15.11.2005 12:36
Hálfur sólarhringur til stefnu Samtök atvinnulífsins og Alþýðusambandið bíða þess nú að fá fregnir af því hvað hafi verið ákveðið á ríkisstjórnarfundi í morgun til að liðka fyrir vinnufriði í landinu. Nú er aðeins hálfur sólarhringur þar til verkalýðsfélög geta farið að segja upp samningum, náist samkomulag ekki í dag. 15.11.2005 12:35
Kosningar í Danmörku í dag Kosningar til sveitarstjórna í Danmörku hófust klukkan níu í morgun. Jafnaðarmaður verður að öllum líkindum borgarstjóri enn eitt árið. 15.11.2005 12:33
Þeir sem hafa slæma samvisku munu skjálfa Ef einhverjir hafa slæma samvisku þá munu þeir skjálfa segir Jón Ólafsson athafnamaður, aðspurður hvort bók um hann, sem kynnt var á blaðamannafundi í morgun, muni valda pólitískum skjálfta. 15.11.2005 12:23
Bændur mótmæla Tugir manna slösuðust þegar til átaka kom á milli bænda og óeirðalögreglu við þinghúsið í Seúl í Suður-Kóreu í dag. 15.11.2005 12:21
Stefna á að halda áfram loðdýraræktun Blóðsjúkdómur í minkum hefur greinst á bæ í Skagafirði og skera þarf niður rúmlega þúsund dýr á bænum. Sjúkdómurinn greindist síðast árið 1996. Grunur leikur á smiti á öðrum bæ í Skagafirði. 15.11.2005 12:12
Knapi kjálkabrotnaði og brákaðist á hrygg Hestamaður kjálkabrotnaði og brákaðist á hrygg þegar hann féll af hestbaki að Hólum í Hjaltadal í gær. Hann var fluttur á Landspítalann í Reykjavík þar sem hann gekkst undir aðgerð og reyndust meiðsl á hrygg ekki eins alvarleg og óttast var. 15.11.2005 08:44
Þingmaður kærir dreifingu klámmyndar af sér Það hefur heldur betur færst fjör í leikinn í sveitastjórnarkosningunum sem fram fara í Danmörku í dag. Þingmaður Þjóðarflokksins, Louise Frevert sem býður sig fram til borgarstjóraembættis í Kaupmannahöfn, hefur kært dreifingu plakata sem sýnir grófa klámmynd af henni. 15.11.2005 08:42
Fékk í sig 11 þúsund volta straum Starfsmaður Rarik slasaðist alvarlega við vinnu sína uppi í háspennustaur í Blöndudal í gær þegar hann fékk í sig ellefu þúsund volta straum. Maðurinn skaðbrenndist á fæti þegar strauminn leiddi þar út en þrátt fyrir það tókst honum að komast hjálparlaust niður úr staurnum. 15.11.2005 08:25
Lenti undir bíl í Hveragerði Heldur fór illa fyrir konu í Hveragerði í gær þegar hún steig út úr bíl sínum. Svo virðist sem hún hafi gleymt að setja bílinn í gír eða handbremsu og því fór bíllinn að renna. Konan reyndi þá að stöðva hann en það vildi ekki betur til en svo að hún lenti undir bílnum og rann hann að hluta til yfir hana. 15.11.2005 08:15
Brasilískir hermenn pynta undirmenn sína Myndbandsupptaka af pyntingum brasilískra hermanna á undirmönnum sínum hafa valdið miklum óhug þar í landi. Á myndbandinu sjást yfirmenn meðal annars brenna eyru undirmanna sinna með straujárni og gefa þeim rafstuð í magann. Brasilíski herinn hefur hafið rannsókn á málinu. Ernani Lunardi Filho, yfirmaður hersveitar, sagði í samtali við brasilíska fjölmiðla að herinn fordæmi atvikið. Hann sagði þetta einangrað tilfelli, sem fæli eingöngu í sér liðþjálfa að gera öðrum liðþjálfum grikk 15.11.2005 08:00
