Fleiri
Yngsti lifrarþegi landsins 27.10.2005 20:00 Ólíklegt að gerð verði undantekning fyrir Íslendinga Það þarf ekki að vera slæmt fyrir Íslendinga að þjóðaröryggisráðgjafa Bandaríkjanna hafi verið falið að leiða varnarmálin á Íslandi til lykta. Þó er ólíklegt að gerð verði undantekning fyrir Íslendinga og ekki dregið saman í varnarviðbúnaði hér á landi, að sögn sérfræðings í öryggismálum. 27.10.2005 19:28 Brosað í gegnum tárin Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti, sagði Flateyringum að þeir ættu vináttu sína, þegar hún flutti ávarp á minningarfundi um þá sem fórust í snjóflóðinu fyrir tíu árum. Íbúar bæjarins gátu ekki haldið aftur af tárunum, þegar björgunarsveitarmenn og sjóliðar Landhelgisgæslunnar, komu til fundarins. 27.10.2005 19:26 Norrænt samstarf að verða útflutningsvara Norðurlandasamstarfið og norrænt samfélag er að verða að útflutningsvöru, segir Rannveig Guðmundsdóttir, forseti Norðurlandaráðs, en þingi ráðsins lauk í Reykjavík í dag. Hún segir að hrakspár um að samstarf norrænu landanna yrði óþarft við inngöngu sumra þeirra í ESB, hafi ekki gengið eftir. 27.10.2005 19:26 Vilja Íran úr SÞ Ísraelsk stjórnvöld krefjast þess að Írönum verði vísað úr Sameinuðu þjóðunum vegna ummæla forseta landsins um að þurrka ætti Ísrael út af landakortinu. Ummælin hafa víða verið fordæmd. 27.10.2005 19:22 Aðkeypt sérfræðiaðstoð hefur tvöfaldast Aðkeypt sérfræðiaðstoð ríkisstofnana og ráðuneyta hefur nærri tvöfaldast frá árinu 1998 samkvæmt úttekt ríkisendurskoðunar. Jóhanna Sigurðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, telur nær að takmarka þessi útgjöld í stað þess að skera niður hjá þeim sem minnst hafa. 27.10.2005 19:19 Starfsmenn Flögu ósáttir Starfsmenn Flögu eru ósáttir við hvernig staðið var að uppsögnum en fjörtíu manns misstu vinnuna í vikunni. Starfsemin flyst í auknum mæli til Bandaríkjanna. 27.10.2005 19:14 Hagkerfið komið að ystu mörkum Forstöðumaður Hagfræðistofnunar telur íslenska hagkerfið komið að þolmörkum varðandi útgáfu erlendra aðila á skuldabréfum í íslenskum krónum en hún fór yfir hundrað milljarða króna í gær. Hann segir þó ástandið ekki alslæmt. 27.10.2005 19:13 Hagkerfið komið að þolmörkum Forstöðumaður Hagfræðistofnunar telur íslenska hagkerfið komið að þolmörkum varðandi útgáfu erlendra aðila á skuldabréfum í íslenskum krónum en hún fór yfir hundrað milljarða króna í gær. Hann segir þó ástandið ekki alslæmt. 27.10.2005 19:07 Sjá næstu 50 fréttir
Samþykkt að selja hitaveitu Ólafsfjarðar Meirihluti bæjarstjórnar Ólafsfjarðar samþykkti á fundi sínum í gærkvöldi að selja hitaveitu bæjarins til Norðurorku á Akureyri fyrir 535 milljónir króna. Talsverð andstaða hefur verið meðal bæjarbúa við þessum áformum, en megnið af söluandvirðinu verður notað til að greiða niður skuldir bæjarins. 28.10.2005 08:30
Greint frá hvort kært verði fyrir uppljóstrun Patrick Fitzgerald, sem farið hefur fyrir rannsókn á því hvernig nafni leyniþjónustukonu innan bandarísku leyniþjónustunnar var lekið í bandaríska fjölmiðla, greinir í dag frá því hvort einhver eða einhverjir verði ákærðir fyrir uppljóstrunina. 28.10.2005 08:15
