Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Eitt tjald við Kárahnjúka Tveir einstaklingar í einu tjaldi mynda nú mótmælendabúðirnar sem andstæðingar Kárahnjúkavirkjunar eru að koma þar upp. Fimm til viðbótar bætast við fyrir nóttina. 23.6.2005 00:01
Þriðjungur ólöglegur Hópur tónlistarútgefenda hefur gefið út skýrslu þar sem því er haldið fram að einn af hverjum þremur tónlistargeisladiskum sem seldust í heiminum á síðasta ári hafi verið útgefinn í trássi við lög um höfundarrétt. 23.6.2005 00:01
Stuðmenn og Bubbi stíga á stokk Á fimmtudagskvöld í næstu viku verða haldnir íslenskir góðgerðartónleikar í miðborg Reykjavíkur undir nafninu 8 Líf til að vekja athygli á bágri stöðu þjóða í þriðja heiminum. 23.6.2005 00:01
Sjö mættir á svæðið Enn hafa fáir látið sjá sig í alþjóðlegum tjaldbúðum sem til stendur að halda úti á virkjanasvæðinu við Kárahnjúka í sumar. 23.6.2005 00:01
Þrýst á um Vaðlaheiðargöng Ákveðið hefur verið að breyta undirbúningsfélagi vegna Vaðlaheiðarganga í framkvæmdafélag og stórauka hlutafé. Aðstandendur verkefnisins segja fjármálastofnanir áhugasamar um fjármögnun en eftir á að semja við samgönguyfirvöld. 23.6.2005 00:01
Óslökkvandi ófriðarbál Ekkert lát er á vargöldinni í Írak en síðastliðinn hálfan annan sólarhring hafa tæplega fjörutíu manns beðið þar bana. Setið er um líf þeirra súnnía sem vilja taka þátt í stjórnmálauppbyggingu landsins. 23.6.2005 00:01
Evrópusambandið verður að breytast Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, brýndi fyrir Evrópuþingmönnum í gær nauðsyn þess að Evrópusambandið tæki róttækum breytingum, ella myndi það líða undir lok. 23.6.2005 00:01
Sárnar að fá ekki viðbrögð Stuðningsmenn Arons Pálma Ágústssonar, hinn svokallaði RJF-hópur, ætlar að halda út til Bandaríkjanna um miðjan júlí ef engin viðbrögð hafa þá borist frá Náðunar- og reynslulausnanefnd Texas-ríkis vegna erinda hópsins. 23.6.2005 00:01
Fundað um ágreiningsmál Forsvarsmenn Geymis ehf. og ASÍ funduðu í gær vegna máls pólska verkafólksins sem dvalið hefur hér á landi við störf að undanförnu og telur sig hlunnfarið. 23.6.2005 00:01
Skjólstæðingum sagt að fara annað Það ætti enginn að þurfa að vera án heimilislæknis og heilsugæslustöðvar að mati Guðmundar Einarssonar, forstjóra Heilsugæslunnar í Reykjavík. Hann segir að reiknað sé með að allir fái þjónustu í sínu hverfi þótt það sé ekki hægt að standa við það alls staðar. 23.6.2005 00:01
Tíuþúsundföld eyðing Samhliða því að flutningar á sjó hafa aflagst smám saman undanfarin ár hafa þungaflutningar um þjóðvegi landsins margfaldast. Viðmiðunartölur gera ráð fyrir að vegslit af völdum þungs bíls á borð við vöruflutningabíl sé um það bil 10 þúsund sinnum meira en af völdum fólksbíls. 23.6.2005 00:01
Grípa verður til aðgerða Öldrun þjóða í Evrópu og Bandaríkjunum getur komið af stað alvarlegum þrengingum í efnahagskerfinu ef ekki veður gripið til viðeigandi aðgerða að mati Gylfa Magnússonar. 23.6.2005 00:01
Eldur kviknaði í rútu Eldur kviknaði í rútubíl upp úr klukkan fjögur í nótt þar sem hann stóð á athafnasvæði skammt frá Helguvíkurhöfn á Reykjanesi. Slökkviliðið í Keflavík var kallað á vettvang til að slökkva eldinn og gekk það vel. Grunur leikur á að kveikt hafi verið í bílnum en ekki er vitað hverjir brennuvargarnir kunna að vera. 22.6.2005 00:01
