Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Hilmir Snær hættir Hilmir Snær Guðnason sagði upp föstum samningi sínum við Þjóðleikhúsið í byrjun vetrar, eftir rúma áratuga fastráðningu. Á þeim tíma hefur hann leikið fjölmörg burðarhlutverk í leikritum hússins. 21.1.2005 00:01
Áhersla á ufsa Árni M. Mathiesen, sjávarútvegsráðherra, var viðstaddur við opnun Grænu vikunnar í Berlín daganna 20.-21. janúar. Heimsótti hann meðal annars sýningarbás þar sem Árni Simsen matreiðslumaður matreiddi íslenskan ufsa að viðstöddum gestum. 21.1.2005 00:01
Höfuðblæjur má banna Hæstiréttur Danmerkur komst að þeirri niðurstöðu að stórmarkaðurin Føtex mátti banna íslömskum konum að bera höfuðblæju í vinnunni og reka 26 ára konu sem neitaði að taka blæjuna niður. 21.1.2005 00:01
Vinna fyrir hjálpargögnum Fórnarlömb hamfaranna í Asíu eru nú látin vinna fyrir hjálpargögnunum sem dreift er þar sem sérfræðingar hjálparstofnana óttast að öðrum kosti verði hundruð þúsunda háð gjöfum. Neyðarhjálp er nú víða lokið og uppbygging tekin við. 21.1.2005 00:01
Uppnám í laxveiði Borgarfirði Jón Ingvarsson, Sigurður Helgason og fleiri sem leigja Þverá í Borgarfirði, standa í vegi fyrir endurnýjuðu samkomulagi um upptöku laxaneta Hvítá. Þeir vilja ekki að heildargreiðslan til netabænda hækki úr 14,7 milljónum króna á ári í 16,5 milljónir. Formaður Veiðifélags Hvítár segir hægt að veiða í net undan Þverá en semja við aðrar ár. 21.1.2005 00:01
Aldraðir sætta sig við ellina Langflestir aldraðra hér á landi virðast sætta sig við ellina, samkvæmt nýlegum rannsóknum. Sjúkdómar tengdir kvíða eru sjaldgæfari hjá öldruðum en yngra fólki. 21.1.2005 00:01
Stuðningurinn aldrei ræddur Utanríkismálanefnd fjallaði aldrei um hugsanlegan stuðning Íslendinga við innrás Bandaríkjamanna og Breta á fundum sínum veturinn 2002 til 2003. Málefni Íraks komu til umræðu á tveimur fundum. </font /></b /> 20.1.2005 00:01
Breytir engu um vald ráðherra Björn Bjarnason dómsmálaráðherra segist ekki taka þátt í því sem hann kallar "leik" sem skipti engu máli. Fulltrúum stjórnarandstöðu og Framsóknarflokksins í utanríkismálanefnd ber saman um að ákvörðunin um stuðninginn við innrásina í Írak hafi aldrei verið rædd í utanríkismálanefnd. </font /></b /> 20.1.2005 00:01
Gæti fengið flýtimeðferð þings Bobby Fischer hefur beðið ríkisstjórn Íslands um ríkisborgararétt að sögn Sæmundar Pálssonar, vinar skákheimsmeistarans fyrrverand, eftir að japönsk stjórnvöld höfnuðu ósk hans um að fá að nýta sér dvalarleyfi á Íslandi. Samkvæmt stjórnarskránni þarf lagasetningu Alþingis til að veita erlendum manni ríkisborgararétt á Íslandi. Það mál kemur til kasta allsherjarnefndar þingsins að fengnum tillögum dómsmálaráðuneytis. 20.1.2005 00:01
Sjálfsmorðsárás í Afganistan Tveir slösuðust í sjálfsmorðsárás utan við mosku í norðurhluta Afganistans í morgun. Afganskur yfirhershöfðingi sem var við bænir inni í moskunni slapp ómeiddur en talið er að tilræðið hafi beinst gegn honum. 20.1.2005 00:01
Húsnæðisverð mun hækka meira Sérfræðingar Íslandsbanka spá því að að húsnæðisverð hækki jafnvel enn meira í ár en í fyrra en þá hækkaði íbúðaverð í sérbýli um 25 prósent og um 17 prósent í fjölbýli. Þessa spá byggir bankinn á greiðari aðgangi að lánsfjármagni með tilkomu húsnæðislána bankanna, rýmri lánaheimildum Íbúðalánasjóðs, lækkandi raunvöxtum og auknum kaupmætti. 20.1.2005 00:01
