Hér og nú birti myndir í heimildarleysi 28. október 2005 18:37
Tímaritið Hér og nú birti myndir af Strákunum á Stöð 2 og Eiði Smára Guðjohnssen í heimildarleysi og í óþökk ljósmyndaranna. Auðunn Blöndal og Sverrir Þór Sverrisson eru að kanna hvort vinnubrögð blaðsins standist lög. Á forsíðu nýjasta tölublaðs Hér og nú er sagt frá ferð Auðuns, Sverris Þórs, betur þekktum sem Sveppa, og Eiði Smára til Las Vegas. Á forsíðunni og inni í blaðinu eru vel á þriðja tug mynda úr ferðinni, bæði af þremenningunum og konum þeirra sem voru með í för, við hin ýmsu tækifæri. Myndirnar tóku ferðafélagarnir sjálfir og ætluðu þær ekki til opinberrar birtingar. Auðunn segir að myndirnar hafi verið vistaðar á læstri heimasíðu konu Auðuns sem ekki sé hægt að skoða án þess að hafa lykilorð. Heimasíðan sem um ræðir er læst; það kannaði fréttamaður í dag. Blaðamaður Hér og nú segist hins vegar hafa fengið senda slóð sem vísar beint á myndirnar og að sú slóð hafi ekki verið læst. Blaðamaðurinn sendi fréttastofu þessa slóð og ekki þurfti lykilorð til að komast inn á hana. Þar voru myndir, en ekki myndirnar sem birtust í blaðinu, enda var búið að taka þær út. Auðunn segir blaðamann tímaritsins hafa hringt í sig til að biðja um viðtal vegna ferðarinnar. Hann hafi neitað því og beðið hann um að birta ekki myndirnar, en án árangurs. Þá segist hann hafa spurt blaðamanninn hvernig hann hafi komist yfir myndirnar, en hann hafi neitað að gefa það upp. Bæði Auðunn og Sverrir Þór segjast vera að kanna hvort vinnubrögð Hér og nú séu lögleg. Sigríður Rut Júlíusdóttir héraðsdómslögmaður segist telja að myndbirting af þessu tagi sé ólögleg, að því gefnu að hún sé í óþökk eigenda myndanna og að hún eigi ekki erindi til almennings. Að því leyti sé þetta mál nokkuð frábrugðið tölvupóstsbirtingum Fréttablaðsins, því þar megi að minnsta kosti færa rök fyrir því að almenningur eigi rétt á birtingu.
Fréttir Innlent Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Á spítala eftir misheppnaða aftöku Erlent Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Fleiri fréttir Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Ekkert svigrúm í tengslum við kjarasamninga og tvísýnt með framhaldið Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Lægðin grynnist í dag en von á annarri Bíl ekið á ljósastaur Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Sjá meira