Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
HÍ ódýr í rekstri Háskóli Íslands er tiltölulega ódýr í rekstri miðað við sambærilega evrópska háskóla. Árangur hans á mörgum sviðum kennslu og rannsókna er sömuleiðis ágætur. Þetta kemur fram í nýrri stjórnsýsluúttekt Ríkisendurskoðunar á Háskóla Íslands. 20.4.2005 00:01
60% námsmanna vinna með skóla Tæplega 60% námsmanna, 16 ára og eldri, vinna með námi sínu samkvæmt nýrri vinnumarkaðsrannsókn Hagstofunnar. Alls fjölgaði námsmönnum sem unnu með námi um 1200 frá fyrsta ársfjórðungi ársins 2004, eða úr 22.300 í 23.500, og var sú fjölgun einungis meðal kvenna, samkvæmt Hagstofunni. 20.4.2005 00:01
Ákæran 900 þúsundum lægri Verjandi Jóns Árna Rúnarssonar fyrrum skólastjóra Rafiðnaðarskólans sagði ekki hægt að sakfella hann fyrir fjárdrátt þó hann hefði ekki gefið tekjurnar upp til skatts. Jón Árni er ákærður fyrir að draga að sér 28 milljónir auk 450 þúsund króna skjalafals.</font /></b /> 20.4.2005 00:01
Sumargjöf til þingmanna "Þarna vorum við að minna á að á Alþingi liggja fyrir tvær þingsályktunartillögur um stækkun friðlandsins í Þjórsárverum," segir Tryggvi Felixson, framkvæmdastjóri Landverndar. 20.4.2005 00:01
Barnabókaverðlaunin afhent Ragnheiður Gestsdóttir hlaut í dag Barnabókaverðlaun menntaráðs Reykjavíkur fyrir bókina <em>Sverðberinn</em>. Í sögunni er að mati dómnefndar glímt við sígildar spurningar um gott og illt, mjúkt og hart, og þykir besta frumsamda barnabókin á síðasta ári. Guðni Kolbeinsson hlaut verðlaun fyrir þýðingu bókarinnar <em>Abarat </em>eftir Clive Barker. 20.4.2005 00:01
Aðhaldsaðgerðir ekki lengra Tvennt hefur haft afgerandi áhrif á fjárhag Háskóla Íslands undanfarin ár, að því er fram kemur í stjórnsýsluúttekt Ríkisendurskoðunar á Háskóla Íslands sem birt var í gær; annars vegar mikil fjölgun nemenda og hins vegar síhækkandi launakostnaður. 20.4.2005 00:01
GT verktakar lagðir í einelti Forsvarsmenn GT verktaka segja fyrirtækið lagt í einelti af yfirtrúnaðarmanni starfsmanna Kárahnjúka, Vinnumálastofnun og Verkalýðsfélögum. 20.4.2005 00:01
Hefur ekkert að fela Framsóknarflokkurinn hefur ákveðið að gera opinber öll fjárhagsleg og stjórnunarleg tengsl einstakra þingmanna flokksins við fyrirtæki og sjóði. Forsætisráðherra segir öll sín tengsl löngu upplýst. 20.4.2005 00:01
Nýtt fjölmiðlafyrirtæki stofnað Sigurður G. Guðjónsson lögmaður og fyrrum forstjóri Norðurljósa hefur stofnað hlutafélag um rekstur nýs fjölmiðlafyrirtækis ásamt Karli Garðarssyni, fyrrum fréttastjóra Stöðvar 2 og Steini Kára Ragnarssyni, fyrrum auglýsingastjóra á Popp Tíví. 20.4.2005 00:01
50 lík fundust í Tígris-ánni Fimmtíu lík fundust á floti í ánni Tígris, skammt frá Bagdad, í dag. Talið er að þau séu af gíslum úr röðum sjíta sem mannræningjar úr röðum súnníta rændu fyrir helgi. 20.4.2005 00:01
Gutierrez hrökklast frá völdum. Ekvadorþing samþykkti í gær að svipta Lucio Gutierrez, forseta landsins, völdum. Varaforsetinn hefur tekið við stjórnartaumunum í hans stað. 20.4.2005 00:01
Framlögin hækkuð um 25 prósent Meirihluti Reykjavíkurlistans í menntaráði kynnti í gær tillögur um aukin framlög til einkarekinna grunnskóla. Formaður menntanefndar vonast til að sátt náist nú um málið en fulltrúi sjálfstæðismanna í nefndinni segir að ekki sé nægilega langt gengið með tillögunni. 20.4.2005 00:01