Aðalbjörg sæmd umhverfisverðlaunum Útgerðin Aðalbjörg sf. í Reykjavík hlaut umhverfisverðlaun Landssambands íslenskra útvegsmanna. Bræðurnir Sigurður, Guðbjartur og Stefán Einarssynir, sem eiga Aðalbjörgu, tóku við verðlaununum úr hendi Einars K. Guðfinnssonar sjávarútvegsráðherra á landsfundi LÍÚ í gær. 28.10.2005 08:00
Volvo og Atlas grunuð um mútur Sænsku fyrirtækin Volvo og Atlas Copco og tuttugu og eitt danskt fyrirtæki, eru í hópi 2,400 fyrirtækja í 66 löndum, sem grunuð eru um mútustarfsemi í olíuviðskiptunum við Íraka. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu um áætlunina Olía fyrir mat. 28.10.2005 08:00
Heimamenn afar ósáttir Vestmannaeyingar eru ósáttir við að heimsókn þingmanna Suðurkjördæmis, sem hefjast átti í dag, skyldi vera frestað fram í næstu viku vegna slæms veðurútlits. 28.10.2005 07:45
Sjö Palestínumenn drepnir í loftárásum Ísraela Sjö Palestínumenn létust og fimmtán særðust í loftárás Ísraelshers á Gaza-svæðið í gær. Fórnarlömbin voru á leið frá kvöldbænum þegar árásin var gerð. Einn þeirra sem lést var Shahdi Mhanna, einn æðstu manna uppreisnarhópsins Íslamska-Jihad. 28.10.2005 07:30
Einstaklingar tvöfalda lántökur Lántökur einstaklinga voru meira en tvöfalt hærri undir lok síðasta mánaðar en þær voru árið áður. Þetta kemur fram í Hagvísum Seðlabankans þar sem kemur fram að útlán bankanna jukust um 59 prósent á einu ári. Útlán til fyrirtækja jukust um 42 prósent á sama tíma og útlán til einstaklinga jukust um 118 prósent. 28.10.2005 07:26
Búast við hækkun vaxta af húsnæðislánum Allt stefnir í að vextir af húsnæðislánum hækki alveg á næstunni þar sem vextir á skuldabréfamarkaði hækka nú daglega. Sérfræðingar KB banka segja að miðað við stöðuna núna þyrftu vextir Íbúðalánasjóðs til dæmis að vera 4,65 prósent en ekki 4,15, eins og þeir eru nú. 28.10.2005 07:16
Bandaríkjamenn kaupa flensulyf Bandaríkjamenn eru farnir að vera uggandi vegna fuglaflensunnar, líkt og Evrópubúar. 28.10.2005 07:15
Grunaðir um að skipuleggja árás í Danmörku Fjórir múslímar sem voru handteknir í Kaupmannahöfn í gær ætluðu að gera hryðjuverkaárásir í Evrópu, að öllum líkindum i Danmörku. Mennirnir fjórir eru á aldrinum sextán til tuttugu og ára og eru allir danskir ríkisborgarar. 28.10.2005 07:11
Tvískattlagt á leið til Reykjavíkur Umræðan um lagningu Sundabrautar hefur að undanförnu legið nokkuð í skugga flugvallarumræðunnar. Þrjár lausnir hafa verið kannaðar á fyrsta áfanganum sem er þverun Kleppsvíkur frá Gufuneshöfða. Þær eru í fyrsta lagi hábrú sem kæmi niður við Sæbraut, í öðru lagi göng undir sundið og í þriðja lagi innri leið, nær Elliðaárdal, með lábrú. 28.10.2005 07:00
Áfengisauglýsingar hafa aukist í íslenskum prentmiðlum Í skýrslum sem Lýðheilsustöð lét gera yfir auglýsingar, kynningar og umfjöllun um áfengi og léttöl í íslenskum prentmiðlum, kemur fram að áfengisauglýsingar hafa aukist töluvert í íslenskum prentmiðlum á síðustu árum. 28.10.2005 07:00
Háskóli Íslands hlýtur viðurkenningu Jafnréttisráðs Háskóli Íslands hlýtur viðurkenningu Jafnréttisráðs árið 2005. Meginástæða þeirrar ákvörðunar er þau tímamót sem urðu í sögu skólans nú í sumar, þegar kona var í fyrsta skipti kjörin rektor við Háskóla Íslands. 28.10.2005 07:00
Verið að meta tjón af völdum vatnavaxta Búið er að tilkynna um tjón í 16 byggingum á Höfn í Hornafirði. Ekki liggur enn fyrir hversu mikið tjón varð af völdum þeirra miklu vatnavaxta sem áttu sér stað á Hornafirði nýverið en mat stendur yfir. 28.10.2005 07:00
