Innlent

Voksne mennesker hýtur flestar tilnefningar til Eddunnar

Kvikmynd Dags Kára Péturssonar, Voksne mennesker, hlýtur flestar tilnefningar til Eddu verðlaunanna í ár. Kvikmyndin Strákarnir okkar eftir Robert Douglas og þættirnir um Latabæ koma hljóta næst flestar tilnefningar.

Kvikmyndin Voksne mennesker hlýtur fimm tilnefningar, meðal annars tilnefningu sem mynd ársins og fyrir besta leikstjórinn. Kvikmyndin Strákarnir okkar er einnig í flokknum mynd ársins en myndin hlytur fjórar tilnefningar til Eddu verðlauna. Sömu sögu má segja um þættina um Latabæ en þeir hjóta alls fjórar tilnenfningar. Eddu verðlaunin verða veitt á Nordica Hotel 13. nóvember næstkomandi.

 
 
 

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×