Rauðum reyk spúið The Sun, mest lesna dagblað Bretlands, tilkynnti í gær að það myndi styðja Verkamannaflokkinn í kosningunum sem haldnar verða eftir tvær vikur. Blaðið tók sér kardinálana í Páfagarði til fyrirmyndar með því að blása rauðum reyk upp um sérsmíðan skorstein sem settur var upp á þaki höfuðstöðva blaðsins. 20.4.2005 00:01
Rannsókn skotárásar langt komin Lögreglan á Akureyri er langt komin með rannsókn skotárásar sem sautján ára piltur varð fyrir skammt frá Akureyri á laugardag. Tveir voru handteknir vegna málsins, annar játaði fljótlega og var sleppt úr haldi en hinn var úrskurðaður í fimm daga gæsluvarðhald. 20.4.2005 00:01
Berlusconi biðst lausnar Valdatíma þaulsætnustu ríkisstjórnar Ítalíu frá stríðslokum lauk í gær þegar Silvio Berlusconi forsætisráðherra sagði af sér embætti Hann mun þó að líkindum mynda nýja stjórn á næstu dögum. 20.4.2005 00:01
Ólga í Tógó Stríðandi fylkingar í tógóskum stjórnmálum reyna nú að setja niður deilur sínar á fundi í nágrannaríkinu Níger. Forsetakosningar verða haldnar í Tógó á sunnudaginn. 20.4.2005 00:01
Stjórnvöld hvetja til stillingar Kínversk stjórnvöld hvöttu í gær almenning til að láta af mótmælum sínum sem staðið hafa yfir síðustu dægrin. 20.4.2005 00:01
Fimmtíu lík í Tígris Fimmtíu lík hafa fundist í fljótinu Tígris í Írak undanfarna daga og eru þau talin vera af mönnum sem teknir voru sem gíslar í liðinni viku. Tugir manna liggja í valnum eftir ódæði gærdagsins. 20.4.2005 00:01
Skortur á samráði í Samfylkingunni Misræmi í yfirlýsingum Össurar Skarphéðinssonar og Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, þegar tilkynnt var um framboð hennar í síðustu Alþingiskosningum, var til komið vegna skorts á samráði. Össur lýsti yfir framboði hennar á sama tíma og R-listafólk í borginni var að reyna að telja henni hughvarf. 20.4.2005 00:01
NATO-fundur í Vilníus Utanríkisráðherrar aðildarríkja Atlantshafsbandalagsins ræddu í gær framtíðarhlutverk þess í Vilníus í Litháen en fundinum lýkur síðar í dag. Nánari tengsl við Rússland og Úkraínu, svo og aðkoma að friðarferlinu fyrir botni Miðjarðarhaf eru á dagskránni. 20.4.2005 00:01
Árekstur í gjánni í Kópavogi Lögregla, sjúkralið og slökkvilið landsins höfðu í ýmis horn að líta í gær. 20.4.2005 00:01
Himneskar veigar Nýi páfinn, Benedikt XVI, messaði í fyrsta sinn og kynnti sér aðstæður í Páfagarði í dag. Í heimabæ hans er kjörinu fagnað með því að baka Ratzinger-tertu, Vatíkanbrauð og bjóða upp á Benedikts-pylsu. 20.4.2005 00:01
Þjóðin fær ekki að kaupa strax Forsætisráðherra segir að skýrsla Morgan Stanley um söluferli Símans verði birt fljótlega. Ákveðnar trúnaðarupplýsingar sé þó ekki hægt að birta á þessu stigi málsins. Hins vegar verði almenningi ekki boðið að kaupa strax hlutabréf í Símanum, enda sé ekki hægt að breyta útboðinu í miðju ferli. 20.4.2005 00:01
Dregur úr áhuga á dísilbifreiðum Framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda telur það klárt mál að hækkun á verði dísilolíu sem fylgir afnámi þungaskatts í sumar muni draga úr áhuga á dísilbifreiðum. Umhverfisráðherra er hins vegar ekki svo svartsýnn. 20.4.2005 00:01
Nýtt olíufélag Íslensk olíumiðlun hefur látið reisa um 4000 tonna olíutank í Neskaupstað og hyggst hefja sölu á skipaolíu innan nokkurra vikna. 20.4.2005 00:01
Líkum fleygt á víðavangi Talið vera tilviljun að þrjú lík hafa fundist á víðavangi í og við Stokkhólm að undanförnu. Búið að bera kennsl á tvö líkanna. Ekki talið að samband sé milli morðanna. 20.4.2005 00:01
