Innlent

Ritstjórar DV dæmdir

Mikael Torfason ritstjóri DV
Mikael Torfason ritstjóri DV

Ritstjórar DV þurfa að greiða 600.000 krónur vegna ummæla sem viðhöfð voru á forsíðu blaðsins um Ásmund Gunnlaugsson jógakennara 8. október í fyrra. Ómerk voru ummælin "var fjarlægður af lögreglu," en þau taldi dómurinn bersýnilega röng. Mikael Torfasyni og þáverandi ritstjóra, Illuga Jökulssyni, var hvorum um sig gert að greiða 50.000 krónur í sekt. Þá þurfa þeir að borga Ásmundi 200.000 krónur í miskabætur og 300.000 krónur í málskostnað.

365 prentmiðlar ehf. sem gefa út DV voru sýknaðir á þeirri forsendu að ritstjórar beri einir ábyrgð á efni blaðs. Kröfu Ásmundar um að honum yrði dæmd ein milljón króna til að kosta birtingu dómsins í fjölmiðlum var vísað frá dómi, en hann fór fór einnig fram á 5 milljónir í miskabætur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×