Fleiri fréttir

Fyrirséð lokun NMT-kerfis

"Innan tveggja til þrigg­ja ára verðu NMT farsímakerfinu lokað," segir Hrafnkell V. Gíslason, forstjóri Póst- og fjarskipta­stofn­unarinnar. Hrafnkell segir að vegna þessa hafi stofnunin opnað á vef sínum fyrir umræðu um mögulega fram­tíð­ar­notkun 450 MHz tíðni­sviðs­ins sem NMT netið not­ar og óskað eftir umsögnum.

Vegagerðin hugsar málið

Um miðja næstu viku er fyrirhugaður fundur lögmanns Reykjavíkurborgar og lögmanna olíufélaganna um skaðabótakröfu borgarinnar vegna ólöglegs verðsamráðs félaganna. Að sögn Vilhjálms H. Vilhjálmssonar, lögmanns borgarinnar, varð ekki af fyrirhuguðum fundahöldum í vikunni sem er að líða. Borgin krefur félögin þrjú, Skeljungs, Esso og Olís, eða eignarhaldsfélög þeirra um 150 milljón krónur í bætur.

Lítið um slys í tugum árekstra

Tuttugu árekstrar urðu milli klukkan fjögur og fimm í Reykjavík í gær. Að sögn lögreglunnar í Reykjavík voru þrír fluttir á slysadeild en meiðsli þeirra voru minniháttar. Margir eru enn á sumardekkjunum og telur lögregla að snjórinn hafi komið fólki nokkuð í opna skjöldu. Vesturlandsvegur lokaðist sunnan Hvalfjarðarganga um tíma eftir hádegið vegna bílveltu sem þar varð. Ekki reyndist um alvarleg meiðsl að ræða.

Ritstjórar DV dæmdir

Ritstjórar DV þurfa að greiða 600.000 krónur vegna ummæla sem viðhöfð voru á forsíðu blaðsins um Ásmund Gunnlaugsson jógakennara 8. október í fyrra. Ómerk voru ummælin "var fjarlægður af lögreglu," en þau taldi dómurinn bersýnilega röng. Mikael Torfasyni og þáverandi ritstjóra, Illuga Jökulssyni, var hvorum um sig gert að greiða 50.000 krónur í sekt. Þá þurfa þeir að borga Ásmundi 200.000 krónur í miskabætur og 300.000 krónur í málskostnað.

Verðbólga talin vera ofmetin

Húsnæði er ofmetið í verðbólguútreikningum, samkvæmt niðurstöðu nýrrar rannsóknar í hagfræði. Verðbólga væri ríflega hálfu prósentustigi lægri, 4% í stað 4,6%, ef miðað yrði við nýja tegund húsnæðisvísitölu.

Löng bið á dekkjaverkstæðum

Mikið var að gera á dekkjaverkstæðum á höfuðborgarsvæðinu í dag enda áttu margir erfitt með að komast leiðar sinnar í morgun vegna umferðarteppu sem skapaðist sökum mikillar hálku.

Hefur ekki áhyggjur af varnarviðræðum

Bandaríkjamenn skilja nauðsyn þess að hafa viðbúnað í Keflavík og varnarviðræðurnar eru í góðum farvegi. Þetta segir Halldór Blöndal formaður utanríkismálanefndar Alþingis, eftir fund nefndarinnar í morgun.

Fyrsta óveður vetrarins

Fyrsta óveður vetrarins á Suður- og Vesturlandi skall á í dag. Á Kjalarnesi fór vindhraði í 42 metra á sekúndu í hviðum og í Vestmannaeyjum hafa björgunarsveitarmenn hjálpað fólki við að losa bíla sína úr snjósköflum.

Starfsmannaleigan "2+1" borin þungum sökum

Þýskir farandverkamenn, sem unnið hafa á Íslandi, bera starfsmannaleiguna "2+1" þungum sökum. Þeir segjast hafa verið sviknir um laun og búa við afar þröngar aðstæður en þeir eru ellefu saman í lítilli íbúð. Starfsmannaleigan vísar öllum ásökunum á bug.

