Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Bretar haldi sig innandyra Íbúar Suður- og Miðhéraða Englands eru hvattir til að halda sig innan dyra næstu þrjá dagana og forðast sérstaklega útihlaup og aðrar líkamsæfingar. Ástæðan er gríðarleg loftmengun sem magnast upp í hitabylgjunni sem nú gengur yfir landið. 22.6.2005 00:01
180 handteknir vegna barnakláms Lögreglan á Spáni hefur handtekið rúmlega 180 menn sem grunaðir eru um aðild að umfangsmiklum barnaklámshring. Þegar hefur verið gerð húsleit í rúmlega hundrað húsum víða um Spán og hefur gríðarlegt magn af tölvuefni verið gert upptækt. Talið er að mennirnir hafi skipst á myndum af barnaklámi, aðallega af börnum frá Austur-Evrópu. 22.6.2005 00:01
Ný umferðarmerki tekin í gagnið Í þjóðarátaki VÍS gegn umferðarslysum er sjónum að þessu sinni beint að umferðarhraða. Í samvinnu við Vegagerð ríkisins verða sett upp leiðbeinandi viðvörunarmerki á stöðum þar sem mörg slys hafa orðið og fólk hvatt til að draga úr hraða ökutækja. Merktar verða krappar beygjur, brýr og fleiri staðir þar sem slys hafa orðið. 22.6.2005 00:01
Ekkert sést til mótmælenda Ekkert hefur sést til mótmælenda á Kárahnjúkum en þeir hugðust setja upp tjaldbúðir þar í gær á lengsta degi ársins. Lögregla hefur verið á svæðinu í dag en þar hefur verið kalt og var hiti aðeins tvær gráður í morgun. 22.6.2005 00:01
Kom ekki að samrunaheimild Gylfi Magnússon, formaður stjórnar Samkeppniseftirlitsins, vísar á bug yfirlýsingum framkvæmdastjóra Iceland Express um meint vanhæfi samkeppnisyfirvalda til að taka á deilum tengdum Flugleiðum. 22.6.2005 00:01
Slógust tveir við lögreglu Tveir menn um tvítugt voru handteknir snemma í gærmorgun eftir tilraun til að brjótast inn í söluturninn Sunnutorg við Langholtsveg um nóttina. Til mannanna sást þar sem þeir voru að reyna að komast inn um klukkan hálf fimm um nóttina, en að sögn lögreglu virtist sem styggð hafi komið að þeim þegar þjófavarnarkerfi fór í gang. 22.6.2005 00:01
Ungs manns enn leitað Lögregla leitar enn ungs manns sem komst undan í Heiðmörk á mánudagsmorguninn eftir að þar var kveikt í stolnum bíl. Lögreglan í Hafnarfirði var kölluð til og handsamaði hún á staðnum tvo 17 ára pilta og 15 ára gamla stúlku. 22.6.2005 00:01
Kleifarvatnshrina að ganga niður Klukkan hálf átta í gærmorgun reið yfir jarðskjálfti upp á 3,5 á Richter við vestanvert Kleifarvatn á Reykjanesi. Sekúndu fyrr mældist annar um 2,5 á Richter. Að sögn Steinunnar S. Jakobsdóttur, deildarstjóra hjá Veðurstofunni, virtist hrinan í gær vera að ganga niður með eðlilegum hætti. 22.6.2005 00:01
Rotaðist í Brynjudal í Hvalfirði Maður var fluttur á slysadeild Landspítala-Háskólasjúkrahúss eftir vinnuslys í Brynjudal í Hvalfirði nokkru fyrir hádegi í gær. Maðurinn fékk högg á höfuðið og missti við það meðvitund þegar hann var að losa slyskju sem rann til og skall á hann. 22.6.2005 00:01
Eldur í ónýtri rútu Slökkvilið Reykjanesbæjar var kallað að Helguvík rétt eftir klukkan fjögur á aðfararnótt miðvikudags en þar logaði eldur í ónýtri rútu á ruslahaug. Í greinargerð lögreglu um málið kemur fram að tjón hafi ekki hlotist af og slökkvilið slökkti í rútunni. 22.6.2005 00:01
Eggert tapaði í héraði Eggert Haukdal, fyrrum oddviti Vestur-Landeyjahrepps, tapaði í gær máli sem hann höfðaði á hendur hreppnum í febrúar árið 2002 til greiðslu á rúmlega fjórum milljónum króna auk dráttarvaxta. Sveitarfélagið, sem heitir nú Rangárþing eystra, var sýknað af kröfum Eggerts. 22.6.2005 00:01
