Innlent

Fyrirséð lokun NMT-kerfis

"Innan tveggja til þrigg­ja ára verðu NMT farsímakerfinu lokað," segir Hrafnkell V. Gíslason, forstjóri Póst- og fjarskipta­stofn­unarinnar. Hrafnkell segir að vegna þessa hafi stofnunin opnað á vef sínum fyrir umræðu um mögulega fram­tíð­ar­notkun 450 MHz tíðni­sviðs­ins sem NMT netið not­ar og óskað eftir umsögnum.

Notendum NMT síma hefur fækkað frá árinu 2000, þegar þeir nálguðust 30 þúsund, en nú segir Hrafnkell að um 20 til 25 þúsund manns noti kerfið. "Mest er það náttúrlega notað af sjófarendum," segir hann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×