Verkfalli afstýrt á elleftu stundu Samningamönnum fimm hundruð tæknimanna hjá norska olíurisanum Statoil og stjórnendum fyrirtækisins tókst á elleftu stundu í gærkvöldi að afstýra verkfalli tæknimannanna sem átti að hefjast á miðnætti. 22.6.2005 00:01
Jarðskjálftahrina við Kleifarvatn Jarðskjálftahrina hófst rétt vestan við Kleifarvatn á fimmta tímanum í nótt. Sterkasti skjálftinn mældist klukkan korter fyrir átta í morgun og var um 3,4 á Richter samkvæmt sjálfvirkum mælingum en eftir er að reikna styrkinn út nákvæmlega. Skjálftarnir fundust í Hafnarfirði, Reykjavík og víðar. 22.6.2005 00:01
Kynferðisbrotum fækkaði um 25% Tilkynningum um kynferðisbrot í Reykjavík fækkaði um fjórðung í fyrra, innbrotum fækkaði um 12%, en fíkniefnabrotum fjölgaði um 3%. Karlar voru rúm áttatíu prósent þeirra sem handteknir voru. Þetta kemur fram í nýrri ársskýrslu lögreglustjórans í Reykjavík fyrir árið 2004. 22.6.2005 00:01
Írak: Fá borgað fyrir hverja árás Það er græðgi en ekki hugsjón sem knýr uppreisnarmenn í Írak til ódæðisverka. Þetta er álit hershöfðingja Bandaríkjamanna í Írak sem segir fyrrverandi stjórnarmenn úr Baath-flokki Saddams Hussein borga uppreisnarmönnum á bilinu sjö til tíu þúsund krónur fyrir hverja árás. 22.6.2005 00:01
Festu bílinn í á Nokkrir útlendingar lentu í vandræðum þegar þeir festu bíl sinn í lítilli á uppi á Hrunamannaafrétti í gær og kölluðu eftir aðstoð. Björgunarsveit var send þeim til hjálpar og náði bílnum upp og sluppu útlendingarnir því með skrekkinn, heilir á húfi. 22.6.2005 00:01
Skuldir Íraka felldar niður? Stjórnmálamenn frá áttatíu löndum eru samankomnir í Brussel til þess að ræða framtíð Íraks. Meðal þess sem búist er við að lagt verði til er að skuldir Íraka verði að miklu leyti felldar niður og þeim boðið að taka þátt í starfi alþjóðastofnana. 22.6.2005 00:01
44 látnir í flóðunum Minnst fjörutíu og fjórir hafa látist og hundrað þúsund yfirgefið heimili sín í suðurhluta Kína í kjölfar gríðarlegra flóða og aurskriða. Ár hafa flætt yfir bakka sína og í gærkvöldi hafði áin Shi Jiang náð nærri tuttugu og fimm metra hæð sem er meira en sjö metrum yfir hættumörkum. 22.6.2005 00:01
Tekið illa í auknar vísindaveiðar Áform Japana um að auka vísindaveiðar við Suðurskautslandið og stækka veiðisvæðið mættu mikilli andstöðu þegar Alþjóðahvalveiðiráðið samþykkti í atkvæðagreiðslu, á fundi sínum í Ulsan í Suður-Kóreu í morgun, að skora á þá að draga úr vísindaveiðum. 22.6.2005 00:01
Uppbygging gengur hægt Uppbygging í Aceh-héraði í kjölfar jarðskjálftans annan í jólum gengur afar hægt. Þetta kemur fram í skýrslu Alþjóðaþróunarstofnunar Bandaríkjanna um ástandið í Indónesíu sem birtist í gær. 22.6.2005 00:01
Nektarmótmæli í Washington Hópur fólks í Washington fletti sig klæðum fyrir utan spænska sendiráðið í gær til þess að mótmæla nautaati. Mótmælendurnir klæddust skóm, rauðum treflum og plasthornum einum fata en höfðu auk þess mótmælaspjöld fyrir framan það allra heilagasta. 22.6.2005 00:01
Engin tjöld enn á Kárahnjúkum Enn virðast engin tjöld mótmælenda farin að rísa á Kárahnjúkasvæðinu. Lögreglan á Egilsstöðum fór í eftirlitsferð um svæðið í morgun og ætlar að vera þar fram eftir degi. 22.6.2005 00:01