Ekki staðið við stóru orðin Fjölga þarf opinberum störfum í Eyjafirði um 330 ef þau eiga að vera hlutfallslega jafn mörg og á höfuðborgarsvæðinu. Halldór Ragnar Gíslason, verkefnisstjóri hjá Atvinnuþróunarfélagi Eyjafjarðar, segir að þrátt fyrir fögur fyrirheit hafi stjórnvöld ekki staðið við að flytja opinber störf og verkefni til Akureyrar. 20.4.2005 00:01
Skoða þarf fjármál flokkanna Ríkisframlög til starfsemi stjórnmálaflokkanna hafa aukist um rúmar fjörutíu milljónir frá árinu 2000. Þetta kemur fram í skýrslu sem forsætisráðherra lagði fram í gær. Í ljósi hennar telur Halldór það rétt að endirskoða löggjöf um fjármá stjórnmálaflokkanna. 20.4.2005 00:01
Vill birta upplýsingar Einkavæðingarnefnd hefur borist erindi frá Halldóri Ásgrímssyni forsætisráðherra um möguleika á því að birtar verði tillögur ráðgjafarfyrirtækisins Morgan Stanley um tilhögun á sölu Símans. 20.4.2005 00:01
Önnur umferð páfakjörs fer fram Önnur umferð atkvæðagreiðslu um kjör páfa stendur nú yfir. Atkvæðaseðlarnir verða svo brenndir um klukkan tíu og þá stígur reykur upp frá skorsteini Sixtínsku kapellunnar. Verði hann svartur munu kardínálarnir 115 ganga strax aftur til atkvæðagreiðslu. Fái enn enginn þeirra minnst tvo þriðju hluta atkvæða verður gert hlé og svo kosið tvisvar sinnum á nýjan leik síðar í dag. 19.4.2005 00:01
Kveikti í hóteli af slysni Ung kona hefur viðurkennt að hafa kveikt eldinn í Paris Opera hótelinu í París á föstudag af slysni. Lögregluyfirvöld í París tilkynntu þetta í morgun og sögðu að verið væri að yfirheyra konuna. Tuttugu og tveir gestir hótelsins létust í eldsvoðanum. 19.4.2005 00:01
Skemmdi þrjá bíla með ofsaakstri Háskaakstri ölvaðs ökumanns í Reykjavík í nótt lauk með því tveir lögreglubílar og bíll ökumannsins eyðilögðust og fjórir voru fluttir á slysadeild til aðhlynningar og rannsóknar en enginn var þó alvarlega slasaður. Þegar lögreglumenn sáu bíllinn á ofsahraða á Reykjanesbraut kom í ljós að ökumaðurinn var sá sami og tekinn hafði verið á sama bíl fyrr um nóttina vegna ölvunaraksturs en sleppt aftur. 19.4.2005 00:01
Átta látnir eftir árásir í Írak Að minnsta kosti átta írakskir þjóðvarðliðar hafa fallið í valinn í morgun í tveim aðskildum árásum uppreisnarmanna í nágrenni við Bagdad. Nærri þrjátíu manns eru slasaðir eftir árásirnar, sem áttu sér stað með skömmu millibili. 19.4.2005 00:01
Norðmenn illir vegna bókar múslíma Reiði hefur gripið um sig á meðal Norðmanna í garð innflytjenda og Miðstöð baráttunnar gegn kynþáttafordómum í Osló hefur gripið til þess ráðs að kæra óþekktan íslamskan innflytjanda fyrir kynþáttafordóma í garð Norðmanna. Tilefnið er útkoma bókar í Noregi sem pakistanska múslímasamfélagið í Noregi gefur út. Þar eru Norðmönnum ekki vandaðar kveðjurnar. 19.4.2005 00:01
Forðuðu stórtjóni af völdum elds Snarræði bænda á bænum Þórustöðum á Ströndum og nágranna þeirra kom í veg fyrir að stórtjón og fjárfellir hlytist af eldi sem kviknaði í dráttarvél á bænum í gær. Hún stóð við fjárhús þar sem kindur voru inni. Bændurnir héldu eldinum í skefjum þar til slökkviliðið á Hólmavík kom á vettvang og slökkti hann. 19.4.2005 00:01
Tonn af kókaíni í fisksendingu Lögregluyfirvöld í Perú lögðu á föstudaginn hald á meira en eitt tonn af kókaíni sem komið hafði verið fyrir í sendingu af sjávarafurðum sem áttu að fara til Bandaríkjanna. Tíu manns voru handteknir vegna málsins, þeirra á meðal eigandi verksmiðjunnar sem stóð fyrir sendingunni. Kókaínsmygl hefur færst mjög í vöxt í Perú á þessu ári eftir að hafa dalað nokkur ár þar á undan. 19.4.2005 00:01