Stendur vörð um styrkina Jacques Chirac Frakklandsforseti krafðist þess á leiðtogafundi Evrópusambandsins sem haldinn var í grennd við Lundúnir í gær að ráðamenn hinna aðildarríkjanna sýndu landbúnaðarstyrkjakerfi sambandsins "algjöra virðingu". Margir innan sambandsins þrýsta hins vegar á um að kerfið verði stokkað alveg upp í tengslum við gerð fjárlagaramma sambandsins fyrir tímabilið 2007 til 2013. 28.10.2005 06:45
McDonalds merkja matinn Vegna óska margra viðskiptavina sinna hefur McDonalds-hamborgarakeðjan ákveðið að gefa upp næringarupplýsingar um vörur sínar á neytendaumbúðunum. 28.10.2005 06:45
Uppnám vegna þingforseta Viðræður um myndun samsteypustjórnar hægriflokkanna tveggja sem unnu þingkosningarnar í Póllandi í síðasta mánuði virðast vera farnar út um þúfur. Donald Tusk, leiðtogi markaðshyggjuflokksins Borgaravettvangs (PO), segist ekki sjá neina möguleika á að halda viðræðunum áfram eftir að stærsti flokkurinn, Lög og réttlæti, kom því í gegn að fulltrúi hans yrði þingforseti. 28.10.2005 06:00
Öldurhús fá undanþágu Breska ríkisstjórnin hefur fallist á áform um að banna reykingar á öllum opinberum innandyrastöðum í Englandi. Undanþágu frá banninu geta klúbbar og krár fengið sem ekki stunda matsölu. Í undirbúningi er víðtækara reykingabann í Skotlandi, Wales og Norður-Írlandi. 28.10.2005 05:30
Endurnýjaður réttur með helgarferð til útlanda Vinnumálastofnun synjaði beiðni starfsmanna 2B ehf. um atvinnuleyfi fyrir 36 Pólverja sem hér hafa verð við störf á hennar vegum. "Ætli verði ekki bara notað þetta klassíska úrræði að menn fari í helgarferð til Köben og komi svo aftur," segir Sveinn Andri Sveinsson, lögmaður 2B, en við það myndi hefjast nýtt þriggja mánaða tímabil ferðamannaáritunar. 28.10.2005 05:00
Nautahakkið reyndist of feitt Danskt nautahakk inniheldur oft töluvert meiri fitu en sagt er til um á pakkningum. Þetta kemur fram í nýrri könnun þar sem meðal annars var mæld fita í nautahakki sem auglýst var að væri að hámarki átta prósent fita. 28.10.2005 05:00
Sektaðir fyrir notkun Q og W Dómstóll í Siirit í Tyrklandi hefur sektað tuttugu Kúrda fyrir að rita stafina Q og W á veggspjöld sem rituð voru á kúrdísku og hengd upp í tilefni nýars, sem hófst í mars að okkar tímatali. Þarlend lög banna notkun stafa sem ekki er að finna í tyrkneska stafrófinu og því var hver og einn Kúrdanna sektaður um sem nemur fimm þúsund krónum, að því er CNN hermir. 28.10.2005 05:00
Nýtt skip í stað Jaxlisins Flutningaskipið Jaxlinn sem selt var til Danmerkur um miðjan þennan mánuð fær fljótlega arftaka. "Og það verður enginn eftirbátur hans," segir Ragnar Magnús Traustason, framkvæmdastjóri Sæskipa sem gerðu út Jaxlinn. 28.10.2005 04:45
Situr inni í tvo mánuði Maður sem viðhafði kynferðislegt og klámfengið tal í fjölmörgum smáskilaboða í farsíma tveggja ungra stúlkna þarf að greiða þeim 400.000 krónur í bætur og var dæmdur í fimm mánaða fangelsi. Hæstiréttur staðfesti í gær fangelsisdóm Héraðsdóms Vesturlands yfir manninum, en hækkaði bótagreiðslur til hvorrar stúlku um 150.000 krónur. 28.10.2005 04:30