Viðvörun frá FBI Bandaríska alríkislögreglan hefur hefur sent út leitarviðvörun vegna fjögurra Kínverja sem hugsanlega eiga aðild að hryðjuverkasamtökum og gætu verið á leiðinni til Boston. Alríkislögreglunni barst símhringing frá ónafngreindum aðila í gær þar sem varað var við Kínverjunum sem ekki hafa komið áður við sögu lögreglu í Bandaríkjunum. 20.1.2005 00:01
Geysileg öryggisgæsla í Washington Sex þúsund lögreglumenn og 2500 hundruð hermenn verða í viðbragðsstöðu vegna embættistöku George Bush Bandaríkjaforseta sem fram fer í Washington í dag. Þetta er í fyrsta sinn sem forseti Bandaríkjanna er svarinn í embætti eftir hryðjuverkin þann 11. september árið 2001 og tekur öryggisgæslan mið af því. 20.1.2005 00:01
Óvenju góður loðnuafli Loðnuaflinn frá áramótum er kominn yfir 80 þúsund tonn sem er óvenju góður afli. Skipin eru ýmist á veiðum, á landleið með fullfermi eða á útleið eftir löndun. Að minnsta kosti tvö stór loðnuskip sem ekki eru á veiðum fara á miðin og dæla í sig afla úr veiðarfærum annarra skipa til þess að flytja hann í land svo hin skipin geti haldið veiðum áfram. 20.1.2005 00:01
Lokaáfrýjun Janúkovítsj hafnað Hæstiréttur Úkraínu staðfesti í gærkvöldi að Viktor Júsjenkó hefði sigrað forsetakosningarnar í Úkraínu sem haldnar voru á annan í jólum. Lokaáfrýjun Viktors Janúkovítsj var hafnað og eru honum því endanlega allar bjargir bannaðar. Fastlega er reiknað með því að Júsjenkó sverji embættiseið um helgina. 20.1.2005 00:01
38 merkur við fæðingu Drengur sem vó þrjátíu og átta merkur við fæðingu fæddist í Brasilíu í gær. Ademilton Dos Santos er stærsta barn sem fæðst hefur í Brasilíu og er stærð hans þegar á við meðalstórt hálfs árs gamalt barn. Það þarf því vart að koma á óvart að hann hefur þegar hlotið viðurnefnið „Risabarnið“. 20.1.2005 00:01
Skíðasvæði Ísfirðinga opnar í dag Skíðasvæði Ísfirðinga í Tungudal verður opið frá klukkan tvö og fram á kvöld enda frábært veður á svæðinu, sól og blíða, en 4-6 stiga frost, logn og léttskýjað. Göngubrautir verða tilbúnar klukkan tólf við verslunarmiðstöðina á Skeiði. 20.1.2005 00:01
Skref í friðarátt Palestínumenn lögðu í dag fyrir Ísraela ítarlega áætlun um hvernig öryggissveitum verði beitt til þess að stöðva árásir á ísraelskar landnemabyggðir á Gasasvæðinu. Háttsettur foringi í öryggissveitum Palestínumanna sagði að þeir væru reiðubúnir að senda sveitirnar inn hvenær sem er; þeir biðu bara eftir viðbrögðum Ísraela við áætluninni. 20.1.2005 00:01
Rice viðurkennir mistök í Írak Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, viðurkenndi í gær að ríkisstjórn George Bush hefði gert ýmis mistök í Írak. Til dæmis hefði stjórnin ekki búist við að það yrði svona erfitt að koma á stöðugleika í landinu eftir að Saddam Hussein var steypt af stóli. 20.1.2005 00:01
Esso og Olís taka til baka hækkun Bæði Esso og Olís hafa tekið til baka tveggja krónu hækkun á bensínlítrann frá því fyrr í vikunni en hvorki Skeljungur né Atlantsolía hækkuðu verðið í kjölfar hinna. Þessi atburðarás gefur óneitanlega vísbendingu um samkeppni. 20.1.2005 00:01
Meirihluti 1-7 ára barna fórst Svo virðist sem meirihluti barna á aldrinum 1-7 ára hafi farist þegar flóðbylgjan skall á Aceh-héraði í Indónesíu á annan í jólum. 20.1.2005 00:01
Óþreyjufullar eftir hrútnum Kindurnar í Suðurey í Vestmannaeyjum eru orðnar svo óþreyjufullar eftir að hrúturinn komi til þeirra úr landi nú á fengitímanum að þær hlaupa fram klettabrúnirnar í hvert skipti sem þær heyra í báti sigla hjá, í von um að þar sé kavalerinn um borð á leið til þeirra. 20.1.2005 00:01
