Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Tvöföldun haldið áfram Haldið verður áfram við tvöföldun Reykjanesbrautar strax í sumar, eða mun fyrr en gert var ráð fyrir í Vegaáætlun. Það var Sturla Böðvarsson samgönguráðherra sem tilkynnti þetta á fjölmennum borgarafundi í Stapa í gærkvöldi og sagði að verkið yrði boðið út strax í vor. 8.2.2005 00:01
Hjálparstarfsmenn að smygla? Hernaðaryfirvöld á Srí Lanka saka hóp hjálparstarfsmanna um að hafa reynt að smygla efni til sprengjugerðar inn í landið með hjálparvarningi. Varningurinn var sendur frá Bretlandi og átti að fara á svæði þar sem Tamil-tígrar ráða ríkjum. 8.2.2005 00:01
Vopnað rán í söluturni Vopnað rán var framið í söluturni við Kirkjustétt í Grafarholti klukkan rúmlega ellefu í gærkvöldi og komst þjófurinn undan með eitthvað af peningum. Hann ógnaði tveimur starfsmönnum með hamri en vann þeim ekki mein. Talið er að ræninginn hafi komist undan á bíl og er hann ófundinn. 8.2.2005 00:01
Jökulfell: Leit hafin úr lofti Leit er nú hafin úr lofti að þeim sex skipverjum af Jökulfelli sem ekki fundust við mikla leit af sjó í alla nótt eftir að skipinu hvolfdi norðaustur af Færeyjum og sökk fyrir miðnætti. Þyrla af danska eftirlitsskipinu Vædderen bjargaði fimm skipverjum sem voru á sundi í sjónum þegar þyrlan kom að og síðan fannst mannlaus gúmmíbjörgunarbátur. 8.2.2005 00:01
Meintur brennuvargur enn í haldi Karlmaður, sem er grunaður um að hafa kveikt í gömlu íbúðarhúsi við Kársnesbraut í Kópavogi í gær, er enn í haldi lögreglu og ræðst í dag hvort óskað verður eftir gæsluvarðhaldsúrskurði yfir honum. Húsið stórskemmdist. 8.2.2005 00:01
Atli Dam látinn Atli Dam, fyrrverandi lögmaður Færeyja, er látinn, 72 ára gamall. Atli var einn áhrifamesti stjórnmálamaður Færeyinga um langt árabil og lögmaður færeysku stjórnarinnar um 16 ára skeið en það embætti jafngildir forsætisráðherraembætti hér á landi. 8.2.2005 00:01
Kúrdar vinna á Stærsti flokkur Kúrda hefur unnið mjög á í kosningunum í Írak eftir að stór hluti atkvæða í norðurhluta landsins hefur verið talinn. Nú hafa Kúrdarnir nærri fjórðungsfylgi og að sama skapi hefur fylgi bandalags Sjíta fallið úr 67 prósentum talinna atkvæða niður í rétt rúmlega helming. 8.2.2005 00:01
Sprengdu upp brautarteina Skæruliðar í Pakistan sprengdu í morgun upp brautarteina sem liggja frá borginni Quetta í suðurhluta landsins. Lestarsamgöngur til og frá borginni eru þar með lamaðar sem stendur en unnið er að viðgerðum. 8.2.2005 00:01
4 ára í bíltúr Fjögurra ára gamall drengur frá Michigan í Bandaríkjunum brá á það ráð að stelast til þess að keyra bíl mömmu sinnar í því augnamiði að ná sér í tölvuleik sem hann langaði í. Drengurinn náði að koma bílnum í gír og keyra hann eina 700 metra í búðina þar sem leikinn góða var að finna. 8.2.2005 00:01
Lík þriggja skipverja fundin Lík þriggja skipverja af Jökulfelli eru fundin en hinna þriggja er enn leitað. Leit hófst úr lofti fyrr í morgun að þeim sex skipverjum af Jökulfelli sem ekki fundust við mikla leit af sjó í alla nótt eftir að skipinu hvolfdi norðaustur af Færeyjum og sökk fyrir miðnætti. 8.2.2005 00:01
Dean formaður Demókrataflokksins Howard Dean, fyrrverandi forsetaframbjóðandi, verður næsti formaður bandaríska Demókrataflokksins. Eini keppinautur hans dró framboð sitt til baka í gærkvöldi. 8.2.2005 00:01
