Fleiri fréttir

Humarvertíðin fer illa af stað

Humarvertíðin fer óvenju illa af stað, einkum við austanverða suðurströndina. Vegna lélegra aflabragða eru færri bátar byrjaðir að veiða en til stóð þar sem eigendur þeirra telja það ekki svara kostnaði að róa fyrir jafn lítinn afla og raunin er.

Heilaæxli fylgi ekki farsímanotkun

Notkun farsíma eykur ekki líkurnar á heilaæxli samkvæmt niðurstöðum nýrrar rannsóknar frá Danmörku. Rannsóknin náði til rúmlega þúsund manna og leiddi í ljós að ekki er fylgni á milli notkunar farsíma og krabbameins í heila. Rannsakendur benda þó á að enn hafi ekki verið gerðar langtímarannsóknir á áhrifum farsíma þar sem tæknin hafi ekki verið nógu lengi við lýði.

Réðust gegn manni á Capitol-hæð

Lögreglumenn í Washington réðust í gær að grunsamlegum manni sem hafði staðið með tvær ferðatöskur utan við þinghúsið í Washington á Capitol-hæð um nokkra hríð og vildi fá að hitta George Bush forseta. Svæðið í kringum þinghúsið var rýmt um tíma um miðjan daginn í gær af ótta við að í ferðatöskunum væri sprengiefni.

Fann hassmola á víðavangi

Komið er í ljós að torkennilegur moli, sem átta ára drengur í Keflavík fann á víðavangi í fyrradag, er hass. Molinn var vafinn í umbúðafilmu og fannst móður drengsins hann eitthvað torkennilegur og fór með hann til lögreglu. Hann reyndist tæp fimm grömm að þyngd.

Veiða timbur í Lofoten

Húsbyggjendur í Lofoten í Norður-Noregi þurfa ekki lengur að hafa fyrir því að róa til fiskjar, verka hann og koma honum í verð til að eiga fyrir timbri heldur veiða þeir timbrið beint. Þar er nú allt umflotið í úrvalstimbri og má hver hirða sem hann getur enda stafar bátum hætta af timbrinu sem marar í hálfu kafi um allan sjó.

Um 150 manns enn undir rústum

Björgunarsveitarmenn í Bangladess börðust í morgun við að reyna að bjarga allt að 150 manns sem eru enn fastir undir rústum verksmiðjubyggingar sem hrundi í gær. Að minnsta kosti 26 lík hafa þegar fundist í rústunum en í gær og nótt tókst að bjarga nærri eitt hundrað manns undan rústunum.

Frakkar andvígir stjórnarskrá ESB

Ellefu síðustu skoðanakannanir benda allar til þess að meirihluti almennings í Frakklandi ætli að hafna stjórnarskrá Evrópusambandsins. Fyrir aðeins um tveim mánuðum var stuðningur við stjórnarskrána um sextíu prósent í Frakklandi en hann hefur hríðfallið undanfarið. Kosið verður um stjórnarskrána þann 29. maí.

Lögsækir ekki Bandaríkjamenn

Bobby Fischer hefur fallið frá lögsókn á hendur bandarískum stjórnvöldum sem þingfest var fyrir hann í San Diego í Bandaríkjunum daginn sem hann var látinn laus í Japan og hélt til Íslands.

Aukin neytendavernd

Fjarskiptafyrirtæki sem býður internetþjónustu er skylt að skýra áskrifendum sínum frá því hvenær þeir greiða fyrir niðurhal erlendis frá.

Og fjarskipti gæti jafnræðis

Póst- og fjarskiptastofnun úrskurðaði í gær að Og fjarskiptum bæri að gæta jafnræðis í verði á samtengigjöldum á milli eigin deilda, Símans og erlendra fjarskiptafyrirtækja. Samtengigjöld eru gjöld sem fyrirtæki greiða hvert öðru fyrir að ljúka símtölum í þeirra kerfi.

Sviðsetja slys í Hvalfjarðargöngum

Almannavarnaæfing verður í Hvalfjarðargöngum á laugardaginn kemur og verða göngin því lokuð á milli 8 og 15 af þeim sökum. Í tilkynningu frá almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra og Speli kemur fram að ætlunin sé að sviðsetja árekstur þar sem koma við sögu rúta og tveir fólksbílar neðst í göngunum.

Pólverjar frá Írak fyrir árslok

Pólskar hersveitir í Írak verða kallaðar heim fyrir lok árs, að sögn varnarmálaráðherra Póllands. Pólverjar höfðu látið í það skína að von væri á þessum tíðindum en þau koma sér engu að síður illa fyrir hersetuveldin í Írak. Bandaríkjamenn hafa þó engu að síður í hyggju að fækka í liði sínu í landinu.