Beiðni Fischers umdeild Bobby Fischer hefur póstlagt beiðni um íslenskan ríkisborgararétt. Stjórnvöld hafa ekki tekið afstöðu en formanni Vinstri grænna líst ekki vel á að veita Fischer ríkisborgararétt án þess að huga að fordæminu sem það skapi. Formanni Samfylkingarinnar líst hins vegar mjög vel á og segir Fischer hafa sérstöðu umfram aðra sem sækja um íslenskt ríkisfang. 20.1.2005 00:01
Eyrarrósin afhent í dag Eyrarrósin verður afhent á Bessastöðum klukkan þrjú í dag en hún er viðurkenning fyrir framúrskarandi menningarverkefni á landsbyggðinni. Rokkhátíð alþýðunnar á Ísafirði, „Aldrei fór ég suður“, listahátíðin „Á seyði“ á Seyðisfirði og Þjóðlagahátíðin á Siglufirði eru þau þrjú verkefni sem verða sérstaklega kynnt úr hópi fjölmargra tilnefndra. 20.1.2005 00:01
Hálka víða um land Hálka er víða á Suðurlandi og á Mosfellsheiði er þæfingsfærð og skafrenningur. Þá er hálka á Vesturlandi og hálka og snjóþekja á Vestfjörðum. Á Norður- og Austurlandi er einnig víða hálka, snjóþekja, snjókoma og skafrenningur. Á Breiðdalsheiði er hálka og éljagangur og ófært er um Öxi. 20.1.2005 00:01
Amnesty skorar á Bush Amnesty International hvetur Bush Bandaríkjaforseta til að binda enda á pyntingar og fara að alþjóðalögum í áskorun sem samtökin hafa sent forsetanum. Þar segir að Bandaríkin brjóti mannréttindi á föngum sem þeir hafa í haldi vegna stríðsins gegn hryðjuverkum. 20.1.2005 00:01
Landslag á Títan líkt því íslenska Landslag á Títan, fylgitungli Satúrnusar, er um margt líkt því sem er á Íslandi - nema hvað þar er ekkert líf að finna segja vísindamenn. 20.1.2005 00:01
Maður ársins á Suðurnesjum Víkurfréttir hafa útnefnt Tómas J. Knútsson mann ársins á Suðurnesjum 2004 en hann er þekktur fyrir störf sín að umhverfismálum. Tómas er stofnandi og formaður Bláa hersins, samtaka sem berjast fyrir hreinsun og verndun umhverfisins. 20.1.2005 00:01
Sví tekinn af lífi Írakskir uppreisnarmenn segjast hafa rænt og tekið af lífi sænskan og breskan ríkisborgara í borginni Beiji í miðhluta Írak. Þeir segja að mennirnir hafi unnið fyrir vantrúaða og því hafi þeir tekið þá af lífi. 20.1.2005 00:01
786 Svía enn saknað Sænska lögreglan hefur gert nýjan lista yfir þá sem saknað er eftir hamfarirnar í Suðaustur-Asíu. 786 manns eru á listanum og hefur þeim sem saknað er þannig fækkað um rúmlega eitthundrað. Af þessum eru 400 sem lögreglan hefur ýmis konar upplýsingar um sem hægt er að nota til að bera kennsl á lík þeirra, svo sem DNA-sýni og tannlæknaskýrslur. 20.1.2005 00:01
Júsjenko heimsækir Rússland Nýkjörinn forseti Úkraínu, Viktor Júsjenko, ætlar að heimsækja Rússland strax eftir að hafa verið settur inn í embætti á sunnudag. Stjórnvöld í Rússlandi studdu keppinaut hans, Viktor Janúkovítsj, í kosningabaráttunni en Valdimír Pútín Rússlandsforseti hefur boðið Júsjenko velkominn. 20.1.2005 00:01
Garðar lætur af formennsku í ÖBÍ Emil Thóroddsen, varaformaður Öryrkjabandalags Íslands, hefur tekið við formennsku af Garðari Sverrissyni sem lætur af störfum af heilsufarsástæðum. Frá þessu var gengið á fundi framkvæmdastjórnar bandalagsins í dag. 20.1.2005 00:01
Hákon Eydal fellur frá kröfunni Hákon Eydal, sem hefur viðurkennt að hafa banað barnsmóður sinni Sri Rhamawati, hefur fallið frá kröfu um nýja geðrannsókn. Við þingfestingu málsins gegn honum fyrr í mánuðinum gerði hann þessa kröfu og var milliþinghald um það í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. 20.1.2005 00:01
