Innlent

Veður að versna á Suður- og Vesturlandi

Veturinn hefur heldur betur minnt á sig á Suður- og Vesturlandi í nótt og í morgun. Borgarbúar vöknuðu við fyrstu snjókomuna þetta haustið og nokkuð var um árekstra í morgun. Spáð er stormi á Suður- og Vesturlandi þegar líður á daginn með töluverðri ofankomu sem færir sig svo yfir á Norðurland en búist er við að veðrið gangi niður eftir hádegi á morgun.

Veður hefur verið vont og farið versnandi á Suður- og Vesturlandi í morgun. Mest hefur snjóað á sunnanverðu landinu þar sem vindurinn hefur smám saman aukist.

Í Vestmannaeyjum hefur verið töluvert hvassviðri og ofankoma og segir lögregla að hálfgerð ófærð sé í bænum. Hún hefur aðstoðað fjölmargar bílstjóra sem hafa fest sig í morgun en engin umferðaróhöpp hafa þó orðið. Að sögn lögreglunnar á Selfossi hefur umferð í hennar umdæmi gengið vel fyrir sig. Hún ók hins vegar fram á tvo erlenda ferðamenn á hjólum á Hellisheiði sem hugðust ná Herjólfi en þeir afþökkuðu boð um far.

Talsverðar umferðartafir urðu víða á Reykjavíkursvæðinu í morgun vegna hálku og særok og ágjöf eru á Sæbrautinni. Lögregla hefur fengið tilkynningu um sjö árekstr en ekki er vitað um slys. Aðalumferðaræðar í borginni voru ekki saltaðar í morgun, en mjög hált var á bæði Sæbraut, Hringbraut og Miklubraut og því gekk umferð mjög hægt fyrir sig í morgunárið.

Allt flug til og frá Reykjavíkurflugvelli hefur legið niðri í morgun vegna hvassviðrisins. Samkvæmt upplýsingum sem fengust hjá Flugfélagi Íslands verður næst kannað hvort hægt verði að fljúga klukkan tíu mínútur yfir tvö. Hins vegar siglir Herjólfur tvisvar í dag milli lands og Eyja.

Eins og fyrr segur hefur vindurinn hefur verið aukast í morgun á Suðurlandi og svo á hann að vaxa á Vesturlandi eftir hádegið með töluverðri ofankomu. Hins vegar hvessir ekki á Norðurlandi fyrr en í kvöld en þá snýst vindurinn úr norðri eða norðvestri yfir í norðsvestanátt. Búist er við að veðrið fari svo að ganga niður eftir hádegi á morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×