Hvatti til að landtöku yrði hætt

George Bush Bandaríkjaforseti snupraði Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, á fréttamannafundi í gær og olli undrun þegar hann hvatti til þess að landnámi á Vesturbakkanum yrði hætt.

Fékk um 75 þúsund fyrir álit

Forsætisráðuneytið greiddi Eiríki Tómassyni, lagaprófessor við Háskóla Íslands, 74.700 krónur, að meðtöldum virðisaukaskatti, fyrir lögfræðiálit sem hann vann fyrir ráðuneytið um lögmæti þess að styðja innrásina í Írak án samþykkis utanríkismálanefndar.

Seldi veiðileyfi á spottprís

Stangveiðifélag Reykjavíkur seldi í ógáti allar stangirnar á opnunardaginn í Laxá í Kjós á Netinu og keypti einn og sami maðurinn allan pakkann sigri hrósandi.

Þróunin önnur en í nágrannalöndum

Aðeins fimm greindust með HIV-smit á síðasta ári en síðustu fimmtán árin hafa ekki greinst jafn fáir. Sóttvarnarlæknir segir þróunina hér aðra en í nágrannalöndunum.

Mannskæð veira í Angóla

Mannskæður og óhuggulegur vírus, svokallaður Marburg-vírus, veldur miklu mannfalli í Angóla. Fáum dögum eftir smit deyr fólk og engin lækning finnst.

Óvenju gróf líkamsárás

Þingfest var í Héraðsdómi Reykjavíkur í fyrrdag mál á hendur manni sem sakaður er um að hafa valdið öðrum manni miklu líkamstjóni á veitingastaðnum Kaffi Austurstræti með þeim afleiðingum að fórnarlambið hlaut fjölmarga djúpa skurði á andlit og háls.

Ríkið frekast á bensín og áfengi

Ef meta ætti hvar íslenska ríkið grefur hvað dýpst í vasa þegna sinna er bensín- og áfengisverð það fyrsta sem kemur upp í huga þeirra Ólafs Darra Andrasonar, hagfræðings hjá Alþýðusambandinu og Jóhannesar Gunnarssonar, formanns Neytendasamtakanna.

Opið í Bláfjöllum í dag

Skíðasvæðið í Bláfjöllum var opnað klukkan tvö og verður opið til klukkan níu í kvöld. Lyfturnar við Bláfjallaskála og eldri stólalyftan í Kóngsgili verða opnar allan tímann en Gosinn á suðursvæðinu verður opnaður klukkan fimm. Fjörmjólkurmótið mun fara fram í dag og á morgun við lyftuna Jón Bjarna og verður hún því ekki opin almenningi á meðan mótið stendur.

Fjórum börnum haldið í gíslingu

Maður vopnaður hnífi heldur fjórum börnum í gíslingu í kjallara húss í bænum Ennepetal í vesturhluta Þýskalands. Hann mun hafa tekið þau í gíslingu í rútu rétt fyrir hádegi í dag og svo haldið í kjallarann þar sem hann er enn. Lögregla segir að maðurin sé á fimmtugsaldri og hugsanlega af írönsku bergi brotinn. Hann hafi farið fram að fjölskylda hans fengi að koma til hans í Þýskalandi.

Modernus að gefast upp á blogginu

Modernus, sem rekur samræmda vefmælingu íhugar að hætta mælingu á íslenskum bloggvefjum, eftir því sem fram kemur á vefsíðu Modernuss. Orðrétt segir á vef fyrirtækisins; "Eftir stendur að ekkert lát er á bloggæðinu svonefnda og að fyrr eða síðar kemur að því að of dýrt verður fyrir Modernus að mæla allar þessar síður, nema auknar tekjur komi til - því miður."

Mátti ráðstafa opnunardegi laxár

Forsvarsmenn Stangveiðifélags Reykjavíkur segja að opnunardagurinn í Laxá í Kjós hafi óvart farið í sölu í vefsölukerfi félagsins og kaupandinn hafi vinsamlega verið beðinn um að falla frá kaupum sínum á öllum stöngunum enda stendur til að nýta daginn til formlegrar opnunar með Veiðifélagi Kjósarhrepps. Því hafi hins vegar verið ranglega haldið fram í hádegisfréttum Bylgjunnar að stangveiðifélagið hefði ekki ráðstöfunarrétt yfir opnunardeginum.