Hubble-sjónaukinn brotlendir Geimsjónaukinn Hubble er á leiðinni til jarðar. Lendingin verður ekki mjúk því hjá bandarísku geimferðastofnuninni NASA telja menn Hubble úreltan og ætla að láta hann brotlenda til að koma í veg fyrir að hann verði að geimrusli á sporbraut um jörðu. Mikið slíkt rusl er á sveimi þar og veldur bæði skemmdum á gervihnöttum og öðrum búnaði. 8.2.2005 00:01
23 látnir í Írak Að minnsta kosti 23 hafa látið lífið í Írak í morgun. Tuttugu og einn lést og 27 slösuðust í sprengjuárás sem varð nærri ráðningarstöð hersins í Bagdad. Þá reyndu uppreisnarmenn að myrða stjórnmálamann í vesturhluta borgarinnar í morgun. Hann komst lífs af en tveir synir hans voru myrtir. 8.2.2005 00:01
Fjórir afrískir karlmenn stöðvaðir Fjórir afrískir karlmenn voru stöðvaðir í Leifsstöð á laugardag. Tveir þeirra verða sendir úr landi í dag en tveir verða líklega ákærðir fyrir brot á útlendingalögum. 8.2.2005 00:01
Haraldur hættir hjá HB Granda Sturlaugur Sturlaugsson frá HB á Akranesi, sem verið hefur forstjóri HB Granda, lætur af því starfi. Kristján Þ. Davíðsson, sem verið hefur aðstoðarframkvæmdastjóri, mun sömuleiðis láta af störfum. Eggert Benedikt Guðmundsson, sem verið hefur markaðsstjóri HB Granda, verður forstjóri í stað Sturlaugs. 8.2.2005 00:01
Fjögur lík fundin Lík fjögurra sjómanna af flutningaskipinu Jökulfelli sem sökk á leið til Íslands í gærkvöldi fundust á ellefta tímanum í morgun og er nú leitað þeirra tveggja sem enn er saknað. Líkin voru tekin um borð í færeyska varðskipið Tjaldinn. 8.2.2005 00:01
Afsögn páfa hugsanleg Afsögn páfa er hugsanleg. Æðsti embættismaður Páfagarðs léði í gærkvöldi máls á því og olli með því töluverðu uppnámi. 8.2.2005 00:01
Tímamótaávarp frá Rice Allir viðmælendur Condoleezzu Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, á Ítalíu veiktust og afboðuðu fundi sína með henni í morgun. Búist er við tímamótaávarpi frá henni í París síðdegis. 8.2.2005 00:01
Saka hvor annan um hræðsluáróður Spennan magnast á kjördegi í Danmörku. Tveir stærstu flokkarnir saka hvor annan um hræðsluáróður í dagblaðaauglýsingum. Stjórnin heldur velli samkvæmt nýrri skoðanakönnun en bæði Venstre og jafnaðarmenn missa þingsæti. Sighvatur Jónsson er í Danmörku. 8.2.2005 00:01
Fleiri gætu tengst málinu Lögregla útilokar ekki að fleiri menn tengist umfangsmiklu amfetamínssmygli hingað til lands. Tveir menn eru í haldi lögreglu vegna smygls á fjórum kílóum af amfetamíni. Annar þeirra smyglaði efninu til landsins en lögreglan náði hinum á hlaupum í Vesturbæ Reykjavíkur tveimur dögum síðar. 8.2.2005 00:01
Mannræningjarnir í sigtinu? Svo virðist sem sænska lögreglan sé á hælunum á ræningjunum sem rændu forstjóra verslunarkeðjunnar SiBa fyrir þremur vikum. Dómstóll í Gautaborg gaf í morgun út alþjóðlega handtökuskipun á hendur manni sem hún telur að dvelji utan Svíþjóðar. 8.2.2005 00:01
Friðaryfirlýsingar væntanlegar Sitthvor friðaryfirlýsingin er væntanleg í dag frá leiðtogum Palestínumanna og Ísraels en þeir hittust í morgun á friðarfundi í Egyptalandi. Samkvæmt því sem Raanan Gissin, talsmaður Ísraelsstjórnar, greindi frá í morgun munu Palestínumenn byrja á því að lýsa því yfir að ofbeldisverkum gegn Ísraelum verði hætt. 8.2.2005 00:01