Grasspretta stutt á veg komin Grasspretta á túnum bænda er víða tveimur til þremur vikum skemur á veg komin en verið hefur undanfarinn áratug og dæmi eru um að bændur hafi orðið heylausir í vor þar sem þeir þurftu að hafa fé lengur á húsum en undanfarin ár. 22.6.2005 00:01
Sjálfsvígum karla hefur fækkað Sjálfsvígum karla hefur fækkað undanfarin þrjú ár en ekki sjálfsvígum kvenna. Landlæknir kynnti í dag átakið „Þjóð gegn þunglyndi“. 22.6.2005 00:01
Skyndilokanir vegna kolmunnaveiða Hafrannsóknastofnun hefur nú í fyrsta sinn þurft að grípa til skyndilokana vegna kolmunnaveiða þar sem óheyrilega mikið af þorski hefur veiðst með kolmunnanum, utan allra kvóta. Auk þess endar eðalþorskurinn svo í bræðslu eins og hver annar skítfiskur. 22.6.2005 00:01
Bændur fá 70% tekna frá ríkinu Íslenskir bændur fá hærra hlutfall tekna sinna frá hinu opinbera en bændur í öðrum löndum OECD. Nærri sjötíu prósent tekna íslenskra bænda koma frá hinu opinbera og aðeins bændur í Sviss og Noregi fá viðlíka hátt hlutfall tekna sinna frá ríkinu. 22.6.2005 00:01
60 skjálftar síðan í nótt Jarðskjálftahrina hófst rétt vestan við Kleifarvatn á fjórða tímanum í nótt. Samkvæmt upplýsingum frá skjálftavakt Veðurstofu Íslands hafa alls um sextíu skjálftar mælst á svæðinu síðan klukkan þrjú í nótt. 22.6.2005 00:01
Mikil frjósemi á Súðavík Súðvíkingar telja nýja vatnsveitu í bænum eiga þátt í mikilli frjósemi í hreppnum síðustu ár. Á vef Bæjarins besta er haft eftir Ómari Má Jónssyni, sveitarstjóra Súðvíkinga, að „sumar konurnar séu vart orðnar léttari þegar þær verða óléttar aftur, sem er náttúrlega mjög ánægjulegt og skemmtilegt.“ 22.6.2005 00:01
Ráðherra boðar til fundar Sjávarútvegsráðherra hefur boðað til blaðamannafundar í fundasal sjávarútvegsráðuneytisins klukkan 15. Efni fundarins er ákvörðun heildaraflamarks. 22.6.2005 00:01
Íslenskir bændur styrktir mest Bændur á Íslandi fá hlutfallslega hæstan ríkisstyrk allra þjóða innan OECD, eða 69 prósent allra tekna sinna. Það er þrefalt hærra hlutfall en bændur í OECD ríkjunum þrjátíu fá að meðaltali. Stofnunin hvetur til endurskoðunar styrkjakerfisins. </font /></b /> 22.6.2005 00:01
Hægðu á þér „Hægðu á þér – tökum slysin úr umferð“ er yfirskrift þjóðarátaks Vátryggingafélags Íslands gegn umferðarslysum sem félagið stendur nú fyrir fimmta sumarið í röð. Að þessu sinni er athyglinni beint að þeirri staðreynd að beint samhengi er á milli of mikils hraða og alvarlegra afleiðinga umferðarslysa. 22.6.2005 00:01
40 uppreisnarmenn hafa fallið Meira en fjörutíu uppreisnarmenn hafa fallið í bardögum við hermenn í suðurhluta Afganistans undanfarinn sólarhring. Þá lést einn hermaður og sjö slösuðust í skotbardögum sem stóðu yfir í ellefu klukkustundir í gær. 22.6.2005 00:01
Dæmdur fyrir fjölda brota Maður á fertugsaldri var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmdur í eins og hálfs árs fangelsi fyrir fjölmörg brot, m.a. fyrir tilraun til ráns á Péturspöbb á Höfðabakka, hann var tekinn próflaus og undir áhrifum fíkniefna við akstur, braut vopnalög og sveik vörur út úr verslunum með skjalafalsi. 22.6.2005 00:01
