Innlent

Greiða ekki skatta

Verið er að stofnsetja íslenskt útibú portúgölsku starfsmannaleigunnar Elpalmo frá Portúgal hér á landi. Samkvæmt heimlidum fréttastofu starfa nú þegar á milli 90 og 100 menn á vegum Elpalmo hér á landi.

Svanþór Ævarsson, sem er í forsvari fyrir starfsmannaleiguna segir stofnun útibúsins hérlendis enn vera á frumstigi og engir starfsmenn hafa komið á vegum hennar hingað til lands ennþá. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu hafa þeir starfsmenn sem hafa verið hér á landi á vegum Elpalmo ekki greitt skatta samkvæmt íslenskum skattalögum og starfsmannaleigan þá vísað til tvísköttunarákvæða í lögum. Yfirskattanefnd úrskurðaði á hinn bóginn nýlega að tvísköttunarsamningar giltu ekki um starfsmannalegur á borð við Elpalmo og starfsmönnum þeirra bæri að greiða skatta samkvæmt íslenskum lögum líkt og aðrir þeir sem hér starfa. Vala Valtýsdóttir, lögmaður Elpalmo á Íslandi hefur farið með skattamál fyrirtækisins gagnvart yfirvöldum hérlendis. Hún vildi ekki tjá sig við fréttastofu um það hvort starfsmenn fyrirtækisins hérlendis greiddu skatta samkvæmt úrskurði yfirskattanefndar. Svanþór Ævarsson starfar hjá Stjörnublikki í Kópavogi sem hefur undanfarin ár skipt mikið við Elpalmo í Portúga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×