Handteknir vegna gruns um hryðjuverk

Piltarnir fjórir sem eru í haldi lögreglunnar í Danmörku, vegna gruns um að þeir hafi ætlað að gera hryðjuverkaárásir í Evrópu á næstunni, virðast tilheyra stærra neti hryðjuverkamanna.

Hér og nú birti myndir í heimildarleysi

Tímaritið Hér og nú birti myndir af Strákunum á Stöð 2 og Eiði Smára Guðjohnssen í heimildarleysi og í óþökk ljósmyndaranna. Auðunn Blöndal og Sverrir Þór Sverrisson eru að kanna hvort vinnubrögð blaðsins standist lög.

Starfsmannastjóri Cheney segir af sér

Lewis Libby, náinn aðstoðarmaður og starfsmannastjóri Dick Cheney, varaforseta Bandaríkjanna, sagði af sér fyrir stundu. Fyrr í dag var hann ákærður fyrir að hindra framgang réttvísinnar og bera ljúvitni við rannsókn upplýsingaleka hjá bandarísku leyniþjónustunni, CIA.

Farice verður stöðugur í janúar

Farice-sæstrengurinn bilaði enn eina ferðina í morgun og lá niðri í nokkra klukkutíma. Hann er þó kominn í fullt gagn aftur. Jón Birgir Jónsson hjá Farice ehf. segir ekki hafa verið um kerfisbilun að ræða heldur hafi strengurinn slitnað í óhappi við landtengingu í Skotlandi.

Greiða ekki skatta

Verið er að stofnsetja íslenskt útibú portúgölsku starfsmannaleigunnar Elpalmo frá Portúgal hér á landi. Samkvæmt heimlidum fréttastofu starfa nú þegar á milli 90 og 100 menn á vegum Elpalmo hér á landi.

Ekkert ferðaveður á landinu

Ekkert ferðaveður er á landinu og varað er við stormi sunnalands. Að sögn Veðurstofunnar snjóar nú um allt land.

Voksne mennesker hýtur flestar tilnefningar til Eddunnar

Kvikmynd Dags Kára Péturssonar, Voksne mennesker, hlýtur flestar tilnefningar til Eddu verðlaunanna í ár. Kvikmyndin Strákarnir okkar eftir Robert Douglas og þættirnir um Latabæ koma hljóta næst flestar tilnefningar.

Tjón talið vera undir þremur milljónum króna

Tjón að völdum vatnavaxta á Höfn í Hornafirði fyrr í mánuðinum er talið vera undir þremur milljónum króna. Ljóst þykir að Hornfirðingar hafi sloppið betur en á horfðist í fyrstu.

DV áfrýjar dóminum

Forráðamenn DV hafa ákveðið að áfrýja dómi Héraðsdóms Reykjavíkur frá því í dag þar sem Mikael Torfason, núverandi ritstjóri DV, og Illugi Jökulsson, fyrrverandi ritstjóri blaðsins, voru dæmdir til að greiða manni 200 þúsund krónur fyrir ummæli í frétt sem blaðið birti í október í fyrra.

Enginn alvarlega slasaður

Enginn fjórmenninganna sem fluttir voru á sjúkrahús eftir að jeppi valt á veginum sunnan við Hvalfjarðargöngin laust eftir hádegið er alvarlega slasaður. Þeir munu líklega allir verða útskrifaðir síðar í dag, að sögn læknis a slysadeild.

Þyrla leitar neyðarsendis

Þyrla Landhelgisgælunnar, TF-LIF, leitar nú að neyðarsendi sem byrjaði að senda frá sér neyðarmerki um gervihnött í morgun. Þyrlan fór í loftið tíu mínútur fyrir tvö til að reyna að finna neyðarsendinn, en svo virðist sem hann sé staðsettur suður af Reykjanesskaga.