Úrkomumet í Björgvin í gær Úrkomumet var slegið í Björgvin í Noregi í gær, en þá mældist úrkoma frá því klukkan sjö á sunnudagskvöldið til klukkan sjö í gærkvöld 134,2 millímetrar. Gamla metið í bænum var frá árinu 1917 og var 122 millímetrar. Gríðarlega úrkoma var víða á vesturströnd Noregs í gær og mældist hún mest í Takle í Sogn- og Fjarðafylki en þar var úrkoman 198,5 millímetrar á sólarhring. 15.11.2005 08:00
Atvinnutækifæri ungs fólks aukin í Frakklandi Ríkisstjórn Frakklands hefur heitið því að auka atvinnutækifæri ungs fólks á næstu árum til að koma í veg fyrir óeirðir á borð við þær sem hafa verið í landinu síðustu þrjár vikur. Stefnt er að því að 50 þúsund ungmenni fái þjálfun árið 2007 sem á að auka líkur þeirra á að fá vinnu. 15.11.2005 07:58
40 milljónir piparsveina í Kína árið 2020 Ójafnvægi á hlutfalli kynjanna heldur áfram að aukast í Kína vegna þeirrar stefnu stjórnvalda um hjón megi aðeins eignast eitt barn. Nú fæðast 119 strákar á móti hverjum 100 stelpum og árið 2020 má gera ráð fyrir að kínverskir piparsveinar verði allt að fjörtíu milljónir manns. 15.11.2005 07:49
Bjartsýnir á að ná samkomulagi Forystumenn Samtaka atvinnulífsins og verkalýðshreyfingarinnar eru bjartsýnir á að ná samkomulagi í svonefndri forsendunefnd, eftir fundarhöld gærdagsins, sem stóðu fram á kvöld. 15.11.2005 07:15
Mikill eldsvoði í Kaupmannahöfn Betur fór en á horfðist þegar mikill eldsvoði varð í fjölbýlishúsi í Amager-hverfinu í Kaupmannahöfn í gærkvöld. Um 200 manns þurftu að yfirgefa heimili sín vegna eldsins. Aðeins einn maður er sagður hafa slasast en fjöldi íbúa var fluttur á sjúkrahús vegna gruns um reykeitrun. 15.11.2005 07:03
Krefjast dómsúrskurðar Verjendur ákærðra í Baugsmálinu hafa krafist dómskúrskurðar þess efnis að sakborningar fái þegar í stað aðgang hjá Ríkislögreglustjóra að tölvugögnum sem fengin eru frá Jóni Gerald Sullenberger. Gögnin varða samskipti sakborninga og sakborninga og vitna. 15.11.2005 07:00
Sullenberger játar en er ekki ákærður Verjendur í Baugsmálinu vilja að Ríkislögreglustjóri svari því hvers vegna Jón Gerald Sullenberger hafi ekki verið ákærður fyrir brot sem hann hafi gengist við. Embættið taldi sama brot duga til ákæru gegn þremur sakborninganna. 15.11.2005 07:00
Umræður um varnarsamninginn á Alþingi Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, var málshefjandi umræðunnar um varnar- og öryggismál á Alþingi í gær. Hún kallaði eftir skýringum á ummælum Halldórs Ásgrímssonar, forsætisráðherra, á miðstjórnarfundi Framsóknarflokksins fyrir helgi. Þar sagði Halldór að Íslendingar myndu aldrei neyða Bandaríkjamenn og herinn til að vera hér ef þeir vildu það ekki. 15.11.2005 07:00
Brotist inn í íbúð í austurborginni Brotist var inn í íbúð í austurborginni í um sexleytið í kvöld. Innbrotsþjófurinn eða -þjófarnir spenntu upp glugga og höfðu á brott með sér tölvu og heimilissíma. Ekki er vitað hver þar að verki en lögregla leitar þjófanna. 14.11.2005 22:49
Segir eftirlitsnefnd FF ekki taka of vægt á afbrotum Eftirlitsnefnd Félags fasteignasala hefur áminnt tvo fasteignasala á því rúma ári sem hún hefur starfað, en enginn hefur verið sviptur löggildingu. Formaðurinn telur nefndina alls ekki taka of vægt á þeim sem brjóta af sér og segir rangt að fimmtíu mál bíði afgreiðslu. 14.11.2005 21:15