Ríflega 600 nýir ríkisborgarar Á síðasta ári var 637 útlendingum veittur íslenskur ríkisborgararéttur, að því er fram kemur hjá dóms- og kirkjumálaráðuneytinu. 20.1.2005 00:01
Segja ríkið hafa gefið grænt ljós Undirbúningur byggingar nýs hátæknisjúkrahúss á Landspítalasvæðinu er hafinn af fullum krafti. Formaður uppbyggingarnefndar lítur svo á að ríkið hafi gefið grænt ljós með lóðasamningum við Reykjavíkurborg og heimild til undirbúningsvinnu. </font /></b /> 20.1.2005 00:01
Guðni hugsaði ekki nógu vítt Framsóknarmaðurinn Valgerður Sverrisdóttir viðskiptaráðherra ræðir á heimasíðu sinni um átökin varðandi Íraksmálið. Þar segir hún að ummæli Guðna Ágústssonar, varaformanns flokksins, um að tveir menn hefðu tekið ákvörðunina um stuðning við Íraksinnrásina beri vott um að hann hafi ekki hugsað nógu vítt og verið að reyna að spila frítt. 20.1.2005 00:01
Enginn hungurdauði á flóðasvæðum Enginn þeirra sem lifðu af hamfarirnar við Indlandshaf fyrir tæpum mánuði mun deyja af völdum hungurs, fullyrðir Tony Banbury, yfirmaður matvælaaðstoðar Sameinuðu þjóðanna. "Við munum koma mat til allra þeirra sem þess þarfnast," sagði hann eftir heimsókn í þorp á vesturströnd Indónesíu. 20.1.2005 00:01
Ráðherra kallar Rice fasista Ráðherra í Simbabve vísar á bug fullyrðingum Condoleezza Rice, verðandi utanríkisráðherra Bandaríkjanna, um að Simbabve sé eitt af harðstjórnarríkjum heims. "Við höfum ekki áhyggjur þegar fasistar gera svona athugasemdir," sagði Didymus Mutasa, ráðherra gegn spillingu, í viðtali við BBC. 20.1.2005 00:01
Fjölga áhlaupum í Írak Níu voru handteknir og vopn gerð upptæk í áhlaupi bandaríska hersins í írösku borginni Mosul í fyrrinótt. Bandaríski herinn hefur fjölgað áhlaupum til að handtaka andspyrnumenn sem hafa hótað ófriði í væntanlegum kosningum. Stærstu götum Bagdad hefur verið lokað eftir tíðar bílsprengjur undangengna daga. 20.1.2005 00:01
Skutu dreng til bana Þrettán ára drengur var skotinn til bana af ísraelskum hermönnum á Vesturbakkanum í gær eftir að hann beindi leikfangabyssu að þeim. 20.1.2005 00:01
Ísland örum skorið Tíu náttúruverndarsamtök gefa út kortið "Ísland örum skorið" sem sýnir hvaða breytingar verða á miðhálendi Íslands ef stóriðjuáform stjórnvalda ná fram að ganga. Af því tilefni verður opinn kynningarfundur á Hótel Borg klukkan 13 í dag. 20.1.2005 00:01
Zapatero vill frið við ETA Jose Zapatero, forsætisráðherra Spánar segist munu grípa minnsta tækifæri til að tryggja varanlegan frið í Baskahéruðum Spánar en aðeins með því skilyrði að ETA, aðskilnaðarhreyfing Baska, leggi niður vopnin. 20.1.2005 00:01
Vill aðra rannsókn á Kúrsk Rússneskur lögfræðingur hefur farið fram á það við Mannréttindadómstól Evrópu að slys kafbátsins Kúrsk, sem fórst árið 2000, verði rannsakað aftur þar sem fyrri rannsókn málsins hafi verið ábótavant. Rússneskir dómstólar höfnuðu því að taka málið upp aftur í desember í fyrra. 20.1.2005 00:01
Nýr formaður Öryrkjabandalagsins Emil Thóroddsen tók við formennsku í Öryrkjabandalagi Íslands í gær en Garðar Sverrisson lét af formennsku af heilsufarsástæðum. 20.1.2005 00:01
Stuðningurinn stefnubreyting Halldór Ásgrímsson hafði lýst afdráttarlausri afstöðu ríkisstjórnarinnar varðandi Írak á fundi mánuði fyrir innrás. Þar sagði hann að ef til aðgerða gegn Írak kæmi, yrðu þær einungis gerðar með samþykki öryggisráðsins. Annað kom á daginn. </font /></b /> 20.1.2005 00:01