Gripu fyrrverandi Baath-leiðtoga

Íröksk stjórnvöld greindu frá því í dag að öryggissveitir hefðu handsamað mann sem var áður háttsettur innan Baath-flokks Saddams Husseins. Maðurinn heitir Fadhil Ibrahim Mahmud Al-Mashadani og er talinn hafa skipulagt og fjármagnað fjölmargara árásir uppreisnarsveita í Írak.

Evrópufræði kennd í Háskólanum

Háskóli Íslands hefur í fyrsta sinn hlotið styrk úr Jean Monnet áætlun Evrópusambandsins til að kenna námskeið um nýjungar í Evrópusamrunanum. Styrknum fylgir mikil viðurkenning fyrir Háskóla Íslands en hann er aðeins ætlaður þeim menntastofnunum sem þykja í fararbroddi í rannsóknum og kennslu Evrópufræða.

Ákærður fyrir barsmíðar með glasi

Maður hefur verið ákærður af ríkissaksóknara fyrir að slá annan mann í andlitið með bjórglasi á Kaffi Austurstræti. Sá sem varð fyrir árásinni skaðaðist á auga og í andliti. Málið var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag.

Styður hugmyndir um kaup Símans

Þingflokkur Frjálslynda flokksins lýsir yfir stuðningi við hugmynd Agnesar Bragadóttur blaðamanns um að almenningur á Íslandi stofni félag kjölfestufjárfestis og geri í sameiningu tilboð í 45% eignahlut Símans. Þetta kemur fram í tilkynningu frá flokknum.

Lofa Súdönum fé til uppbyggingar

Súdönum hefur verið heitið fjórum komma fimm milljörðum dollara, um 275 milljörðum króna, á næstu þremur árum til endurreisnar í landinu eftir tuttugu og eins árs borgarastyrjöld. Þetta kom fram í lok tveggja daga ráðstefnu um framtíð Súdans sem haldin var í Osló, en alls tóku 60 þjóðir þátt í henni.

Flestir jákvæðari en neikvæðari

"Persónulega er ég bjartsýn á að sameiningin verði samþykkt enda heyrist mér flestir jákvæðari en neikvæðari," segir Hólmfríður Sveinsdóttir, framkvæmdastjóri sameiningarnefndar sveitarfélaga á vesturlandi. Fyrir dyrum standa kosningar íbúa þeirra fimm hreppa sem um ræðir en kosið er þann 23. apríl.

Vilja að Ágúst verði varaformaður

Framkvæmdastjórn Ungra jafnaðarmanna hvetur Ágúst Ólaf Ágústsson, þingmann Samfylkingarinnar, til að gefa kost á sér sem varaformaður flokksins á landsfundinum í maí. Aðspurður segist Ágúst Ólafur vera jákvæður og ánægður með stuðnig unga fólksins. Hann segist ætla að taka ákvörðun fljótlega en fyrst þurfi hann að hugsa málið.

Og Vodafone skal gæta jafnræðis

Fyrirtækið Og Vodafone skal gæta jafnræðis að því er varðar svokallaða lúkningu símtala inn á farsímanet sitt samkvæmt ákvörðun Póst og fjarskiptastofnunar. Hefur fyrirtækið 30 daga til að sýna fram á með gögnum að fyrirmælunum hafi verið fylgt eftir að öðrum kosti verður gripið til annarra ráðstafana.

Samþykktu fóstureyðingar á þingi

Íranska þingið hefur samþykkt að leyfa fóstureyðingar í landinu þegar líf móðurinnar er í hættu eða þegar ljóst þykir að barnið verði fatlað. Frá þessu greindi fréttastofan IRNA í dag. Deilt var um lögin á þinginu og bentu andstæðingar þeirra á að margir fatlaðir gengdu mikilvægu hlutverki í samfélaginu og einnig að hætta væri á að lögin yrðu misnotuð.

Mikill áhugi á bréfum í Símanum

Mikill áhugi virðist vera hjá almenningi fyrir kaupum á hlutabréfum í Landssímanum, en opnað hefur verið fyrir skráningu til kaupa á hlutabréfum í félaginu á síðunni www.xbokhald.is/landssiminn. Í tilkynningu frá Logiledger á Íslandi, sem stendur fyrir skráningunni, segir að á fyrsta hálftímanum hafi fleiri tugir aðilar skráð sig fyrir yfir 50 milljónir króna og ef fram haldi sem horfi geti talan margfaldast á næstu dögum.