1000 dagar frá síðasta vinnuslysi Starfsmenn Íslenska járnblendifélagsins á Grundartanga fagna því í dag að 1000 dagar eru liðnir frá því að síðast varð vinnuslys sem leiddi til fjarveru starfsmanns félagsins. Margþætt starf hefur stuðlað að þessum árangri. 22.6.2005 00:01
Karlar leita sér frekar hjálpar Meginástæða þess að sjálfsvígum karla hefur fækkað á undanförnum árum er að þeir eru frekar tilbúnir að ræða vandamál sín og leita sér hjálpar en áður. Þetta segir landlæknir. 22.6.2005 00:01
Óbreyttur heildarkvóti Árni Mathiesen sjávarútvegsráðherra heldur sig við ráðgjöf Hafrannsóknastofnunarinnar og heimilar veiðar á 198 þúsund tonnum af þorski og 105 þúsund tonnum af ýsu á næsta fiskveiðiári. 22.6.2005 00:01
Ríkisendurskoðun hirtir ráðherra Í skýrslu sem Ríkisendurskoðun birti í gær um framkvæmd fjárlaga segir að forstöðumenn og ráðuneyti bregðist of seint við þegar ljóst sé að rekstur stofnana kosti meira en sem nemur fjárveitingum. 22.6.2005 00:01
Varaformannskosning í lagi Sérstök athugun á framkvæmd landsfundar Samfylkingarinnar í maí síðastliðnum leiddi meðal annars í ljós að ekki var reynt að kjósa fyrir aðra í varaformannskjöri flokksins. 22.6.2005 00:01
Forstöðumönnum verði refsað Mörg dæmi eru um að ríkisstofnanir fari fram úr fjárheimildum ár eftir ár en engin dæmi eru hins vegar um að ráðuneyti áminni forstöðumenn eins og lög gera ráð fyrir. Þetta segir ríkisendurskoðandi sem telur alvarlega misbresti á framkvæmd fjárlaga. 22.6.2005 00:01
Flóð í Osló Þúsundir Oslóarbúa urðu strandaglópar á leið til vinnu í morgun þegar einhver mestu vatnsflóð í mörg ár urðu í borginni. Það var ekki vegna rigninga sem hluti Oslóar fór á kaf í vatn heldur höfðu aðalvatnsleiðslur í miðbænum gefið sig. Fólk sem var á ferðinni átti fótum sínum fjör að launa en þrátt fyrir óhappið urðu engin slys á fólki. 22.6.2005 00:01
Gaf virkjanaleyfi á einkajörð Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráðherra braut gegn andmælarétti landeigenda Reykjahlíðar með leyfisveitingu til Landsvirkjunar vorið 2002, samkvæmt dími sem féll í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Leyfið var þó ekki fellt úr gildi en málskostnaður var felldur niður. 22.6.2005 00:01
Hitabylgja í Asíu Um þrjú hundruð manns hafa látist síðustu daga í hitabylgju í Asíu. Flestir þeirra hafa látist í Indlandi, eða hátt í fjögur hundruð manns, um hundrað manns hafa látist í Bangladesh, hátt í sjötíu í hafa látist í Pakistan og rúmlega þrjátíu í Bangladesh. Mestur hefur hitinn orðið í Indlandi þar sem hann hefur náð fimmtíu gráðum á celsíus. 22.6.2005 00:01
Vilja afnám dauðarefsinga Þing Evrópuráðsins samþykkti í gær ályktun þar sem skorað er á rússnesk stjórnvöld að afnema dauðarefsingu, að draga herlið sitt til baka frá Moldóvíu og að saksækja þá sem bera ábyrgð á mannréttindabrotum, einkum í Téténíu. 22.6.2005 00:01
Verðmæti heildaraflans eykst Leyfilegur heildarafli á næsta fiskveiðiári verður ekki meiri en á því fiskveiðiári sem er að ljúka. Samt er búist er við að útflutningsverðmæti aflans aukist um átta milljarða og verði 130 milljarðar króna. 22.6.2005 00:01
Sophia Loren heiðursborgari Ítalska leikkonan Sophia Loren var kjörin heiðursborgari í strandbænum Pozzuoli í Suður-Ítalíu í gær. Leikkonan, sem er sjötug, brast í grát við athöfn sem bæjarbúar héldu henni til heiðurs. 22.6.2005 00:01
Ísraelar hóta loftárásum Ísraelar ætla að bregðast við af fullri hörku ef árásum linnir ekki meðan þeir yfirgefa Gaza-svæðið. Þeir segja loftárásir jafnvel koma til greina. 22.6.2005 00:01
Fundað á Kóreuskaga Nefnd háttsettra embættismanna frá Norður-Kóreu kom á fund suðurkóreskra embættismanna á þriðjudaginn í þessari viku. Suður-Kóreumenn þrýstu á Norður-Kóreu að taka á ný upp viðræður um kjarnorkuvopnamál. 22.6.2005 00:01