Sagt upp vegna barnakláms Yfirmenn sænska dagblaðsins Aftonbladet kærðu í dag blaðamann á blaðinu til lögreglu vegna gruns um að hann hefði náð í barnaklámefni á Netinu. Honum var jafnframt sagt upp störfum fyrir brot á innanhússreglum og siðareglum blaðsins. Innra eftirlit blaðsins kom upp um athafnir blaðamannsins. 22.6.2005 00:01
Óvandaðar umsagnir Eflingar Vinnumálastofnun hefur sent frá sér athugasemd vegna yfirlýsingar stéttarfélagsins Eflingar um málefni Pólverjanna tólf sem kvörtuðu til stéttarfélagsins undan bágum kjörum og slæmum aðbúnaði. Í athugasemdinni segir m.a. að Efling hafi þann háttinn á að hafna nánast öllum umsóknum á grundvelli atvinnuástandsins í landinu. Því sé ekki um að ræða vandaðar og ígrundaðar umsagnir. 22.6.2005 00:01
Í forsæti Eystrasaltsráðsins Ísland tekur við formennsku í Eystrasaltsráðinu í fyrsta sinn þann 1. júlí næstkomandi og mun gegna formennskunni í eitt ár. Helstu áhersluatriðin í formennskutíð Íslands verða samvinna aðildarríkja á sviði orku- og umhverfismála, samvinna Eystrasaltsráðsins við önnur svæðisbundin samtök og efling á starfi nefnda um efnahagssamvinnu og um málefni barna. 22.6.2005 00:01
Hugsanleg tollalækkun Tollar á landbúnaðarvörum munu hugsanlega lækka um 50 til 70 prósent á næsta ári í kjölfar nýs samnings við alþjóðaviðskiptastofnunina WTO sem unnið er að. Þetta segir Ólafur Friðriksson skrifstofustjóri í landbúnaðarráðuneytinu en í nýrri skýrslu efnahags- og framfarastofnunarinnar OECD kemur fram að opinberir styrkir til bænda séu hlutfallslega hæstir á Íslandi. 22.6.2005 00:01
Sveitarfélagið sýknað af kröfunni Sveitarfélagið Rangárþing eystra var í dag sýknað af kröfu Eggerts Haukdals, fyrrum alþingismanns og oddvita Vestur-Landeyjahrepps til þrjátíu ára, um greiðslu ríflega fjögurra milljóna króna með vöxtum og dráttarvöxtum. 22.6.2005 00:01
Standa við auglýsingar sínar Byggingavörufyrirtækið Byko hefur lagt fram kvörtun til Samkeppnisstofnunnar vegna auglýsinga Múrbúðarinnar sem birst hafa í fjölmiðlum að undanförnu. Í þeim kemur fram verðsamanburður á vörum hjá Múrbúðinni annars vegar og þremur samkeppnisaðilum hins vegar og er samkeppninni verulega í óhag. 22.6.2005 00:01
Vandræði vegna gjaldtöku Vandræðaástand hefur skapast við Leifsstöð vegna þeirrar ákvörðunar flugvallarstjórnar að taka gjald af öllum er nýta sér skammtímastæði við stöðina. 22.6.2005 00:01
Konur í 40% stjórnarsæta Sænsk yfirvöld íhuga nú að fylgja í fótspor Norðmanna og setja lög sem kveða á um að konur eigi að skipa minnst 40% stjórnarsæta í fyrirtækjum. Norðmenn hafa gefið frest til ársins 2007. Svíar telja þróunina ganga alltof hægt en sem stendur eru tæp 15% stjórnarmanna konur. 22.6.2005 00:01
Ungar konur reyna oftar sjálfsvíg Af þeim hundruðum sem reyna að fremja sjálfsvíg á ári hverju eru tveir þriðju ungar konur. Sjálfsvígum hjá ungum mönnum hefur fækkað verulega á undanförnum þremur árum. Þunglyndi og námsörðugleikar fara oft saman 22.6.2005 00:01
Hætt að prenta Lögbirtingablaðið Hætt verður að prenta Lögbirtingablaðið í núverandi formi frá 1. júlí. Útgáfan verður rafræn frá þeim degi og réttaráhrif auglýsinga í blaðinu verða bundin við hina rafrænu útgáfu. Áfram verður þó hægt að vera áskrifandi að vikulegri prentaðri útgáfu blaðsins en þá þarf að greiða tólf þúsund krónur fyrir prentun og póstburð. 22.6.2005 00:01