Vilja endurskoða takmarkanir

Mörður Árnason, þingmaður Samfylkingarinnar, segir að strax sé komið í ljós að eignarhaldstakmarkanir sem fjölmiðlanefndin lagði til séu of stífar. Til þess að pólitísk sátt náist um frumvarp um fjölmiðlalög verði allir flokkar að koma að smíði þess.</font /></b /><font face="Helv"></font>

Ættum að biðjast afsökunar

Mér fyndist það mikil blessum fyrir íslenska þjóð ef við bæðumst afsökunar á framkomu íslenskra stjórnvalda gegn Gyðingum á árunum fyrir stríð", segir Ólafur Jóhannesson formaður félagsins Zion vinir Ísraels.

Vilja Ágúst Ólaf sem varaformann

Framkvæmdastjórn Ungra jafnaðarmanna, ungliðahreyfingar Samfylkingarinnar, hvetur þingmanninn Ágúst Ólaf Ágústsson til að gefa kost á sér sem varaformaður flokksins á landsfundinum í Maí. </font />

Tekur undir gagnrýni á stjórn SL

Stjórn Meistarafélags húsasmiða tekur undir þá gagnrýni sem stjórn Sameinaða lífeyrissjóðsins hefur sætt vegna starfslokasamnings við fyrrverandi framkvæmdastjóra sjóðsins. Félagið telur milljónirnar 43 sem samið var um við starfslok framkvæmdastjórans vissulega vera sláandi háa tölu en þó nánast skiptimynt í samanburð við þá milljarða sem tapast hafa vegna lélegrar stjórnunar sjóðsins.

Kona sem lifði af

Hún sætti harkalegu kynferðisofbeldi af hendi stjúpföður síns frá fjögurra ára aldri. Þar kom að hún þurfti að velja á milli sín og fjölskyldu sinnar. Hún valdi sig. </font /></b />

Klamydía eykst aftur

<font face="Helv"> </font>Klamydíutilfellum fjölgaði á milli ára 2003 - 2004. Þar með virðist þessi sjúkdómur heldur á uppleið aftur, eftir að úr tíðni hans hafði dregið á árinu 2003. Þetta kemur fram í Farsóttafréttum Landlæknisembættisins.

Dansað á Bóhem án atvinnuleyfis

Þrjár tékkneskar stúlkur hafa dansað á Bóhem, voru teknar án atvinnuleyfis og færðar til yfirheyrslu. Stúlkurnar voru kallaðar til skýrslutöku hjá lögreglu fyrir helgina og mættu svo fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur í gær til að staðfesta framburð sinn. Stúlkurnar viðurkenndu að hafa verið fengnar til landsins til að vinna við súludans á Bóhem. </font /></b />

Með rafrænan sjónvarpsvísi

Fjarskiptafyrirtækið Hive ætlar að vera með vikulegan rafrænan dagskrárvísi í tengslum við sjónvarpsútsendingar sínar sem hefjast á netinu í vor.

Frelsuðu fjórar stúlkur í gíslingu

Lögregla í Þýskalandi hefur yfirbugað fimmtugan Írana sem rændi fjórum stúlkum og hélt þeim í gíslingu í bænum Ennepetal í norðvesturhluta landsins í dag. Maðurinn tók stúlkurnar í gíslingu í rútu fullri af skólabörnum skömmu fyrir hádegi og fór með þær í kjallara húss þar í bæ. Óttast var um líf stúlknanna þar sem maðurinn var vopnaður hnífi.

Á batavegi eftir sjóslys

Sjómaðurinn, sem slasaðist um borð í Snorra Sturlusyni aðfaranótt sunnudags og var fluttur til Reykjavíkur með þyrlu varnarliðsins, er á batavegi. Hann útskrifaðist af gjörgæsludeild í morgun og er nú á almennri skurðdeild. Búast má við að hann verði útskrifaður af sjúkrahúsinu á næstu dögum.

Hefur engin áhrif á okkar störf

Ákvörðun um framtíðarstaðsetningu Háskólans í Reykjavík gæti verið tekin upp úr næstu helgi, en háskólaráð skólans hefur ásett sér að ákvörðun ráðsins, um hvort skólinn flytji í Vatnsmýrina í Reykjavík eða Urriðaholt í Garðabær, verði ljós í lok næstu viku. 

Kostar hundruð milljóna

Verðstríðið á matvörumarkaði hefur fram að þessu kostað nokkur hundruð milljóna króna í heildina, varlega áætlað. Forsvarsmenn Krónunnar og Bónuss segja að verðstríðið sé enn í fullum gangi og verðið mjög lágt þó að bullið sé úr sögunni.

Sjá næstu 50 fréttir