Hershöfðingi drepinn í Írak Uppreisnarmenn í Írak drápu seint í gærkvöldi írakskan hershöfðingja og son hans inni á heimili þeirra í Bagdad. Árásarmennirnir voru í gervi þjóðvarðliða og hershöfðinginn hleypti þeim inn þar sem þeir drógu upp byssur og skutu feðgana til bana. 19.4.2005 00:01
Svartur reykur frá kapellu Rétt fyrir klukkan tíu í morgun steig svartur reykur upp úr strompinum á Sixtínsku kapellunni í Róm til marks um að önnur atkvæðagreiðsla kardínálanna um nýjan páfa hefði ekki skilað tilskildum meirihluta. Búist er við þremur atkvæðagreiðslum til viðbótar í dag. 19.4.2005 00:01
Hvetur Kína og Japan til sátta Kofi Annan, aðalritari Sameinuðu þjóðanna, hvetur leiðtoga í Kína og Japan til þess að nota ráðstefnu Asíu og Afríku ríkja um helgina, til þess að bæta samskipti þjóðanna. Annan segir að þjóðirnar eigi allt of margt sameiginlegt til þess að standa í ágreiningi eins og þeim sem staðið hefur yfir undanfarið. 19.4.2005 00:01
Skemmdir unnar á strætóskýlum Skemmdarvargar brutu sex rúður í fimm strætisvagnabiðskýlum á Akureyri seint í nótt og eru þeir ófundnir. Engin tilkynning barst um verknaðinn og er því ekkert vitað að svo stöddu hverjir voru þarna að verki. Tjónið nemur um hálfri milljón króna og biður lögreglan á Akureyri þá sem eitthvað kunna að vita um málið að láta sig vita. 19.4.2005 00:01
Andstaða við stjórnarskrá eykst Andstaða við stjórnarskrá Evrópusambandsins virðist enn vera að aukast í Frakklandi. Samkvæmt skoðanakönnun dagblaðsins <em>Le Figaro</em>, sem birtist í morgun, ætla 55 prósent Frakka að hafna stjórnarskráni sem er heldur hærra hlutfall en í undanförnum könnunum. Nú hafa fimmtán skoðanakannanir í röð bent til þess að stjórnarskráni verði hafnað í Frakklandi í lok maí. 19.4.2005 00:01
Hrefnuveiðar hafnar í Noregi Hrefnuveiðivertíðin í Noregi hófst í gær og munu um það bil 30 skip stunda veiðarnar enda kvótinn meiri en áður. Þrátt fyrir mikinn áhuga á veiðunum hefur gengið illa að selja hrefnukjötið á norskum markaði undanfarin ár líkt og hér á landi. Birgðir hafa hrannast upp og loks verið fargað fyrir opinbera styrki. 19.4.2005 00:01
Krefjast afsagnar forseta Ekvadors Þúsundir mótmælenda hópuðust saman á götum stærstu borgar Ekvador í gær og fóru fram á afsögn Lucio Gutierrez, forseta landsins. Mótmælendur hentu steinum og öðru lauslegu í átt að lögreglumönnum sem svöruðu með því að skjóta úr loftrifflum. Mótmælin hófust fyrir fimm dögum og hafa stigmagnast. 19.4.2005 00:01
Réðust gegn uppreisnarmönnum Hermenn í Afganistan gerðu í gær áhlaup á vígi uppreisnarmanna í fjallahéruðum utan við Kabúl og drápu átta manns og handtóku sextán. Að sögn talsmanns afganska hersins tóku bandarískar herþyrlur þátt í bardögunum sem voru einhverjir þeir mannskæðustu í landinu í marga mánuði. 19.4.2005 00:01
Tvö félög samþykkja kjarasamninga Félag starfsmanna stjórnarráðsins og Félag opinberra starfsmanna á Austurlandi hafa samþykkt kjarasamninga við ríkið. Starfsmenn stjórnarráðsins samþykktu sinn samning með 91 prósenti atkvæða en 7 prósent voru andvíg honum. Svipaður samningavilji var meðal opinberra starfsmanna á Austurlandi en þar samþykktu 95,4 prósent kjarasamninginn sem gerður var við ríkið. 19.4.2005 00:01