Óttast frosthörkur Bretar hafa áhyggjur af því að komandi vetur verði mjög kaldur, en síðustu tíu ár hefur veturinn þar í landi verið mjög hlýr. Í frétt í dagblaðinu The Independent í vikunni kemur fram að menn hafi áhyggjur af almennum orkuskorti en orkuforðinn þar í landi dugir nú aðeins í ellefu daga, samanborið við 55 víðast á meginlandi Evrópu. 28.10.2005 04:00
Þúsundir innlyksa Um 22.000 ferðamenn urðu innlyksa í Cancun og öðrum ferðamannastöðum við Mexíkóflóann, sem urðu illa úti af völdum Wilmu. Fellibylurinn hefur þar með valdið ferðamannaiðnaði Mexíkó miklum búsifjum. 28.10.2005 04:00
Abbas heldur sínu striki Mahmoud Abbas, forseti palestínsku heimastjórnarinnar, sagði á palestínska þinginu á miðvikudag að einungis "guðleg íhlutun" gæti komið í veg fyrir að þingkosningar yrðu haldnar í Palestínu 25. janúar næstkomandi. Hamas-samtökin höfðu áður lýst því yfir að þau teldu vopnahlé við Ísraela renna úr gildi yrði kosningunum frestað. 28.10.2005 04:00
Meira að gera eftir rannsókn "Við höfum fengið ný viðskipti frá því að málið kom upp og höfum enga viðskiptavini misst þannig að málið hefur ekki haft tiltakanleg áhrif á reksturinn," segir Jóhannes B. Skúlason, framkvæmdastjóri Skúlason ehf. Húsleit var gerð í húsakynum fyrirtækisins í byrjun mánaðarins að frumkvæði breskrar efnahagsbrotalögreglu í tengslum við meintar blekkingar í viðskiptum og peningaþvætti. 28.10.2005 03:45
Fetaosturinn er grískur Evrópudómstóllinn hefur fellt þann úrskurð að fetaostur sé upprunalega frá Grikklandi og þar af leiðandi hafi Grikkir einkarétt á að framleiða ost undir nafninu "feta". Enda þótt Ísland sé hluti af Evrópska efnahagssvæðinu telur Magnús Ólafsson, forstjóri Osta- og smjörsölunnar, að áhrif dómsins hérlendis séu hverfandi. 28.10.2005 03:30
Reglur tilbúnar fyrir áramót Hrafnkell V. Gíslason, forstjóri Póst- og fjarskiptastofnunar, segir unnið að því að fara yfir lagaákvæði sem lúta að vernd fjarskipta og starfsháttum fjarskiptafyrirtækja með það fyrir augum að búa hugsanlega til vinnureglur þar að lútandi. Þetta er gert í kjölfar þess að Sturla Böðvarsson samgönguráðherra fól stofnuninni að bregðast sérstaklega við vegna frétta í Fréttablaðinu um upphaf Baugsmálsins, en þær byggðu á skjölum sem blaðið komst yfir. 28.10.2005 03:30
Lamdi dyravörð Átján ára piltur brást harkalega við þegar dyravörður á Gauki á Stöng meinaði honum inngöngu skömmu eftir miðnætti í fyrrinótt. Sló hann þá dyravörðinn í skyndingu milli augnanna. Lögreglan kom á svæðið og handsamaði piltinn sem sparkaði í lögreglubílin við handtökuna. 28.10.2005 03:00
Ísraelar vilja láta vísa Írönum úr SÞ Ríkisstjórnir landa heims fordæmdu ummæli Íransforseta um að þurrka ætti Ísrael út af heimskortinu. Lítið var þó um beinar undirtektir við kröfu Ísraela um að gera ætti Íran brottrækt úr Sameinuðu þjóðunum fyrir vikið. 28.10.2005 03:00
Próflaus á stolnum bíl Rúmlega þrítugur maður var dæmdur í fimm mánaða fangelsi fyrir að stela bíl við Barónsstíg í Reykjavík og aka um borgina. Hann hafði áður verið sviptur ökuréttindum. Ökuferðin endaði í Breiðholti, en til að komast inn í bílinn braut maðurinn í honum hliðarrúðu. 28.10.2005 02:00
Fyrsta gervitungli Norðmanna skotið á loft Fysta gervitungli Norðmanna var skotið á loft í gær og heppnaðist geimskotið vel. Yfir áttatíu norskir nemendur tóku þátt í að hanna og smíða gervitunglið. Vefútgáfa norska dagblaðsins Aftenposten segir frá þessu en gervitunglið vegur um eitt kíló. 27.10.2005 21:53
