Innlent

Þeir sem hafa slæma samvisku munu skjálfa

Eins og frægt er orðið fór viðtal við við Jón Ólafsson í Kastljósi Ríkissjónvarpsins aldrei út í gær, eins og talað hafði verið um, og var borið við tæknilegum örðugleikum. Hann staðfesti þá skýringu á fundinum og sagði einhverja hönd verið þar að verki, en hún hafi ekki verið blá heldur líklega guðleg.
Eins og frægt er orðið fór viðtal við við Jón Ólafsson í Kastljósi Ríkissjónvarpsins aldrei út í gær, eins og talað hafði verið um, og var borið við tæknilegum örðugleikum. Hann staðfesti þá skýringu á fundinum og sagði einhverja hönd verið þar að verki, en hún hafi ekki verið blá heldur líklega guðleg. MYND/Vísir

Ef einhverjir hafa slæma samvisku þá munu þeir skjálfa segir Jón Ólafsson athafnamaður, aðspurður hvort bók um hann, sem kynnt var á blaðamannafundi í morgun, muni valda pólitískum skjálfta.

Óhætt er að segja að frá því að tilkynnt var fyrr á þessu ári að væntanleg væri bók um Jón Ólafsson, gjarnan kenndan við Skífuna, hafi hennar verið beðið með mikilli eftirvæntingu. Jón er líklega einn umdeildasti maður seinni tíma hér á landi og frægar eru deilur hans við háttsetta menn innan Sjálfstæðisflokksins og þeim tengdum, til að mynda Davíð Oddsson og Hannes Hólmstein Gissurarson.

Jón og Einar Kárason rithöfundur, sem skrifar bókina, kynntu verkið á blaðamannafundi í morgun. Þar kom meðal annars fram að Jón sé alls ekki sáttur við allt í bókinni, en hann sagði að hann hafi hvort eð er ekki verið sáttur síðastliðin 30 ár. Jón segir að Davíð Oddsson, fyrrverandi forsætisráðaherra, hafi lofað skattranssóknarstjóra 20 milljóna aukafjárveitingu gegn því að rannsókn yrði hafin á skattamálum hans og Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, forstjóra Baugs, og kveðst hafa gögn undir höndum sem staðfesti það. Þá segist Jón aldrei hafa reynt að hafa ritstjórnarleg áhrif á efni Stöðvar 2 meðan hann var stjórnarformaður Íslenska útvarpsfélagsins, eins og ýjað hafi verið að.

Eins og frægt er orðið fór viðtal við við Jón í Kastljósi Ríkissjónvarpsins aldrei út í gær, eins og talað hafði verið um, og var borið við tæknilegum örðugleikum. Hann staðfesti þá skýringu á fundinum og sagði einhverja hönd hafa verið þar að verki, en hún hafi ekki verið blá heldur líklega guðleg. Jón sagði ennfremur að tilvitnun í orð hans í fréttum Ríkissjónvarpsins í gærkvöldi, þar sem Jón var sagður halda fram að Sjálfstæðisflokkurinn hafi heimtað fríar auglýsingar á Stöð 2 og fimm milljóna króna framlags í kosningasjóð, hafi verið tekin úr samhengi.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×