Mótmæltu hækkun eftirlaunaaldurs

Almenningssamgöngur voru meðal þess sem fór úr skorðum í Belgíu í dag vegna verkfalls verkamanna í þremur stræstu verkalýðsfélögum landsins. Þeir fjölmenntu í höfuðborgina Brussel þar sem þeir mótmæltu áformum stjórnvalda um að hækka eftirlaunaaldur úr 58 árum í 60.

Svanhildur og Síminn hljóta markaðsverðlaun

Svanhildur Konráðsdóttir, sviðsstjóri menningar og ferðamálasviðs hjá Reykjavíkurborg, og Síminn hlutu markaðsverðlaun ÍMARK sem markaðsmaður og markaðsfyrirtæki þessa árs.

Fjórir fluttir á sjúkrahús vegna bílveltu

Fjórir voru fluttir á sjúkrahús eftir að jeppi valt á veginum sunnan við Hvalfjarðargöngin laust eftir hádegið. Tveir farþeganna festust í bílnum við veltuna svo nota þurfti klippur til að ná þeim lausum. Ekki hafa fengist upplýsingar um hvort fólkið hafi slasast mikið.

Ísraelsher haldi ekki aftur af sér

Ísraelsher hefur fengið þau fyrirmæli að halda ekki aftur af sér í leitinni að palestínskum uppreisnarmönnum, þrátt fyrir að Bandaríkjastjórn hafi hvatt hann til að fara sér hægt í allar aðgerðir. Herþotur héldu áfram skotárásum á Gasa í morgun.

Vesturlandsvegur lokaður vegna umferðarslyss

Vesturlandsvegur verður lokaður um óákveðin tíma sunnanmegin við Hvalfjarðargöng vegna umferðarslyss sem varð þar í hádeginu. Þar valt bíll og mun tvennt vera fast í honum en lögregla og slökkvilið vinna að því að losa fólkið.

Fjórmenningar neita að hafa skipulagt hryðjuverk

Fjórmenningarnir sem eru í haldi lögreglunnar í Danmörku, vegna gruns um að þeir hafi ætlað að gera hryðjuverkaárásir í Evrópu á næstunni, neita allir sök. Þá segja sænskir fjölmiðlar að átján ára Svíi hafi verið handtekinn í Sarajevó í síðustu viku, grunaður um að hafa ætlað að gera þar sjálfsmorðsárás.

Sjónvarpið rukkar sama og það borgar

Ólafur Jóhannesson kvikmyndagerðarmaður gagnrýnir RÚV fyrir að okra á starfsstétt hans. RÚV greiddi Ólafi 1,5 milljónir fyrir sýningu á Blindskeri en rukkaði hann um 1,4 milljónir fyrir not á efni úr myndasafni Sjónvar

Stjúpættleiddir oftast yfir lögaldri

Fjöldi stjúpættleiddra yfir lögaldri er áberandi hér á Íslandi miðað við nágrannalöndin. Meðalaldur stjúpættleiddra hér á landi er ríflega tuttugu ár og einnig eru áberandi fleiri konur stjúpættleiddar hérlendis en karlar.

Bílvelta nærri Hvalfjarðargöngum

Bíll valt á veginum skammt frá Hvalfjarðargöngum, sunnanmegin, fyrir stundu. Lögegla og sjúkralið frá Reykjavík og Akranesi eru komin á staðinn. Tvennt er fast í bílnum og er tækjabíll frá Reykjavík rétt ókominn á vettvang.

Íranar standa við ummæli sín um Ísrael

Fátt bendir til að Íranar verði reknir úr Sameinuðu þjóðunum vegna ummæla forseta landsins um að réttast væri að þurrka Ísrael út af landakortinu. Íranar standa við ummælin og segja þetta hafa verið stefnu Írans gagnvart Ísrael um langt skeið.

Málþing um skólagöngu hjartveikra barna

Skólaganga hjartveikra barna er um margt ólík skólagöngu heilbrigðra barna og koma þarf til móts við þau í skólakerfinu. Í dag verður haldið málþing í Gerðubergi þar sem skólaganga þeirra verður til umfjöllunar. Tilefnið er tíu ára afmæli Neistans, styrktarfélags hjartveikra barna.