Ítalska blaðakonan aflífuð? Hópur herskárra uppreisnarmanna í Írak segist hafa tekið ítölsku blaðakonuna, Giuliana Sgrena, af lífi. Hópurinn sendi tilkynningu frá sér í dag. Giuliönu var rænt á föstudag af öðrum hópi en nú segist hafa líflátið hana. 8.2.2005 00:01
Ráðinn til Vestnorræna ráðsins Þórður Þórarinsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Vestnorræna ráðsins frá og með 15. febrúar nk. Forsætisnefnd ráðsins samþykkti þetta á fundi sínum í Kaupmannahöfn á dögunum. 8.2.2005 00:01
Meirihlutinn sá sami Nýjustu skoðanakannanir Gallups benda til þess að þingmeirihluti hægri stjórnar Anders Fogh Rassmussens verði nákvæmlega sá sami eftir kosningar og hann er í dag, eða 98 sæti gegn 77 sætum stjórnarandstöðunnar. Engu að síður benda kannanir til þess að stærstu flokkar beggja blokka tapi fylgi en að minni flokkarnir bæti við sig. 8.2.2005 00:01
Ferðaskrifstofa Íslands sýknuð Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði Ferðaskrifstofu Íslands í morgun af tæplega sex milljóna króna skaðabótakröfu stúlku sem slasaðist í sumarfríi með fjölskyldu sinni í Portúgal fyrir fimm árum, en ferðin var farin á vegum ferðaskrifstofunnar. Stúlkan var þá 13 ára gömul og skarst hún í andliti þegar hún rakst á stiga í sundlaug við hótelið sem hún dvaldi á. 8.2.2005 00:01
Stúdentaráðskosningar í dag Stúdentar við Háskóla Íslands kjósa sér fulltrúa í Stúdentaráð og til Háskólafundar í dag og á morgun. Fjórir listar eru í framboði; hinar gamalgrónu hreyfingar Röskva og Vaka auk Háskólalistans og Alþýðulistans. 8.2.2005 00:01
Líknarskrá léttir á aðstandendum Tilkoma líknarskrár sem er að líta dagsins ljós hjá Landlæknisembættinu mun létta á aðstandendum, bæði hvað varðar umræður um ákvarðanatöku við læknismeðferð og eins varðandi líffæragjafir. Einstaklingur getur alltaf endurmetið ákvarðanir í líknarskrá sinni. </font /></b /> 8.2.2005 00:01
Fleira ræður en aldur fanga Það er ekki í öllum tilvikum heppilegt að vista unga fanga saman á sérdeild, segir Erlendur S. Baldursson hjá Fangelsismálastofnun. Hann bendir á að sumir afpláni vegna umferðalagabrota en aðrir fyrir gróf ofbeldisbrot. </font /></b /> 8.2.2005 00:01
Vill kanna þunglyndi eldri borgara Þunglyndi eldri borgara hér á landi hefur ekki verið sérstaklega rannsakað og engin stofnun innan heilbrigðisgeirans fæst á skipulagðan hátt við það, að sögn Ágústs Ólafs Ágústssonar alþingismanns. 8.2.2005 00:01
Ríflega 7.400 börn nota gleraugu Starfshópur sem hefur það hlutverk að meta þörfina á þátttöku ríkisins í gleraugnakostnaði barna og ungmenna yngri en 18 ára hefur verið settur á laggirnar. Reikna má með að ríflega 7.400 börn hér á landi noti gleraugu. 8.2.2005 00:01
Unglingsstúlkur fá lífstíðardóm Tvær unglingsstúlkur, 18 og 19 ára, voru í dag dæmdar í ævilangt fangelsi í Englandi fyrir að hafa sparkað og barið og stungið drukkinn miðaldra mann til bana. Þær staðhæfðu í vörn sinni að maðurinn hefði nálgast aðra stúlkuna í teiti sem hann hélt að heimili sínu, nuddað annan fót hennar og leitað eftir kynmökum við hana. 8.2.2005 00:01
Rafmagnslaust á höfuðborgarsvæðinu Rafmagnslaust er víða í Fossvogshverfi, hluta Hlíðahverfis og hluta Kópavogs. Talið er að háspennustrengur í Fossvogi hafi rofnað. Unnið er að viðgerð. 8.2.2005 00:01