Sjimpansar ekki vinir í raun Sjimpansar eru ekki vinir í raun. Þetta er í stuttu máli niðurstaða rannsóknar vísindamanna við Kaliforníuháskóla í Bandaríkjunum. Athugað var hvort sjimpansar, sem afhentur væri matur, deildu honum með öðrum sjimpönsum sem ekki fengju mat. 27.10.2005 21:52
Ísraelar gera loftárásir á Gaza Sjö Palestínumenn létust í loftárás Ísraelshers á Gaza-svæðinu í kvöld. Samkvæmt fréttum frá Ísraelsstjórn voru þeir sem létust meðlimir í uppreisnarhópnum Íslamska-Jihad. 27.10.2005 21:47
Ofsaakstur í Ártúnsbrekku Ökumaður var tekinn á 155 kílómetra hraða á klukkustund í Ártúnsbrekkunni fyrr í kvöld. Ökumaðurinn var sviptur réttindum á staðnum og getur búist við að þurfa að greiða vænar sektir fyrir athæfið. 27.10.2005 21:42
Ólíklegt að gerð verði undantekning fyrir Íslendinga Það þarf ekki að vera slæmt fyrir Íslendinga að þjóðaröryggisráðgjafa Bandaríkjanna hafi verið falið að leiða varnarmálin á Íslandi til lykta. Þó er ólíklegt að gerð verði undantekning fyrir Íslendinga og ekki dregið saman í varnarviðbúnaði hér á landi, að sögn sérfræðings í öryggismálum. 27.10.2005 19:28
Brosað í gegnum tárin Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti, sagði Flateyringum að þeir ættu vináttu sína, þegar hún flutti ávarp á minningarfundi um þá sem fórust í snjóflóðinu fyrir tíu árum. Íbúar bæjarins gátu ekki haldið aftur af tárunum, þegar björgunarsveitarmenn og sjóliðar Landhelgisgæslunnar, komu til fundarins. 27.10.2005 19:26
Norrænt samstarf að verða útflutningsvara Norðurlandasamstarfið og norrænt samfélag er að verða að útflutningsvöru, segir Rannveig Guðmundsdóttir, forseti Norðurlandaráðs, en þingi ráðsins lauk í Reykjavík í dag. Hún segir að hrakspár um að samstarf norrænu landanna yrði óþarft við inngöngu sumra þeirra í ESB, hafi ekki gengið eftir. 27.10.2005 19:26
Vilja Íran úr SÞ Ísraelsk stjórnvöld krefjast þess að Írönum verði vísað úr Sameinuðu þjóðunum vegna ummæla forseta landsins um að þurrka ætti Ísrael út af landakortinu. Ummælin hafa víða verið fordæmd. 27.10.2005 19:22
Aðkeypt sérfræðiaðstoð hefur tvöfaldast Aðkeypt sérfræðiaðstoð ríkisstofnana og ráðuneyta hefur nærri tvöfaldast frá árinu 1998 samkvæmt úttekt ríkisendurskoðunar. Jóhanna Sigurðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, telur nær að takmarka þessi útgjöld í stað þess að skera niður hjá þeim sem minnst hafa. 27.10.2005 19:19
Starfsmenn Flögu ósáttir Starfsmenn Flögu eru ósáttir við hvernig staðið var að uppsögnum en fjörtíu manns misstu vinnuna í vikunni. Starfsemin flyst í auknum mæli til Bandaríkjanna. 27.10.2005 19:14
Hagkerfið komið að ystu mörkum Forstöðumaður Hagfræðistofnunar telur íslenska hagkerfið komið að þolmörkum varðandi útgáfu erlendra aðila á skuldabréfum í íslenskum krónum en hún fór yfir hundrað milljarða króna í gær. Hann segir þó ástandið ekki alslæmt. 27.10.2005 19:13
Hagkerfið komið að þolmörkum Forstöðumaður Hagfræðistofnunar telur íslenska hagkerfið komið að þolmörkum varðandi útgáfu erlendra aðila á skuldabréfum í íslenskum krónum en hún fór yfir hundrað milljarða króna í gær. Hann segir þó ástandið ekki alslæmt. 27.10.2005 19:07