Veður að versna á Suður- og Vesturlandi

Veturinn hefur heldur betur minnt á sig á Suður- og Vesturlandi í nótt og í morgun. Borgarbúar vöknuðu við fyrstu snjókomuna þetta haustið og nokkuð var um árekstra í morgun. Spáð er stormi á Suður- og Vesturlandi þegar líður á daginn með töluverðri ofankomu sem færir sig svo yfir á Norðurland en búist er við að veðrið gangi niður eftir hádegi á morgun.

Rætt um stöðuna í varnarviðræðunum

Utanríkismálanefnd Alþingis kom saman til fundar klukkan kortér yfir átta í morgun, til að ræða stöðuna í viðræðum Íslendinga og Bandaríkjamanna um herstöðina á Keflavíkurflugvelli og varnarmál Íslands almennt.

Bærinn vill kaupa starfsstöðina

Halldór Halldórsson, bæjarstjóri í Ísafjarðarbæ, hefur óskað eftir viðræðum við stjórnendur Já Símaskrár, um að kaupa vinnustöð fyrirtækisins á Ísafirði. Beiðni Halldórs kemur í kjölfar þess að fyrirtækið ákvað að leggja starfsstöðina niður og flytja starfsemina annað en þar með glatast fimm störf á Ísafirði.

Fyrstu íbúðirnar fyrir eldri borgara

Vinna er hafin við byggingu fyrstu íbúðanna fyrir eldri borgara sem reistar eru í Snæfellsbæ. Í gær var tekin skóflustunga að fyrra af tveimur parhúsum sem verða reist. Húsin verða á Ólafsvík en að því er fram kemur á vef Skessuhorns eru það Grundfirðingar sem sjá um bygginguna.

Svíi handtekinn í Sarajevó vegna hryðjuverkaógnar

Fjórir múslimar sem voru handteknir í Kaupmannahöfn í gær eru grunaðir um að hafa ætlað að gera hryðjuverkaárásir í Evrópu, að öllum líkindum i Danmörku. Þá segja sænskir fjölmiðlar að átján ára Svíi hafi verið handtekinn í Sarajevó í síðustu viku, grunaður um að hafa ætlað að gera þar sjálfsmorðsárás.

Allt flug til og frá höfuðborginni liggur niðri

Allt flug til og frá Reykjavíkurflugvelli hefur legið niðri í morgun vegna hvassviðrisins sem er á Suður- og Vesturlandi. Samkvæmt upplýsingum sem fengust hjá Flugfélagi Íslands verður næst kannað hvort hægt verði að fljúga klukkan tíu mínútur yfir ellefu.

Segja Koizumi ætla að stokka upp í stjórn sinni

Koizumi, forsætisráðherra Japans, hyggst stokka upp í ríkisstjórn landsins strax eftir helgina. Þetta hafa japanskir fjölmiðlar eftir hátt settum embættismanni innan flokks Koizumis. Þá mun hann einnig skipa nýja menn í æðstu stöður flokksins á mánudaginn kemur.

Grunur um sprengju í skóla í Svíþjóð

Skóli í Falköping, sem er 150 kílómetra norðaustur af Gautaborg, hefur verið rýmdur vegna grunsamlegs pakka sem fannst hangandi á hurð við einn af inngöngum skólans. Svæðið í kringum skólann hefur nú verið lokað af og sprengjusérfræðingar eru á leið frá Gautaborg til þess að athuga pakkann. Frá þessu er greint á vefsíðu sænska blaðsins Expressen.

Gefa upp næringarupplýsingar

Vegna óska margra viðskiptavina sinna hefur McDonalds-hamborgarakeðjan ákveðið að gefa upp næringarupplýsingar um vörur sínar á neytendaumbúðunum. Hingað til hefur einungis verið hægt að nálgast þær upplýsingar í sérstökum bæklingum sem hægt er að biðja um í afgreiðslu staðanna.

Sjá næstu 50 fréttir