Dansað á Bóhem án atvinnuleyfis 12. apríl 2005 00:01
Þrjár tékkneskar stúlkur, sem starfa við súludans á Bóhem, hafa verið teknar án atvinnuleyfis og færðar til yfirheyrslu. Stúlkurnar voru kallaðar til skýrslutöku hjá lögreglu fyrir helgina og mættu svo fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur í gær til að staðfesta framburð sinn. Stúlkurnar viðurkenndu að hafa verið fengnar til landsins til að vinna við súludans á Bóhem. Samkvæmt áreiðanlegum heimildum Fréttablaðsins verður rekstraraðili staðarins, Hlynur Vigfússon, ákærður fyrir brot á lögum um atvinnuréttindi útlendinga og innflutning á erlendu vinnuafli án leyfis. Búist er við að það mál fái flýtimeðferð. Engin ákæra verður gefin út á hendur stúlkunum. Þær komu hingað til lands í góðri trú um að öll leyfi væru til staðar og höfðu verið hér í viku þegar þær voru kallaðar fyrir Héraðsdóm í gær. Þær eiga pantað flug heim í dag. Lögreglan í Reykjavík hefur tekið þrjá dansara til viðbótar fyrr í vetur, annars vegar tvær og hinsvegar eina sem ekki höfðu atvinnuleyfi hér á landi. Þessar stúlkur störfuðu allar við súludans á Bóhem. Hlynur Vigfússon, rekstraraðili Bóhem, neitaði að tjá sig um málið þegar Fréttablaðið hafði samband við hann í gær. Lögreglan í Reykjavík hefur rannsakað níu mál frá áramótum sem öll snerta atvinnu án leyfa, mál tékknesku dansaranna meðtalið. Málin snerta í allt vel á annan tug einstaklinga og er rúmur helmingurinn iðnverkamenn hjá samtals átta til níu atvinnurekendum. Í sumum tilfellum eru þeir fjórir sem hafa verið teknir saman í hóp, í öðrum tilfellum þrír og enn öðrum bara einn. Atvinnurekendurnir hafa ekki verið teknir áður fyrir brot á lögum um atvinnuréttindi útlendinga. Þeir sem stuðluðu að innflutningi erlendu verkamannanna mega búast við því að fá ákæru á hendur sér.
Fréttir Innlent Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Innlent Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Erlent SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Innlent Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Innlent Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa Innlent Fleiri fréttir Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Sjá meira