Tíu sækja um hjá RÚV Tíu sækja um starf fréttastjóra Ríkisútvarpsins en umsóknarfrestur rann út í gær. Átta af umsækjendunum eru starfsmenn útvarpsins. 8.2.2005 00:01
Vopnahlé í Miðausturlöndum Leiðtogar Ísraels og Palestínu lýstu yfir vopnahléi eftir fund þeirra í Egyptalandi í dag en þjóðirnar hafa átt í blóðugri styrjöld síðastliðin fjögur ár. Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, sagði að nú væri von á betri framtíð í Miðausturlöndum í fyrsta sinn í langan tíma og Mahmoud Abbas, forseti Palestínu, tók í sama streng. 8.2.2005 00:01
Dollý-klónarar snúa sér að mönnum Vísindamennirnir sem klónuðu ána Dollý á sínum tíma hafa fengið leyfi til að klóna fósturvísa úr konum í því skyni að rannsaka sjúkdóma sem tengjast hreyfitaugakerfi mannsins. 8.2.2005 00:01
Rafmagn komið á Rafmagn er aftur komið á í Suðurhlíðum, Skógarhlíð, Eskihlíð og í Auðbrekku og Skólatröð í Kópavogi en rafmagnslaust varð þar um klukkan fjögur í dag þegar háspennustrengur við bensínstöð í Fossvogi var grafinn í sundur. Viðgerð tók skamma stund eða um 20 mínútur. 8.2.2005 00:01
Hermenn sviptir orðum Ellefu bandarískir landgönguliðar hafa verið sviptir heiðursmerkjum sem þeir fengu eftir að þeir særðust í Írak. Þegar kom í ljós að hermennirnir höfðu særst í slysum en ekki bardögum voru þeir sviptir orðum sem þeir fengu að því er bandaríska dagblaðið Washington Post segir. 8.2.2005 00:01
Ný friðarvon vaknar Leiðtogar Ísraels og Palestínu stigu skref í átt til friðar þegar þeir lýstu í gær yfir vopnahléi eftir meira en fjögurra ára átök. Mikið verk er þó enn óunnið og verða margvísleg mál sem tengjast friðarferlinu rædd á næstu vikum og mánuðum. 8.2.2005 00:01
Verkamannaflokkurinn í sókn Breski Verkamannaflokkurinn ynni öruggan sigur á andstæðingum sínum ef bresku þingkosningarnar færu fram í dag samkvæmt nýrri skoðanakönnun Populus fyrir breska dagblaðið The Times. 8.2.2005 00:01
Handtökubeiðni vegna mannráns Sænska lögreglan hefur fyrirskipað handtöku manns sem grunaður er um að eiga þátt í ráninu á sænska forstjóranum Fabian Bengtsson. Maðurinn er lagður á flótta og farinn frá Svíþjóð. 8.2.2005 00:01
Horfum til framtíðar Það er tími til kominn að snúa sér frá ágreiningsefnum fortíðarinnar og horfa til framtíðar, sagði Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, í ávarpi hennar við stjórnmálaakademíu Parísar. Hún vísaði þar til ágreiningsins um innrásina í Írak. 8.2.2005 00:01
Vígamenn breyta aðferðum sínum Aðferðir vígamanna virðast hafa breyst eftir því sem öryggisgæsla hefur verið efld til að koma í veg fyrir bílsprengjuárásir. Undanfarna daga hefur verið mikið um sjálfsmorðsárásir gangandi vígamanna sem hafa hlaðið sig sprengiefnum. 27 manns hið minnsta létu lífið í nokkrum árásum í Írak í gær. 8.2.2005 00:01
Jökulfell: Leit hætt í dag Leit hefur verið hætt að sinni að skipverjunum tveimur, sem enn er saknað af flutningaskipinu Jökulfelli sem sökk í gærkvöldi, vegna slæms veðurs. Leitin mun hefjast aftur í fyrramálið. 8.2.2005 00:01
Ekki vilja allir heyra íslensku Njáll Eiðsson hefur lengi verið viðloðandi knattspyrnuna en hann er jafnframt grunnskólakennari og er því annt um ungviðið. Hann er þó ekki þeirrar skoðunar að íslenskri tungu sé sérstök hætta búin þótt fótboltalýsingar séu á ensku. 8.2.2005 00:01