Verkfalli aflýst Á þriðjudagskvöld tókst að ná samkomulagi við norska olíuverkamenn og ekkert varð því úr verkfalli þeirra. Deilan snerist um vaktafyrirkomulag fremur en laun. Verð á hráolíu lækkaði lítillega í gærmorgun í kjölfar samkomulagsins og Dow Jones-vísitalan hækkaði um 0,2 prósent. 22.6.2005 00:01
Manchester United tekið af markaði Knattspyrnuliðið Manchester United var í gær afskráð af hlutabréfamarkaði í London. Liðið hafði verið á markaðnum í fjórtán ár, en nýr eigandi þess, Malcolm Glazer, hafði lýst því yfir að hann myndi taka það af markaðnum. Glazer sagðist þann 14. júní eiga 97,3 prósent allra hlutbréfa í félaginu. 22.6.2005 00:01
Mistök ef ekki rætt við Tyrki Það verða stór mistök ef Evrópusambandið fer ekki út í alvarlegar aðildarviðræður við Tyrki, segir forseti framkvæmdastjórnar ESB. Hann segir hugsanlega aðild Tyrkja að hluta til ástæðuna fyrir því að Frakkar og Hollendingar höfnuðu stjórnarskrá sambandsins. 22.6.2005 00:01
Skilti með leiðbeinandi hraða Ný umferðarskilti, sem eiga að leiðbeina ökumönnum um að lækka hraðann á hættulegum köflum, verða sett upp á þjóðvegum landsins á næstu vikum. Tölvuútreikningar eru notaðir til að ákvarða hve mikinn hraða einstakir vegarkaflar þola. 22.6.2005 00:01
Byggingum frestað á Austurlandi Fólksflutningar til Austurlands hafa gengið hægar en búist var við og hafa verktakar frestað íbúðabyggingum. Talsmenn Alcoa eru þó sannfærðir um að ekki þurfi að leita út fyrir landsteinana til að manna störf í álverinu. 22.6.2005 00:01
Ráðningar gagnrýndar Ungir Jafnaðarmenn harma hvernig staðið er að skipun í opinber embætti á Íslandi. Þetta kemur fram í ályktun framkvæmdastjórnar UJ, þar sem nýafstaðin skipun sendiherra Íslands er gagnrýnd. 22.6.2005 00:01
GPRS-þjónusta hjá Og Vodafone Og Vodafone hefur gert samning við Landssíma Íslands um GPRS-reikiþjónustu. GPRS er gagnflutningsþjónusta fyrir farsíma og gerir notendum kleift að miðla myndum, hreyfimyndum og gögnum. Einnig er hægt að vafra um á Netinu og sýsla með tölvupóst. 22.6.2005 00:01
Heildarafli í samræmi við ráðgjöf Sjávarútvegsráðherra undirritaði í dag reglugerð um leyfilegan heildarafla á fiskveiðiárinu 2005-6 sem hefst þann 1. september. Í tilkynningu frá ráðuneytinu segir að leyfilegur heildarafli verði í öllum aðalatriðum í samræmi við ráðgjöf Hafrannsóknastofnunarinnar. 22.6.2005 00:01
Kommúnistaleiðtogi myrtur í Beirút George Hawi, fyrrverandi leiðtogi Kommúnistaflokksins í Líbanon, var drepinn í Beirút í morgun. Sprengju virðist hafa verið komið fyrir í bíl Hawis og lést hann samstundis þegar hún sprakk. Hann var andsnúinn Sýrlendingum, líkt og Saab Hariri, sem sigraði í kosningunum í Líbanon um helgina. Aðeins þrjár vikur eru síðan dálkahöfundurinn Samir Kassir var drepinn á sama hátt, en hann var einnig þekktur fyrir andstöðu sína við Sýrlendinga. 21.6.2005 00:01
Ósamræmi í uppsögnum hjá stofnunum Umboðsmaður Alþingis segir ósamræmi hjá ríkisstofnunum þegar til uppsagna kemur. Starfsmaður ríkisstofnunar, sem sagt var upp störfum í sparnaðarskyni, kvartaði til umboðsmanns. Hann taldi að um málamyndagjörning hafi verið að ræða enda hefðu aðrir starfsmenn stofnunarinnar gengið í hans störf. 21.6.2005 00:01
Berjast gegn veiðum Japana Andstæðingar hvalveiða berjast nú fyrir því að fá Japana til þess að láta af áformum um að tvöfalda hvalveiðar í vísindaskyni. Japanar tilkynntu á ráðstefnu Alþjóðahvalveiðiráðsins í gær að þeir hygðust auka árlegar veiðar á hvölum í vísindaskyni um helming frá og með næsta ár, og hafa þau áform vakið mikla úlfúð hjá andstæðingum hvalveiða. 21.6.2005 00:01
