Innlent

Sjónvarpið rukkar sama og það borgar

@Mynd -FoMed 6,5p CP:Ólafur Jóhannesson kvikmyndagerðarmaður Við gerð Blindskers. Um uppgjör  hennar og skoðun Ólafs á RÚV má lesa á www.poppoli.com/blindsker_uppgjor.html
@Mynd -FoMed 6,5p CP:Ólafur Jóhannesson kvikmyndagerðarmaður Við gerð Blindskers. Um uppgjör hennar og skoðun Ólafs á RÚV má lesa á www.poppoli.com/blindsker_uppgjor.html

"Ríkisútvarpið veldur ekki hlutverki sínu. Það borgar fyrir íslenskt efni af meðaumkun og okrar á kvikmyndagerðarmönnum þegar þeir vilja nota efni úr safni þess," segir Ólafur Jóhannesson kvikmyndagerðarmaður.

Ólafur gerði meðal annars heimildarmyndina Blind­sker sem fjallar um ævi og störf Bubba Morthens og sýnd var á síðasta ári. Ríkisútvarpið greiddi Ólafi 1,5 milljónir króna fyrir sýningarrétt myndarinnar í sjónvarpi en hann þurfti að greiða stofnuninni 1,4 milljónir fyrir not á efni úr safni Sjónvarpsins.

Alls notaði Ólafur átján mínútur af safnaefni en myndin er 100 mínútur að lengd. Ólafi var að vissu leyti nauðugur einn kostur að selja Ríkisútvarpinu sýningarréttinn því ellegar hefði hann þurft að greiða meira fyrir safnaefnið.

"Ég fékk að nota þetta efni gegn því að ég myndi selja RÚV myndina. Mér var sagt að ég yrði að greiða miklu meira fyrir safnaefnið ef ég seldi hana til Stöðvar tvö."

Blindsker hlaut góðar viðtökur, sló aðsóknarmet heimildarmynda í kvikmyndahúsum og hlaut Eddu­verðlaun sem besta heimildarmyndin 2004. Gerð hennar kostaði 14,5 milljónir króna en innkoman nemur 11,3 milljónum. Mismunurinn er 3,2 milljónir.

Ólafur segir mikilvægt fyrir heimildarmyndagerð í landinu að kvikmyndagerðarmenn geti notað safnaefni Sjónvarpsins gegn eðlilegu umsýslugjaldi.

"Safnaefnið er ekki einkaeign Ríkisútvarpsins heldur almenningseign. RÚV á að safna samtímaefni og kvikmyndagerðarmenn eiga að spegla það framan í þjóðina. Þetta má ekki vera tekjustofn fyrir RÚV enda ekki í djúpa vasa að seilast." Ólafur segir örðugt að vinna að heimildarmyndagerð við þær aðstæður sem hér ríkja.

"Það er ansi hart ef við þurfum að flytja í burtu. Það er ekki nóg að Kvikmyndamiðstöðin standi sig vel, þetta er ekki hægt nema Ríkissjónvarpið spili með," segir Ólafur og hvetur nýjan útvarpsstjóra til að gera breytingar enda beri Ríkisútvarpinu að styðja við bakið á menningunni.

"Mér fannst Ólafur vera sáttur þegar hann samdi við Ríkis­útvarpið um sýningarrétt á Blind­skeri og verð á efni úr safni Sjónvarpsins. Þetta var sú niðurstaða sem varð ofaná og undirritaður var samningur um eftir að fleiri kostir höfðu verið skoðaðir. Athugasemdir hans nú koma mér algjörlega á óvart," segir Bjarni Guðmundsson, framkvæmdastjóri Sjónvarps.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×