Komust óhindrað inn í kjarnorkuver Sextán útlendingar með fölsuð vegabréf komust nýlega inn í kjarnorkuver í Tennessee í Bandaríkjunum sökum lélegrar öryggisgæslu. Frá þessu greinir dagblaðið <em>Washington Post</em> og þykir um mikið hneyksli að ræða þar sem öryggisyfirvöld í Bandaríkjunum hafa ítrekað varað við því að kjarnorkuver kunni að verða næsta stóra skotmark hryðjuverkamanna. 21.6.2005 00:01
Vildu senda skýr skilaboð Þremeningarnir sem handteknir voru fyrir að sletta grænu skyri á álráðstefnu gesti á Nordica-hóteli segja að ásetningur sinn hafi verið að trufla ráðstefnuna og senda skýr skilaboð til leiðtoga í þungaiðnaði um að Ísland sé ekki eins notalegt hreiður fyrir þá og þeir haldi. Einnig að veita öðrum innblástur til aðgerða gegn því samsæri fyrirtækja og stjórnvalda að svíkja af Íslendingum mikið af stórbrotinni náttúru landsins. 21.6.2005 00:01
Vilja gagnabanka um barnaníðinga Dómsmálaráðherrar átta helstu iðnríkja heims styðja einróma hugmynd Interpol um stofnun gagnabanka um þekkta barnaníðinga. Ráðherrarnir funda nú í Sheffield. Þeir hvetja lögreglu í ríkjunum að nýta sér slíkan banka til hins ítrasta. Þá hétu þeir því að legga þrjár milljónir evra til verkefnisins svo lögregla geti komið sér upp fullkomnasta tölvubúnaði sem völ er á í baráttunni við barnaníðinga. 21.6.2005 00:01
Leitar fjórða manns vegna bílbruna Lögreglan leitar enn fjórða mannsins vegna bíls sem kveikt var í í Heiðmörk í gærmorgun. Þremur ungmennum, 15 til 17 ára, var sleppt í gær eftir að þau játuðu sinn þátt í málinu. Lögreglu var tilkynnt um eldinn á sjötta tímanum í gærmorgun og þegar komið var á staðinn stóð bíllinn, sem hafði verið stolið, í ljósum logum og fjögur ungmenni í nágrenninu. 21.6.2005 00:01
Viss um að komast til valda á ný Saddam Hussein saknar valdatíma Ronalds Reagan, segist ekki tengjast Osama bin Laden á nokkurn hátt og er handviss um að hann komist til valda í Írak á ný. Þetta kemur fram í viðtölum við fimm fangaverði sem hafa annast Saddam undanfarið ár og birtast í nýjasta hefti <em>GQ</em>. 21.6.2005 00:01
Bílar verði skoðaðir Eigendur óskoðaðra bíla þurfa að kippa sínum málum í lag ef þeir vilja halda númeraplötunum. Lögreglan í Reykjavík og víðar er nú að veita þeim sem ekki hafa þessi mál á hreinu viðvörun auk þess sem klippt er af bílum þeirra sem augljóslega láta sér ekki segjast. Lögreglan leggur áherslu á að þessir hlutir komist í lag nú þegar sumarferðalögin á vegum landsins eru að hefjast. 21.6.2005 00:01
Bolton hafnað í annað sinn Demókratar á Bandaríkjaþingi hafa öðru sinni hafnað að samþykkja John Bolton sem sendiherra Bandaríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum. Ráðning Boltons var samþykkt í öldungadeildinni með 54 atkvæðum gegn 38, sem er sex atkvæðum minna en þurfti til að knýja fram lokaatkvæðagreiðslu um ráðninguna. 21.6.2005 00:01
Ásta Möller nýr formaður LSK Ásta Möller, varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins, var kjörin formaður Landssambands sjálfstæðiskvenna á landsþinig sambandsins á dögunum. Ásta tekur við að Helgu Gurðúnu Jónasdóttur en með henni í stjórn voru kjörnar 11 konur. 21.6.2005 00:01
Sótt gegn herskáum Palestínumönnum Ísraelskar öryggissveitir hafa síðasta sólarhringinn handtekið að minnsta kosti 50 Palestínumenn sem grunaðir eru um að tilheyra herskáum samtökum í kjölfar þess að átök hafa aftur blossað upp á milli Ísraela og Palestínumanna. Þetta er í fyrsta sinn í hálft ár sem öryggissveitirnar láta til sín taka fyrir alvöru, en síðustu tvo daga hafa tveir Ísraelar látist í árásum palestínskra uppreisnarmanna. 21.6.2005 00:01